Morgunblaðið - 25.03.1982, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1982
23
Mestu uppþotin á
V esturbakkanum
inga um vantraust á ríkisstjórn
Menachem Begins féll á jöfnum
atkvæðum á þingi. Tillagan var
borin fram vegna þess hvernig
stjórnin hefur haldið á málum
hertekinna svæða og samninga-
viðræðunum við Egypta um
heimastjórn Palestínumanna.
Stjórn Begins vildi ekki sam-
þykkja að hann segði af sér eftir
úrslit atkvæðagreiðslunnar (58-
58) í þinginu, en Begin sagði að
hann sæi fáa aðra kosti en þann
að boða til nýrra kosninga í nóv-
ember, þremur árum áður en kjör-
tímabilinu lýkur.
Begin hefur stjórnað með stuðn-
ingi 61 fulltrúa af 120 á þingi, en
hann sagði í dag að þótt „meiri-
hlutinn styddi raunar ekki þingrof
væri mjög erfitt að fá lög sam-
þykkt eins og nú væri ástatt".
Þó tókst stjórninni í dag að fá
samþykkt fjárlagaákvæði með
stuðningi hægrimanns þess sem
hljóp undan merkjum í gær.
í Beirút hermdu heimildir PLO
að óeirðirnar á Vesturbakkanum
mundu ekki leiða til árása skæru-
liða frá Líbanon. Sagt var að Isra-
elsmenn vildu kalla fram slíkar
árásir til að neyða skæruliða að
rjúfa vopnahlé það sem staðið hef-
ur í átta mánuði.
Flotavarnir veikjast
vegna niðurskurðar
London, 24. marz. Al*.
NIÐURSKURÐUR á útgjöldum til
brezka sjóhersins hefur veikt mátt
hans svo mjög að hann stendur illa
að vígi og mun jafnvel ekki geta gert
sovézka kafbáta óvirka að sögn
brezku fréttastofunnar Press Associ-
ation samkvæmt heimildum í brezka
varnarmálaráðuneytinu.
I’etta er síðasti „lekinn” um varn-
armál Breta af mörgum, en þeir hafa
vakið reiði ríkisstjórnarinnar og
valdið henni erfiðleikum.
Samkvæmt síðustu sparnaðar-
ráðstöfun stjórnarinnar verður
fækkað um 10.000 menn í sjóhern-
um í 62.000 á næstu fjórum árum
og sjö æfingastöðvum verður lok-
að. I fyrra var ákveðið að fækka
ofansjávarskipum úr 59 í 42.
Nokkrir helztu veikleikarnir af
völdum niðurskurðarins eru þess-
ir:
• Niðurskurðurinn dregur úr
styrk NATO í eftirlitsflugvélum
og bæði venjulegum kafbátum og
kjarnorkuknúnum. Þetta hefur
dregið verulega úr getu banda-
lagsins til að loka leið sovézkra
kafbáta inn á Atlantshaf um
GIUK-hliðið milli Grænlands, ís-
lands og Bretlands samkvæmt
heimildunum.
• Brezki sjóherinn getur ekki af
eigin rammleik sökkt hinu kjarn-
orkuknúna orrustubeitiskipi
„Kirov" („Bismarck níunda ára-
tugarins") þar sem hann ræður
ekki yfir nógu miklum skotkrafti.
• Beita yrði öllum 34 Nimrod-
eftirlitsflugvélum Breta til að
vernda skipalestir Breta á að-
gerðasvæði þeirra og þannig
mundu myndast glufur í varnir
NATO.
• „Erfitt" yrði að gera sovézka
kjarnorkukafbáta óvirka áður en
þeir kæmust í skotfæri vegna
skorts á ofansjávarskipum og
flugvélum sem þarf til að hafa upp
á þeim.
• Beita yrði öllum tundurspillum
og freigátum Breta til að verja
bandarísk flugvélamóðurskip og
skipalestir á Atlantshafi og þær
glufur yrðu aðrir flotar banda-
manna að fylla.
ÞRÍR Arabar féllu í dag og a.m.k. 10
særðust þegar ísraelskir hermenn
beittu skotvopnum vegna óeirða á
Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu
og ástandið hefur ekki verið eins
alvarlegt síðan uppþotin hófust fyrir
einni viku.
Jafnframt tóku ísraelskir
landamæraverðir þrjá arabiska
skæruliða til fanga þegar þeir
reyndu að laumast inn yfir norð-
urlandamærin frá Líbanon.
Engu skoti var hleypt af þegar
skæruliðarnir voru handsamaðir
með Kalashnikov-riffla norður af
landamærabyggðinni Hanita, 10
km austur af Miðjarðarhafi.
Þessir atburðir gerðust skömmu
eftir að tillaga stjórnarandstæð-
30 börn deyja
úr kíghósta
Nýju Ik’lhí, 24. marz. Al*.
MEIRA en 30 börn létust í kíg-
hóstafaraldri í smábænum
Warwan í Norður-Indlandi.
Flest fórnarlambanna voru
undir 10 ára aldri. Fjöldi lækna
og sjúkraliða hefur verið sendur
til þorpsins til að reyna að hefta
frekari útbreiðslu faraldursins.
Brezkt lið til
Falklandseyja
I_I_ Oi ___ tl) ^
Umdon, 24. marz. Al'.
BKEZKA ískönnunarskipið
„HMS Endurance“ er á leið til
einna af Falklandseyjum á
Suður-Atlantshafi til að fjar-
lægja 10 Argentínumenn, sem
hafa dregið fána Argentínu að
húni til að leggja áherzlu á kröfu
landsins til eyjaklasans að sögn
Lundúnablaðsins „Standard“.
Talsmaður varnarmála-
ráðuneytisins vildi hvorki
staðfesta fréttina né bera
hana til baka.
Flokkur landgönguliða er
um borð í „Endurance" og þeir
eiga að fjarlægja Argentínu-
mennina, sem stigu á land á
eynni South Georgia á föstu-
daginn. Alls fóru 60 Argent-
ínumenn til eyjunnar, í orði
kveðnu til að fjarlægja brota-
járn frá gamalli hvalveiðistöð,
sem er ekki lengur í notkun, og
10 þeirra urðu eftir.
„Standard" segir að Argent-
ínustjórn hafi sent brezku
stjórninni mótmæli vegna
þess að íbúar í Port Stanley,
höfuðborginni, hafi ráðizt á
skrifstofur argentínska flugfé-
lagsins Lade til að hefna að-
gerða Argentínumannanna á
South Georgia.
Argentínumenn hafa í rúma
öld gert tilkall til Falklands-
eyja sem eru 772 km norðaust-
ur af Hornhöfða og 13.035 km
frá Bretlandi.
„Endurance“ er búið tveim-
ur litlum 20 millimetra fall-
byssum og varnarmálaráðu-
neytið segir að rangt sé að
kalla skipið fallbyssubát eða
herskip.
\
Vorum að taka upp nýjar vörur
VÖRUHUSIÐ
Þú hringir
— við póstsendum
samdægurs
Auöbrekku 44-46, Kópavogi — Sími póstverslunar 45300
4114 Röndótt vesti í kúrekastíl. Litir: Rautt eða blátt. Stæröir: 34—42. Kr. 395.—.
4115 Langermamussa með líningu í hálsinn. Litir: Hvítt, rautt eöa blátt. Kr. 384.—.
4116 Buxur í kálfasídd. Litir: Rauöröndótt eöa blátt. Kr. 449.—.
4117 Jakki með „western“-sniði. Litir: Blá- eða rauðröndótt. Kr. 499.—.
4118 Blúndutoppar með litlum hlírum. Kr. 175.—
TÍZKUSÝNING
OG ÓKEYPIS VEITINGAR
í verslun okkar
kl. 20.30 í kvöld
Tízkusýningar, þar sem þú getur
samtímis þreifað á vörunni,
skoöaö og keypt, er nýjung hér-
lendis. Viö bjóöum þér að koma
og njóta góöra veitinga og
skoöa frábæra sýningu Módel-
samtakanna í nýja vöruhúsinu
okkar að Auðbrekku 44—46 í
Kópavogi.
Veriö velkomin. Sýningin og
veitingarnar eru ókeypis.
Verslunin er
opin til
kl. 22.00