Morgunblaðið - 08.04.1982, Page 14

Morgunblaðið - 08.04.1982, Page 14
6 2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 Ekið í bifreið frá Borgarnesi til Akureyrar 10. júlí 1928. Þann 3. þ.m. kom Þorkell Teits- son, stöðvarstjóri í Borgarnesi, til Akureyrar, og kom hann þangað í bifreið alla leið frá Borgarnesi. Ferðin hafði gengið að óskum. Hann ók í nýjum Fordbíl og var 7 klukkustundir frá Borgarnesi að Blönduósi. Voru þá aðaltorfær- urnar eftir, en það voru Vatns- skarð og Öxnadalsheiði. Fékk Þorkell tvo menn sér til hjálpar, til þess að komast upp á Stóra- Vatnsskarð og aftur aðra tvo sér til hjálpar upp á Öxnadalsheiði. Eftir 12 tíma voru þeir komnir að Bakkaseli í Öxnadal og þaðan var ekið á þremur tímum til Akureyr- ar. Þetta er í fyrsta sinn, sem farið er í bifreið yfir Öxnadalsheiði. SINDRA STALHE Fyrirliggjandi i birgðastöð Efnispípur °oo° oo°^ °OOo Fjölmargir sverleikar og þykktir. Borgartúni 31 sími27222 ROYAL PLAYA DE PALMA Atlantik býður upp á úrval gististaða, þar á meðal er íbúðahótelið vinsæla, Royal Playa de Palma. Á Mallorka er nær allt sem hugurinn girnist, og ýmislegt um að vera. Pantið tímanlega, svo þér missið ekki af óskaferðinni. Brottfarardaqar: 11. maí 15. júní 6. júlí I 17. ágúst 7. september 18. apríl 29. maí 27. júlí 28. september FERÐASKRIFSTOFA, IÐNAÐARHÚSINU HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMAR 28388 - 28580 vegi til að ná takmarki okkar. Og ekki tók betra við þegar við fórum niður að vestan. Þar var allsstaðar þverhnípt, og hvergi sjáanleg leið til að koma bílnum niður. Hallinn var um 40—50 gráður. Það var ekki um annað að ræða en fara annaðhvort þarna niður eða láta bílinn standa þarna um veturinn, því til baka kæmist hann ekki heldur. Og eins og fyrri daginn þá þurfti ekki að eggja Brand til stórræðanna. Járngrindur sem höfðu verið ofan á farangurs- grindinni voru teknar niður og festar í taug aftan í bílinn. Auk þess voru fest bönd í þak vagnsins og í þau var haldið til að koma í veg fyrir að bíllinn ylti á hliðina. Brandur ók síðan bíl sínum fram á brúnina, hallinn var svo mikill að hann stóð við stýrið. Hallgrímur segi r svo frá: „Á örfáum andartökum snarað- ist bíllinn niður hjallann ofan- verðan og staðnæmdist í lyngboll- anum til allrar hamingju, en á ysta þremi. Járngrindurnar gerðu sitt gagn. Þær skáru sig niður í jarðveginn, þar sem ekki var ein- tómt grjót undir, og drógu úr ferð- inni. Hér gafst tóm til hvíldar og nýrra athugana á því, sem eftir var. Brandur fylltist þeim hof- móði, að telja óhætt beint niður > kargamó sem undir beið. Hann af- bað sér allar frekari vegabætur, hvað engan tíma mega missa, og bað okkur aðeins að halda vel í böndin, svo léti hann slag standa. Eyjólfur tók sér stöðu á ská neð- an við bílinn. Þá ók Brandur fram af á ný. Þetta tók allt skemmri tíma en frá verður sagt. Bíllinn fór á þeysiferð niður skriðuborna brekkuna og dró allt eftir sér, dragbítinn og okkur. Eftir örstutta stund hafnaði allt í hörðum mó neðan við stallinn. Vagninn var á öllum hjólum, en við á ýmsum endum í þúfunum. En það voru harla ánægðir ferða- langar, sem fleyttu kerlingar þar í karganum. Annar mesti sigur ferðarinnar var unninn. Þessi glæfraför hafði heppnast framar öllum vonum." „Hvernig var með matargerð á leiðinni, Eyjólfur?" „Hún var að mestu í höndum Jóhannesar Kolbeinssonar, en hann var ágætis kokkur og hafði gaman af því að elda, og sérstak- tega var kjötsúpan hans fræg. Það var nú ekki verið að taka mikið af borðbúnaði með, Jóhannes bar kjötið venjulega fram á skóflu, en það bragðaðist ágætlega fyrir því. Erfitt var að fá vatn sums staðar á leiðinni, og þurftum við því að notast við alls kyns polla og pytti og voru miklar umræður oft í gangi um hvað mikið væri af ána- möðkum og fleiri lindýrum í súp- um okkar, en jafnvel þótt eitthvað hefði verið af slíku, vorum við það svangir að við hefðum borðað súp- una fyrir því!“ „Eitthvað sem þú vildir segja að lokum, Eyjólfur?" „Þetta voru skemmtileg ferða- lög í þá daga, og ég sé alltaf eftir hestaferðalögunum. Það var miklu frjálsari ferðamáti, maður gat stoppað hvar sem var og farið um allt, var ekki bundinn vegunum. Hestarnir voru líka persónulegir vinir manns, fundur réttu vöðin í ánum o.fl. þ.h. Þegar við vorum á þessu ferðalagi þarna fyrir vestan Ferð þeirra áttmenninga hófst á Skálanesi, en leiðin yfír Klettahálsinn var erfið- asti hluti leiðarinnar, og voru þeir þrjá daga að komast frá Kollafirði yfír í Vattarfjörð, en í dag er farið þarna á milli á þrem stundarfjórðungum. Síðan fóru þeir I>ingmanna- heiðina og sem leið lá til ísa- fjaröar, ferja var tekin frá Bíldudal yfír á Hrafnseyri, og frá Þingeyri yfír að Gemlufalli. Bíllin fór síðan um borð i Fagranesið á ísa- fírði og þaðan yfir á Arngerð- areyri, en þaðan var greið leið til Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.