Morgunblaðið - 25.03.1982, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 25.03.1982, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1982 35 sumar er áformað að malbika Hraunbrún, Hvammabraut, Suð- urhvamm, Stakkahraun og hluta af Dalshrauni. Gerð hefur verið áætlun um að koma öllu frárennsli frá bænum út fyrir hafnargarða. Síðasti áfangi þessa verks er lögn safn- lagnar meðfram Fjarðargötu, sem nú er unnið að og áformað er að ljúka á þessu ári. Til skólabygginga í Hafnarfirði er veitt samtals rúmum 9,3 millj. kr. Helstu verkefni eru bygging leikfimihúss við Víðistaðaskóla, sem áætlað er að taka í notkun næsta haust, og bygging 3. áfanga Öldutúnsskóla, sem byrjað verður á næsta sumar. Ennfremur verða gerðar endurbætur á gömlu bygg- ingunni við Flensborgarskóla, inn- réttað húsnæði fyrir rafiðnaðar- deild Iðnskólans og lokið við bygg- ingu 5. áfanga Víðistaðaskóla. I byggingu er nýr leikskóli við Norðurvang, sem tekinn verður í notkun á næstunni. I undirbúningi er bygging nýs leikskóla, sem rísa á við Suðurbraut. Áætlað er að hefja byggingarframkvæmdir við skólann á komandi sumri. Þá er unnið að undirbúningi viðbyggingar við Sólvang og bygg- ingar fyrir heilsugæslu Hafnar- fjarðar. Ef tilskilin leyfi heil- brigðisráðuneytis fást er áformað að hefja framkvæmdir við Sól- vang á þessu ári. Nýlega var tekinn í notkun hluti af félagsheimilisálmu við íþrótta- húsið, en innréttingum verður að fullu lokið á þessu ári. Ákveðið er að stækka búningsklefa og böð í Sundhöllinni. Á árinu verður einnig byrjað á byggingu útisund- laugar í Suðurbáe. Bærinn vinnur nú að gerð malarvallar á Hvaleyr- arholti og grasvalla við Kapla- krika. Ýmis fleiri verkefni eru á döf- inni hjá Hafnarfjarðarbæ á þessu ári og má þar til nefna fram- kvæmdir við fegrun bæjarins, byggingu verkamannabústaða, kaup á leiguíbúðum og úrbætur í vatnsbóli bæjarins í Kaldárbotn- um. (Kréttatilkynning) Félag læknanema: Lýsir fullum kjarabaráttu fræðinga og Morgunblaðinu hefur borist eftir- farandi fréttatilkynning frá Félagi læknanema: Að gefnu tilefni vill Félag læknanema koma etirfarandi á framfæri: Félagið lýsir yfir fullum stuðn- ingi við hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða í kjarabaráttu þeirra. Undanfarin ár hefur Félag stuðningi við hjúkrunar- sjúkraliða læknanema séð fyrir aðstoðarfólki við hjúkrun til afleysinga á sumr- in þegar faglært starfsfólk hefur ekki fengist. Félag læknanema mun ekki bjóða frain vinnuafl til að fylla í stöður þessa fólks, ef fjöldaupp- sagnir koma til framkvæmda. Þvert á móti mun félagið beita sér gegn því að læknanemar taki að sér slíka vinnu. GRUnDIG _l _l k_y w GÓÐ KJÖR- EINSTÖK GÆÐI LAUGAVEGIÍO, SlMI 27788 VANTAR ÞIG VBMNU VANTAR ÞIG FÓLK laaaaBl laasa .■.»_____ IBBBB8BBKS8B méFludáðum SKÍÐl. öll skíðaadstaða bœjarins í Hlíðar- fjalli verður að sjálfsögðu í fullum rekstri og þar verða haldin tvö opin skíðamót: Pað verður mikið um að vera á Akureyri nú um páskana. Par eru allir að keppast við að búa í haginn fyrir gestina I Páskamót Flugleiða verður haldið á skírdag, Og Akureyrarbœr býður / f} e- fimmtudaginn 8. apríl. Petta eropið ungl- nlln vplLrnmnn í / in8amót> Þar sem keppt er í fjórum aldurs- / fiokkum drengja og stúlkna. Pátttaka tilkynn- heimsókn norður. / ist til Skíðaráðs Akureyrar. Að loknu trimminu verðursvo dregið um þrjá ferðavinninga og eiga þar allir þátttakendur jafna möguleika, hvort sem þeir verða fyrstir eða síðastir í mark. SKEMMTANIR. Auk skíðaiðkana verður hœgt að gera margt sér til skemmtunar. Síðdegissigling um Eyjafjörð verður laugar- daginn 10. apríl. Petta verður 4 tíma skemmti- sigling um fjörðinn og verður lagt afstað upp- úr hádegi. Pátttökugjald er aðeins 70 krónur, en pöntunum verður veitt móttaka á Hótel KEA. Dansinn dunar á öllum skemmtistöðum Akureyrar eins og lög leyfa um páskana. Pað verður dansað í Allanum og á H-IOO, en á KEAmun Finnur Eydal skemmta matargest- um með hljóðfœraleik. MATUR OG GIST/NG. Pað erhœgtað velja um fjóra gististaði: Hótel KEA, Varðborg, Hótel Akureyri og Skíðastaði. Auk veitinga sem þar eru á boðstólum má minna á hina ágœtu veitingastaði Smiðjuna og Bautann. VERSLANIR í miðbœ Akureyrar verða flestar opnar milli kl. 9.00 og 12.00 laugar- daginn 10. apríl. PeirraámeðaleruSporthús- ið, Leðurvörur, Gullsmíðastofan Skart, Cesar, Bókaverslun Jónasar og Pedro- myndir. Páskatrimm Flugleiða verður svo á annan i páskum, 12. april. Trimmið, sem er fólgið í stuttri skíðagöngu, er ætlað fyrir alla fjöl- skylduna og keppnin felst ekki í því að verða fyrstur í mark heldur því að vera með. Allir þátttakendur fá viðurkenningu og fjölskyldur fá sérstaka viðurkenningu. Til þess að létta mönnum gönguna verður boðið upp á hress- ingu meðan á henni stendur. UPPLÝSINGAR um ferðir til Akureyrar um páskana gefa Úrval, Útsýn og Ferðaskrifstofa ríkisins. URVAL ÚTSÝN FERÐASKRIFSTOFA RÍKISINS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.