Morgunblaðið - 25.03.1982, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1982
Fokker-hreyfillinn sem sprakk:
Rannsakaður hjá
RR í Bretlandi
Loftferðaeftirlitiö óánægt meö aðgerð
Slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli
NIJ KR unnið við að pakka hreyfli
Kokkersins, sem sprenging varð í sl.
laugardag, niður og verður hann
fluttur til Knglands til nákvKmrar
rannsóknar í verksmiðjum Kolls
Royce í Glasgow undir eftirliti
brezka loftferðaeftirlitsins og
brezka slysarannsóknaráðsins en
þessir aðilar eru fulltrúar íslcnzka
loftferðaeftirliLsins við rannsóknina.
Kannsóknin beinist fyrst og fremst
að forþjöppunni og því hvers vegna
hjólahurðirnar opnuðust ekki, en allt
bendir til þess að þær hafi verpzt og
skekkzt i cldinum sem gaus upp.
Þá er stefnt að þvi að taka
vængi og stél af Fokker-vélinni og
flytja hana frá Keflavíkurflugvelli
til Reykjavíkur til viðgerðar, en
reiknað er með að sú viðgerð geti
tekið um 2 mánuði. Búizt er við að
rannsóknin á hreyflinum í Rolls
Royce-verksmiðjunum taki um
það bil einn mánuð.
Morgunblaðið ræddi í gær við
Skúla Jón Sigurðarson deildar-
stjóra hjá flugmálastjórn og kvað
hann þá hjá loftferðaeftirlitinu
mjög óánægða með það að slökkvi-
liðið á Keflavíkurflugvelli hróflaði
við Fokkernum, lyfti honum upp
og flutti til, áður en loftferðaeft-
irlitið hafði tækifæri til þess að
rannsaka vélina á lendingarstað
og sjá til þess að hún yrði hreyfð
eingöngu undir stjórn flugvirkja
Flugleiða, en talsverðar skemmdir
urðu á vélinni þegar slökkviliðið
vann við að fjarlægja vélina frá
flugbrautinni, m.a. skemmdist
hreyfilfesting, sem er mjög alvar-
leg bilun, og fleira.
Stjórn veitustofnana til borgarráðs:
Verdjöfnunargjald verður ekki greitt
nema gjaldskrá RR verði staðfest
Lýst eftir
28 ára manni
Á ÞKIDJIiDAG hófst leit að Knud
Krik Holme Petersen, 28 ára, til
heimilis aó Keynimel 31 í Keykjavík,
en ekkert hefur spurst til Knud Kriks
síðan á sunnudag. Gengið hefur verið
á fjörur og leitarflokkar hafa farið
um en án árangurs.
Knud hefur dvalið um nokkurra
ára skeið á Islandi, en hann er
danskur ríkisborgari. Hann hefur
kennt við Háskóla íslands og einn-
ig stundað nám. Kund Erik er um
180 sm á hæð, grannvaxinn, rauð-
birkinn með alskegg og fremur sítt
hár. Talið er að hann hafi verið
klæddur í græna mittisúlpu með
loðkraga, brúnum flauelsbuxum og
gæti hafa verið með hvíta prjóna-
húfu og gleraugu.
Knud Erik sást síðast við
Gamla-Garð síðastliðinn sunnudag
um kl. 22. Þeir sem geta gefið upp-
lýsingar um ferðir Knud Eriks eft-
ir þann tíma eru vinsamlega beðnir
að gera lögreglunni í Reykjavík
viðvart.
Dyravörður
stunginn hnífi
DYRAVÖRÐUR við veitingahú.sið
Kroadway var stunginn með hnífi
þegar til átaka kom milli dyravarða
og tveggja manna fyrir utan veit-
ingahúsið i fyrrinótt. Lögregla var
kvödd á staðinn, en árásarmaðurinn
komst undan. Dyravörðurinn var
umsvifalaust fluttur í slysadeild
Borgarspítalans, en meiðsli hans
reyndust ekki eins alvarleg og í
fyrstu var óttast.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
gekkst fyrir skemmtun i húsinu,
en mikil ölvun mun hafa verið
meðal fólks fyrir utan húsið. Um
klukkan fimm í fyrrinótt var mað-
ur um tvítugt handtekinn vegna
þessa máls, en hann var látinn
laus í gærkvöldi. Rannsóknarlög-
regla ríkisins heldur rannsókn
málsins áfram.
STJÓRN veitustofnana Reykjavík-
urborgar hefur beint þeim tilmælum
til borgarráðs, að verðjöfnunargjald
til ríkissjóðs verði ekki greitt á með-
an gjaldskrá Kafmagnsveitu Reykja-
vikur hefur ekki verið samþykkt.
Framsóknarflokkurinn:
Umræðum um
Blöndumál
lauk ekki
ÞINGFLOKKUR Framsóknar-
flokksins tók Blöndumálin til um-
ræðu á fundi sínum í gær. Umræðu
um málið lauk ekki þrátt fyrir lang-
an fund og verður það væntanlega
tekið fyrir á næsta fundi þingflokks-
ins. Vegna þessa reyndi Morgunblað-
ið að ná tali af Páli Péturssyni,
formanni þingflokks Framsóknar-
flokksins, en það tókst ekki.
Utanríkisráðherr-
ar í Reykjavík
FIJNDUR utanríkisráðherra Norður-
landa hefst árdegis í dag. Káðherrarnir
komu til landsins síðdegis i gær, Ola
Ullsten frá Svíþjóð, Per Stenbeck frá
Finnlandi, Kjell Olesen frá Danmörku
og Svenn Stray frá Noregi.
Að loknum fundinum í Reykjavík
hefst opinber heimsókn Svenn Stray,
utanríkisráðherra Noregs, í boði
Ólafs Jóhannessonar, utanríkisráð-
herra. Svenn Stray mun dvelja hér á
landi til 27. marz.
Eftirfarandi bókun var samþykkt
í stjórn veitustofnana Reykjavíkur:
„Þar sem iðnaðarráðherra hefur
enn ekki staðfest breytingar á
gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur og
Rafmagnsveitu Reykjavíkur, sem
gera ráð fyrir hækkun á gjald-
skrám, og líklegt er að svo verði ekki
á næstunni eins og fram kemur í
svari iðnaðarráðherra við fyrir-
Austfirðir:
Samkomulag
um sérleyfin
SAMKOMULAG hefur nú tekist í sér-
leyfisdeilunni á Austfjörðum, en deilu-
aðilar sátu fundi í samgönguráðuneyt-
inu i gær og i fyrradag undir forsæti
Krynjólfs Ingólfssonar ráðuneytis-
stjóra.
Endastöð Austurleiðar hf. og Sér-
leyfisbifreiða Akureyrar sf. hefur
fram til þessa verið á Seyðisfirði, en
í samkomulaginu er gert ráð fyrir,
að endastöð fyrirtækjanna verði nú
Egilsstaðir. Þá segir í samkomulag-
inu, að fyrirtækin Austurleið og
Sérleyfisbifreiðir Akureyrar séu
reiðubúin til að veita sérleyfishöfum
á Austurlandi aðstoð við skipulagn-
ingu og auglýsingu ferða innan
fjórðungsins. Ennfremur er gert ráð
fyrir að sérleyfishafar velji fulltrúa
til viðræðna um framkvæmd fram-
angreindrar aðstoðar. Einnig segir í
samkomulaginu að ferðir milli Seyð-
isfjarðar og Egilsstaða verði skipu-
lagðar með tengingu við komu- og
brottfarartíma bifreiða fyrirtækj-
anna þangað.
spurn á Alþingi 9. marz síðastliðinn,
beinir stjórn veitustofnana því til
borgarráðs að gengið verði eftir
svörum ráðherra þegar í stað svo
hægt verði að taka nauðsynlegar
ákvarðanir um rekstur og fram-
kvæmdir veitustofnana Reykjavík-
ur. Á meðan gjaldskrá RR fær ekki
staðfestingu iðnaðarráðherra á um-
beðinni gjaldskrárhækkun leggur
stjórn veitustofnana til við Borgar-
ráð, að fjárhagsvanda RR verði
mætt með því að greiða ekki verð-
jöfnunargjald til ríkissjóðs og jafn-
framt að kröfum um greiðslu drátt-
arvaxta vegna þess verði vísað á
bug.“
Borgarráð hefur ekki tekið af-
stöðu til beiðni stjórnar veitustofn-
ana Reykjavíkur, en hefur gert eft-
irfarandi bókun: „Borgarráð vekur
af gefnu tilefni athygli á því að það
telur að ráðherra geti bakað ríkis-
sjóði bótaskyldu með því að draga
óeðlilega staðfestingu á löglega sett-
um gjaldskrám Hitaveitu og Raf-
magnsveitu Reykjavíkur. Borgarráð
beinir því til iðnaðarráðherra að
IDNADAKRÁÐHKRKA. Iljörleifur
Guttormsson, dró fréttaflutning Morg-
unblaðsins inn í umræöur á Alþingi sl.
þriðjudag, þegar rætt var um Orku-
stofnun og Helguvík. Iðnaðarráðherra
flutti ra-ðu sína eftir að Ólafur Jó-
hannesson, utanríkisráðherra, hafði
gert grein fyrir sjónarmiðum sínum.
Hér fer upphaf ræðu iðnaðarráðherra,
þar sem hann vék að Morgunblaðinu:
„Ég átti nú satt að segja ekki von
á því að Morgunblaðinu bættist sá
liðsmaður sem hér kom fram í
málflutningi hæstv. utanríkisráð-
herra áðan og ég get a.m.k. ekki
óskað ríkisstjórninni til hamingju
með það. Ég ætla hér ekki að fara að
standa í deilum við hæstv. utanrík-
isráðherra á þessum vettvangi, þó
að hann hafi borið mig hér ýmsum
býsna þungum sökum og haft hér
uppi orð, sem ég hafði nú ekki reikn-
að með að fram kæmu frá honum
hér á hv. Alþingi. Hann gengur
nefnilega í þá sömu gryfju og hv. 4.
þm. Vestfirðinga (Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, innsk. Mbl.) að gefa
sér það sem lesa mátti í Morgun-
blaðinu laugardaginn 12. mars lík-
lega (umrædd frétt birtist laugar-
daginn 13. mars, innsk. Mbl.), að ég
hafi gefið fyrirmæli um að rifta
hann staðfesti nú þegar áðurnefnd-
ar gjaldskrár án frekari dráttar og
áskilur sér rétt til að krefjast bóta
fyrir tekjutap veitnanna, hafi
gjaldskrárnar eigi verið staðfestar
fyrir næstu mánaðamót."
Pálmi Jónsson:
Engar áætlanir
um stjórnarslit
„ÞAÐ ER öllum kunnugt að það er
yfirlýst stefna stjórnarinnar að starfa
út kjörtimabilið, hvort svo verður getur
enginn sagt til um með vissu. Það eru
engar áætlanir af minni hálfu um
hið gagnstæða," sagði landbúnaðar-
ráðherra, Pálmi Jónsson, er Morgun-
blaðið bar undir hann ummmæli
dómsmálaráðherra, Friðjóns Þórð-
arsonar, þess efnis að hann áliti að
slíta þyrfti stjórnarsamstarfinu áð-
ur en að kosningum kæmi, ætti
Sjálfstæðisflokkurinn að geta gengið
óskiptur til kosninga.
samningnum. Það eru fyrirmæli,
sem ég hef ekki gefið og hef aldrei
gefið í þessum samningi (á líklega
að vera „þessu samhengi", innsk.
Mbl.) og kom á framfæri leiðrétt-
ingu við þá fullyrðingu í Morgun-
blaðinu degi síðar."
(Sjá um þetta í leiðara Mbl. i
dag og Staksteinum)
Gunnar Thoroddsen:
Meiri líkur á því aö
steinullarverksmidja
rísi á Sauðárkróki
ÉG VIL ekki láta uppi persónulega af-
stöðu mína til staðsetningar steinullar-
verksmiðju sem stendur fyrr en málið
verður tekið til afgreiðslu í ríkisstjórn-
inni.
Hins vegar met ég stöðuna þannig
að meiri líkur séu á því að verk-
smiðjan verði á Sauðárkróki," sagði
forsætisráðherra, Gunnar Thorodd-
sen, í samtali við Morgunblaðið, er
hann var inntur eftir persónulegri
afstöðu sinni til staðsetningar stein-
ullarverksmiðju. Að öðru leyti vildi
hann ekki tjá sig um málið.
Steingrímur Hermannsson, samgönguráðherra:
„Spurningar um sam-
spil hersins og pólitískra
afla réttlætanlegar“
STEINGRÍMUR Hermannswon,
samgönguráðherra, segir í viðtali við
Dagblaðið og Vísi í gær: „Spurningar
um samspil hersins og einhverra póli-
tiskra afla hér á landi eru réttlætan-
legar." Steingrímur Hermannsson
segir þetta í tilefni af fyrirspurn frá
hlaðinu um ákvörðun Bandaríkja-
manna í samhandi við rannsóknir í
Helguvík.
Steingrímur Hermannsson segir
ennfremur: „Ákvörðunin er hins
vegar jafn fráleit hvort sem herinn
hefur tekið hana hvattur eða
óhvattur."
Morgunblaðið reyndi í gærkvöl
að ná tali af Steingrími He
mannssyni til þess að leggja fyi
hann þær spurningar hvort hai
væri með þessum orðum að gefa 1
kynna að Ólafur Jóhannesso
utanríkisráðherra, hefði hva
bandaríska sjóherinn til þess ;
taka þessa ákvörðun eða hvo
hann ætti við stjórnarandstöðui
með ummælum sínum um „pólitíi
öfl“ hér á landi en ekki tókst að r
í Steingrím Hermannsson.
Iðnaðarráðherra á Alþingi:
Liðsmaður Morgun-
blaðsins og Helguvík