Morgunblaðið - 20.03.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982
13
Hagstæð innlánsþróun Verzlun-
arbankans er einnig rakin til fjöl-
breyttari þjónustu hans við við-
skiptamenn, sérstaklega einstakl-
inga og aukinnar kynningar á al-
hliða starfsemi bankans.
Útlán
Heildarútlán bankans í árslok
námu 240,4 milljónum, þar af er
hlutur Verzlunarlánasjóðs 65,5
milljónir. Útlánaaukningin á ár-
inu er 110 milljónir eða 85,1%.
Vegna vaxtastefnunnar hefur
samsetning útlána breyst. Víxil-
lán og yfirdráttarlán lækkuðu úr
50,9% í 35,0% eða um 15,9% en
skuldabréfalán og vísitölutryggð
lán hækkuðu um sama hlutfall eða
úr 46,7% í 62,6%.
Töluverð breyting hefur einnig
orðið á útlánum bankans eftir
lántakendum. Mest af lánsfé
bankans fer enn til atvinnuvegar-
ins verzlun og viðskipti eða 45,6%.
Lán til einstaklinga hækkuðu
verulega á árinu og námu þau i
árslok 33% af heildarútlánum
bankans.
Bankinn leggur áherzlu á fjöl-
breytta þjónustu fyrir viðskipta-
menn.
Auk Safnlána og fjármálalegrar
ráðgjafarþjónustu fyrir einstakl-
inga kynnti bankinn á síðasta ári
nýja þjónustu fyrir launþega,
svonefnd Launalán. Hafa þessar
nýjungar mælst mjög vel fyrir og
fært bankanum vaxandi viðskipti.
Verzlunarlánasjóður
Stofnlánadeild bankans, Verzl-
unarlánasjóður, veitti 139 ný lán á
árinu að upphæð 32,7 milljónir.
Jukust lánveitingar Verzlunar-
lánasjóðs um 99,5% á árinu. ÖIl
lán Verzlunarlánasjóðs fara að
sjálfsögðu til atvinnuvegarins
verzlun og viðskipti og þegar þau
eru talin með lánum bankans
sjálfs þá nema þau samtals 25,1%
af heildarlánum allra innláns-
stofnana í landinu til einkaverzl-
unarinnar. Lánskjör Verzlunar-
lánasjóðs eru 4% vextir og verð-
tryggð miðað við lánskjaravísi-
tölu. Hámarkslánstími hefur verið
12 ár en nú hefur lögum um Verzl-
unarlánasjóð verið breytt, þannig
að heimilt er að lánstími verði allt
að 25 ár.
Vidskipti við Seðlabanka
Bundið fé í Seðlabankanum var
í árslok 68,2 milljónir og hækkaði
það um 94% á árinu. Á síðasta ári
var tekin upp svokölluð sveigjan-
leg innlánsbinding við Seðlabank-
ann til viðbótar hinni almennu
innlánsbindingu, sem er 28%.
Sveigjanlega bindingin var sett á í
júní og var 5% mestan hluta árs-
ins. Þessi aukna innlánsbinding
þrengdi mjög útlánagetu bankans
og reyndist nauðsynlegt að draga
saman útlán af þeim sökum. Þá
rýrði hún mjög lausafjárstöðuna.
Hinni sveigjanlegu bindingu var
síðan aflétt í desember vegna erf-
iðrar lausafjárstöðu innlánsstofn-
ana.
Pétur O. Nikulásson stórkaup-
maður, sem verið hefur í aðal-
stjórn bankans í 8 ár, þar af for-
maður síðustu 4 árin, gaf ekki
lengur kost á sér til stjórnar-
starfa. Voru honum þökkuð giftu^
drjúg störf í þágu bankans. í
bankaráð voru kjörnir Sverrir
Norland verkfræðingur, formaður,
Árni Gestsson stórkaupmaður og
Þorvaldur Guðmundsson forstjóri.
Fyrir voru í bankaráðinu sem
aðalmenn Guðmundur H. Garð-
arsson viðskiptafræðingur og
Leifur ísleifsson kaupmaður. I
varastjórn voru kjörnir Hilmar
Fenger, stórkaupmaður, Hreinn
Sumarliðason kaupmaður og
Kristmann Magnússon forstjóri.
Aðrir í varastjórn eru Hannes Þ.
Sigurðsson fulltrúi og Jónas Egg-
ertsson bóksali.
Endurskoðendur bankans voru
kjörnir Helgi V. Jónsson löggiltur
endurskoðandi, Magnús E. Finns-
son framkvæmdastjóri og Ólafur
H. Ólafsson framkvæmdastjóri.
(FrétUtilkynning.)
Gönguljóð og fleira
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Gerandinn ákveður sér göngu-
leið, sem hann merkir við á korti
af borginni Maastricht í Hol-
landi, þar sem hann var við nám,
er gjörningurinn átti sér stað.
Leggur svo af stað með 20 skilti í
farangrinum, eða jafn mörg og
orð ljóðsins sem hann hyggst
gróðursetja á hinni ákveðnu leið.
Með nokkuð jöfnu millibili, eða
þar sem það er framkvæman-
legt, stingur hann niður skiltun-
um einu og einu þannig að úr
verður samfelld röð. Gjörning-
inn nefnir hann „Poem to Walk“
— Gönguljóð, og það er svohljóð-
andi: „lf someone told you to
make your own problems or else
be happy tell him to send me your
thoughts“. — Þetta var gert í
apríl 1980 og ljósmyndað í bak
og fyrir, svo sem vera ber, til að
athöfnin væri bókuð og skjalfest
fyrir framtíðina. Gerandinn út-
skýrir athöfnina á þennan veg:
„This is the way to walk the
poem — but you can choose your
own poem walk and collect
words in another row. Þá fylgir
verkinu veggspjald (plakat), sem
sýnir nákvæmlega gönguleið
ljóðsins...
Að sjálfsögðu er pistilhöfund-
ur staddur í húsakynnum Ný-
listasafnsins að Vatnsstíg 3 og
er niðursokkinn við að skoða
sýningu ungs listamanns, sem er
skólaður í Myndlista- og hand-
íðaskólanum og fagurlistaskóla í
Maastricht, Hollandi. Sá ber
stolta nafnið Þór Elías Pálsson og
er ofangreint verk aðalverkið á
sýningunni, sem lýkur nk.
sunnudag. Ennfremur eru á sýn-
ingunni þrjú önnur verk, sem
byggð eru upp á myndröðum og
svo eins konar hljóðverk —
„corridor" — sem er raddflutn-
ingur í lofti, framkvæmdur 24.
nóvember 1981 á göngum Jan
van Eyck stofnunarinnar.
Ljósmyndirnar eru vel gerðar
og hugmyndirnar komast nokk-
urn veginn til skila og valda
a.m.k. róti í hugum skoðenda.
Sýningin er ágæt viðbót við
síðustu sýningarnar á þessum
stað og heimsóknar virði þeim er
fylgjast vilja með og kynnast
hugmyndafræðilegri list.
PEUGEOT BILASYNING
Laugardaginn 20. mars kl. lOtil 19
og sunnudaginn 21. mars kl. 13 til 19
Sýnum allar gerðir af PEUGEOT fólksbílum 1982
Mjög hagstætt verð
HAFRAFELL
Vagnhöfda 7, símar 85211 — 85505