Morgunblaðið - 25.03.1982, Side 19

Morgunblaðið - 25.03.1982, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR 25. MARZ 1982 * Gunnar Snorrason, formaður Kaupmannasamtaka Islands: „Athafnafrelsi einstakl- ingsins, eitt höfuðbaráttu- mál samtakanna, er í höfn“ — nái breytingar á lögum um verðlagsmál fram að ganga á Alþingi 19 Gunnar Snorrason, formaöur Kaup- mannasamtakanna. „ÞEGAR VIÐ lítum til baka og metum bæði það jákvæða og það neikvæða varðandi afkomu og ytri skilyrði, við rekstur smásöluverzlunar á sl. ári, ber hæst af því jákvæða og það sem er algjört grundvallaratriði fyrir viðskiptalif- ið, að næg atvinna hélzt allt árið,“ sagði Gunnar Snorrason, formaður Kaupmannasamtaka íslands, m.a. í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna í liðinni viku. Frá aðalfundi Kaupmannasamtaka íslands fyrir skömmu. Ljésmynd Mbi. rax. „í öðru lagi og í beinu framhaldi og samhengi af þessu virðist tals- verð kaupgeta fólks hafa verið fyrir hendi á sl. ári. Því til stuðn- ings má benda á, að þegar gengis- felling er í sjónmáli, er nánast allt keypt sem hönd festir á. í þriðja lagi hefur nægilegt vöruframboð verið fyrir hendi í verzlunum, og er það einnig ánægjulegt," sagði Gunnar ennfremur. „Þegar það neikvæða kemur upp í hugann, skal fyrst nefna þá verð- bólgu, sem lítið virðist hægja á sér í okkar þjóðfélagi. Verðbólgan, sem varð um það bil 50% á sl. ári, kemur illa við allan atvinnurekst- ur og þá ekki sízt við þann at- vinnurekstur, sem við stundum. I öðru lagi vil ég nefna þá sífelldu hækkun á rekstrarliðum smásölu- verzlunarinnar, sem engin tak- mörk virðast vera sett. Þá vil ég nefna þann þátt, sem mest vegur í rekstrinum, eða um 60%, en það eru launin. Kauptaxt- ar allra launþega eru að meðaltali taldir hafa hækkað um rösklega 42% á árinu 1981, samanborið við um 54% hækkun á árinu 1980. Af þessum 42% eru um það bil 37% vegna verðbótahækkana og um 4% vegna grunnkaupshækkana. Á árinu 1980 hækkuðu verðbætur hins vegar um 42%, en grunnkaup um 9%. Verðlagsmál hafa verið á dagskrá hjá stjórnvöldum síðustu vikur og nú virðast þessa dagana vera teikn á lofti, sem benda til að breytingar séu í aðsigi til hins betra í þessum efnum. Þær breyt- ingar, sem rætt er um, eru m.a., að svokallað Samkeppnisráð verði lagt niður og þess í stað komi nefnd skipuð fulltrúum frá Vinnu- veitendasambandi íslands og Al- þýðusambandi Islands, auk for- manns nefndarinnar frá við- skiptaráðuneytinu. Þessi nefnd gerir síðan tillögur til Verðlags- ráðs, m.a. metur hún hvar frjáls verðmyndun kemur til greina og í hvaða vöruflokkum. Verðlagsmálin verða um leið al- farið tekin úr höndum ríkisstjórn- arinnar. Ef þessar ákvarðanir sjá dagsins ljós er eitt af höfuðbar- áttumálum Kaupmannasamtaka íslands í áraraðir, athafnafrelsi einstaklingsins, í höfn. Annað af baráttumálum Kaup- mannasamtaka íslands gegnum árin náði fram að ganga sl. vor, þegar ríkisstjórnin staðfesti sam- þykkt Verðlagsráðs, þar sem smá- söluverzlunum er heimilt að færa upp vörubirgðir sínar til raunvirð- is þegar innkaup eru gerð,“ sagði Gunnar Snorrason, formaður Kaupmannasamtaka íslands, á aðalfundi samtakanna. Qlafur Gíslason & Co. býður nýja flokkunar- og samvalsvog: „Mun leysa af hólmi hefðbundinn þyngdar- og flokkunarbúnað“ — segja forsvarsmenn fyrirtækisins FYRIRT/EKIÐ Olafur Gíslason & Co hf. hefur um áratugaskeið selt vogir til notkunar í fiskiðnaði og fleiru hér á landi, má þar nefna Avery-borðvogir, sem fyrirtækið hefur selt hér á landi í nærri 50 ár. í fyrsta sinn býður fyrirtækið nú örtölvustýrða flokkunar- og samvalsvog fyrir fiskiðnaðinn frá Aalborg Industrial ('orporation í Danmörku. Richard Hannesson, fram- kvæmdastjóri, og Friðþór Eydal, sölumaður hjá Ólafi Gíslasyni, sögðu í samtali við Mbl., að þessi nýja samvalsvog væri í raun bylt- ing fyrir frystihúsin, sem hefðu ekki haft þá möguleika, sem vogin hýður upp á. „Hér er í raun um að ræða nýj- ustu tækni í vogar- og tölvubúnaði og mun slíkur búnaður án efa leysa af hólmi hefðbundinn þyngdar- og flokkunarbúnað í framtíðinni, sökum hinna óendan- legu möguleika er örtölvubúnað- urinn veitir við flokkun og samval. AlC-samvalsvogin getur flokkað í 8, 16, eða 24 flokka og hún hefur möguleika á fimm föstum flokk- unarprógrömmum í einu. Er því hægt á örskömmum tíma, að skipta frá einni tegund fisks eða pakkningar, yfir í aðra, með því að velja annað prógramm," sögðu þeir félagarnir Richard og Frið- þór. Sem dæmi um prógrömmin má m.a. nefna: „Flök eða annað af sama þunga, t.d. 100 grömm, með fráviki upp á 5 grömm í báðar áttir veljast í eina rás og flök af öðrum þunga í aðrar. Þungamörk hvers flokks ásamt staðsetningu á færibandinu eru stimpluð inn í minni vélarinn- ar en boð um lokun „porta" miðast við lengd færibandsins, en ekki tíma frá vigtun, því er hægt að velja hverjum flokki stað hvar sem á færibandinu í allt að 100 metra fjarlægð. Síðan er möguleiki á að velja ákveðinn þunga eða fjölda, t.d. flaka, í hverja rennu. Þegar því marki er náð er gefið merki um að hún skuli tæmd og má á meðan vísa sömu tegund annað. Samval, minnsta og mesta leyfi- leg þyngd hvers flokks, ásamt heildarþyngd og fjölda stykkja í hverja pakkningu er slegið inn og velur vélin síðan saman heil stykki í rétta þyngd pakkningar, t.d. 5 punda flakapakkningar. Við samval er þörf á 16 flokka vél.“ F’élagarnir sögðu, að stykkja- fjöldi og heildarþungi skráist jafnóðum inn í minni vélarinnar og sé hægt að kalla það fram á skjánum eða á prentara hvenær sem er dagsins. „Flokkunarbönd og rennur eru fáanlegar af öllum mögulegum gerðum samkvæmt þörfum hverju sinni," sögðu þeir Richard og Friðþór ennfremur. „Kostir þessarar nýju vogar eru ótvíræðir. Mikill sparnaður verður í mannahaldi, auk þess sem meiri stöðlun á pakkningum fæst og opnar það gífurlega möguleika á nýjum mörkuðum fyrir staðlaðar neytendapakkningar. Þá er stór kostur, hversu nákvæm og hrað- virk vogin er. Hún vegur stykkið 300 sinnum á vogarbandinu og allt að 200 stykki á mínútu. Auk þess sem hún getur gefið merki eða stoppað þegar ákveðinni þyngd eða fjölda er náð, í einum eða fleiri flokkum, eða aðrar rásir taka við flokkuninni á meðan þær fyrri eru tæmdar," sögðu þeir Richard og Friðþór ennfremur. Þá kom það fram hjá þeim fé- lögum, að frystihúsamenn hefðu sýnt þessari vog mikinn áhuga og sagt hana vera miklum kostum búna og í því sambandi má geta þess, að tengja má samvalsvogina við tölvukerfi, sem flest frystihús- in hér á landi nota í dag. Eitt AI('*flokkunar- og samvalsvog. fyrirtæki hefur þegar pantað svona vog og er hún væntanleg í sumarbyrjun. Þeir félagarnir sögðu að síðustu, að þeir myndu kynna þessa nýju vog á sýningu Fiskiðnaðar um helgina, en þar verða helztu nýjungar í fiskiðnaði kynntar. Kapalsjónvarp breið- ist út í Bandaríkjunum Á SÍÐASTA ári voru um 14 milljónir áskrifenda að kapalsjónvarpi í Handaríkjunum og nú er því spáð, að þeim muni fjölga um 300% fram til ársins 1985 og verða um 40 milljón- ir. Stærsta kapalsjónvarpsstöðin í Handaríkjunum er dótturfyrirtæki útgáfufyrirtækis Time og hefur sú stöð um 8,5 milljónir áskrifenda, eða um 60% af þeim, sem nota kapal- sjónvarp þar í landi. Það tók þessa sjónvarpsstöð mörg ár að komast á það stig, að hún skilaði hagnaði af rekstri sínum og alveg fram á síð- asta ársfjórðung síðasta árs var þessi kapalsjónvarpsstöð hin eina i Handaríkjunum, sem skilaði ein- hverjum hagnaði. Fyrir nokkrum árum var helsta vandamál þeirra, sem reka kap- alsjónvarpsstöðvar vestanhafs að finna efni til þess að sýna, en nú eru starfandi um 35 fyrirtæki, sem framleiða sérstaklega efni fyrir kapalsjónvörp. Það hefur valdið erfiðleikum við rekstur kapalsjónvarpsstöðva, að erfitt hefur verið að fá auglýs- ingar í þessar.sjónvarpsstöðvar og er ein af ástæðunum sú, að þar er ekki um að ræða sams konar könnun á notkun áhorfenda á sjónvarpsefninu og í hinum al- mennu sjónvarpsstöðvum, en það er á grundvlli slíkra kannana, sem auglýsendur hafa keypt auglýs- ingatíma í sjónvarpi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.