Morgunblaðið - 25.03.1982, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.03.1982, Blaðsíða 26
2 6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1982 Glundroði 1 fjármálakerfinu: Greiðslubyrði erlendra lána fímmtungur útflutningstekna Forsendur lánsfjárlaga löngu brostnar — niðurskurður framkvæmda Frumvarp að lánsfjárlögum, sem afgreiða átti fyrir áramót sl., en samkomulag varð um að geyma fram í janúarmánuð, með því for- orði, að afgreiða skyldi ekki síðar en fyrir 27. janúar 1982, kom loks úr þingnefnd til annarrar umræðu í neðri deild Alþingis í gær. Halldór Asgrímsson (F) sagði ríkisstjórn skorinn þröngur stakkur- inn með þessu frumvarpi, en hún yrði að halda sér innan þessa ramma. Matthías Bjarnason (S) sagði hinsvegar, að forsendur lánsfjárlaga, þ.e. viðmiðun við tilbúna 33% „verðlagshækkun“ milli áranna 1981 og 1982, er þýddi 27% verðlagsþróun frá upphafi til loka árs 1982, þegar og löngu brostna. Þegar frumvarpið kom fram í desembermánuði sl. hljóðaði heimild til erlendra lána 1982 upp á 604.970 þúsund krónur, en í endanlegri mynd stjórnarsinna er lánsfjárheimildin hækkuð upp i 673.970 þúsund krónur. Forsendur frumvarps til lánsfjárlaga þegar brostnar Matthías Bjarnason (S) sagði frumvarpið gera ráð fyrir sömu verðbreytingu milli áranna 1981—’82 og fjárlög, þ.e. 33%, en það þýddi 25—27% verðbólgu frá ársbyrjun til loka árs 1982. Frá því þessi reiknitala fjárlaga var ákveðin á haustnóttum hefur orð- ið veruleg launabreyting. Grunn- kaup hefur hækkað um 3,25% um- fram þessar „forsendur" og í kjöl- far meiri fiskverðshækkunar en gert var ráð fyrir í þessum „for- sendum" varð stórfelld gengis- breyting í janúar. Gengi Banda- ríkjadals hefur hækkað um 33,2% síðan 9. október í fyrra, þegar frumvarp til fjárlaga var lagt fram. Hagstofa hefur reiknað út vísitölu byggingarkostnaðar eftir verðlagi í fyrrihluta marz, sem reyndist 55,67%, miðað við 12 mánaða tímabil. Hækkun fram- færsluvísitölu óniðurgreiddrar reyndist 58% á 12 mánuðum en 45%, ef niðurgreiðslur vóru reikn- aðar inn í dæmið. Það er því ljóst, sagði Matthías, að þetta frumvarp til lánsfjárlaga, er byggt á verð- lagsforsendum, sem eru löngu brostnar. Lánsfjárlög, sem byggð eru á fölskum forsendum um verðbólgu og gengisskráningu en fastri krónutölu til ýmissa fram- kvæmda, þýða raunverulega stór- Matthías Bjarnason felldan sjálfvirkan niðurskurð á framkvæmdum og leiða til algjörs glundroða í fjármálakerfi lands- ins. Hér er því um mikið alvöru- mál að ræða. StjórnarsáUmálinn og fyrirheit Alþýðubandalagsins Matthías Bjarnason minnti á tvö meginatriði í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar, frá í febrúar 1980: • 1) „Ríkisstjórnin mun vinna að hjöðnun verðbólgu, þannig að á árinu 1982 verði verðbólga orðin svipuð og í helztu viðskiptalöndum íslendinga," þ.e. vel undir 10%. • 2) „Erlendar lántökur verði takmarkaðar eins og kostur er og að því stefnt, að greiðslubyrði af erlendum skuldum fari ekki fram úr 15% af útflutningstekjum þjóð- arinnar á næstu árum.“ Þrátt fyrir alla „vísitöluleiki" er hverjum hugsandi manni ljóst, að ríkisstjórnin hefur glutrað niður verðbólgumarkmiðum sínum, og greiðslubyrði erlendra lána verður nálægt 19% af útflutningstekjum þjóðarinnar, samkvæmt væntan- legum lánsfjárlögum. Þetta þýðir að um fimmtungur af útflutn- ingstekjum þjóðarinnar hverfur í greiðslubyrði erlendra lána í ár og er langt yfir hættumörkum. Síðan vék Matthías að fjár- hagsstöðu byggðasjóðs, fram- kvæmdasjóðs, sjóða húsnæðis- málakerfisins, lánasjóða atvinnu- veganna og taldi fyrirséð, að al- gjör óvissa ríkti í ár um fram- kvæmdir, er tengdust þessum sjóðum, ekki sízt á vegum at- vinnuveganna, og frekari sam- dráttur í fjármunamyndun væri fyrirsjáanlegur. Fyrirhugað væri að veita frumlán aðeins til um 1100 íbúða á þessu ári á móti 1900 árið 1978. í stefnuskrá, sem Alþýðubanda- lagið hafi viðrað 1978, hafi verið talað um stöðugt gengi. Alþýðu- bandalagið hafi þá gagnrýnt harð- lega að hin íslenzka mynt hefði fallið um 174% í fjögurra ára tíð ríkisstjórnar Geirs Hallgrímsson- ar 1974—1978. Frá því Alþýðu- bandalagið hafi sezt í ráðherra- stóla, í september 1978, hafi Bandaríkjadalur hækkað, mælt í nýkrónum, úr kr. 2,60 í kr 10,11, þ.e. ekki um 174% á 4 árum, sem Alþýðubandalagið hefði harðast gagnrýnt, heldur um 288% á þremur og hálfu ári! Sama máli gegni um flest þau stefnuatriði, sem Alþýðubandalagið hafi sett fram 1978, hvort heldur varðar kjaramál eða annað, komnir í valdaaðstöðu hafi ráðherrar þeirra stigið tvö skref aftur á bak fyrir hvert eitt áfram í auglýstum kosningastefnumiðum sínum. Húlahopp í stjórnarliðinu Matthías Bjarnason rakti í ít- arlegu máli flesta þætti stjórnar- frumvarpsins, fjármagnsstöðu fjárfestingar- og atvinnuvega- sjóða, rekstrarstöðu atvinnuvega, hallarekstur ríkisstofnana og hvern veg ríkisvaldið hefði seilst í æ ríkara mæli í sparifé þjóðfé- lagsþegnanna, á kostnað atvinnu- lífsins. Hann sagði verðbólgumarkmið ríkisstjórnarinnar hrunin og rík- isstjórnin stæði í fjörugum verð- bólgudansi. Sjálfir segðust ráð- herrar myndu setja nýja bót á verðbólgubuxur sínar með haust- inu, en ekki sýndist stjórnin líkleg til stórræðanna, ef marka mætti það húlahopp sem ráðherrar iðk- uðu þessa dagana. Birgir Isleifur Gunnarsson: Einn ráðherra rassskellir annan Hér fer á eftir, í megin- atriðum, ræða Birgis Isleifs Gunnarssonar (S), sem hann flutti í umræöu utan dag- skrár í fyrradag. Ég skil það vel, að Svavar Gestsson skuli hafa fundið sig knúinn til að standa hér upp og reyna að bera blak af iðnaðarráð- herra. Ég verð að segja það, að ég hef ekki orðið vitni að öllu aumari frammistöðu eða öllu meiri rassskellingu, sem nokkur ráð- herra hefur fengið, hvorki fyrr né síðar, en iðnaðarráðherra nú í þessum málum, bæði með aumum tilsvörum sínum við þeim fyrir- spurnum sem Þorvaldur Garðar Kristjánsson beindi til hans og jafnframt með þeirri ráðningu sem utanríkisráðherra veitti hon- um. Það þýðir ekkert fyrir félags- málaráðherra að koma hér upp og reyna að drepa þessu máli á dreif með því að draga fram það, sem hann telur vera kjarna málsins, einhverja ímyndaða hótun banda- ríska sjóhersins. Það er ekki kjarni þessa máls. 1 fyrsta lagi vegna þess að sú ímyndaða hótun kom ekki fram fyrr en eftir að iðnaðarráðherra var búinn að fremja þá stjórn- valdsathöfn, sem eiginlega er kjarni þeirrar umræðu, sem hér á sér stað. Og í öðru lagi var hér ekki um neina hótun að ræða, ekki eins og hún birtist a.m.k. venjulegum borgurum, heldur fyrst og fremst spurning um það, hvort staðið yrði við samninga, sem gerðir hafa verið á fullkomnum viðskipta- legum grundvelli. En mér fannst þau ummæli, sem utanríkisráðherra viðhafði hér í þessum umræðum, vera það merkileg og einstök, að ég kvaddi mér hljóðs, fyrst og fremst til þess að reyna að drepa á nokkur meg- inatriði þeirra, vekja athygli á þeim og draga þau nánar fram. • 1) I fyrsta lagi ber utanríkis- ráðherra ósannindi á iðnaðarráð- herra. Utanríkisráðherra heldur því fram ákveðið, að iðnaðarráð- herra hafi gefið fyrirmæli um, að Orkustofnun skyldi hætta við að efna umræddan samning og hann bætti við, það eru næg vitni að því, að þetta voru fyrirmæli. Nú vill iðnaðarráðherra ekki við þetta kannast, en engu að síður er hér um svo alvarlegar ásakanir að ræða af hálfu eins ráðherra í garð annars, að undir því getur iðnað- arráherra ekki setið. Það mál verður að komast fram í dagsljós- ið, hvað þarna fór raunverulega á milli, og það er nauðsynlegt að þau vitni, sem þar eru til staðar, komi fram í dagsljósið, þannig að þingheimur og alþjóð fái upplýst, hvað raunverulega gerðist í þessu máli. • 2) í öðru lagi, þá heldur utan- ríkisráðherra því fram, að enginn lagalegur grundvöllur hafi verið fyrir þessari ákvörðun iðnaðar- ráðherra og hann bætir við, að hann hafi ekki á reiðum höndum nein hliðstæð dæmi úr íslenskri stjórnarfarssögu. Þegar utanríkisráðherra segir þetta, þá er rétt að hafa í huga, að hér mælir maður, sem veit betur en flestir aðrir um þessi mál. Hér mælir maður, sem í mörg ár var prófessor í stjórnarfarsrétti við Háskóla íslands, hefur skrifað kennslubækur í stjórnarfarsrétti, m.a. ítarlega kafla um valdníðslu Birgir ísleifur Gunnarsson og valdþurrð, og hann kemur hér fram og fullyrðir, að það sé enginn lagalegur grundvöllur fyrir þeim aðgerðum, sem iðnaðarráðherra framkvæmdi. Þetta er mjög al- varleg ásökun, sem nauðsynlegt er að draga fram og hafa í huga. • 3) í þriðja lagi, þá ásakar utan- ríkisráðherra iðnaðarráðherra fyrir óvönduð vinnubrögð, ekki að- eins að það skorti lagalegan grundvöll fyrir það, sem hann ger- ir, heldur sést hér óvönduð vinnu- brögð. Hann notar orð eins og flumbrugangur, hrein vitleysa, og að geta ekki einu sinni nefnt rétt lög í þeirri fréttatilkynningu, sem iðnaðarráðherra sendi frá sér. Hér er um alvarlegar ásakanir að ræða og maður spyr auðvitað sjálfan sig, þegar einn ráðherra segir slíka hluti við annan, hvað þá með vinnubrögð ráðherra í öðrum mál- um? Við verðum vitni að því, að hvert málið á fætur öðru klúðrast, sem iðnaðarráðherra kemur ná- lægt. Það eru öll mál að sigla í strand, sem hann kemur nálægt, hvort sem það eru virkjunarmál, iðnaðar- eða orkumál, allt það sem þessi ráðherra kemur nálægt, það endar í einhverju klúðri og vit- leysu. • 4) Utanríkisráðherra fullyrti, að iðnaðarráðherra hefði stofnað þessum samningum í hættu, sem þarna var um að ræða, samning- um, sem munu færa, ef þeir end- anlega komast á, Orkustofnun verulegar tekjur, sem hún ella missir af. Iðnaðarráðherra stofn- ar fleiri samningum í hættu. Hann virðist stofna í hættu öllum þeim samningum og öllum þeim samningaviðræðum, sem hann kemur nálægt og tilheyra embætti hans. Um það eigum við líka eftir að ræða hér á Alþingi næstu daga og ég skal ekki fara nánar út í hér. • 5) En í fimmta lagi og það finnst mér vera atriði, sem ráð- herra mæiir hér af mikilli alvöru og miklum þunga til okkar þing- manna, að slíkt stjórnarfar sem iðnaðarráðherra temur sér, að slíkt stjórnarfar megi ekki inn- leiða hér á landi. Hvers skyldi hann vera að vitna til í þessu sam- bandi? Skyldi það vera stjórnar- far, þar sem iðnaðarráðherra fékk sitt pólitíska uppeldi, í Austur- Þýzkalandi? Ég skal ekkert um það fullyrða, en mér finnst þetta þung aðvörunarorð, sem einn ráð- herra mælir í garð annars, þegar hann segir við hann: Slíkt stjórn- arfar má ekki innleiða hér á landi. Ég tek undir þessi orð. Mér finnst, að hér hafi verið gengið of langt og að iðnaðarráðherra, sennilega með fullum stuðningi félagsmála- ráðherra, eins og hér hefur komið fram, að hann hafi gengið allt of langt í þessu máli og hér hafi ver- ið stigið skref í átt til stjórnar- fars, sem Alþingi verður að standa gegn, að verði innleitt hér á landi. Sveitarstjórnarmenn á fundi I Reykjavík FULLTRÚARÁÐ Sambands ís- lenzkra sveitarfélaga heldur fund í fundarsal borgarstjórnar Reykjavík- ur á fimmtudag, 25., og fostudag, 26. marz. Jón G. Tómasson, formaður sambandsins, setur fundinn, en síð- an flytja ávörp Svavar Gestsson, fé- lagsmálaráðherra, og Sigurjón Pét- ursson, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur. A fundinum verða þrjú megin- umræðuefni: Ólafur Jónsson, formaður stjórnar Húsnæðis- stofnunar ríkisins, og Björn Frið- finnsson, framkvæmdastjóri fjár- máladeildar Reykjavíkurborgar, flytja framsöguerindi um húsnæð- islöggjöfina; Sigurbjörn Þor- björnsson, ríkisskattstjóri, og Logi Kristjánsson, bæjarstjóri, eru frummælendur um frumvarp til laga um staðgreiðslu opinberra gjalda og Alexander Stefánsson, varaformaður sambandsins, er málshefjandi um rekstur heilsu- gæzlustöðva. Þá gerir Magnús E. Guðjónsson, framkvæmdastjóri, grein fyrir starfsemi Lánasjóðs sveitarfélaga. I fulltrúaráði sambandsins eiga sæti 34 fulltrúar úr öllum lands- hlutum svo og formenn og fram- kvæmdastjórar landshlutasam- taka sveitarfélaga með málfrelsi og tillögurétti. Leiðrétting í frétt í Mbl. í gær um árekstur fólksflutningabifreiðar frá Land- leiðum og fólksbifreiðar á Strand- götu í Hafnarfirði kom fyrir mis- sögn. Hið rétta er, að fólksflutn- ingabifreiðin sveigði yfir á vinstri vegarhelming til að komast fram- hjá bifreiðum, sem lent höfðu í árekstri. Þegar hann var á öfugum vegarhelmingi sá ökumaður fólks- flutningabifreiðarinnar að fólksbíll kom aðvífandi og náði að stöðva bílinn áður en fólksbíllinn skall á fólksflutningabifreiðinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.