Morgunblaðið - 08.04.1982, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982
67
Flugvél hvolfir og laskast
mikið — síðan endurbyggð
4. marz 1940.
TF-ÖRN, eina flugvélin, sem ís-
lendingar eiga, laskaðist svo mjög
í gær, að hún mun vera ónýt.
Flugvélin ætlaði að hefja sig til
flugs á Skerjafirði, er vindhviða
hvolfdi henni og stakkst hún á
nefið á kaf í sjóinn. Upp úr stóðu
aðeins flotholtin og annar væng-
urinn. í flugvélinni var flugmað-
urinn, Örn Johnson, og tveir far-
þegar, Bjarni Ásgeirsson alþingis-
maður og Tómas Hallgrímsson
bóndi.
Stýris- og farþegaklefinn var á
kafi í sjónum. Strax og flugvélinni
hvolfdi, skrúfaði flugmaðurinn
niður rúðu við stýrissætið. Komst
hann þar út og hjálpaði því næst
Bjarna og síðan Tómasi að komast
út sömu leið. Bjarni synti þegar til
lands, en Örn og Tómas björguðu
sér upp á vænginn, sem upp úr
stóð. Vélamaður Flugfélagsins,
sem sá hvað gerðist, setti þegar á
flot bát, reri út að vélinni og náði
mönnunum tveimur af vængnum.
Júlí 1940.
Mánudaginn 8. júlí gat að líta
hárauða flugvél á sveimi yfir
Reykjavíkurbæ. Fyrir tilverknað
íslenzkra hagleiksmanna hafði
flugfloti íslands tvöfaldazt í einni
svipan — úr einni flugvél í tvær.
Þegar flugvélin TF-ÖRN fórst á
Skerjafirði í vetur, var hún talin
með öllu ónýt. En þrír menn hóf-
ust þó handa um að endurbyggja
flugvélina, og hefur þeim tekizt
svo vel, að vélin þykir nú prýðilega
flugfær.
Mennirnir, sem unnið hafa verk
þetta, eru Gunnar Jónasson, Björn
Ólsen og Brandur Tómasson. Hafa
tveir þeir fyrrnefndu smíðað
flugvélarbolinn, en Brandur gerði
hreyfilinn nothæfan að nýju.
Sú höfuðbreyting hefur orðið á
vélinni, að hún er nú landflugvél,
en gamla vélin var sjóflugvél.
umboð á íslandi
Um sídustu áramót geröist Sindrastál hf. um-
boösaöili fyrir sænsku verksmiöjurnar
WELAND & Son a/b.
Framleiösluvörur WELAND eru helstar:
galvaniseruö ristarefni og þrep.
Efni þessi munum viö kappkosta aö hafa fyrir-
liggjandi í birgöastöö okkar eftir föngum eöa
panta sérstaklega sé þess þörf.
Nýtt flugfélag stofnað
2. mai 1928.
í gær var stofnað í Reykjavík
nýtt flugfélag, er nefnist Flugfé-
lag íslands. Aðalforgöngumaður
að stofnun félagsins er dr. Alex-
ander Jóhannesson háskóladósent.
Er hann einnig formaður félagsins
og framkvæmdastjóri.
★
1. september.
Flugfélag Islands hefur undan-
farna mánuði haft hér þýzka sjó-
flugvél í förum.
Vélin er sjóflugvél af Junkers-
gerð, öll úr málmi, og hefur 230
hestafla Sidley-Puma hreyfil.
Flugvél þessi tekur fimm farþega
og getur flogið 414 tíma án þess að
lenda. Henni hefur verið gefið
nafnið Súlan.
Flugvélin hefur í sumar flutt
póst og farþega til ísafjarðar, Ak-
ureyrar, Siglufjarðar, Stykkis-
hólms, Borgarness og Vestmanna-
eyja. Flugmaðurinn er þýzkur og
heitir Simson. — Dagana 13.—18.
ágúst var vélin reynd við síldarleit
i fyrir Norðurlandi, og þótti gefast
|vel. Telur framkvæmdastjóri ár-
langur flugsins í sumar góðan, og
kveðst þess fullviss, að flugið eigi
framtíð hér á landi. Ætlun flugfé-
lagsins er sú, að hafa hér tvær
flugvélar í förum að sumri. Er
ennfremur í ráði, að fá unga og
efnilega Islendinga, einn eða
fleiri, til að hefja flugnám, svo að
þeir geti að námi loknu tekið við
stjórn flugvéla hér heima.
SINDRA-STÁL HF. Borgartúni 31 símar 27222 21684
TM
SINDRA
STALHF