Morgunblaðið - 20.03.1982, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982
Hjörleifur um steinullarverksmiðjuna:
„Kynnti málið í
þingflokknuma
„GARDAK er i hópi þingmanna Suó-
urlands, sem eru óánægAir með þessa
niAurstöðu, og ég er ekki undrandi á
því,“ sagAi lljörleifur G'uttormsson
iAnaAarráAherra í samtali við blaða-
mann MorgunhlaAsins í gær, er hann
var spurður álits á ummælum (iarðars
Sigurðssonar, alþingismanns í Morg-
unhlaðinu í gær. I*ar lýsti GarAar mik-
illi óána-gju með staðarval fyrir stein-
ullarverksmiðju, og gagnrýndi iðnað-
arráðherra harðlega fyrir, að hafa ekki
leitað samþykkis þingflokks Alþýðu-
handalagsins áður en ákvörðun var
lekin.
„Við ræddum þetta mál í þing-
flokknum á fundi í fyrradag," sagði
Hjörleifur. „Þar skýrði ég frá mál-
inu, og jafnframt sagði Garðar að
hann myndi styðja þingsályktunar-
tillögu þingmanns Suðurlands, sem
gengur í aðra átt. Formleg sam-
þykkt um þetta mál var hins vegar
engin gerð.“ Hjörleifur kvaðst ekki
Fyrsti fundur
Arnarflugs- og
Flugleiðamanna
FYKSTI fundur fulltrúa Arnarflugs
og Flugleiða hjá flugmálastjóra var
haldinn í gærmorgun, en fundurinn
var haldinn að frumkvæði sam-
gönguráðherra, sem vill að félögin
ræði sín á milli hugsanlega leiða-
skiptingu inn á Evrópu í áætlunar-
Bugi.
Þetta vill ráðherrann í kjölfar
þess að hann veitti Arnarflugi
áætlunarleyfi til Amsterdam,
Diisseldorf og Zúrich, en Flugleið-
ir hafa fyrir leyfi til Amsterdam
og Dússeldorf.
Samkvæmt upplýsingum Mbl.
gekk hvorki né rak á þessum
fyrsta fundi aðila, en gert er ráð
fyrir að aðilar haldi áfram að
ræða sín á milli undir stjórn
flugmálastjóra.
vilja gera mönnum í þingflokknum
upp skoðanir í þessu máli, ekki frek-
ar en ráðherrum, „en ég hygg að
meirihluti þingmanna Alþýðu-
bandalagsins sé á sömu skoðun og
ég í máli þessu. — A það verður hins
vegar að reyna, hvort þingsályktun-
artillaga Sunnlendinga hefur fylgi á
Alþingi.
— Nei, að öðru leyti hef ég ekkert
um ummæli Garðars að segja, og ég
hef engar athugasemdir við það að
menn komi þeim á framfæri á þann
veg sem hann hefur gert,“ sagði
Hjörleifur að lokum.
Jón G. Sigurð.sson
Lézt í bílslysi
MAÐURINN, sem lézt í bílslysi í
Fáskrúðsfirði sl. fimmtudag, hét Jón
Gunnlaugur Sigurðsson. Ilann var
29 ára gamall, fæddur 29. nóvember
1952. Ilann lætur eftir sig tvö böm.
Jón Gunnlaugur var Reykvík-
ingur en hafði verið sveitarstjóri
Búðahrepps í Fáskrúðsfirði frá ár-
inu 19TO. Hann var þekktur
íþróttamaður og lék um árabil
með meistaraflokki Víkings í
handknattleik. Einnig lék hann í
íslenzka landsliðinu.
Þórarinn Magnússon
skósmiður látinn
IHIRAKINN Magnússon, skósmið-
ur, lézt í Reykjavík í gærmorgun, 87
ára aA aldri. Var hann fæddur 29.
marz 1895 á Dýrastöðum í Norður-
árdal, Mýrasýslu.
Þórarinn nam skósmíði hjá
Stefáni Ólafssyni skósmíameist-
ara í Borgarnesi 1919—1922.
Fluttist hann til Reykjavíkur 1.
október 1922 og starfaði þar síðan
sem sjálfstæður skósmiður. Þór-
arinn var formaður Skósmiðafé-
lags Reykjavíkur 1938—48 og aft-
ur 1950—62, einnig formaður
Landssambands skósmiða frá
stofnun þess 1940 til 1960. Þá
starfaði hann að íþróttamálum frá
1924, aðallega hjá Glímufélaginu
Ármanni, Iþróttasambandi Is-
lands og Ungmennasambandi
Borgarfjarðar. Hann var lengi í
stjórn Borgfirðingafélagsins, var
gerður heiðursfélagi Glímufélags-
ins Ármanns 1945 og þá sæmdur
heiðurskrossi félagsins. Ennfrem-
ur var Þórarinn sæmdur gull-
merki ÍSÍ, gullmerki F’RÍ, gull-
merki IR, heiðursmerki UMSB úr
gulli og 50 ára afmæliskrossi ISÍ.
Einnig var Þórarinn fyrsti útlend-
ingurinn til að hljóta gullmerki
sænska skósmiðasambandsins.
Eftirlifandi eiginkona hans er
Ingibjörg Guðmundsdóttir. Lætur
hann eftir sig fimm börn.
Antonov 24-skrúfuþota frá Air Cubana kom við i Reykjavíkurflugvelli á leið sinni frá Kúbu sl. mánudag. Hafði
áhöfnin hér viðdvöl eina nótt og hélt flugvélin síðan til Shannon á írlandi á þriðjudag eftir að hafa tekið
eldsneyti. Ekki var vitað frekar um ferðir hennar i flugstjórn, en vélin hafði viðkomu á Gander á leið sinni til
íslands.
B-álma Borgarspítalans:
Ein hæð nothæf í ár
TILKOMA Framkvæmdasjóds aldr-
aðra, sem stofnaður var með lögum
vorið 1981 og fékk fé með 100 kr.
nefskatti í fyrra og 200 kr. nefskatti
i ár auk 11 milljóna kr. á fjárlögum,
hefur leitt til þess, að ríkið stendur
við fjárskuldbindingar sínar við
smíði B-álmu Borgarspítalans. í
B-álmunni verður öldrunardeild og
aðstaða fyrir aldraða langlegusjúkl-
inga. Ein hæð álmunnar verður að
líkindum nothæf í október, en óvissa
— ovissa um
hjúkrunarlið
ríkir um það, hvort unnt verði að
ráða þangað hjúkrunarfræðinga til
starfa.
Þetta kom fram í svari Öddu
Báru Sigfúsdóttur, borgarfulltrúa
Alþýðubandalagsins, við fyrir-
Talsverðar breytingar á
stjórn útgáfufélags Þjóðviljans
Ingi R. Helgason og Kjartan Ólafsson féllu út
NÝLEGA var kosin ný stjórn út-
gáfufélags Þjóðviljans og urðu á
henni nokkrar breytingar. Fjórir
nýir fulltrúar, þau Margrét
Björnsdóttir, Skúli Thoroddsen,
Ólafur Kagnar Grímsson og Þor-
björn Guðmundsson voru kosnir í
stjórnina, en meðal þeirra sem
duttu út, eru Ingi R. Helgason,
Kjartan Olafsson og Guðmundur
Ágústsson.
Auk þessara fjögurra eru í
stjórninni Adda Bára Sigfús-
dóttir, Svavar Gestsson, Ragnar
Árnason, Svanur Kristjánsson og
Ólafur R. Einarsson. Varastjórn
skipa Kjartan Ólafsson, Hjalti
Kristgeirsson, Gunnar Gunnars-
son og Guðmundur Ágústsson.
Stjórn útgáfufélagsins hefur enn
ekki komið saman til að kjósa sér
formann og rekstrarstjórn, en í
núverandi rekstrarstjórn eru
Svavar Gestsson, Kjartan Ólafs-
son, Ingi R. Helgason og Adda
Bára Sigfúsdóttir.
Hlutverk útgáfufélagsins, sem
er eignaraðili blaðsins, er meðal
annars að taka allar meiriháttar
ákvarðanir hvað varðar rekstur
blaðsins og stjórnmálastefnu
þess. Það kýs síðan rekstrar-
stjórn, sem sér um daglegan
rekstur blaðsins og ræður rit-
stjóra og framkvæmdastjóra.
spurn frá Páli Gíslasyni, borgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, á
fundi í borgarstjórn Reykjavíkur
fimmtudaginn 18. mars. Sagði
Adda Bára, að daginn fyrir fund
borgarstjórnar hefði stjórn Fram-
kvæmdasjóðs aldraðra komið
saman og ákveðið að verja 18
milljónum króna í ár til B-álm-
unnar og væri gert ráð fyrir, að
sama upphæð rynni til hennar úr
framkvæmdasjóðnum 1983 og
1984. Úr borgarsjóði verður tæp-
um 5 milljónum króna varið til
byggingarinnar í ár.
Páll Gíslason þakkaði Öddu
Báru Sigfúsdóttur svörin við
fyrirspurn sinni og fagnaði því, að
fjárskortur tefði nú ekki lengur
fyrir framkvæmdum við B-álm-
una. Að vísu næðist ekki það
mark, sem rætt hafi verið um á
síðasta ári, að tvær hæðir hússins
kæmust í notkun í ár. En hitt
skipti mestu að eftir tveggja ára
aðgerðarleysi frá því að vinstri
menn tóku við stjórn borgarinnar
1978 væri nú unnið skipulega að
framkvæmdum þessum.
Vegabréf á Kefla-
víkurflugyelli
o
I tanríkisráðuneytið gaf hinn 18.
mars út reglugerð um vegabréf á
Keflavíkurflugvelli. Samkvæmt
henni er öllum mönnum eldri en 12
ára óheimil umferð eða dvöl á svæði
Keflavíkurflugvallar nema þeir beri
vegabréf frá lögreglustjóranum á
Dugvellinum.
Vegabréfaskyldan gildir ekki í
eftirfarandi tilvikum: a) fyrir
íbúa Grænáshúsa og gesti þeirra
og aðra, sem eiga þangað nauðsyn-
legt erindi, b) fyrir þá sem eiga
erindi í lögreglustöð, c) fyrir flug-
farþega og fylgdarlið þeirra við
komu eða brottför loftfara, d) fyr-
ir viðskiptamenn og starfsmenn
fyrirtækja og stofnana í flug-
stöðvarbyggingu og Veðurstofu ís-
lands á þjónustutíma.
Reglugerðin er gefin út á
grundvelli laga um loftferðir frá
1964 og mun tilkomu hennar mega
rekja til nýlegs dóms í undirrétti,
þar sem dómari komst að þeirri
niðurstöðu, að eldri reglugerð um
sama efni væri úr gildi fallin
vegna þess, að lögin, sem hún
byggði á, væru ekki lengur í gildi.
INNLEIMT
„Látum reyna á hvort við
komumst inn á völlinn“
Þórshafnartogarinn:
Lítill hljómgrunnur fyrir frek-
ari lánum úr Byggðasjóði
— segir Jón Ásgeir Sigurðs-
son hjá herstöðvaandstæðingum
SAMKVÆMT þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur aflað sér,
þá mun vera lítill hljómgrunnur
fyrir því hjá stjórnarmönnum
Byggðasjóðs að meira verði lánað
úr sjóðnum til Þórshafnartogarans
svonefnda, sem nú er í smíðum í
Noregi.
Eins og Morgunblaðið hefur
skýrt frá áður, hafa kaupendur
togarans farið fram á yfir 2
milljónir króna í lán til viðbótar
þeim lánum, sem þeir hafa áður
fengið úr Byggðasjóði og hjá
viðskiptabanka. Munu kaupend-
ur togarans hafa farið fram á 1
millj. kr. viðbótarlán úr Byggða-
sjóði og sömu upphæð hjá við-
skiptabanka og á að nota þessar
fjárhæðir til að koma togaran-
um til veiða.
Þórshafnartogarinn er nú
kominn á flot í Kristiansund í
Noregi og er áætlað að hann
verði afhentur kaupendunum á
Þórshöfn hinn 1. maí næstkom-
andi.
„VID munum láta reyna á hvort við
komumst inn á Keflavíkurflugvöll,
en það vitum við ekki enn,“ sagði
Jón Ásgeir Sigurðsson hjá Samtök-
um herstöðvaandstæðinga þegar
Morgunblaðið ræddi við hann. Sam-
tök herstöðvaandstæðinga hafa boð-
að til skoðunarferðar í Helguvík og
á Hólmsberg í dag.
Eftir að þessir staðir hafa verið
skoðaðir hyggjast herstöðva-
andstæðingar fara í skoðunarferð
um Keflavíkurflugvöll og skoða
þar ýmis mannvirki, eins og Jón
Ásgeir komst að orði.Ferð her-
stöðvaandstæðinga á að hefjast
klukkan 13.30 í dag, og að sögn
Jóns Ásgeirs, þá hafa þegar bókað
sig nægilega margir til að fylla tvo
langferðabíla.
Jón Ásgeir var spurður hvort
Samtök herstöðvaandstæðinga
hyggðust krefjast lögbanns við
öllum framkvæmdum í Helguvík,
þar á meðal á borununum. „Það
hefur ekki verið ákveðið neitt í því
máli. Málið er á algjöru athugun-
arstigi enn sem komið er og höfum
við ekki tekið neina ákvörðun um
það,“ Sagði Jón Ásgeir.