Morgunblaðið - 25.03.1982, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1982
37
hjálpsemi. Þeim eiginleikum var
Ólafur gæddur í ríkum mæli.
Oft kvabbaði ég á Ólafi, ef ég
þurfti að fá eitthvað smíðað eða
lagfært. Það var gott að biðja
hann bónar, alltaf brást hann við
ljúfmanlega og leysti vandann.
Ólafur var hægur og prúður í
framgöngu, en átti til glettni og
spaugsemi í góðra vina hópi. Aldr-
ei heyrði ég hann tala illa um
nokkurn raann. Eftir því sem ég
kynntist Ólafi betur mat ég hann
meira.
Ég kynntist þeim hjónum Ólafi
og Sveinbjörgu lítilisháttar er þau
bjuggu á Innrahólmi. En kynnin
urðu meiri eftir að þau fluttust
hingað til Reykjavíkur. Kona mín
og Sveinbjörg urðu góðar vinkon-
ur. Oft átfum við ánægjulegar
stundir á heimili hvors annars.
í ágústmánuði 1979 varð Ólafur
fyrir þeirri þungbæru sorg að
missa eiginkonu sína. Hún hafði á
undanförnum árum átt við mikla
vanheilsu að stríða og í veikindum
hennar kom best í ljós umhyggja
og nærgætni Ólafs.
Eftir lát konu sinnar bjó Ólafur
einn í Drápuhlíð 9. Allt var áfram
með sömu ummerkjum og meðan
Sveinbjörg lifði, hreint og fágað
og hver hlutur á sínum stað.
Ólafur saknaði mjög konu sinn-
ar. Það var greinilegt að hann var
einmana þó að hann reyndi að láta
ekki á því bera. Það lífgaði að vísu
dálítið upp er barnabörnin kom í
heimsókn eða hann heimsótti þau,
en Ólafur var barngóður og börn
hændust að honum.
Síðustu árin minnkaði ÓLafur
nokkuð við sig vinnu, en lagði þó
smíðarnar ekki alveg á hilluná.
Það var honum mikils virði að
blanda geði við fólk. Hann heim-
sótti oft kunningjana og brá sér
stundum á mannamót. A sumrin
ferðaðist hann mikið um landið,
enda átti hann jafnan góðan bíl,
sem auðveldaði honum ferðalögin.
Oftast fór hann á hverju sumri til
Norðfjarðar, að heimsækja skyld-
fólk konu sinnar, hann var því
ekki ókunnugur akstri á hringveg-
inum.
Ólafur var glöggur náttúruskoð-
ari og hafði yndi af útiveru. Hann
átti sérkennilegt og fagurt steina-
safn, en steinunum hafði hann að-
allega safnað á Austfjörðum.
Á ferðum sínum hafði Ólafur
jafnan meðferðis myndavél, og
festi á filmu sérstæðustu náttúru-
undrin, sem fyrir augu bar. Þá tók
hann einnig myndir við ýmis tæki-
færi og var safn hans orðið mikið
að vöxtum.
Ljósmyndun er skemmtileg
tómstundaiðja, enda hafði Ólafur
ánægju af að skoða eða sýna
kunningjum og vinum myndir sín-
ar. Þá þurfti enginn að láta sér
leiðast.
Að leiðarlokum kveðjum við
hjónin Ólaf með hlýhug og þakk-
læti, og vottum syni, tengdadótt-
ur, barnabörnum og öðrum ætt-
ingjum innilega samúð. Guð blessi
minningu Ólafs Pálssonar.
Armann Kr. Einarsson.
__________________________________________________I
GRUÍ1DIG
GÓÐ KJÖR- EINSTÖK GÆÐI
LAUGAVEGID, SÍMI27788
*
o
<s>
ca
c>
c
O)
3
<
5VAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Eg á vin, sem segir, að hann sé kristinn, en hann er
sífellt að setja út á aðra. Þegar eg hef verið með honum
stundarkorn. finnst mér, að eg þuríi að fara í bað. Eg
forðast hann því eins og heitan eldinn. Er afstaða mín
rétt — eða hans?
Eg veit, hvaö þér hafið í huga: Það er átakanlegt að
vera í návist fólks, sem sér ekkert gott við aðra menn.
Það er jafnan svo, að við opinberum leynda galla
okkar sjálfra með því að dæma aðra.
Sálfræðingurinn J.A. Hadfield er höfundur bókar-
innar Sálfræði og siðferði. Hann segir: „Leyfðu
hverjum sem er að segja það, sem hann langar til að
segja um aðra. Síðan getur þú snúið þér rólegur og
öruggur að honum og sagt: „Þú ert maðurinn.““
Davíð hafði brotið af sér, er hann tók Batsebu og
varð valdur að dauða eiginmanns hennar. Natan
spámaður fór til hans og sagði honum frá fjáreigand-
anum, sem stal einni kind fátæka mannsins. Davíð
mælti: „Svo sannarlega sem Drottinn lifir: Sá maður,
sem slíkt hefur aðhafst, er dauða sekur". (2. Sam.
12,5.) Davíð var ekki seinn á sér að dæma
fjáreigandann. Hann gerði sér ekki ljóst, að hann
hafði sjálfur drýgt enn alvarlegri synd. Natan leiddi
honum fyrir sjónir, að hann hefði kveðið upp dóm yfir
sjálfum sér, og sagði: „Þú ert maðurinn!"
Það er þetta, sem Jesús hlýtur að hafa átt við, þegar
hann mælti: „Dæmið ekki, svo þér verðið ekki
dæmdir." (Matt. 7,1.) Hann bendir á: Við afhjúpum
oft, hversu skammt við náum, með því að dæma aðra.
Maðurinn, sem þér minnist á, er því í raun réttri að
sýna, að hann fyrirlítur sjálfan sig, en hann beinir
skeytum sínum á aðra í stað sjálfs sín. Hann myndi fá
fulla bót á þessum ávana sínum, ef hann gerði sér
grein fyrir eigin mistökum í stað galla annarra.
Biblían segir: „Játið syndir yðar hver fyrir öðrum,
til þess að þér verðið heilbrigðir.
t
Við þökkum fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför,
SIGRÍDAR BRYNJÓLFSDÓTTUR,
fyrrv. fulltrúa í Landsbankanum.
Katrín S. Brynjólfsdóttir,
Gísli Brynjólfsson, Ásta Þ. Valdimarsdóttir,
Haraldur Halldórsson.
Nær handverki verdur vart komist
Húsgöng úr furu
Vönduö íslensk framleidsla
a.
Þessi glæsilegu húsgögn eru úr massífri
furu og fást í Ijósum viöarlit og brún-
bæsuö.
10% staögreiösluafsláttur og góö
greiöslukjör.
FURUHUSIÐ HF.
Suðurlandsbraut 30 — sími 86605
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
Þl
AIGLYSIH IM ALt.T LAND ÞEGAR
Þl AIGLYSIR I MORGINBLAÐIM