Morgunblaðið - 08.04.1982, Side 23

Morgunblaðið - 08.04.1982, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 71 Annaðhvort var því að láta í minni pokann eða gera tilraun til að ná jafnrétti. Það var nú sennilega af fávizku einni saraan, að ég sótti um inn- göngu á námskeið til meiraprófs til mannflutninga, enda var ég kölluð fyrir Jón heitinn Ólafsson, forstjóra Bifreiðaeftirlits ríkisins, sem stóð fyrir námskeiðinu. Hann hafði við mig heljarmikið viðtal, það var engu líkara en hann vildi prófa geðheilsu mína, það var greinilega tortryggilegt, að kven- maður skyldi skjóta þarna upp kollinum. Fyrsta atriði málsins var að taka inntökupróf á 28 manna bíl og á því prófi féllu oftast einhverjir. Mér var um og ó, þegar ég fékk ekki samþykki Jóns í þetta skipti til að gangast undir þetta ökupróf, kvaðst hann láta mig vita nánar um það. Ég kross- bölvaði með sjálfri mér, vildi auð- vitað fremur falla heiðarlega en vera burtræk út á andlitið. En ég komst í náð og skreið rúmlega yfir lágmarkið, sem sett var. Þar réð örugglega miklu, að Kjartan og Ingimar áttu bílinn, sem var prófað á og Kjartan var búinn að lána mér hann nokkrum sinnum til að æfa mig á. Svo hafði ég líka ekið sams konar bíl smá- vegis fyrir vestan, lærði reyndar á þannig bíl. Ég man eftir, að marg- ir ráku upp stór augu, sem tóku eftir þessu fyrirbæri, kvenmanni að aka rútu. Mér fannst svo sem ekkert taka betra við, þegar ég þrammaði ein með 81 herra upp á hæstaloft í Borgartúni 7. Mér fannst þeir allir horfa á mig og vorkenna mér að vera að villast þarna. Sigurjón Rlat t«k þtm mynd a( Jónfnu vM jappann 1947. Námskeiðið stóð í sex vikur og var heilmikil lesning. Ég lærði allt utanað og kjaftaði mig út úr því sem á vantaði og tókst þannig að hafna að mig minnir í þriðja sæti. Þetta var bara „grís“ eins og sagt er, ég kunni lítið til verka hefði í það farið. Svo fór ég heim og hélt áfram akstrinum. Ég hafði gaman af að keyra, mér þótti jeppinn góður og sterkur, að vísu var kúlulegan í stýrisarminum nokkuð varasöm. Einu sinni gaf hún sig, þegar við vorum á leið niður af heiði. Það fór að vísu allt vel, en ansi titraði löppin á mér grunsamlega mikið, þegar niður kom. En þessi gamli jeppi varð eins og hluti af mér, það lá við ég fyndi til, þegar hann hlúnkaðist niður í holurnar eða skrölti yfir eggjagrjótið. — Stundum hélt ég, að fólk ætl- aði hreinlega að sturlast úr hræðslu, þegar það fór með mér. Ekki vegna þess það hefði neitt komið fyrir mig, en hvort tveggja var að eins og ég sagði þótti skrít- ið, að kvenmaður skyldi keyra bíl yfir holt og heiðar og auk þess var þetta alveg ný reynsla flestum. Kannski var ekki skrítið, þótt far- þegum yrði ekki um sel,_Breiða- dalsheiðin var há og glæfraleg, ákógarbrekkurnar og Kinnin hvað erfiðastar, þetta voru krókar fram og til baka, upp og niður. Jeppinn komst lítið hraðar en 60 km, enda ekki beinlínis neinum hraðbraut- um fyrir að fara til að þenja hann á. Stöku sinnum komu smá veg- arspottar, svo beinir, að hægt var að gefa í. En upp allar heiðar lús- aðist maður í fyrsta gír. Frá Gemlufalli til ísafjarðar töldust þá vera um 50 km, sú leið hefur verið stytt með breyttum vegar- stæðum. Ég fór þetta venjulega á einum og hálfum klukkutíma, þótt farið væri hægt upp í móti, lét maður hann renna létt niður brekkurnar. Einu sinni voru fjórir prestar farþegar mínir frá ísafirði, meðal þeirra var sr. Jónmundur í Grunnavík, spaugsamur maður. Þegar Jónmundur sá, að bílstjór- inn var kona, sagði hann: „Ætliði nú að láta stelpuna drepa mig?“ En sonur hans, sem var þarna nærri, sagðist taka ábyrgð á stelp- unni. Þegar kom upp á háheiðina, þar sem stundúm var grjóthrun og snarbratt og hættulegt, gat ég ekki á mér setið og fór að stríða kalli. „Vilt þú ábyrgjast, að ég fái samfylgd með ykkur inn í Himna- ríki, ef ég læt okkur rúlla hérna niður?“ sagði ég. En sr. Jónmund- ur þorði ekki að garantera Himna- ríki, hvorki fyrir mig né þá. Ég man líka eftir ungum manni, erindreka frá Sambandinu, sem ég keyrði til Flateyrar. Hann ætlaði fyrst ekki að trúa eigin augum, þegar hann sá bílstjórann, mig, og svo sat hann stjarfur af hræðslu. A Mosvallahálsinum fór ég að benda honum til Flateyrar, en ók innfyrir, í öfuga átt. Sjálfsagt hef- ur hann ekki verið kunnugur á þessum slóðum, alla vega stundi hann upp spyrjandi, hvert við værum að fara. „Við erum nú svo skrítnar þessar sveitastelpur," sagði ég, „þegar við fáum svona unga og huggulega menn, erum við bara vísar til að keyra með þá eitthvert út í móa.“ Það hefði víst engum nema mér dottið í hug að tala svona, svo að það er öruggt, að ekki var ég nú kvenleg í mér ... — Eftir að'ég hafði öðlazt rétt- indi tók ég 35 krónur, það hæsta, fyrir ferðina til ísafjarðar. Hafði hliðsjón af því að vera lægri en þeir sem voru með fínni bíla, þess- ar líka drossíur, Ford og Chevrolet 1942. — Ég var í þessari keyrslu í sex sumur af og til, eða þar til ég gifti mig og skipti yfir í barnavagninn. Ég verð að segja að ég minnist þessa tíma með ánægju, enda lán- aðist þetta ailt og mér varð ekkert á. Ég flutti hingað suður 1952 og síðan hefur aðalakstursæfingin verið að keyra í gegnum ekta- standið. Við hjónin eignuðumst fimm börn, en einn dreng misstum við í bílslysi 17 ára gamlan. Það gengur nú svona í lífinu. Ég hafði stýrt mörgum bílum áfallalaust og ég tel bílinn bókstaflega vera við- bót við sköpunarverkið — en ég varð að sætta mig við að horfa á eftir syni mínum á þennan hátt. — Mér finnst sorglegt, hvað við höfum misboðið bílnum og mis- notað hann. Maður sem sezt undir stýri verður að skilja, hvað hann hefur í höndunum. I bílnum er raunverulega orðið miklu meira afl en hægt er að tengja manns- huganum svo vel fari, þegar eða ef út af bregður. Svo er þetta með sálfræðingana hjá bílaframleið- endunum, þeir hafa sko skilað sínu með því að stilla svo mjög upp á hégómagirndina að engan enda tekur. Alberto Balsam Smukkere hár pá et minut Fallegra hár meö Alberto Balsam. Gæða Shampoo Einkaumboð Kaupsel sf., sími í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.