Morgunblaðið - 20.03.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982
23
Qlafur Jóhannesson um ástandið í Póllandi:
Alþýðan barin til
með hervaldi
hlýðni
ÁN SOVÉSKRA áhrifa hefði staða
mála verið önnur í Póllandi í dag.
Kerfið, sem þykist vera útvalið til að
sinna hagsmunum alþýðunnar, er
enn einu sinni bert að því að berja
þessa sömu alþýðu til hlýðni með
hervaldi, segir í skýrslu Ólafs Jó-
hannessonar utanríkisráðherra um
utanríkismál, sem hann lagði fram á
Alþingi mánudaginn 15. mars.
Um atburðina í Póllandi er með-
al annars komist svo að orði:
„Enn einu sinni hefur það feng-
ist staðfest að kommúnískt þjóð-
skipulag þolir ekki frelsi og nægir
því til sönnunar að nefna atburð-
ina í Austur-Þýskalandi 1953,
Ungverjalandi 1956, Tékkóslóv-
akíu 1968 og Póllandi 1981. Allt er
þetta staðfesting á óbreyttu eðli
kommúnísks stjórnarfars. Þjóðum
Austur-Evrópu hefur aldrei verið
gefinn kostur á að tjá sig um þetta
kerfi frjálsum kosningum. Kerfið
þolir hvorki samkeppni við aðra
hugmyndafræði né viðurkenningu
almennra mannréttinda. Kerfið
getur ekki einu sinni afsakað sig
með að það tryggi íbúum efnaleg
gæði. Þróunin í pólskum efna-
hagsmálum er lýsandi dæmi um
vanmáttinn einnig á þessu sviði.
Eina svar þessa gjaldþrota þjóð-
skipulags er grímulaus vald-
beiting og kúgun.
Það kann að vera óljóst hver
bein afskipti Sovétstjórnin hefur
haft af atburðum í Póllandi, en
það breytir engu um þá megin-
staðreynd að án sovéskra áhrifa
hefði staða mála verið önnur í
Póllandi í dag. Kerfið, sem þykist
vera útvalið til að sinna hagsmun-
um alþýðunnar, er enn einu sinni
Stúdentaráð:
Umbótasinnar telja Félagi
vinstri manna bera að hefja við-
ræður um myndun meirihluta
UMBÓTASINNAÐIR stúdentar við
háskólann héldu fund síöastliðið
fimmtudagskvöld og á fundinum var
samþykkt að viðræður um meiri-
hlutasamstarf í stúdentaráði skyldi
hefja frá grunni að nýju. Taldi fund-
urinn ótvirætt að Félagi vinstri
manna, sem stærstu fylkingunni inn-
an stúdentaráös, bæri að hafa frum-
kva>ði um viðræður til myndunar nýs
meirihluta. í framhaldi þessa tók
fundurinn ekki afstöðu til bréfs
Vöku um að félagið liti þannig á að
meirihluti Vöku og umbótasinna frá
síðasta kjörtímabili héldist og því
skyldi samstarfinu haldiö áfram á
grundvelli fyrri sáttmála.
Hið nýkjörna stúdentaráð kom
saman til fyrsta fundar síns í gær,
en þar sem enn hefur ekki verið
myndaður meirihluti innan ráðs-
ins, var kosningu í nefndir og
formannskjöri frestað um viku.
A fundi Umbótasinna var eftir-
farandi ályktun samþykkt:
„í ljósi þeirrar stöðu, sem nýaf-
staðnar kosningar til stúdenta-
ráðs hafa leitt af sér — það er að
segja að Félag vinstri manna er
stærsti aðilinn að stúdentaráði
með 13 fulltrúa að baki sér, Vaka
með 10 fulltrúa og umbótasinnar
með 7 fulltrúa og einnig að for-
mælendur vinstri manna hafa
hvað eftir annað lýst sig sigurveg-
ara kosninganna á opinberum
vettvangi — vekja umbótasinnar
athygli á:
a) — að umbótasinnar líta svo á
aö það sé skylda hinna þriggja
pólitísku fylkinga gagnvart stúd-
entum við Háskólann að reyna svo
sem frekast er kostur að mynda
starfhæfan meirihluta innan ráðs-
ins.
b) — að umbótasinnar gengu til
kosninga með óbundnar hendur
um samstarf að kosningum lokn-
um, þvi sé eðlilegt að meirihluta-
viðræður verði hafnar á ný
c) — að sú óvefengjanlega skylda
hvílir á herðum vinstri manna að
taka þátt í viðræðum er miði að
myndun nýs meirihluta stúdenta-
ráðs. Félag vinstrimanna getur á
engan hátt skorast undan þessari
skyldu, enda er félagið stærsta
fylkingin innan ráðsins."
bert að því að berja þessa sömu
alþýðu til hlýðni með hervaldi.
Islendingar hafa með samúð
fylgst með viðleitni pólsku þjóðar-
innar til að auka frelsi sitt og lýð-
ræði. Við hljótum að krefjast þess
að slík þróun sé ekki kæfð í fæð-
ingu með utanaðkomandi hótun-
um um ofbeldi og kúgun. Við höf-
um lagt lítinn skerf af mörkum til
að lina hungur og þjáningar í Pól-
landi af völdum matarskorts og
okkur ber tvímælalaust skylda til
að halda slíku mannúðarstarfi
áfram. Að tilmælum flóttamanna-
fulltrúa Sameinuðu þjóðanna hef-
ur ríkisstjórnin einnig lýst sig
reiðubúna til að taka við 20—25 af
þeim 40—50 þúsundum flótta-
manna frá Póllandi, sem nú hafa
leitað hælis í Austurríki. Þetta er
ekki há tala, en hlutfallslega er
þarna um svipaðan fjölda að ræða
og ýmsar nágrannaþjóðir okkar
h.vggiast taka við.
Atburðirnir í Póllandi varpa
dökkum skugga á samskipti aust-
urs og vesturs og valda mjög
versnandi sambúð stórveldanna.
Sú þróun hefur að sjálfsögðu í för
með sér aukna hættu fyrir alla
heimsbyggðina og því er það enn
nauðsynlegra en ella að kröftug-
lega sé unnið að samningaviðræð-
um á sviði afvopnunarmála, að
leitað sé allra raunhæfra leiða til
að bæta sambúðina að nýju með
því að fá alla aðila til að standa
við gefin loforð um hegðunarregl-
ur í alþjóðlegum samskiptum. Sá
vettvangur, sem þjóðir Evrópu og
Norður-Ameríku hafa hvað mest
notað í þessum efnum, eru ráð-
stefnurnar, sem efnt hefur verið
til í því skyni að meta framgang
málaflokka í lokasamþykkt ráð-
stefnunnar um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu og ræða, hvað auka
megi og bæta. A árinu 1977 var
slík ráðstefna haldin í Belgrad og
haustið 1980 hófst næsta ráð-
stefna í Madrid."
Bílastæði við Þangbakka
— athugasemd frá Markúsi Erni Antonssyni
VKGNA fréttar Morgunblaðsins í gær
um bílastæðamál í Mjóddinni, óskaði
Markús Örn Antonsson, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, eftir því að eftir-
farandi athugasemd yrði birt:
Það var gatnamálastjórinn í
Reykjavík, Ingi Ú. Magnússon, sem
flutti tillögu í framkvæmdaráði um
úrbætur í bílastæðamálum við
Þangbakka 8 til 10 í Mjóddinni. Til-
laga gatnamálastjóra var um gerð
malarstæða fyrir bifreiðir til bráða-
birgða á eftirtöldum reitum: a Norð-
urenda lóðar heilsugæzlustöðvar
austan Þangbakka 8 til 10, b opnu
svæði vestan lóðar fyrir félagsmið-
stöð og bókasafn. Þetta var sam-
þykkt með þeirri breytingu að í a-lið
stæði „helming" í stað „norðurenda".
Þá lagði framkvæmdaráð áherzlu á,
að endurskoðun sú, sem borgar-
skipulagi hefði verið falin á skipu-.
lagi svæðisins, verði hraðað og þar
með fundin varanleg lausn á bíla-
stæðamálum hverfisins. Það voru
þessi lokaorð samþykktarinnar, sem
sjálfstæðismenn í framkvæmdaráði,
gerðu tillögu um.
Borðið dúklagt og kræsingarnar tilbúnar. Nemendur Hóiel- og veitinga
skólans tilbúnir að taka á móti gestum i húsakynnum sínum í Hótel Esju.
Nemendur Hótel- og veitingaskóla
íslands með veitingasölu um helgina
ar og fjölbreyttar veitingar á vægu
verði. Vonast þeir því til þess að sem
flestir velunnarar skólans og þeir
sem áhuga hafa á góðum veitingum
sjái sér fært að koma.
NÚ UM helgina munu nemendur
Hótel- og veitingaskóla íslands
gangast fyrir veitingasölu í skóla
sínum að Suðurlandsbraut 2. Er
þetta liður í starfsþjálfun nemenda,
auk þess sem þetta er ein af fáum
fjáröflunarleiðum þeirra. Það mun
vera ætlun nemenda nú, sem undan-
farin ár, að bjóða gestum sínum góð-
Inngangur skólans er að bakhlið
Hótel Esju og verður opið alla þrjá
dagana frá klukkan 18.00— 23.30.
Kveðjuorð:
Unnur Bjarnadótt-
ir leikfimikennari
Hún Unnur er dáin. Þessi orð af
vörum móður minnar bárust mér
til eyrna á laugardagsmorguninn
6. mars. Enn megum við mann-
anna börn standa andspænis
dauðanum sem í þetta sinn kom á
einu augnabliki. Við skynjum hve
örstutt þetta augnakast er og hve
nátengdur dauðinn er lífinu, án
annars væri hitt ekki til.
Verum þess minnug á miðri
föstu að fagnaðar- og upprisuhá-
tið er í nánd, sem við kristnir
menn trúum að dauðinn hafi verið
svo dásamlega sigraður og öllum
eilíft líf gefið. Mér sem þessar lín-
ur skrifa, finnst svo sjálfsagt að
Unnur lifi, svo starfsöm og
kraftmikil sem hún var hér á jörð,
hennar býða meiri störf guðs um
geim.
Sár er söknuður þeirra sem sjá
sæti hennar autt sem ætíð var svo
vel skipað af tryggð öllum til
handa er henni kynntust. Sárastur
er harmur barna hennar og aldr-
aðrar móður sem nú sér á bak sínu
sjötta barni.
Ég vil fyrir hönd tengdamóður
flytja hjartans þökk fyrir alla ást-
úð og hugulsemi sem hún sýndi
henni og tengdaföður sínum frá
fyrsta degi til hins síðasta þó sér-
staklega í veikindum hans og við
andlát hans 2. desember 1981.
Alúðar þakklæti frá okkur
systkinunum fyrir allt sem hún
var foreldrum okkar, stundum
fannst okkur sem hún væri að
gera þá hluti sem í okkar verka-
hring stóðu. Hún var ætíð á undan
öðrum að koma bágstöddum til
hjálpar, slík var vaka hennar yfir
ástvinum.
Ég kveð Unni Bjarnadóttur með
þakklæti og virðingu.
„Kar þú í frirti
friöur guAs þig blossi.
Ilafðu þokk fyrir allt.”
Andrea Helgadóttir
RAÐHÚS TIL SÖLU Í PORLÁKSHÖFN
STÆRÐIR
65 m2 2 herbergja
3 herbergja
4 herbergja
* 5 herbergja
95 m
108 m
127 m
VERÐ með bilskúr, hús frágengid ad utan, lód slétt.
kr. 350.000.—
kr. 430.000.- AFHENDINGARTIMI
kr. 460.000.—
kr. 495.000.—
September 1982
I
Góöir greiöslu-
skilmálar
Fasteignasala
Þorsteins Garöarssonar
Klébergi 17
Þorlákshöfn
Kvöld- og helgarsími
99-3834
b i r iki »• f*