Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 16
64 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982 Gerö Þyngd Hestöfl Skóflustærö Verö 650 HD 32,0 t. 160 hö. 1400 I. 1.607.000.- 640 HD 27,6 t. 120 hö. 1050 I. 1.401.200.- 630 HD 14,4 t. 101 hö. 750 I. 905.000.- Gerö TD-8 B TD-15 C TD-20E Hestöfl 70 hö. 140 hö. 210 hö. Verö 520.000, 1.450.000, 3.350.000, Gerö IH 530 A IH 540 A II IH H90E Hestöfl 156 hö. 202 hö. 248 hö. Verö 1.390.000, 1.800.000, 2.250.000, í verði eru allir helstu fylgihlutir Afgreiðslufrestur 3—4 vikur. Hafið samband við sölu- menn okkar, sem veita allar nánari upplýsingar. $ VÉIADEILD SAMBANDSINS Ármúla 3 Reykjavík S. 38 900 Vegna hagstæðra samninga getum viö boöið INTERNATIONAL vinnuvélar á mjög goöu veröi Vökvagröfur (Beltagröfur) Jaré Amokstursvélar Úr hinni nýju kapellu á fædingardeild Landspítalans. Glugginn, sem gerður er af Leifi Breiðfjörð, sést vel á myndinni, en hann ásamt skírnarfontinum er gjöf frá Ljósmæðrafélagi Reykjavíkur, en altarisstjakana gáfu börn hjón- anna Péturs Jakobssonar prófessors og Margrétar Einarsdóttur hjúkrunar- konu, til minningar um foreldra sina. Allur búnaður kapellunnar er til kominn fyrir gjafafé úr ýmsum áttum, sem starfsfólk Landspítalans og annarra ríkisspítala hefur að mestu séð um að safna. Ljósm: Krixiján ö™ Eiíuson. Landspítalinn: Kapella vígð á fæðingardeildinni Kapella var vígð á skírdag á fæð- ingardeild Landspítalans, af herra Pétri Sigurgeirssyni biskupi fslands. Séra Ragnar Fjalar Lárusson sókn- arprestur í Hallgrímsprestakalli, en í því er Landspítalinn, sagði í samtali við Morgunblaðið, að lengi hefði staðið til að koma þessari kapellu upp. Notast hefði verið við herbergi á spítalanum fram til þessa, en það hefði verið of lítið og varla nægt til þeirrar starfsemi sem verður í kap- ellunni. í kapellunni sagði séra Ragnar að unnt væri að skíra ungabörn áður en þau fara heún af fæð- ingardeildinni, einnig veik unga- börn á vökudeild, og eins myndu sóknarprestarnir hafa viðtalstíma í kapellunni. Þá kvað hann hana verða opna öllum sjúklingum og starfsfólki Landspítalans, og þar ætti fólk að geta átt friðsæla stund við bænir. Kapelluna sagði séra Ragnar vera reista fyrir gjafafé, þar sem margir hefðu lagt hönd á plóg. Leifur Breiðfjörð hefði gert steindan glugga í kapelluna, einn- ig skírnarfont og kertastjaka og hann hefði hannað kapelluna, og Sigríður kona hans gert altaris- dúk. Ailt væri þetta gert af mikilli smekkvísi, sagði sr. Ragnar, og kvað hann það fagnaðarefni að kapellan væri nú tilbúin og vígð. Frá námskeiðinu í sjúkraflutningum. LjÓNm. Mbl. Olafur. Námskeið í sjúkraflutn- ingum á Egilsstööum Egilsstöðum, 6. apríl. Um síðastliðna helgi efndu Rauða krossdeild Fljótsdalshér- aðs og Heilsugæslustöðin á Eg- ilsstöðum til námskeiðs í sjúkra- flutningum í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Námskeiðið sóttu sjúkraflutningamenn af Héraði, Breiðdalsvík, Eskifirði, Reyðar- firði og Seyðisfirði — eða um 40 manns. Að sögn Einars Rafns Har- aldssonar, framkvæmdastjóra Heilsugæslustöðvarinnar á Egilsstöðum, var einkum fjall- að um bráðahjálp á námskeið- inu, aðferðir við lífgun úr dauðadái og flutning slasaðra — ennfremur um sjúkraflutn- inga almennt og skipulagn- ingu þeirra. Heilsugæslustöð- in á Egilsstöðum hefur nú yfir að ráða tveimur sjúkraflutn- ingabifreiðum auk snjóbíla til sjúkraflutninga. Aðalleiðbeinendur á nám- skeiðinu voru Asgeir Björns- son frá Slysavarnafélagi ís- lands og Sigurður Sveinsson, starfsmaður Slökkviliðs Reykjavíkur, frá Rauða krossi íslands. Formaður Rauða kross- deildar Fljótsdalshéraðs er Ragnar Ó. Steinarsson, tann- læknir. Ólafur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.