Morgunblaðið - 08.04.1982, Síða 6

Morgunblaðið - 08.04.1982, Síða 6
54 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 Þessa mynd tók Ótafur K. Magn- ússon af Kristínu um borð í Gull- faxa, ásamt Dwight D. Eisenhow- er, síðar Bandaríkjaforseta, árið 1950. Eisenhower var þá yfirmað- ur herafla NATO og var flugferð hans með Gullfaxa frá Reykjavík til Keflavíkur eina ferð hans á þessum árum meö flugvél sem ekki var herflugvél. Kristín Snæhólm að störfum á Flugdeild Flugleiöa. Morgunblaðið/ Ragnar Axelsson „Þaö var viss ævintýraljómi yfir fluginu á þessum tíma og raunar finnst mér þaö vera enn. Mér finnst flugið vera ævintýri. Þegar þessir stóru skrokkar fyllast af fólki og vörum og hendast eftir brautinni með ógnar hávaöa og líða síðan léttilega upp í loftið. Það finnst mér alltaf dálítið ævintýri. Ég hef aldrei vaxið upp úr þeirri tilfinningu.“ Kristín Snæhólm réöist sem flugfreyja til Flugfélags íslands 15. janúar 1947 og starfar nú í flugdeild Flug- leiða. Ég ræddi við hana á dögunum um kynni hennar af samgöngubyltingunni í lofti og spurði fyrst hvernig staðið hefði á því að hún gerðist flugfreyja. „Ég kom heim eftir hálfs annars árs dvöl í Bandaríkjunum rétt fyrir jólin 1946 og eftir áramótin var enga vinnu að fá, en ég var að leita fyrir mér og hafði áður fyrr unnið á skrifstofu. Þá er það að auglýst er eftir flugfreyjum til Flugfélagsins í Morgunblaðinu. Ég vissi nú lítið hvað það var, en hafði alltaf haft mikinn áhuga á ferðalögum, svo ég dreif mig bara í að sækja um starfið og fékk það. Við vorum tvær í fyrstu og skiptumst á, ég og fyrsta íslenska flugfreyjan, Sigríður heitin Gunnlaugsdóttir. Við flugum með Liberator leiguvél frá Scottish Airlines á leiðinni Reykjavík — Prestwick — Kaupmannahöfn og til baka. Yfirieitt var heimahöfn í Prestwick, enda flugmennirnir þaðan. Ég byrjaði sem sagt í milli- landaflugi eingöngu. Fyrst fékk ég nokkra leiðsögn hjá Scottish Air- lines, en síðan tók ég til starfa af krafti. Liberator-vélarnar voru upprunalega herflugvélar, en þeim hafði verið breytt lítillega til að gera þær hæfar til venjulegra far- þegaflutninga. Það var á þessum tíma um það bil fjögra tíma flug til Prestwick og þaðan um klukku- tíma styttra til Kaupmannahafn- ar.“ „Fólk var hætt að vera hissa“ „Það var viss ævintýraljómi yfir fluginu á þessum tíma og raunar finnst mér það vera enn. Mér finnst flugið vera ævintýri. Þegar þessir stóru skrokkar fyllast af fólki og vörum og hendast eftir brautinni með ógnar hávaða og líða síðan léttilega upp í loftið. Það finnst mér alltaf dálítið ævintýri. Ég hef aldrei vaxið upp úr þeirri tilfinningu." — Hvernig voru viðbrögð að- standenda við þessu starfi þínu? „Þetta þótti ekki svo svakalegt, enda þótt maður gæti haldið það. En það var svo mikið búið að ger- ast hér árin á undan, á stríðsárun- um. Það höfðu svo margar og margvíslegar byltingar átt sér stað á öllum sviðum. Allt hafði breyst óskaplega mikið á óskap- lega stuttum tíma. Tæknin, at- vinnan, lífshættir, efnahagur og svo framvegis. Fólk var hreinlega hætt að vera hissa. Þar að auki var fólkið mitt orðið vant flækingi á okkur systkinunum. F'ólk var almennt búið að fá svo stóran skammt af nýjungum að ein í viðbót var eins og dropi í hafið. Því fannst flugið aðallega vera það sem það vissulega var og er, stórkostlegur ferðamáti. Sjálf hafði ég aldrei komið upp í Akureyrar þennan janúardag fyrir rúmum þrjátíu og fimm ár- um. Það var svo fallegt og ég sá svo vel út. Ég hafði auðvitað aldrei séð landið svona. Ferðin tók einn og hálfan tíma, en hann var fljótur að líða, sá tími.“ „Flogið á meðan maður stóð uppi“ „Árið 1948 var Gullfaxi keyptur, það var DC-4 vél, Skymaster. Það alfínasta. Fjórir hreyflar, lúxus- innrétting og sæti fyrir 40 far- þega. Um þessar mundir höfðu þrjár nýjar flugfreyjur bæst í hópinn, en þó vorum við því miður ekki nema fjórar, því Sigríður fórst í slysinu í Héðinsfirði 1947." — Hvernig voru starfsskilyrði á þessum tíma, miðað við það sem nú gerist? „Þau voru slæm. Það var bara flogið á meðan maður stóð uppi. Mér er til dæmis minnisstætt að við flugum einhvern tíma til Par- ísar, sem var sjö tíma flug, en lentum þá í morgunþoku þar og því var flogið í þrjá tíma í viðbót og til Rómar. Þar var staldrað við í þrjá til fjóra tíma, en síðan flog- ið til Parísar, með fulla vél. Þar kom um borð alþingismaður nokk- ur og frú og var gerður tveggja tíma stans og síðan flogið heim- leiðis. Þá vorum við sem sagt á stjái í einn og hálfan sólarhring. Þetta væri aldrei gert nú, en kom iðulega fyrir í alls kyns leiguflugi á þessum árum. Þess var að vísu gætt að leysa af í stjórnklefanum, en flugfreyjur voru ekkert leystar af. Núna, ef sendir eru sjúklingar eða ungbörn með vélunum, þá er send flug- freyja aukalega, eða þá læknir eða hjúkrunarkona, en þá bættist þetta bara við venjuleg störf hjá okkur. Ég man eftir að hafa verið að koma veikri konu inn á spítala í Kaupmannahöfn, þegar mænu- veikifaraldurinn geisaði hér og alloft hef ég gist með lítil börn á hótelum, vegna þess að við kom- umst ekki á áfangastað vegna veð- Rætt viö Kristmu Snæhólm fyrrum flugfreyju, nú starfsmann í flugdeild Flugleiða Um borð f Gullfaxa érið 1949. Meö ekoskri éhöfn í Preatwick 1947. flugvél fyrr en ég fór að vinna, varla einu sinni séð flugvél. Að vísu fór ég einn flugtúr á DC-3 til Akureyrar áður en ég hóf störf sem flugfreyja, svona rétt til að hafa komið upp í vél áður. Ég var afskaplega heppin með þá ferð. Það var gott veður og bjart og vél- in haggaðist ekki. Ef það hefði verið ókyrrð í lofti, eins og maður átti eftir að kynnast síðar, sér- staklega hér innanlands, þá hefðu ábyggilega runnið á mig tvær grímur, ekki víst að ég hefði lagt í þetta. DC-3 var sérstaklega vönduð og falleg vél, enda hafa þær verið í notkun fram á síðustu ár. Þar var innréttingin ekki úr plasti eins og núna. I þessari vél voru blá leður- sæti. Þetta var eiginlega lúxusvél, fannst mér, væri það jafnvel í dag. Enda hafði hún verið keypt af ein- hverjum einkaaðila, vel stöndug- um. Þetta var stórkostleg ferð til „Mér fínnst flugið alltaf dálítið ævintýri“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.