Morgunblaðið - 25.03.1982, Page 48
Síminn á afgreiðslunni er
83033
FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1982
Tvö ár frá tilskipun um nýja forþjöppu:
9 af 11 Fokker-
hreyflunum með
nýju forþjöppuna
Fyrsta slysiö síðan 1976, en alls hafa 5 sinnum
oröið slíkar sprengingar í hreyflum í Fokker
SPRENGINGIN sem varð í
mótornum í Flugleiða-Fokk-
ernum sl. laugardag, er sú
fimmta sem hefur orðið í
Fokker frá árinu 1965 og í
einu tilvikinu hjá, Air Qué-
beck, fórst vélin og fólk með
henni. Síðasta bilun af þessu
tagi, en rannsóknin beinist að
bilun í fremri forþjöppu, varð
árið 1976.
Hins vegar gáfu Rolls Royce-
verksmiðjurnar út tilkynningu
fyrir tveimur árum þar sem til-
kynnt var að nú hefðu verk-
smiðjurnar komist fyrir galla
sem komið hafði fram í umrædd-
um slysum og einnig í skoðun á
hreyflum þar sem sprungur
fundust í forþjöppu. Síðan hefur
skipulega verið unnið að því að
skipta um forþjöppur í hreyflum
af þessari nýju tegund og hefur
það verið gert á 9 af 11 hreyflum
Flugleiða. Forþjappan í þessum
hreyfli var sett i sl. haust í skoð-
un hjá Rolls Royce og hefur að-
eins um 500 flugtíma að baki af
5000—6000 sem líða mega milli
skoðana. Sérfræðingar Rolls
Royce munu nú leggja allt kapp
á að komast til botns í þessari
bilun, hvort bilunin er þess eðlis
að reglur þeirra um ákveðna vél-
arhluti standist eða ekki, en í
öllum tilvikum sem komið hafa
upp í þessu sambandi hefur verið
unnt að finna ástæðuna fyrir bil-
uninni.
Sérfræðingar frá Rolls
Royce-verksmiðjunum sem
smíða hreyfla Fokker-véla
Flugleiða og menn frá Fokker-
verksmiðjunum ásamt íslenzk-
um og brezkum loftferðaeftir-
litsmönnum og sérfræðingum
Flugleiða skoðuðu í gær hreyfil
Fokkersins sem nauðlenti á
Keflavíkurflugvelli sl. laugardag
eftir sprengingu í mótor í flug-
taki á Isafirði. Báru hinir inn-
lendu og erlendu sérfræðingar
saman bækur sínar og munu
halda áfram rannsókn málsins í
dag.
Rannsóknin snýst að forþjöpp-
unni sem fyrr getur, en þar
koma nokkur atriði til greina:
Að óeðlilegur núningur hafi
valdið málmþreytu, að um fram-
leiðslugalla sé að ræða, að
málmþreyta sé ástæðan eða að
hluturinn hafi orðið fyrir ein-
hverju hnjaski áður en hann var
settur í vélina.
Mr. Gilchriest frá Rolls Royce-verksmiðjunum, lengst til vinstri, ræðir málin við sérfræðinga frá Fokker-verksmiðj-
unum, en fjöldi erlendra sérfræðinga var á Keflavíkurflugvelli í gær að kanna bilunina í hreyfli Fokkersins sem
nauðlenti sl. laugardag. Ljósmynd Mbi. Kmilia
*
Aðalfundur Vinnuveitendasambands Islands haldinn í gær:
Kröftim ASÍ hafnað
Samið verði til 2ja ára án grunnkaupshækkana
í STEFNUYFIRLÝSJNGU Vinnu-
veitendasambands íslands, sem
samþykkt var samhljóða á aðal-
fundi VSÍ í gær, er kaupkröfugerð
ASÍ og landssambanda þess hafn-
að, „enda er hún með öllu
Sigurbjörn (íuðjónsson
Sigurkarl Sigurbjörnsson
Feðgar biðu bana
FFIKiAR biðu bana þegar þeir grófust undir skurðbakka við hús-
grunn í Mosfellssveit á þriðjudag. Peir hétu Sigurhjörn Guðjónsson,
fæddur 22. ágúst 1922, til heimilis að Goðalandi II, Reykjavík, og
Sigurkarl Sigurbjörnsson, fæddur 7. febrúar 1947, til heimilis að
Álftamýri 27, Reykjavík.
Þeir feðgar voru að vinnu við
byggingu íbúðarhúss við Hjarðar-
holt 7 í Mosfellssveit. Unnið var að
greftri skurðar fyrir skolplögn á
þriðjudag og var skurðurinn um 5
metra djúpur. Þeir Sigurbjörn og
Sigurkarl voru að vinnu í skurðin-
um þegar skurðbakkinn gaf sig og
þeir grófust undir. Engir sjónar-
vottar urðu að slysinu.
Ekki er ljóst hvenær atvikið átti
sér stað, en vörubílstjóri, sem kom
með malarfarm að húsinu á milli kl.
18.30 og 18.45, varð þeirra ekki var.
Farið var að undrast um þá feðga
þegar leið á kvöldið og var lögregla
kvödd á staðinn. Athygli manna
beindist fljótlega að skurðinum því
ummerki um hrun úr bakkanum
voru greinileg. Um kl. 23 voru
björgunarsveitir kallaðar út. Fljót-
lega eftir að leit hófst fundust lík
þeirra Sigurbjarnar og Sigurkarls.
Sigurbjörn lætur eftir sig konu
og 3 uppkomin börn og Sigurkarl
konu og 2 börn.
óraunhæf miðað við núverandi
efnahagsaðstæður". Lagt er til, að
kjarasamningarnir verði endur-
nýjaðir til tveggja ára án al-
mennra grunnkaupshækkana.
Páll Sigurjónsson, formaður VSÍ,
sagði meðal annars, að forysta
verkalýðsfélaganna hefði nú gert
þær óraunhæfustu kröfur, sem
sézt hefðu i áratugi.
Páll Sigurjónsson fjallaði í
ræðu sinni um stjórnmálin og
vinnumarkaðinn, en vék síðan að
kjaramálum. Hann sagöi, að síð-
ustu fjögur ár hefði verið stöðnun
í hagkerfinu, hagvöxtur farið
minnkandi og aðeins verið rúm-
lega 1% á síðasta ári. Að jafnaði
hefði árlegur hagvöxtur hins veg-
ar verið um 5% síðastliðinn ára-
tug. í reynd hefði nær engin aukn-
ing orðið á þjóðartekjum á mann
frá árinu 1980 til ársins 1981 og
þar sem 75—80% af þjóðartekjum
væru laun væri Ijóst, að þessi
stöðnun hagvaxtar setti samn-
ingsaðilum á vinnumarkaðnum
þröngar skorður. Páll sagði, að
undanfarin ár hefðu launþegar
endurgreitt 99% af öllum launa-
hækkunum með stöðugri lækkun á
gengi krónunnar og almennri
verðhækkun.
Horfur um framvindu efna-
hagsmála á þessu ári sagði Páll
vera þannig, að hjá því yrði ekki
komist í yfirstandandi kjarasamn-
ingum að láta efnahagsleg sjón-
armið ráða niðurstöðum þeirra, en
ekki félagslega stöðu þeirra ein-
staklinga, sem kepptu um völdin í
verkalýðsfélögunum. Ef fram
héldi sem horfði mætti reikna
með, að þjóðartekjur á mann
myndu minnka um allt að 2% á
þessu ári og raunveruleg lífskjör
versna í samræmi við það.
„Ljóst er, að við hækkum ekki
raunlaun né aukum útgjöld til fé-
lagslegra verkefna, fyrr en ný
sókn til eflingar íslenzku atvinnu-
lífi hefur skilað árangri. Það hefur
engan tilgang að skipta á pappírn-
um þeim peningum, sem ekki eru
til. Þetta eru almenn orð, sem allir
ættu að geta skilið. Hinn bitri
sannleikur er sá, að á næstu
tveimur árum er enginn grund-
völlur fyrir kaupmáttaraukningu.
Afleiðingin er sú, að forystumenn
verkalýðsfélaganna verða á næst-
unni að finna sér önnur verkefni,
en að búa til kröfugerð um launa-
hækkanir.
Um leið og atvinnulífinu tekst
að snúa taflinu við og auka á ný
skiptaverðmætin er Vinnuveit-
endasambandið reiðubúið til við-
ræðna um raunhæfa kaupmáttar-
aukningu, en við núverandi að-
stæður koma slíkar viðræður ekki
til greina," sagði Páll Sigurjóns-
son meðal annars.
Sjá rartu formanns VSÍ í heild á
blaðsíðu 14 og stefnuyfirlýsingu
VSÍ fyrir komandi samningavið-
ræður á blaðsíðu 20.
Álvidræðurnar:
Dr. Miiller og
Hjörleifur
hittast árdegis
Dr. Gunnar og Stein-
grímur hitta Miiller
yfir máltíð
IIK. PAUI. Miillcr, formaður
framkvæmdastjórnar Alusuisse
kom til íslands siðdegis í gær með
þotu Flugleiða frá Kaupmanna
höfn og árdegis í dag mun hann
ræða við Hjörleif Guttormsson
iðnaðarráðherra um samskipti fs-
lands og Alusuisse, eins og segir í
fréttatilkynningu frá iðnaðarráðu-
ncytinu.
Það vekur athygli að ekki er
gert ráð fyrir að þeir dr. Gunnar
Thoroddsen forsætisráðherra og
Steingrímur Hermannsson sjáv-
arútvegsráðherra taki þátt í við-
ræðunum, að öðru leyti en því að
þeir hitta dr. Múller að máli í
málsverði. Þeir dr. Gunnar,
Steingrímur og Hjörleifur
mynda álviðræðunefnd ríkis-
stjórnarinnar.
Með Hjörleifi Guttormssyni í
viðræðunum í dag verða hans
nánustu ráðgjafar í iðnaðar-
ráðuneytinu og auk þess tekur
þátt í þeim Vilhjálmur Lúð-
viksson, formaður álviðræðu-
nefndarinnar, aðrir nefndar-
menn hafa ekki verið boðaðir til
að taka þátt í viðræðunum.
Fyrir hönd Alusuisse mun dr.
Múller einn taka þátt í viðræð-
unum, að minnsta kosti til að
byrja með. Hann dvelur á Is-
landi þar til á laugardagsmorg-
un, en einn af heimildar-
mönnum Morgunblaðsins sagði í
gærkvöldi, að menn vonuðust til
að línurnar yrðu farnar að skýr-
ast á föstudag.
Kröfurnar
hógværar að
mati Svavars
SVAVAR GesLsson, féiagsmála-
ráðherra, sagði á aðalfundi
Vinnuveitendasambands íslands
í gær, að hann teldi kröfur ASf
um 13% launahækkun hógværar.
Steingrímur ' Hermannsson,
sjávarútvegsráðherra, sagði
hins vegar, að hann teldi kröf-
urnar of háar miðað við upp-
lýsingar um þróun þjóðar-
tekna. Því þyrfti að endur-
skoða þessar kröfur.