Morgunblaðið - 25.03.1982, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 25.03.1982, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1982 45 Eiturlyf Hér þarf að gera stórátak Áfíæti Velvakandi. Aö undanförnu hefur verið mik- ii umræða um skaðsemi reykinf<a og er það vel. Við sjáum líka öðru hverju greinar í blöðum þar sem varað er við áfenRÍsneyzlu og rakt- ar þær afleiðingar, sem hún hefur á líkama og persónuleika. Skrif af þessu tagi eru vissulega árangurs- rík og gagnleg, því þó margur skelli við þeim skollaeyrum eru aðrir sem hlýða aðvöruninni og láta reykingar og drykkju eiga sig. Hitt þykir mér skorta að fólk sé nógsamlega varað við eiturlyfjum sem flutt eru ólöglega til landsins, en slíkt smygl hefur farið mjög í vöxt á síðustu árum sem kunnugt er. Kg hef t.d. heyrt unglinga halda því fram fullum fetum að „hass“ sé alveg skaðlaust, og miklu betra en áfengi að því leyti að „maður verður ekkert timbrað- ur“. Staðreyndin er hins vegar sú eins og flestum mun vera kunnugt, að hjá hassneytanda safnast eit- urlyfið upp í miðtaugakerfinu og er þar viðloðandi þar mánuðum saman eftir að neyzlan fer fram. Og svo er annað. Þegar um smygl- uð eituriyf er að ræða veit kaup- andinn raunverulega alls ekkert hvað hann er að kaupa. Þó stofn- inn í því sem hann kaupir sé raunverulega hass er það e.t.v. blandað ópíum eða engiaryki, en það síðarnefnda er stórhættulegt ofskynjunarlyf sem getur valdið varanlegri geðveiki. Eg er þeirrar skoðunar að fólk sé ekki nógsamlega varað við þeirri hættu sem stafar af eitur- lyfjaneyzlu — og þess vegna sé það í mörgum tilfellum auðveld bráð fyrir eiturlyfjasalana. Þessu mætti bæta úr að nokkru með aukinni fræðslu og hvatningu um að hrinda þessum vágesti af hönd- um sér. Þá þyrfti að gera stórátak til að koma í veg fyrir að eiturlyfjum sé smyglað til landsins. Það hefur verið bent á að erfitt sé að koma í veg fyrir smyglið, því mjög lítið fari fyrir þessum fíkniefnum. En fer lítið fyrir hópnum sem neytir þeirra? Hvers vegna ekki að virkja almenning í því að koma upp um eiturlyfjasalana/ Hér váður fyrr voru menn verðlaunaðir fyrir að skjóta refi og fengu ákveðna upp- hæð fyrir skottið — væri ekki hægt að hafa svipaða aðferð þar sem eiturlyfjasnatarnir eru ann- ars vegar. Það mætti t.d. verð- launa þann sem kæmi með upplýs- ingar er leiddu til handtöku eitur- lyfjasnata með dágóðri peninga- upphæð. Þannig hygg ég að koma mætti upp um margan kauðann. Ekki get ég skilist við þetta efni á þess að minnast á „læknadópið". Það eru ennþá til læknar á íslandi sem skrifa út lyfseðla á amfetam- ín — lyf sem flest ríki hafa nú strikað út af lyfjaskrá og er raunverulega ekki annað en eitur- lyf sem gerir menn óða. Þetta vandamál mun nú í rénun, þar sem yngri læknar munu vera mun strangari og betur á verði að þessu leyti en þeir eldri. Þarna er þó vissulega vandamál fyrir hendi og væri auðveldlega hægt að gera stórátak ef vilji væri fyrir hendi — ég þekki dæmi um grófa mis- notkun af þessu tagi og það munu margir fleiri gera. Er ekki kominn tími til að stinga á kýlinu? I þessum málum er um tvennt að ræða. Skera upp herör eða fljóta sofandi að feigðarósi. H.L. / Velvakanda fyrir 30 árum Létu ekki snúa á sig ÞEIR þóttu ekki drepast ráða- lausir svertingjarnir þrír, sem áttu ekki að fá að fara inn í Hótel Borg, af því að þeir voru bindislausir. En sem kunnugt er eiga menn ekki rétt til inngöngu þar nema þeir hafi hálsknýti. .... Ui' nokkuJ adi sluul .ni.,::. Nú, svertingjarnir brugðu sér á afvikinn stað og drógu upp snýtuklútana sína. Klútana rifu þeir svo í ræmur og brugðu um hálsinn. Enginn hefði getað sett út á slaufur svertingjanna þriggja, þegar þeir að vormu spori brun- uðu í salinn, brosleitir og hnakkakerrtir. Ahorfendaómenning MÖRGUM þykir nýstárlegt að sjá og heyra, hvernig áhorfendur að hnefaleikum láta í ljós tilfinningar sínar og geð- brigði. Það er í sjálfu sér ekkert tiltökumál, þó að þeir sleppi fram af sér beizlinu að einhverju leyti, en annað eins orðbragð og gífuryrði og áhorfendur láta þá fjúka ættu þeir að geyma sér til að hafa yfir í einrúmi sjálfra sín og annarra viðstaddra vegna. Einkum eru það unglingar, sem láta verstu látunum, svo að þetta er víst það sem koma skal og verður varla hneykslunar- hella lengi úr þessu. Annars eru dólgsleg orð ekki einskorðuð við hnefaleikakeppni, þó að mest kveði að þeim þar. Áhorfendur að sjálfri glímunni kváðu vera með þessu marki brenndir sem frægt er orðið. „Mér hefir aldrei lagzt neitt til“ IFYRRI viku var hér að því spurt, hvar væri að finna setninguna: „Mér hefir aldrei lagzt neitt til.“ En það er Einar Kvaran, sem lætur Þórð karlinn í Króki segja hana í Þurrki. Aragrúi af svörum hefir bor- izt, miklu fleiri en ég gat gert mér vonir um. Svörin bárust úr öllum landsfjórðungum frá fólki á öllum aldri. Yngsti sendandinn var 11 ára stúlka, tvær konur voru yfir sjötugt, og þrír karl- menn rétt undir sjötugsaldri sendu svör. Ævar Kvaran byrjar leiklistarnámskeið 1. apríl nk. Fagur framburöur. Nýr lestur. Uppl. í síma 32175. Sölumenn Aðalfundur Sölumannadeildar Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, veröur haldinn í kvöld, fimmtudaginn 25. marz kl. 20.30, aö Hagamel 4. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Stjórnin. RITARANAMSKEIÐ veröur haldið í Kristalssal Hótels Loftleiöa dagana 29.—31. mars nk. kl. 14—18. Fjallað verður um: — bréfaskriftir og skjalavörslu — simsvörun og afgreiðslu viðskiptavina — skipulagningu og tímastjórnun — almenn skrifstofustörf Æskilegt er að þátttakendur hafi nokkra reynslu sem ritarar og innsýn í öll almenn skrifstofustörf. Leiöbeinandi: Jóhanna Sveins- dóttir einkaritari. Leióbeinandi: Tollskjöl og verðútreikningar Námskeið um Tollskjöl og verðútreikninga verður haldið í fyrirlestrasal félagsins að Síöumúla 23 dcg- ana 30. mars—2. apríl kl. 09—12. Fjallað veröur um: — helstu skjöl og eyðublöð við tollaf- greiðslu og notkun þeirra, — meginþætti laga og reglugerða er gilda við tollafgreiðslu, — grundvallaratriöi tollflokkunar, — helstu reglur við veröútreikning. Gerð verða raunhæf verkefni. Námskeið er einkum ætlaö þeim sem stunda innflutning i smáum stíl. Einnig er það kjörið fyrir þá sem eru að KaH Qaröarsson hefja eöa hyggjast hefja störf við vióskiptafræðing- tollskýrslugerö og verðútreikninga. ur- Bókfærsla II Námskeið um Bókfærsiu II verður haldið í fyrir- lestrasal félagsins að Síðumúla 23 dagana 30. mars—2. apríl kl. 13.30—18.30. Rifjuð verður upp helstu atriði úr „Bók- færslu l“ og farið dýpra í hin ýmsu atriði bóhalds og megináhersla lögð á rekstrar- uppgjör fyrirtækja. Kennslan er að miklu leyti fólgin í verklegum æfingum. Námskeiöið er ætlað þeim sem þegar hafa haft nokkur kynni af bókhaldi og þá sem vilja fylgjast vel meö rekstri fyrir- tækisins. Kristján Aöal- steinsson viö- skiptafræðingur. ÞÁTTTAKA TILKYNNIST TIL STJÓRNUNAR- FÉLAGSINS í SÍMA 82930. Leiðbeinandi: SUÓRNUNARFÉIAG (SIANDS SfOUMÚLA 23 105 REYKJAVlK SfMI 82930

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.