Morgunblaðið - 25.03.1982, Qupperneq 1
56 SIÐUR MEÐ MYNDASOGUBLAÐI
66. tbl. 69. árg.
FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sfmamynd AP.
Ntjórnandi Kolumbía-goimferjunnar, Jack R. Lousma, vinnur að efna-
fræðitilraunum um borð i geimferjunni. Þriðja reynsluflug ferjunnar
gengur samkvæmt áætlun þótt lítilsháttar tæknilegir erfiðleikar hað
komið upp.
Herinn til valda eftir
byltingu í Bangladesh
Kalkútta, Indlandi, 24. mars. AP.
IIKKINN í Bangladesh komst til
valda i nótt eftir að hafa velt veik-
burða stjórn þessa fátæka lands af
stóli. Kkkert manntjón varð í bylt-
ingunni.
Herlög voru þegar í stað sett og
H.M. Ershad, hershöfðingi, lýsti
sig hinn nýja leiðtoga þjóðarinn-
ar. Hann sagði í ávarpi til hennar
seint í dag, að efnt yrði til nýrra
forsetakosninga. Sagði hann, að
stofnað yrði ráð aðstoðarmanna
sér til ráðgjafar. Þá gaf hann til
kynna að nýr yfirmaður landsins
yrði úr röðum hersins.
Stjórn landsins var leyst frá
störfum strax í morgun og stjórn-
arskráin ógild. Sagði Ershad, að
nauðsynlegt hefði verið að grípa í
taumana til þess að vernda hags-
muni landsins. „Þessi stjórn hefur
gersamlega brugðist hlutverki
sinu. Fólk treystir á að herinn
muni koma til hjálpar," sagði
hann. Þá sagði hann ennfremur að
svo gæti farið að ný stjórnarskrá
yrði gerð.
Forsetinn, Abdus Sattar, sem er
orðinn 75 ára gamall og heilsu-
veill, kom fram í útvarpi í dag og
lýsti því yfir að ástandið í landinu
hefði verið orðið slíkt, að íhlutun
hersins hefði verið nauðsynleg.
Bað hann hinum nýju stjórnvöld-
um allrar blessunar. Ekki er vitað
um verustað forsetans, en talið er
að honum sé haldið í stofufangelsi.
í Bangladesh búa um 90 millj-
ónir manna. Fátækt er mikil og
gengið hefur á ýmsu frá því landið
fékk sjálfstæði 1971. Náttúru-
hamfarir hafa leikið íbúana grátt
og stórfelldrar utanaðkomandi
fjárhagsaðstoðar hefur verið þörf
til að seðja milljónir sveltandi
munna.
Barnabarn Wagners
stal fjármununum
Asakanir danska kommúnistaflokksins
í garð lögreglunnar tilhæfulausar
Þessir skipa hina nýju þriggja manna stjórn Guatemala. í miðið er Efrain Rios Montt og honum til hvorrar handar
eru herforingjarnir Horacia Maldonado Nhad (til vinstri) og Luis Frandisco Gordillo.
Byltingin í Guatemala:
Undirbúningur stjórn-
skipunarlaga hafinn
< •uairmalaborg, 24. mars. AP.
Kaupmannahöfn, 24. mar.s, frá Ib Björnbak,
fréttaritara Morgunblaósins.
FORYNTA danska kommúnista-
flokksins stendur veikari fótum en
nokkru sinni eftir að upplýst hefur
verið að ásakanir hennar í garð lög-
reglunnar eru tilhæfulausar með
öllu. Ráðgátan um þjófnaðinn á fjár-
mununum í peningaskáp Ingmars
Wagners á heimili hans er leyst.
Komið er í ljós, að það var
barnabarn hans, 16 ára strákling-
ur, búsettur í Kristjaníu, sem stal
peningunum. Um var að ræða er-
lendan gjaldeyri að verðmæti um
700.000 danskar krónur. Sagði
Reagan fundar
um Mið-Ameríku
NN ashington, 24. marN. Al'.
TILKYNNT hefur verið að Konald
Keagan, Bandarikjaforseti, og Alex-
ander Haig, utanríkisráðherra lands-
ins, muni funda með utanríkisráðherr-
um Mið-Ameríkulandanna Honduras,
Kl Nalvador og ('osta Kica á morgun.
Heimsókn ráðherranna þriggja
þykir sýna vel í verki að Bandaríkja-
stjórn styður nýlega stofnað banda-
lag þessara ríkja. Talið er víst að
umræðuefnið á fundinum muni fyrst
og fremst verða hið alvarlega ástand
mála í Miö-Ameríku.
strákurinn félögum sínum frá þess-
um fjármunum og í sameiningu
ákváðu þeir að stela þeim. Megin-
hluti peninganna var í þýskum
mörkum, 500 og 1000 marka seðl-
um. Þá var eitthvað af sænskum
peningum geymt í peningaskáp
Wagners.
Þjófnaðurinn er nú að mestu
leyti upplýstur hjá lögreglunni.
Enn ganga þó tveir þjófanna laus-
ir, en fá varla peningunum skipt
þar sem grunsemdir myndu þegar í
stað vakna.
Wagner heldur staðfastlega við
þá skoðun sína, að hann viti ekkert
hvernig þessir fjármunir komust í
hendur hans. Á hinn bóginn hefur
hann haldið því fram, að þeir komu
ekki frá austantjaldslöndunum,
heidur séu þetta peningar sem
safnast hafa í Vestur-Evrópu og
eigi að notast til alþjóðlegrar sam-
vinnu.
Talið er fullvíst að pólitískum
frama Wagners sé hér með lokið.
Hann er flokksritari danska
kommúnistaflokksins og átti áður
sæti á þingi. Er hann var að því
spurður, þar sem hann liggur veik-
ur á sjúkrahúsi í Kiev í Sovétríkj-
unum, hvort hann teldi stjórn-
málaferil sinn á enda taldi hann
það fullvíst.
Herforingjastjórnin, sem komst til
valda með bvltingu á þriðjudag, hefur
ákveðið að ógilda stjórnarskrá lands-
ins, sem verið hefur í gildi undanfarin
17 ár. Knnfremur hefur öll pólitisk
starfsemi verið bönnuð í landinu. Aftur
á móti hefur því verið lofað að mann-
— allt sagt með kyrrum
kjörum í landinu
réttindi verði virt, að því er sagði í
ríkisútvarpinu. Þá sagði að þriggja
manna stjórn Junta myndi stýra land-
inu þar til annað yrði ákveðið.
Skýrt var frá því að í undirbúningi
væ>-u stjórnskipunarlög, sem farið
yrði eftir þar til lokið hefði verið við
gerð nýrrar stjórnarskrár. Sex
manna herráð hefur verið skipað og
er talið að i því eigi sæti fulltrúar
yngri manna hersins, sem gengu
hvað ötullegast fram í byltingunni.
Eiga þar sæti menn úr land- og
flughernum. Er því ætlað að vera
ráðgefandi.
Nokkrum klukkustundum eftir
byltinguna, sem er hin fyrsta í 19 ár
í landinu, var þing landsins leyst
upp. í skriflegri yfirlýsingu, sem gef-
in var út í dag, hvatti herinn borgara
til að snúa til fyrra lífernis til að
koma mætti eðlilegu ástandi á í
landinu á ný.
Engar fregnir bárust af ókyrrð í
landinu er fólk sneri til vinnu á ný í
höfuðborginni og öðrum borgum.
Varðmönnum fór fækkandi og ein-
ungis nokkrir sáust á eftirlitsferð
um höfuðborgina í dag.
Forseti landsins, Lucas Garcia,
flýði land í flugvél. Ekki er vitað
hvar hann hefur sótt um hæli sem
pólitískur flóttamaður. Heimildir
herma hins vegar, að Angel Anibal
Guevara herforingi, sem kjörinn var
forseti í nýafstöðnum kosningum og
átti að taka við af Garcia hinn 1. júlí
nk., sé ómeiddur. Talið er að herfor-
ingjastjórnin styðji hann.
Herforingjastjórnin segir bylting-
una hafa orðið vegna óánægju með
forsetakosningarnar, þar sem brögð
hafi verið í tafli. Þeir, sem gerst
þekkja til mála í Guatemala, halda
því fram, að ekki hafi farið þar fram
kosningar í ptarga áratugi án þess
að svik hafi verið höfð í frammi.
Hinn nýi leiðtogi landsins, Rios
Montt, hefur lofað nýjum kosningum
en hefur ekki nefnt neina dagsetn-
ingu. Þeir, sem skipa stjórn landsins
auk Montt, eru hershöfðingjarnir
Luis Frandisco Gordillo og Horacio
Maldonado Shad. Montt bauð sig
fram til forsetakosninganna 1974 en
náði ekki kjöri.
Gin- og klaufaveikifaraldurinn:
A-þýskum landsvæðum lokað
Kaupmannahöfn, 24. mars. Krá Ib
Hjörnbak, frúHarilara MorjjunblaAsins. ,\|*.
SVO VIRÐIST nú, sem tekist hafi að
koma í veg fyrir frekari útbreiðslu
gin- og klaufaveikinnar í Danmörku.
Þegar hefur 9.30 nautgripum verið
slátrað og þeir grafnir í jörðu. l)m
1800 svín hafa einnig orðið sömu ör-
lögum að bráð.
Á sama tíma berast þær fregnir
frá Austur-Þýskalandi að nokkr-
um landsvæðum hafi verið lokað
vegna þessarar skelfilegu veiki.
Svæði þessi eru einkum meðfram
Eystrasaltsströndinni og stutt frá
landamærum Póllands. Ennfremur
herma staðfestar fregnir, að veik-
innar hafi orðið vart í höfuðborg
Ukrainu, Kiev.
Upplýst hefur verið að Austur-
Þjóðverjar trössuðu að láta Dani
vita af því að sjúkdómsins hefði
orðið vart þar í landi. Gafst Dön-
um því ekki ráðrúm til að grípa til
varúðarráðstafana. Eru þetta brot
á alþjóðalögum um samvinnu gegn
útrymingu dýrasjúkdóma. Segir
þar að yfirvöldum beri að tilkynna
nágrannalöndum um sýkingartil-
felli eigi síðar en 24 stundum eftir
að þeirra verður vart.
Talsmaður danska landbúnað-
arráðuneytisins hefur sagt að ekki
hefði verið unnt að koma í veg
fyrir sýkingu í Danmörku þrátt
fyrir viðvaranir. Hins vegar hefði
verið hægt að vara bændur við og
hefta útbreiðslu sjúkdómsins strax
í byrjun. Sjúkdómur þessi hefur
valdið Dönum geysilegum búsifj-
um og nemur tjón þeirra tugum
milljóna danskra króna.