Morgunblaðið - 20.03.1982, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK
62. tbl. 69. árg.
LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Pólland:
Herinn reyndi að hrifsa
til sín matvælaaðstoðina
Pólitísk frœðsla
Pólskur herforingi með fyrir-
lestur í stúlknabekk í skóla í
Varsjá. Háttsettir menn í
hernum koma í alla skóla í
landinu til að segja nemend-
um frá „upplausninni“, sem
Samstaða hafi valdið og
nauðsyn herlaganna.
Al*-simamynd.
Hótaði ella að loka landamær-
unum fyrir vestrænni hjálp
KrusM‘1, Varsjá, 19. mars. Al\
POI.SK stjórnvöld hótuðu að loka
landamærunum fyrir matvælaaðstoð
frá Ve.sturlöndum seint í síðasta mán-
uði ef kirkjan féllist ekki á, að að-
stoðin færi öll um hendur herstjórn-
arinnar. Frá þessu skýrðu í dag Sam-
stöðumenn, sem eru í útlegð i Belgíu,
og sögðu þeir, að kirkjunnar menn
hefðu eindregið neitað þessari kröfu.
Fréttir berast um að matvælabirgðir
Snjómokstri
lýkur með
brotlendingu
Stokkhólmi, 19. mars. Al\
SVÍI nokkur í bænum Borás, sem
ætlaði að ryðja snjó af þakinu á
húsi sínu, varð fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu á dögunum
að verða að fljúga nauðugur viljug-
ur yfir nágrennið og brotlenda loks
í limgerði eins granna síns.
Maðurinn, sem ekki vill láta
nafns síns getið, ætlaði eins og
fyrr er sagt að moka snjónum af
þakinu en í Svíþjóð eru allir góð-
ir þegnar hvattir til að gera það
reglulega. Hann batt því band
um sig miðjan og vegna þess, að
enginn skorsteinn var á húsinu,
batt hann hinn endann við stuð-
arann á bílnum sínum, sem stóð
á hiaðinu.
Hér hefði sögunni átt að ljúka
nema fyrir það, að eiginkonan,
sem vissi ekkert um framtaks-
semi húsbóndans, ákvað skyndi-
lega, að hún þyrfti á bílnum að
halda til að komast í verslanir.
Hún settist því undir stýri og
keyrði af stað alls óvitandi um
það í fyrstu, að maðurinn hennar
fylgdi bílnum eftir í háloftunum.
Bílinn stöðvaði hún ekki fyrr en
hún heyrði hávaðann af brot-
lendingu manns síns en hann
handleggsbrotnaði, fótbrotnaði
og braut fjögur rif.
Borás-búinn verður að halda
kyrru fyrir næstu vikurnar enda
líkari myndastyttu en manni í
öllum gifsumbúðunum.
séu á þrotum í Póllandi, jafnt hjá
stjórnvöldum sem almenningi.
Pólverjarnir útlægu sögðu, að á
leynilegum fundi í Varsjá seint í
fyrra mánuði hefðu fulltrúar her-
stjórnarinnar krafist þess af leið-
togum kirkjunnar, að þeir létu öll
matvæli og iyf frá Vesturlöndum í
hendur hernum, ella yrði landa-
mærunum lokað fyrir slíkum flutn-
ingum. Fulltrúar kirkjunnar hót-
uðu á móti að biðja Vesturlönd að
hætta allri aðstoð ef herstjórnin
framfylgdi kröfu sinni með valdi.
Kaþólska kirkjan í Póllandi sér
um næstum alla aðstoð, sem berst
frá Vesturlöndum, og úthlutar
henni til þurfandi fólks og þeirra
sem eru í fangabúðum hersins.
Samstöðumennirnir segja, að mat-
væli, sem herstjórnin hafi birgt sig
með áður en herlögin voru sett, séu
nú að ganga til þurrðar og af þeim
sökum sé vorkoman í Póllandi eng-
inn fagnaðarboði í hennar augum.
Heræfingum Pólverja, Rússa og
Austur-Þjóðverja lauk í dag í Pól-
landi, þeim fyrstu frá því að her-
lögin voru sett í landinu. Þær hóf-
ust 13. mars, á þriggja mánaða af-
mæli valdatöku hersins. I málgögn-
um herstjórnarinnar sagði í dag, að
Bandaríkjastjórn hefði lýst yfir
„matarstríði" á hendur Pólverjum
og að hún og aðrar kapitalískar
ríkisstjórnir litu á matvæli sem
„pólitískt vopn". Tilkynnt var í Pól-
landi fyrr í vikunni, að framleiðsla
kjöts og unninna kjötvara væri nú
aðeins þriðjungur þess, sem var
fyrir ári. Búist er við, að kjöt-
skömmtunin í landinu verði enn
hert.
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu,
sem nú er í haldi herstjórnarinnar,
verður gerður að heiðursdoktor við
Macmurray-háskólann i Illinois í
Bandaríkjunum 23. maí nk. vegna
baráttu hans gegn kúgun og ófrelsi.
Reynt verður að fá einhvern ætt-
ingja Walesa, sem sumir búa í
Bandaríkjunum, eða fulltrúa
bandarískra mannréttindasamtaka
til að vera viðstaddur er Walesa
verður heiðraður, enda ekki gert
ráð fyrir að hann geti það sjálfur.
Nicaraguæ
„Föðurlandsskattur“
á öll einkafyrirtæki
Managua, 19. mars. Al\
RÍKISSTJÓRN Sandinista í Nicaragua ætlar að leggja „fóður-
landsskatt" á öll einkafyrirtæki til að fjármagna varnir landsins
gegn væntanlegri innrás, sem hún segir, að bandaríska leyniþjónust-
an sé með í undirbúningi. bessar fréttir voru í dag hafðar eftir
háttsettum embættismanni í Nicaragua.
Daniel Ortega, varnarmálaráð-
herra Nicaragua, sagði, að þessi
skattur, sem yrði lagður á næstu
daga, væri óhjákvæmilegur því að
varnir þjóðarinnar væru svo fjár-
frekar, að húsbyggingar í landinu,
skólahald og ýmsar ríkisfram-
kvæmdir myndu stöðvast innan
hálfs árs ef ekki yrði leitað nýrra
leiða. Sl. mánudag afnam her-
stjórnin í Nicaragua öll mannrétt-
indi, kom á ritskoðun og lýsti yfir
neyðarástandi og var ástæðan sú,
að tvær mikilvægar brýr höfðu ver-
ið sprengdar í loft upp.
Sandinistar hafa stöðugt verið að
þrengja hag einkafyrirtækja í land-
inu síðan þeir tóku völdin í júlí 1979
og er haft eftir sjálfstæðum at-
vinnurekanda, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, að S.R. Mercado,
einn úr herstjórninni, hefði sagt, að
nú væri öll efnahagsstarfsemi í
landinu miðuð við þarfir hersins
vegna væntanlegrar innrásar. Er-
lendir fréttamenn í landinu segja
frá miklum umsvifum hersins í höf-
uðborginni, Managua.
Síðastliðinn mánudag gerðu her-
menn Sandinista upptækt vegabréf
eins helsta leiðtoga stjórnarand-
stöðunnar í landinu, Alfonso Robel-
os, í þann mund sem hann ætlaði til
San Jose á Costa Rica.
Ríkisstjórn Sandinista krafðist í
dag fundar í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna vegna þess, að „vaxandi
hætta“ væri á íhlutun Bandaríkja-
hers í Mið-Ameríku.
Kjötútflutningur
af völdum gin- og
Dana að stöðvast
klaufaveikinnar
Kaupmannahofn, 19. mars.
Frá frétUriUra Mbl. og AP.
HEITA mátti, að allur útflutningur
svína- og nautakjöts frá Danmörku
væri að stöðvast í dag, föstudag, en
i gær fannst gin- og klaufaveiki á
bæ einum á Fjóni. Danir óttast að
veikin hafi borist til landsins með
vindum frá Austur-Þýskalandi, en
þar kom hún upp á tveimur stöðum
sl. mánudag og þriðjudag.
Svíar, Norðmenn og Finnar
hafa bannað allan kjötinnflutning
frá Danmörku en Japanir, Banda-
ríkjamenn, Kanadamenn og
nokkrar Suður-Ameríkuþjóðir
hafa um stundarsakir stöðvað
uppskipun á dönsku kjöti úr skip-
um, sem ýmist eru komin í höfn
eða á leið til hafnar i þessum lönd-
um. Danir binda þó vonir við, að
strangar varnaraðgerðir þeirra
verði til þess, að banninu verði af-
létt fljótlega.
í dönskum sláturhúsum hlaðast
nú upp kjötbirgðir og eru sölu-
samtök bænda þegar farin að
huga að nýjum mörkuðum í stað
þeirra, sem tapast e.t.v. um ófyr-
irséða framtíð. Ef gin- og klaufa-
veikin breiðist út og bann við út-
flutningi danskra landbúnaðaraf-
urða dregst á langinn mun það
valda Dönum gífurlegu tjóni.
Danskt svínakjöt er rómað um all-
an heim og á síðasta ári fluttu
Danir út svína- og nautakjöt fyrir
rúma 20 milljarða ísl. kr.
Veikin kom upp á einum bæ á
Fjóni, um 140 km suðvestur af
Kaupmannahöfn, og fannst í öll-
um gripum, 25 talsins, í öðru fjósi
bóndans. I hinu fjósinu fannst
ekkert. Tíu km svæði umhverfis
bæinn hefur verið einangrað og
strangur lögregluvörður hafður
um það. Síðast varð vart gin- og
klaufaveiki í Danmörku 1970.
Ýmsar getgátur eru uppi um
hvernig veikin hefur borist til
Danmarkar og hölluðust menn í
fyrstu að því, að hún hefði borist
með farfuglum á norðurleið. Nú
þykir hins vegar líklegra, að hún
hafi borist með vindum frá
Austur-Þýskalandi.
Engar verö-
hækkanir
í Bretlandi
l.undúnum, 19. marz. Al\
í FKBRI AR uróu ckki hækkanir á
meóalverði i Brellandi og er það í
fyrsta sinn í tólf ár sem engar verð-
hækkanir verða, að því er skýrt var
frá af hálfu brezku stjórnarinnar í
dag. Þar sem verðlag stóð í staö dró
úr veröbólguhraðanum, sem í febrúar
var 11%, en var í janúar 12%.
Mjög léttist brúnin á stjórnar-
sinnum við þessi tíðindi, en eitt
helzta markmið Margrétar Thatch-
er forsætisráðherra er að ná verð-
bólgunni niður fyrir 10% á þessu
ári. Atvinnuleysi hefur tvöfaldazt á
þeim þremur árum sem Thatcher-
stjórnin hefur verið við völd og er
nú svo komið að 12,6% vinnufærra
manna í landinu ganga um iðju-
lausir.