Morgunblaðið - 08.04.1982, Page 29

Morgunblaðið - 08.04.1982, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 77 voru ekki yfir 8Íg hrifnir af þess- um nýju farartækjum, og það kom fyrir að þeir fældust, ef ekki var farið varlega fram hjá þeim. Veg- irnir voru heldur ekki upp á marga fiska, Laxá í Kjós til dæmis óbrúuð framan af, og Holtavörðu- heiði slæm, og í Giljareitum á Öxnadalsheiði var sums staðar svo þröngt, að það varð að bakka í beygjunum, til að ná þeim! — Einu sinni ók ég með Jónas Þor- bergsson útvarpsstjóra norður í Mývatnssveit, og honum leist ekki á blikuna í Giljareitum á leiðinni norður. — A leiðinni til baka bað hann svo um að fá að ganga á meðan ég keyrði Reitina, og tók ég því vel. Þegar þangað var komið var hins vegar svo mikil þoka, að ekkert sást, og spurði hann mig oft hvenær við kæmum að Gilja- reitum. Ég svaraði því litlu, þar til loks að ég sagði honum sem var, að við hefðum nýfarið yfir þá! Nei, nei, hann reiddist því ekki, tók því bara vel!“ Byrjaði hjá BSR 1. febrúar 1934 — Ertu þá farinn að keyra leigubíl, þegar þú ert á ferð þarna norður í Mývatnssveit? „Já. Ég hafði byrjað að keyra hjá Kaupfélagi Húnvetninga eftir að ég hafði svarað þar auglýsingu um bifreiðastjórastarf, og þar var ég þangað til 1933, að þeim þótti ég vera orðinn of dýr, fá of mikið kaup. Þá nennti ég ekki að vera hjá þeim lengur, flutti suður og byrjaði á BSR hinn 1. febrúar 1934. Þar var ég við ýmis störf, en fékk minn fyrsta bíl í nóvember 1934, Ford ’34. Þetta var góður bíll, 8 cylindra, en áður voru þeir flestir aðeins 4ra. Ég hygg að þessir bílar hafi verið með þeim bestu, sem fluttir hafa verið hingað til lands. Já, það var töluvert að gera fyrir leigubílstjóra á þessum árum hér í Reykjavík, enda var akstur- inn ekki dýr. Fólk var að fara í stuttar heimsóknir út í útjaðra bæjarins, eða bara í lystireisur. Þá vár ég líka talsvert í lengri ferð- um, var til dæmis með Rafmagns- eftirlitinu í ein átta sumur, og fór þá nálega um allt land. Aksturinn var ekki tiltakanlega dýr á þessum árum, en það voru bílarnir hins vegar. Fordinn sem ég keypti 1934 kostaði 4450 krón- ur, en þá voru mánaöarlaun svona 150 til 200 krónur að ég held. Minnsti túrinn innanbæjar kost- aði þá eina krónu, og bensínlítrinn 32 aura, ef mig misminnir ekki. Já, það var þægilegra að aka fólksbíl en vörubíl fannst mér, ekki þessi vinna við að bera vör- una, ferma og afferma bílinn." Bifreiðastjóri! Hafið þér athugað hver þér eruð? „Á þessum árum voru bifreiða- stjórarnir hjá BSR með „kaskeiti", það var ætlast til þess,“ segir Sveinbjörn, „en það lagðist þó af smám saman." Mikið var hins vegar lagt upp úr því að bílstjórar væru stétt sinni til sóma, og gefnar voru út sér- stakar leiðbeiningar í því skyni. Eftirfarandi getur til dæmis að líta í „Handbók fyrir bifreiða- stjóra og afgreiðslumenn bifreiða- stöðva", sem út var gefin 1940: „Kver þetta er útgefið að til- hlutun Bifreiðastjórafélagsins „Hreyfill". Tilgangur þess er að samræma verð á leigubílum til mannflutninga eftir vegalengdum, og til hægðarauka og leiðbein- ingar, bæði fyrir bifreiðastjóra og afgreiðslumenn á bifreiðastöðv- um. Bifreiðastjórar! Afgreiðslu- menn! Takið alltaf rétt verð, verið ekki sjálfsþrælar í niðurboðum á ykkar eigin atvinnu. Sýnið lipurð og kurteisi í hvívetna, og aflið ykkur trausts og virðingar við- skiptamanna og vegfarenda með drengskap. Hafið hugfast, að þér eruð einn stærsti og ábyrgðar- mesti hlekkurinn í samgöngu- málakeðju þjóðarinnar. Einn mesti landkynnirinn, inn á við, oft fyrsti maðurinn sem útlendingur- inn og ferðamaðurinn hefir sam- neyti við. Bifreiðastjóri! Hafið þér athugað, hver þér eruð? Hafið þér hugsað um þá ábyrgð, sem þér — bæði beint og óbeint — berið með atvinnu yðar? Hugsið yður um!“ Gangið ekki of langt í aftursætinu Síðar urðu það svo aðrir útlend- ingar en venjulegir ferðamenn, sem bílstjórar óku með innanbæj- ar og í lengri ferðum. Stríðið skall á, og bærinn fylltist af erlendum her. „Já, það var mikil vinna í kring- um herinn," segir Sveinbjörn, „og ég ók breskum hermönnum tals- vert. Einna mest ók ég með kaft- ein Dubby, sem fór víða í margs konar eftirlitsstörf, ágætis maður, prúður og kurteis. Jú, ástandið sáum við auðvitað líka, ekki vantaði það. Leigubíl- stjórar óku að sjálfsögðu talsvert með hermenn og íslenskar stúlkur, enda ekki í okkar verkahring að koma í veg fyrir samgang þar á milli. Svo langt sem okkur var fært, reyndum við þó að halda uppi fullu velsæmi, og gengum til dæmis eftir því að ekki væri geng- ið of langt í nánum kynnum í bíln- um, en það hefði iðulega gerst ef við ekki skökkuðum leikinn." Kjarval og Ólafur Thors — Þú hefur ekið mörgum kunn- um mönnum, áttir þú ekki fasta viðskiptavini marga? „Jú, það voru nokkrir menn, sem vildu helst ekki fara með öðrum en mér, og pöntuðu mig þá sér- staklega ef ég var laus, og biðu jafnvel þar til ég losnaði ef því var að skipta. Einn þeirra var Jóhann- es Kjarval, sem ég ók iðulega inn- an bæjar og utan, beið jafnvel eft- ir honum ef hann fór í styttri ferð- ir út fyrir bæinn til að mála, en sótti hann annars á ákveðnum tíma. Hann er liklega eftirminni- legasti og sérkennilegasti farþeg- inn minn. Hann greiddi ekki alitaf fyrir farið jafnóðum, en þegar hann átti peninga, hafði selt vel eða haldið sýningar, þá greiddi hann alltaf upp allar sínar skuld- ir. Maður gat því óhræddur ekið honum af þeim sökum. Þá gaf hann mér líka myndir eftir sig, til dæmis þegar ég var sextugur, þá færði hann mér stærðar málverk, af fjalli í leys- ingum, sem þykir nokkuð sérstakt meðal verka hans, og hefur einu sinni verið lánað til Svíþjóðar á sýningu. Fleiri? Já, ég ók til dæmis oft með Ólaf Thors, og fleiri stjórn- málamenn. Það var ágætt að aka Ólafi, skemmtilegur og sagði oft brandara á leiðinni. Já, það getur verið að ég hafi stundum heyrt áríðandi samtöl í bílnum, jafnvel ríkisleyndarmál, en jafn víst er að það fór aldrei og fer ekki lengra. Menn gátu treyst því sem óku með mér, þess vegna hafa þeir kannski líka talað frjálslega þótt ég heyrði á tal þeirra." Á afgreiðslu BSR, Stjórnarráðinu og Morgunblaðinu — En þú hættir tiltölulega snemma að aka? „Já, ég var orðinn leiður á þess- um akstri, og hætti alveg að keyra leigubíl milli 1950 og 1960. Þá fór ég fyrst á afgreiðsluna hjá BSR, en gerðist síðar vaktmaður í Stjórnarráðinu. Þar var ég í ein níu ár, þar til ég varð 71 árs, og síðan var ég vaktmaður hjá Morg- unblaðinu í tíu ár, og hætti þá störfum. Ég er annars heilsu- hraustur ennþá, og gæti sjálfsagt ekið bíl, en ég hefi ekki endurnýj- að skírteinið mitt í mörg ár. Þarf ekki lengur á því að halda.“ - AH esamSwinq BÍLKRANINN SEM EINN MAÐUR TEKUR AF Á 15 MÍNÚTUM * Ótakmarkaður snúnincp- * Fljótvirkur aftökutaúnaður * Hannaður fyrir: vörubifreiðar traktora sl<ip * Afkastageta 5-7 t.m. * Vökvaframlenging að 6A m. * Þyngd 1280-1330 kg. L YFTITÆKI AUSTURSTRETI 9, REVK3A.VÍK. SÍMI 15920 í S L E N S K R E Y N S L A á kílómetragjaldi, i Flugmenn okkareru flestum hnútum kunnugirá flugvöllum nágrannalandanna. *UR KAUPMANNAHOFN HAMBORG Margra ára reynslai farþegaflugi og vöruflutningum. LEIGUFLUG £f> Sverrir þóroddsson / Öf lugar og f ullkomnar f lugvélar. sem geta fanð á f lesta islenska flugvelli. auk þess að fjúga án millilendinga til flugvalla i nágrannalöndunum. Leiguflug Sverris Þóroddssonar hcfur sjúkra-og neydarflugsvakt ollan sólarhringinn. m28011

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.