Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982
59
sem kom út ’41 og gerist í borginni
á kreppuárunum og „Villield", sem
kom út árið 1967, skömmu eftir lát
Ragnheiöar, en hún skildi hana
eftir í handriti.
Villieldur er ofboðslega svört og
beizk bók. Hún gerist á kalda-
stríðsárunum í Reykjavík, á einu
kvöldi og einni nóttu.
Sögupersónurnar eru hjónin
Oddur og Bryndís. Bókin hefst að
kvöldi útfarardags Odds. Bryndís
situr og hugsar aftur í tímann og
rifjar upp hjónaband þeirra, sem
hefur verið stormasamt, svo ekki
sé meira sagt. Ekkert hefur tengt
þau saman nema hatrið og engin
leið út nema dauðinn. Það er ekki
hægt að fullyrða að Bryndís hafi
drepið mann sinn ... en hún af-
stýrir heldur ekki dauða hans þó
að henni sé það ef til vill fært. Það
sama gildir um Hildi, aðalpersón-
una í Arfi.“
Hvernig fer fyrir þeim, lausum
við karlana? (Spyr blm. með önd-
ina í hálsinum.)
„Þessar tvær bækur hafa hlið-
stæðan söguþráð," segir Dagný,
segir hún. „Þetta eru svo magnað-
ar heimildir um hugsunarhátt
kvenna á þeim tíma sem þær eru
ritaðar og af þeim mættum við
hafa meira.
Konur í bændasamfélaginu voru
aldar upp við að vera ráðstafað í
hjónaband. Heimurinn var í föst-
um skorðum — guð var á sínum
stað og sá vondi á sínum. Svo fer
þjóðfélagið að breytast, unga fólk-
ið flykkist til bæjanna og gamla
fólkið hefur ekkert að segja leng-
ur. Davíð yrkir um frjálsar ástir,
„... að drekka nautnanna bikar í
botn“, en sveitapíurnar missa fót-
anna þegar þær ætla að fara að
neyta þess frelsis, sem þær halda
að þær hafi. Allt endar í upplausn
og örvæntingu og Villieldur er há-
markið.
Adalsmerki góds
höfundar
Stundum hugsa ég með mér að
ef Ragnheiður Jónsdóttir hefði lif-
að þá væri hún 54 árum eldri en ég
og velti því fyrir mér hvort ég sé
að gera henni rétt t.il. Hvort rétt
RagnheiAur Jónsdóttir
„en eru í raun upphafið og endir-
inn á þeirri þróun sem Ragnheiður
er að lýsa í hinum bókunum.
í Arfi giftist Hildur stórkaup-
manninum Tómasi til fjár, til að
bjarga fjölskyldu sinni frá ör-
birgð. Kallinn er hjartveikur en
mesta fól. Það eina sem heldur
honum lifandi er mannvonskan.
Líf sjö til átta manns er undir
duttlungum kallsins komið og til
að bæta gráu ofan á svart fær
hann þá hugdettu að skilja við
Hildi til að hún erfi sig ekki.
Innan bókarinnar er það sem
Hildur gerir því siðferðislega rétt
og lesandi fordæmir hana ekki
þegar hún lætur hjá líða að bjarga
lífi Tómasar. Hún stofnar síðan
barnaheimili fyrir peningana.
í Villieldi horfir þetta allt öðru-
vísi við. Þar eigast við tveir ein-
staklingar á allt öðrum forsendum
en í Arfi og þar er hin siðferðis-
lega réttlæting á því sem Bryndís
gerir mjög hæpin.
Fólkið í Villieldi hefur týnt átt-
unura, misst alla viðmiðun og gild-
ismat. Kynslóð Bryndísar hefur
losað sig við lífsmynstur foreldr-
anna en getur ekki tileinkað sér
þann nýja veruleika, sem blasir
við þeim í veröldinni. Oddur er
næmur og fíngerður maður, fullur
af sektarkennd og sjálfsfyrirlitn-
ingu. Sjálfstortíming hans er
mjög gagnger. Bryndís er afar
hörð kona, sem reisir glerveggi
umhverfis sig. Bryndís vinnur af
því að hún er sterkari aðilinn."
Dagný lifir sig svo inn í frá-
sögnina af sögupersónum Ragn-
heiðar að ég spyr hana hvort ekki
sé gaman að vinna að þessu verki.
„Það er a.m.k. afar spennandi,"
sé að taka verk höfundar og fara
með þau eins og hrátt skinn og
hvort maður sé ef til vill að þjóna
eigin skoðunum á gerræðislegan
hátt. En ég held ekki,“ segir
Dagný, hugsi. „Þetta er allt í bók-
unum.“ Og hún bætir við: „Ég held
að Ragnheiður hafi verið alveg
ofsalega skörp kona. Hún segir t.d.
í viðtalinu við Steinunni Briem að
stundum taki persónurnar af sér
völdin, hún lætur „innri lógík"
ráða og þróun persónanna halda
sínu striki í samræmi við hana,
slíkt er aðalsmerki góðs rithöf-
undar."
Að lokum Dagný. Hugtakið
kvennabókmenntir er vítt og ekki
ber öllum saman um hvernig eigi
að skilgreina það, en gerir öll þessi
umræða samt ekki það að verkum
að einmitt núna er góður tími til
að vekja athygli á þessum bókum
Ragnheiðar Jónsdóttur, sem þú
segir að hafi verið þagaðar í hel á
sínum tíma?
„Píslarvættið er alltaf tvíeggj-
að,“ segir Dagný. „En það er stað-
reynd að listagóður rithöfundur
eins og Ragnheiður hefur ekki
notið sannmælis. Og ég efast ekki
um að það er vegna þess að hún
var kona, skrifaði um konur og
valdi sér kvenleg viðfangsefni.
Þau þóttu ekki áhugaverð en
þykja það núna. Þar er kvenfrels-
isbaráttunni fyrir að þakka. Þessi
bók mín og t.d. það sem Helga
Kress hefur verið að gera, er auð-
vitað krafa um endurmat á þeim
kvenrithöfundum sem við höfum."
Dagný telur upp nöfn nokkurra
kvenrithöfunda frá fyrri ár'um og
spyr hvort ég kannist við þær all-
ar, það geri ég ekki ...
Viðtal: Hildur Helga Sigurðardóttir
Hressingarleikfimi
kvenna og karla
Vornámskeiö hefjast mánudaginn 19. apríl nk. í leikfimisal Laugarnesskólans.
Fjölbreyttar æfingar — Músík — Slökun. Get bætt viö örfáum nemendum.
Upplýsingar í síma 33290 kl. 10—12 fyrir hádegi.
Ástbjörg S. Gunnarsdóttir,
íþróttakennari.
rrieö.
úninðs'
Ofninn hefur þrjár stillingar: Simmer/Smásuöa Full power/Fullur styrkur
Defrost/Þýöir Hitun á ostasamlok- Kartöflur steiktar á 5 mín.
Þýöir djúpfrystan mat, t.d. 200 gr. um og upphitun rétta. Kótilettur steiktar á 7 mín.
kjötstykki á 4 mín., steikir eggjarétti.
Örbylgjuofn meö snún-
ingsdiski gerir matargerö
fljótari ... betri ... og
hollari
Hafir þú lítinn tíma, eöa leiöist aö standa lengi yfir
matargerö er örbylgjuofninn frá SHARP svariö. Meö
örbylgjuhitun tekur örstund aö hita, sjóöa eöa steikja
matinn án þess aö bragö eöa ilmefni tapi sér. Snún-
ingsdiskur í ofninum tryggir jafna hitun.
Eff
tíminn
er
naumur.
Verö aöeins
5.450-
SHARP
ÖRBYLGJU-
OFN
HLJÓMTÆKJADEILD
Ijj) KARNABÆR
Hverfisgata 103. Sími 25999.
Utsölustaöir:
Karnabær Glæsibæ — Fataval Keflavík
— Portið Akranesi — Eplið ísafiröi —
Radíóver sf. Húsavík — Álfhóll Siglu-
tirði — Cesar Akureyri — Hornabær
Hornafiröi — M.M. ht. Selfossi — Eyja-
bær Vestmannaeyjum.
1