Morgunblaðið - 25.03.1982, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1982
Dæmdur
saklaus,
sekur,
saklaus
l/ondon, 24. mars. AP.
JKREMIAH Anderson taldi öll
vandræAi sín á bak og burt er
hann var sýknaAur af ákæru um
líkamsárás fyrir rétti í Snares-
brook. Svo var þó aldeilis ekki.
Aðeins fimm mínútum eftir
að hann var sýknaður var hann
kallaður á nýjan leik inn í rétt-
arsalinn og honum tilkynnt að
hroðaleg mistök hefðu átt sér
stað. Hann var eftir allt saman
sekur.
Var hann sekur fundinn um
að hafa ráðist á annan bílstjóra
í deilu þeirra við umferðarljós á
gatnamótum. Fylgdi úrskurðin-
um að Anderson yrði harðlega
refsað ef hann yrði sekur fund-
inn um svipað athæfi innan
næstu 12 mánaða.
Logmenn segjast aldrei hafa
heyrt um annað eins í breskri
réttarfarssögu. Anderson áfrýj-
aði úrskurðinum til hæstarétt-
ar. Þar var fyrri úrskurður rétt-
arins í Snaresbrook staðfestur.
Anderson var saklaus.
Fylgdi niðurstöðu hæstarétt-
ar sú skýring að þar sem dóm-
ararni. hefðu yfirgefið réttar-
salinn á „milli dóma“ væri sá
möguleiki fyrir hendi, að utan-
aðkomandi aðili hefði haft áhrif
á þá. í ljósi þess væri ekki stætt
á að breyta fyrri úrskurði.
Finnland:
Búbót hjá
Miðflokknum
Ih-lsinki, 24. marz, frá llarry Cranb<‘rg,
fréttaritara Morgunblaósin.s.
ERJÁLSLYNDI þjóðarflokkurinn
hefur lagt upp laupana og sameinazt
MiAflokknum, en ástæAan er sú aA
hinn fyrrnefndi hefur fengiA sifellt
minni hljómgrunn í kosningum og á
nú einungis fjóra fulltrúa á þingi.
Þingmenn frjálslyndra koma til liAs
viA MiAflokkinn sem á 37 fulltrúa á
þingi, en flokkurinn ætlar samt sem
áður að halda nafni sínu og verður
formlega deild í MiAflokknum.
Frjálsiyndi þjóðarflokkurinn
fékk 12 menn kjörna í þingkosning-
um árið 1975 en fjórum árum síðar
aðeins fjóra. Reiðarslagið kom þó í
forsetakosningunum í vetur, en þá
fékk flokkurinn ekki einn einasta
kjörmann þótt þrjú hundruð full-
trúar væru á kjörmannasamkund-
unni.
Paavo Vaurynen, formaður
Miðflokksins, er hinn brattasti
vegna þeirrar búbótar sem flokki
hans hefur borizt, og lýsti því yfir í
dag að ákvörðun frjálslyndra væri
stórsigur fyrir Miðflokkinn og
stefnu hans.
BANGLADESH hefur átt sér
stormasama sögu síðan landið
hlaut sjálfstæAi frá Pakistan í árs-
lok 1971.
Herbyltingar hafa þjakað þetta
fátæka land milli Indlands og
Burma og það þarf mikla erlenda
aðstoð til að fæða landsmenn,
sem eru 90 milljónir. Flóð og
hungur hafa oft hrjáð efnahag-
inn, sem byggist á landbúnaði.
Tekjur á mann eru um 1.000
krónur á ári og fá lönd í heimin-
um eru eins vanþróuð.
Fyrir 1971 var Bangladesh
austurhluti Pakistans, heimkynni
Afghanskir ættarhöfðingjar úr andspyrnuhreyfingunni svara spurningum blaðamanna í París 24. marz. Þetta mun vera fyrsta slíka nefndin sem komið
hefur til Evrópu frá Afghanistan síðan Rússar réðust inn í landið. Á myndinni eru (talið frá vinstri); Hahibullah Abdel Haq, yfirmaður nokkurra hópa
í Kabul, Manssor Ahmad Zai, sem lék áður í landsliði Afghana í körfuknattleik, Ahmad Zia og Salim, fyrrverandi lautinant í afghanska hernum.
Brezhnev blíðkar
Peking-stjórnina
Moskvu, 24. marz. Al*.
LEONID Brezhnev forseti vingaðist
við Kínverja í dag og sagði að Rúss-
ar væru „tilbúnir hvenær sem er“ til
nýrra viðræðna við Peking-stjórnina
um landamæradeilur ríkjanna.
Nikósíu, 24. marz. Al*.
ÍRANSKI herinn hefur hafizt handa
um annan þátt „Hernaðaraðgerðar
sigurs“ á Nhush-Dezful-vígstöðvunum
í olíuhéraðinu Khuzistan að sögn ir-
önsku fréttastofunnar (IRNA). Báðir
aðilar hafa orðið fyrir miklu mann-
tjóni.
Fréttastofan segir að annar þátt-
ur aðgerðanna sé víðtækari en sá
fyrsti. Óvininum hafi verið komið í
opna skjöldu norðvestur af Shush,
30 km frá íröksku landamærunum,
og hann hafi ekki átt um annað að
velja en gefast upp eða falla.
Iranar sögðu í gær að þeir hefðu
náð stóru landsvæði af írökum, fellt
eða sært 12.000 íraka og tekið 6.000
til fanga.
Irakar sögðu að þeir hefðu stöðv-
Brezhnev sagði þetta í Tashkent
í Uzbekistan, þar sem hann veitti
lýðveldinu Lenínorðuna fyrir
frábæra landbúnaðarframleiðslu í
fyrra.
að árásina og hafið gagnsókn í því
skyni að reka þá burt af svæðinu.
Irakar sögðu að þeir hefðu fellt
10.000 írana og að þúsundir ann-
arra hefðu særzt eða verið teknir til
fanga.
IRNA sagði að 2.000 írakskir
stríðsfangar hefðu verið látnir
ganga í dag um götur Teheran, frá
járnbrautastöðinni til herskólans,
þar sem „þúsundir og aftur þúsund-
ir manna hrópuðu andbandarísk og
andíröksk slagorð".
írakar sögðu að íranskir stríðs-
fangar yrðu látnir ganga um götur
Bagdad. íranar hafa sagt að þeir
hafi tekið 7.000 íraka til fanga —
íranar segjast hafa tekið 2.500 ír-
ana til fanga.
Viðræðurnar hafa legið niðri
síðan 1978 og Kínverjar hafa neit-
að að samþykkja að þær verði
teknar upp að nýju fyrr en Rússar
hörfi með her sinn frá Afghanist-
an.
Ekki er lengra síðan en á föstu-
dag að Kínverjar sökuðu Rússa
um að sýna „skefjalausa árás-
arhneigð" gagnvart kínverskum
landsvæðum.
Brezhnev sagði að Rússar hefðu
aldrei reynt að skipta sér af kín-
verskum innanlandsmálum þrátt
fyrir gagnrýni á stefnu Peking-
stjórnarinnar. Hann sagði líka að
Rússar afneituðu ekki tilveru sósí-
alistakerfis í Kína, þótt Peking-
stjórnin legði blessun sína yfir
stefnu heimsvaldasinna í heims-
málunum og ynnu þar með gegn
hagsmunum sósíalismans.
Brezhnev sagði að Rússar viður-
kenndu enn yfirráð Peking-
stjórnarinnar yfir Taiwan.
Rússar hafa tvívegis reynt í
kyrrþey á síðari mánuðum að fá
Kínverja til nýrra landamæravið-
ræðna. Síðasta stefnuyfirlýsing
Brezhnevs um Kína kom fram í
langri ræðu hans á 26. flokksþing-
inu, þar sem hann kenndi þeim um
að eiga sök á deilum þjóðanna.
Tvísýn kosning
ræður örlögum
Jenkins í dag
Clasgow, 24. marz. Al*.
ROY JENKINS gerði lítið úr áfalli,
sem hann varð fyrir í dag, í síðustu
skoðanakönnuninni fyrir aukakosn-
inguna í millistéttakjördæminu
Hillhead í Glasgow á morgun,
fimmtudag, og kvaðst vona það
bezta.
Samkvæmt skoðanakönnun
Gallups í The Daily Telegraph er
Jenkins þriðji í röðinni. David
Wiseman úr Verkamannaflokkn-
um fær 33% samkvæmt könnun-
inni, Gerry Malone úr íhalds-
flokknum 27,5%, Jenkins 26,5%,
George Leslie úr Skozka þjóðern-
issinnaflokknum 11,5% og aðrir
1,5%.
Ef Jenkins sigrar fyrir bandalag
Sósíaldemókrataflokksins (SDP)
og Frjálslynda flokksins eykst
ógnun þess við tveggja flokka
kerfi Verkamannaflokksins og
íhaldsflokksins, sem mótað hefur
brezk stjórnmál í 60 ár, og Jenkins
gæti orðið forsætisráðherraefni í
þingkosningunum sem eiga að
fara fram eftir tvö ár.
Ef hann tapar gæti uppgangur
SDP stöðvazt, þar sem Jenkins er
ókrýndur leiðtogi nýja flokksins
og þarf nauðsynlega að fá sæti í
Neðri málstofunni.
Samkvæmt skoðanakönnun í
gær, þriðjudag, hafði Jenkins 4%
meira fylgi en keppinautar hans.
Baráttumenn SDP svöruðu síð-
ustu skoðanakönnuninni með
skýrslu um niðurstöður viðræðna
við kjósendur, þar sem segir að
Jenkins sé efstur einum degi fyrir
kosninguna og 20% kjósénda
óráðnir.
Kunnugir telja að Glasgow-búar
hafi leikið á starfsmenn skoðana-
kannananna. Auk þess vilja skozk-
ir kjósendur yfirleitt lítið um það
ræða hverja þeir ætli að kjósa í
kosningum.
Snauð þjóð þjökuð
af flóðum og óáran
múhameðstrúarmanna. Landið
var aðskilið frá Indlandi þegar
Bretar skiptu Indlandsskaga
1947.
Trúin reyndist hins vegar veik-
ari en landshornarígur í hinu
nýfrjálsa ríki og Bengalar
Austur-Pakistans gerðu uppreisn
gegn Púnjöbum Vestur-Pakist-
ans.
Stutt en blóðug uppreisn var
gerð í desember 1971 og austur-
pakistanskir uppreisnarmenn
börðust með stuðningi indverskra
hermanna gegn herliði Vestur-
Pakistans, sem er í rúmlega 1.600
km fjarlægð. Ríkið Bangladesh
varð til.
Sjálfstæðisleiðtoginn Sheikh
Mujibur Rahman var ráðinn af
dögum í janúar 1975. Tilræðis-
maðurinn var hægrisinnaður for-
ingi í hernum og nokkrar herbylt-
ingar fylgdu í kjölfarið. Sá sem
lengst hefur verið við vöid var Zi-
aur Rahman forseti (óskyldur
fyrsta forsetanum). Hann var
fyrrverandi herráðsforseti,
traustur og vinsæll leiðtogi, og
ríkti frá 1977 þar til hann var
ráðinn af dögum í mai í fyrra.
Landbúnaðarframleiðslan hef-
ur aukizt verulega á síðari árum
og síðustu fjórar hrísgrjónaupp-
skerurnar hafa sett met. En
rúmlega 2% fólksfjölgun vegur
upp á móti aukningunni.
Basttrefjar eru aðalútflutn-
ingsvaran og Bandaríkjamenn
eru aðalkaupendurnir (nota þær í
teppagerð). Málmauðlindir eru
litlar, en þó eru til jarðgaslindir,
sem eru að mestu ónýttar. Sumir
telja að jarðgasið sé bezta von
landsins um farsæla framtíð.
(AP)
íransher heldur
áfram sókninni