Morgunblaðið - 20.03.1982, Page 31
félk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982
31
Khadafy og Bruno Kreisky á flugvellinum í Vín í upphafi heimsóknarinnar. Khadafy brosir til araba nokkurra sem
maettir voru i flugvöllinn að bjóða hann velkominn og klappar þeim lof í lófa..
Úr heim-
sókn Khadafys
+ Khadafy, leiðtogi Líbýumanna,
heimsótti nýverið Austurríki, fyrst
Evrópuríkja og þótti mörgum það nú
ekki sæmilegt, því Khadafy er ill-
ræmdur um allan heim og hryðju-
verkamenn hafa jafnan átt skjól í
hans landi. En Brunó Kreisky, kansl-
ari Austurríkis, lét sig hafa það að
taka á móti Khadafy, sem hverju
öðru stórmenni og veitti honum við-
urgerning góðan. Telja menn að þar
spili inní olíuhagsmunir Austurríkis.
Við birtum hér nokkrar myndir úr
Austurríkisför Moammar Khadafys,
hershöfðingja og Líbýuleiðtoga — en
heimsóknin sú stóð í fjóra daga.
Khsdafy hélt blsðamannafund meðan á heimsókninni stóð og veifaði þar
framan í menn plaggi, sem Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, á að hafa
skrifað ýmsum þjóðarleiðtogum og farið þess á leit við þá að þeir afþökk-
uðu heimsóknir Khadafys. Hershöfðinginn lét þess ekki getið hvernig
hann hefði komist yfir bréf þetta, en fannst það æði spaugilegt, svo sem
myndin sýnir...
Á meðan Khadafy bað til máttarvaldanna í mosku múslíma í Vínarborg,
spásseraði kona hans um stræti borgarinnar með yngsta son þeirra — og
að því er virtist, engir öryggisverðir!
sB. \ \ X XX
COSPER
Það er ekkert mál, Knútur, að vera navisti í myndlistinni. Málið
er að finna nógu naíva kaupendur.
Mikið áfall
+ Ástralska leikkonan Lynda Stoner,
sem berst hatrammri baráttu gegn
selveiðum í heiminum, brast í grát
þegar hún frétti að selveiðar væru
hafnar á ný frá Prins Játvarðseyju í
Kanada, þrátt fyrir mikil mótmæli
Greenpeace-manna. Lynda Stoner ber
sem sé mikla umhyggju fyrir selum og
bróðir hennar einn úr Greenpeace-
samtökunum var nærstaddur og
reyndi sem hann gat að hugga leikkon-
una, en hún var lengi óhuggandi á eftir
og lét ófriðlega. Tilfinningalíf annarr-
ar leikkonu og miklu frægari, Birgittu
Bardot, snýst líka alltaf annað veifið
um velferð sela, sem eru falleg dýr —
en vísindamenn telja það ekki heppi-
legt að hafa alla sjói fulla af selum,
hvað sem leikkonur tvær segja ...
frá kl. 7 til 4
GULL OG
DEMANTAR
Kjartan Asmundsson,
yullsmiður, Aðalstrœti &