Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982 65 Guðbergur Garðarsson ásarnt Sigrúnu Waage í hlutverkum sinum i Jazz-inum. Leik í raun sjálfan mig segir Guöbergur Garðarsson um hlutverk sitt 1 Jazz-inum Aukasýning verður á söngleiknum Jazz-inum í kvöld, sunnudag 18. apr- íl. Að sögn Guðbergs Garðarssonar, annars tveggja aðalleikara Jazz-ins, hafa menn fullan hug á að halda áfram sýningum svo framarlega sem aðsókn verði góð í kvöld. Aðspurður kvaðst hann vera mjög ánægður með undirtektir áhorfenda á þeim 10 sýn- ingum sem haldnar hefðu verið. Þó hefði aðsókn ekki verið eins góð að Jazz-inum og búist var við. Guðbergur kvað söngleik á borð við Jazz-inn að vísu talsvert frá- brugðinn því sem fólk ætti að venjast hér á landi. Að hans hyggju ætti það þó ekki að standa i vegi fyrir að fólk sækti þessa sýningu þar sem hún hefði upp á margt að bjóða. I raun spannaði hún mun víðara svið en t.d. gam- an- og harmleikir annars vegar og danssýningar hins vegar. í Jazz- inum færi þetta þrennt saman, þ.e. söngur, dans og leikur. Er hann var að því spurður hvort ekki hafi farið mikill tími í undirbúning þessa söngleiks svar- aði hann því til að æfingar hefðu verið langar og strangar. En haf- ist hefði verið handa við uppsetn- ingu Jazz-ins um síðustu áramót. Ekki kvaðst hann reiðubúinn að svara því hvort hann treysti sér út í annað ævintýri eins og Jazz-inn. Þó vonaðist hann til þess að söng- og dansleikjahúsi yrði kom- ið upp til að honum yrði gert kleift að hafa dansinn að atvinnu. Að hans dómi ætti hann margt sameiginlegt með þeirri persónu sem hann leikur í Jazz-inum. Mætti t.d. nefna að hann væri að stofna heimili og búa sig undir framtíðina eins og leikpersónan. „I raun og veru leik ég sjálfan mig í Jazz-inum“ sagði Guðbergur að lokum. ALFA VEGGSAMSTÆÐAN frá hinu þekkta norska fyrirtæki BAHUS gefur óendanlega möguleika í uppsetningu. Komiö og skoöiö þessar fallegu veggsamstæöur uppsettar í verslun okkar. Húsgagnasýning sunnudag Opiö kl. 2—5 Veriö velkominl LSI^eife m SMIDJUVEGI6 SÍMI 44544 íslenskt söngva- safn ^a\-er7ihIn Islenskt söngvasafn kom fyrst út i tveimur bindum 1915 og 1916. Þaö hefur notiö fádæma vinsælda og hefur þótt og þykir enn ómissandi á hverjum þeim stað þar sem sungiö er viö undirleik. Söngvasafniö var viöa nefnt „Fjárlögin“ og hlaut það nafn af hinni frábæru mynd Rikharös Jónssonar af islensku landslagi, smölum og kindum sem þrýddu spjöld bókanna og prýöir enn þessa nýju utgáfu. „Fáar nótnabækur hafa reynst tónmennt i landinu eins notadrjúg- ar og Islenskt söngvasafn, “ segir Jón Asgeirsson, tónskáld, i formála fyrir þessari nýju útgáfu. „ Val texta og laga, en sérlega þó raddsetning Sigfúsar Einarssonar, tónskálds, er án efa undirstaða þeirra vinsælda sem bækurnar hafa notið. “ Þessi nýja útgáfa Söngvasafnsins er fyrsta útgáfa þess óbreytt að öðru leyti en því að báöar bækurnar eru hér í einu bindi. Almenna bókafélagið Austurstræti 18, sími 25544, Skemmuvegi 36 Kópavogi, sími 73055.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.