Morgunblaðið - 25.03.1982, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1982
5
Ný bók um efni og
innihald messunnar
eftir sr. Sigurð Pálsson vígslubiskup
BÓKIN „Saga og efni messunnar“ eftir sr. Sigurð l*álsson
vígslubiskup er komin út hjá bókaútgáfunni I>jóðsögu.
Fjallar höfundur þar um sögu og innihald messunnar og
eru í bókinni dregnar upp skýringarmyndir af ýmsum
táknum. Ritið cr tileinkað kcnnimönnum og kirkjufólki í
Skálholtsbiskupsdæmi.
— Messan er fullkomnasta
tjáning kristinnar trúar sem til
er, hún hvílir á rökréttum grunni
og viö hann verðum við að halda
okkur, en til þess að menn skilji
messuna verða þeir að þekkja
hana, sagði sr. Sigurður Pálsson í
viðtali við Mbl., en bókin var
kynnt fyrir fréttamönnum í gær.
Hafsteinn Guðmundsson útgef-
andi var þar viðstaddur, svo og sr.
Hannes Guðmundsson, sem að-
stoðaði höfund við lokafrágang
handrits, annaðist m.a. alla vél-
ritun og dr. Jóhannes Nordal, en
Vísindasjóður hefur tvisvar
styrkt sr. Sigurð við samningu
bókarinnar, fyrir nokkrum árum
vegna utanferðar til efnissöfnun-
ar og aftur nú til útgáfu bókar-
innar.
Fyrsti hluti bókarinnar fjallar
um sögu messunnar, annar hluti
er greinargerð fyrir efni hennar
og þriðji hlutinn er um táknmál
kirkjunnar. Segir höfundur m.a.
svo um efnið:
í fyrsta hlutanum er rakið sam-
hengi messunnar, allt frá fyrstu
áratugum kristninnar og fram til
vorra daga. Þar er gerð grein fyrir
þeim mun sem varð á messunni
milli austurkirkjunnar og vestur-
kirkjunnar strax á fyrstu öldum
kirkjunnar. Síðan er fylgt þróun-
inni í vesturkirkjunni, hinni
rómversk kaþólsku, fram að siða-
skiptum. Við siðaskipti varð
brotalöm í þróuninni að því er
snertir kirkjur mótmælenda. I
lx')kinni er gerð grein fyrir afstöðu
Lúthers og hversu samverkamenn
hans gengu frá málum eftir hans
dag. Þá er rakinn ferill hinnar
nýju messu þeirra yfir Danmörku
til íslands. Fyrsta lútherska
messan, sem íslenska kirkjan
eignaðist, er frá 1555 og tekin
saman af Marteini Einarssyni
hiskupi. Af henni eru til tvö ein-
tök, ha>ði í Kaupmannahöfn. Texti
hennar er prentaður í þessari Mk,
en var áður óaðgengilcgur al-
menningi í 400 ár. Síðan er nokk-
ur grein gerð fyrir endurskoðun
messunnar á þessari öld, sem
mjög gengur í sömu átt um öll
lönd vegna hinna miklu gagna
sem komið hafa fram á 19. og 20.
öld.
Annar hluti bókarinnar er
greinargerð fyrir innihaldi mess-
unnar í öllum atriðum og er hún
aðallega sögulegs eðlis. Og að síð-
ustu er yfirlit yfir helstu endur-
skoðanir messunnar og sýnishorn
af nútíma messuformi, sem mjög
cr likt messuformi hinnar nýju
handbókar frá 1981.
Þriðji hluti bókarinnar er um
Séra Sigurður PáLsson vígslubiskup
táknmál kirkjunnar, sem gegndi
miklu hlutverki á fyrri öldum,
þegar menn höfðu ekki bækur og
margir voru ólæsir. Táknmál
þetta gengur í gegnum kirkjulist
allra alda og má því ekki falla í
fyrnsku þannig að sá mikli auður
verði fólki óskiljanlegur. Þekking
þessara tákna er eiginlega hluti af
lestrarkunnáttu manna.
Síðasta rit, sem út hefur komið
hérlendis um sama efni og bók sr.
Sigurðar er eftir sálmaskáldið
Hallgrím Pétursson og þar á und-
an voru þýdd eða samin rit um
sama efni frá 11. öld. Sr. Sigurður
Pálsson segist hafa reynt að rita
bók sína á þann hátt að hún væri
aðgengileg hinum almenna les-
anda, hún ætti að geta orðið guð-
fræðinemum og prestum að
nokkru gagni sem uppsláttarrit
og leiðarvísir til frekari könnunar
efnisins.
IVtkin „Saga og efni messunn-
ar“ er alls 332 blaðsíður og er aft-
ast í henni birtur orðalisti til
skýringar og bókalisti þar _sem
höfundur tilgreinir bækur er
hann hefur stuðst við auk Biblí-
unnar.
Von mín að verk-
ið verði unnið af
íslenskum aðilum
Ræða Gunnars
Thoroddsens, for-
sætisráðherra á
Alþingi í fyrradag
Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, sendi Morgunblaðinu í
ga>r meðfvlgjandi ra*ðu, sem hann
flutti á Alþingi í fvrradag og
óskaði eftir því að ræða þessi yrði
birt í blaðinu i dag. Er hér með
orðið við þeirri ósk Gunnars
Thoroddsens:
Herra forseti.
Það, sem þessar umræður
snúast um, er í rauninni það at-
riði, hvort Orkustofnun eigi með
starfsliði sínu og tækjum að
framkvæma þær rannsóknir og
boranir, sem til stendur og þarf
að gera nú á næstunni, — eða
hvort það verði erlendur aðili,
sem fái það verk í hendur.
Það er vitað, að hjá varnarlið-
inu hefur verið og er nokkur til-
hneiging til þess að undirbún-
ingur og hönnun ýmissa mann-
virkja sé á höndum þess eða á
vegum þess. Hæstvirtur utan-
ríkisráðherra hefur í þessu sam-
bandi lagt sig frarn um, að rann-
sóknir, undirbúningur og hönn-
un sé í eins ríkum mæli og unnt
er í höndum Islendinga sjálfra.
Nú liggur það fyrir, að
Orkustofnun er með samþykki
iðnaðarráðherra tilbúin til þess
að taka að sér umræddar boran-
ir og rannsóknir og telur sig
geta lokið þeim á þeim tíma,
sem til er skilinn í samningnum.
Það var spurt um mín viðhorf
og mína skoðun. Auðvitað er von
mín sú, að þetta verk verði unn-
ið af íslenskri stofnun með ís-
lensku starfsliði og tækjum
þeirrar stofnunar. Hvort það má
verða, úr því sem komið er, get
ég ekkert um sagt, en ég tel
mjög æskilegt, að það geti orðið,
og um það held ég að allir hátt-
virtir alþingismenn hljóti að
vera sammála.
Kl. 18.45 Húsið opnaö. For-
drykkur veittur matargestum.
Tvíréttaður veislumatur fram-
reiddur af okkar alkunnu snilld.
Matarverð kr. 150. Allir gestir
sem koma fyrir kl. 22.30 fá
happdrættismiða.
JAZZSP0RT-
FL0KKURINN
kemur fram
með tvö væg-
ast sagt frá-
bær atriði,
sem virkilega
er veröugt að
sjá.
|ti i.rr*n
síðasta
sinn
aldeilis bráð-
skemmtilegi dansflokkur
Hermanns Ragnars meö
upprifjun á sögu dansins
í 60 ár kemur nú fram í
síðasta sinn á Broadway
á þessu Útsýnarkvöldi
Vegna hinna fjölmörgu sem frá hafa þurft að hverfa á
síðustu Útsýnarkvöldum, höfum við ákveðið að halda
auka Útsýnarkvöld
Stjörnuhátíð á BDCADWAy
sunnudagskvöld 28. marz nk.
Bingó: Spilað verður um 3
Útsýnarferðir til Sólarlanda.
Auöveld getraun fyrir alla —
Vinningur Útsýnarferð.
2 happdrættisvinningar —
Dregið kl. 21.00 og 23.00.
Miðasala hefst í dag á
Broadway, Alfabakka 8,
kl. 16/00—19.00. Sími 77500.
Vinningar kvöldsins:
6 Útsýnarferðir til sex
vinsælustu staöa viö
Miöjaröarhafiö.
Látiö ekki happ úr
hendi sleppa.
Feröakynning: Kynntir verða
helztu ferðamöguleikar til sólar-
landa.
Júlíus Vífill
Ingvarsson,
hinn ungi ís-
lenzki
stjörnuten-
ór, nýkom-
inn frá námi
hjá færustu
kennurum
Ítalíu — regluleg söngstjarna
í fyrsta sinn á Broadway.
GÆZELLA
Tískusýning
frá Hlín.
Nýja vorlin-
an. Stjórn-
andi Asdís
Loftsdóttir.
Ungfrú Útsýn '82
Nú er allra síðasta tæk-
ifærið aö tilkynna þátt-
töku í þessa geysivin-
sælu keppni. A.m.k. 10
efstu stúlkurnar fá
ferðavinninga.