Morgunblaðið - 20.03.1982, Page 22

Morgunblaðið - 20.03.1982, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982 Sýning í Gallerí 32 LAUGARDAGINN 20. mars opnar Svcinn Kj'j'ortsson málvcrkasjninj'u i Gallcri 32, Hverfisgötu 32. A s.vninKunni eru olíu og vatns- litamyndir, flestar málaðar á síð- astliðnu ári og það sem af er þessu ári. Þetta er fyrsta einkasýning Sveins. Þjálfarinn frumsýndur í Bíóhöllinni BÍÓHÖLLIN tekur amerisku gam- anmvndina Þjálfarann til sýninga sunnudaginn 21. mars. Aöalhlutverk ieika Miehacl Biehn oj» ( athy Lee Crosby. Snjór og ófærð KgilsNtöóum, 17. marz. AÐFARANOTT mánudags byrjaði að snjóa hér á Egilsstöðum — og allan mánudaginn gekk á með svo dimmum éljum að allt flug féll niður. I gærmorgun var komið vonskuveður og nær allar götur í þorpinu orðnar ófærar. Þetta kom þó ekki að sök fyrir grunnskólanemendur því að dag- urinn hafði verið tekinn til ráðstöfunar fyrir fræðslu kenn- ara — og því frí hjá nemendum. Upp úr hádegi í gær stytti svo upp en þá hafði talsverðum snjó kyngt niður. Yngstu íbúarnir biðu þá ekki boðanna með að nýta sér snjóinn til margs konar leikja. En líklega hafa starfs- menn sveitarfélagsins ekki orðið eins ánægðir með snjókomuna og ófærðina — þar sem snjó- ruðningurinn léttir óneitanlega pyngju samneyslunnar. Síðla gærdags var komið hið fegursta veður, flugvöllur og götur ruddar. Undir kvöld komu tvær farþegaflugvélar frá Reykjavík. Hins vegar verða fjarðarbúar nú að sjá sér fyrir farkosti upp í Egilsstaði í flugið hver og einn — þar sem sérleyf- ishafar hér eystra hafa lagt niður akstur um sinn eins og kunnugt er. Fréttaritari. Sæluvika Skagfirðinga hefst um þessa helgi — fjölbreytt lista- og skemmtanalíf í eina viku Sauóárkróki, 19. marz. Ljósm. Mbl. RAX. Guöjón Ármann Eyjólfsson afhenti Steingrími Hermannssyni sjávarútvegs- ráðherra fyrsta eintakið af bókinni Stjórn og sigling skipa. „Stjórn og sigling skipa“ — ný bók eftir Guðjón Ármann Eyjólfsson í stuttu máli fjallar myndin um ólympíusigurvegarann Randy Rawlings. Er hún óánægð með það Þjálfarinn (Cathy Lee Crosby) legg- ur á ráðin. hlutskipti sitt að þurfa að kenna frúarleikfimi eftir afrek sín. Það rofar þó örlítið til er henni býðst staða þjálfara körfuboltaliðs Granger Iligh School. En skóla- nefndin, með stjórnandann Fent- on Granger í broddi fylkingar, lýs- ir yfir óánægju sinni með ráðn- ingu Randyar. Þó fær hún að halda starfi sínu með því skilyrði að liðið tapi ekki leik. Hefst svo spennandi körfuboltaleikur. Fyrst gengur allt á afturfótunum hjá liði Randyar, en hún lumar á leynivopni. Getur því allt gerst. STJÖRNUBÍÓ frumsýnir gaman- myndina Riddarana, laugardaginn 20. mars. í aðalhlutverkum eru Rob- ert Wuhl og Tony Ilanza. Leikstjórn er í höndum Floyd Mutrux. Myndin á að gerast árið 1965 í Beverly Hills í Hollywood. Hverf- issamtökin þar hafa ákveðið að halda veglega veislu í tilefni af lokun vafasams skemmtistaðar í hverfinu. Ástæðan er sú að stað- urinn hefur verið athvarf Riddar- SÆLUVIKA Skagfirðinga hefst á Sauðárkróki um næstu helgi. Að venju verður þar margt til fróölciks og skemmtunar. Skólahljómsveit Kópavogs undir stjórn Björns Guð- mundssonar leikur í Bifröst næst- komandi laugardag klukkan 16.00 ásamt lúðrasveit Tónlistarskólans á Sauðárkróki, en stjórnandi hcnnar er Jónas Björnsson. Formlega hefst þó Sæluvikan ekki fyrr en sunnudaginn 21. marz með guðsþjónustu í Sauðárkróks- kirkju þar sem sóknarpresturinn, séra Hjálmar Jónsson prédikar. Klukkan 16.00 þann dag verður opnuð í Safnahúsi Skagfirðinga listsýning. Þar sýna nemendur Myndlista- og handíðaskóla Is- lands verk sín í boði Listasafns Skagfirðinga. Um kvöldið frum- sýnir Leikfélag Sauðárkróks leik- ritið „Einkalíf" eftir Noel Coward. Iæikstjóri er Elsa Jónsdóttir.’ Kirkjukvöld verða í Sauðár- anna og vinstúlkna þeirra. í stað skemmtistaðarins á að reisa skrifstofubyggingu. Riddararnir, sem eru hinir mestu drísildjöflar, hyggjast því láta til skarar skríða gegn hinni léttlyndu Freedman, en hún stóð að lokun skemmtistaðarins. Eftir því sem lengra líður á kvöldið æs- ist leikurinn og Freedman þarf að þola margar svívirðingar Riddar- anna áður en yfir lýkur. krókskirkju á mánudags- og þrið- judagskvöld. Þar syngur kirkju- kórinn undir stjórn Jóns Björns- sonar tónskálds. Einsöngvarar með kórnum eru Ragnhildur Oskarsdóttir og Þorbergur Jós- epsson. Einnig koma fram tónlist- armennirnir Sigurður Marteins- son, Jóhannes Eggertsson og Þor- valdur Steingrímsson, en gamall og rótgróinn Sauðkræklingur, Ottó A. Michelsen forstjóri, flytur erindi bæði kvöldin. Karlakórinn Heimir undir stjórn Jiri Hlavácek syngur í Bifröst á þriðjudags- kvöld, en undir lok vikunnar, á föstudag og laugardag, syngur Skagfirzka söngsveitin. Stjórn- andi hennar er Snæbjörg Snæ- bjarnardóttir og undirleikari Ólafur Vignir Albertsson. Þá mun leikfélag Ólafsfjarðar koma hingað í heimsókn og sýna Þorlák þreytta. Sauðárkróksbíó sýnir úr- valskvikmyndir alla daga vikunn- ar ogdansleikir verða mörg kvöld. Fyrirhugað var að dr. Kristján Eldjárn, fyrrverandi forseti ís- lands, flytti erindi í safnahúsinu laugardaginn 26. marz, en vegna forfalla verður að fresta því þar til um miðjan apríl. — Kári Listi Alþýðu- flokks á Húsavík llúsavík, 19. mars. LISTI Alþýðuflokks við bæjarstjórn- arkosningar á Húsavík hefur nú ver- ið kunngeröur. Niu efstu sæti listans skipa: 1. Gunnar B. Salomonsson, 2. Herdís Guðmundsdóttir, 3. Arn- ljótur Sigurjónsson, 4. Konráð Eggertsson, 5. Sigrún Jónsdóttir, 6. Viðar Eiríksson, 7. Sigurður Pétursson, 8. Kristjana Bene- diktsdóttir, 9. Guðmundur Aðal- steinsson. Fréttaritari. ísafoldarprentsmiðja h.f. hefur nýverið gefið út bókina „Stjórnun og sigling skipa“, eftir Guðjón Ármann Eyjólfsson, skólastjóra Stýrimanna- skólans. Bókin, sem er 228 blaðsíður að stærð, skiptist í 12 höfuðkafla, og i formála bókarinnar segir höfundur meðal annars: „Það er einlæg ósk höfundar, að bók þessi verði íslenzkum sjómönn- um og nemendum stýrimannafræða að sem mestu gagni. Auk mynda og skýringa við sigl- ingareglur er að finna í bókinni ýmsar aðrar upplýsingar, sem skipstjórnarmenn verða að hafa á reiðum höndum. Eg kenndi siglingareglur í mörg ár og varð mér fljótlega ljóst, að íslenzkum sjómönnum væri nauð- syn að fá siglingareglur með skýr- ingarmyndum og dæmum. Nem- endur hvöttu mig eindregið til að taka saman þess háttar bók og stend ég því við gamalt loforð með þessu riti. Lengur en skyldi dróst að koma verkinu af stað. Siglingareglur eru alþjóðlegar, en nauðsynlegt var að færa myndskreytta útgáfu okkar í íslenzkan búning, auk þess sem sérstakar íslenzkar aðstæður krefjast þess, að lögð sé meiri áherzla á sum atriði í reglunum .hjá okkur en gert er meðal ann- arra þjóða, t.d. merkingu fiski- skipa við hinar ýmsu veiðar o.fl. Til að fá íslenzkan svip á skýr- ingarmyndir fékk ég í lið með mér Rafn Sveinbjörnsson, listfengan sjómann, vestfirzkan. Hann var þá búsettur á Akranesi og teiknaði fjölmargar myndir í bókina, bæði eftir minni fyrirsögn og með hliðsjón af myndum í erlendum bókum. Inn á myndir Rafns setti ég síðan öll ljós- og dagmerki ásamt þokumerkjum, þar sem það á við og ber að sjálfsögðu einn ábyrgð í þeim efnum sem öðrum í bókinni. Rafn heitinn sýndi þessu verki einlægan og mikinn áhuga, en lifði því miður ekki að sjá bók- ina líta dagsins ljós. Hann andað- ist 6. mars 1978. Flestar myndir Rafns eru skip og bátar íslenzkrar gerðar, en í baksýn eru íslenzk fjöll og jöklar." Stjörnubíó frumsýnir Riddarana

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.