Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982 77 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Forsætisnefnd Norðurlandaráðs auglýsir stöðu varaskrifstofustjóra forsæt- isskrifstofu Norðurlandaráðs Varaskrifstofustjórinn aðstoðar skrifstofu- stjóra við stjórn forsætisskrifstofu Norður- landaráðs, sameiginlegrar skrifstofu fyrir samstarf þjóðþinga á Norðurlöndum með aðsetur í Stokkhólmi. Staöa skrifstofustjór- ans er einnig laus. í skrifstofunni eru tvær stjórnarstöður til viöbótar. Önnur þeirra er nú skiþuö sænsk- um ríkisborgara. Forsætisnefndin leitast við að fá í þessar fjórar stöður menn frá sem flestum Noröurlandaþjóðum. Varaskrifstofustjórinn verður ráöinn til fjög- urra ára frá og með 1. ágúst 1982 eöa sem fyrst aö þeim degi liönum. Ríkisstarfsmaður á samkvæmt samkomulagi Norðurlanda rétt á fjögurra ára leyfi frá störfum til aö starfa í sameiginlegri Noröurlandaskrifstofu. Grunnlaun eru miöuð viö launaflokk F 23-25 í Svíþjóð og nema minnst 11.244 sænskum krónum á mánuöi. Auk þess er honum greidd uþpbót vegna starfs erlendis og persónu- uppbót. Nánari upplýsingar veitir Friðjón Sigurðsson skrifstofustjóri Alþingis, sími 11560, eöa Gudmund Saxrud skrifstofustjóri forsætis- skrifstofunnar og Jan O. Karlsson vara- skrifstofustjóri, sími í Stokkhólmi 14-34-20. Umsóknir skal stíla til forsætisnefndar Norö- urlandráös (Nordiska rádets presidium) og senda forsætisskrifstofunni (Nordiska rádets presidiesekretariat, Box 19506, S-104 32 Stockholm) í síöasta lagi 10. maí 1982. Dagvistarmál — Starfsmaður Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir lausa stööu (hlutastaða) umsjónarmanns með daggæslu í heimahúsum, leikvöllum bæjarins o.fl. Fóstrumenntun áskilin. Umsóknarfrestur er til 30. apríl nk. Umsókn- um skal skilaö á þar til gerðum eyöublöðum sem liggja frammi á félagsmálstofnuninni, Digranesvegi 12, opnunartíma 9.30—12.00 og 13.00—15.00 og veitir dagvistunarfulltrúi nánari upplýsingar um starfið. Félagsmálastjórinn í Kópavogi. Innanhússhönnuður (menntuð í Bandaríkjunum), óskar eftir hluta- starfi, t.d. hjá innréttingafyrirtæki. Reynsla á því sviði ásamt almennri innanhússhönnun. Tilboö sendist Mbl. fyrir 25. apríl merkt: „I — 6023“. Verslunarhúsnæði óskast til leigu í Reykjavík undir úrvals fiskbúö. Tilb. sendist afgr. Mbl. merkt: „M — 1694“. Óskum að ráða trésmiöi og laghenta menn á verkstæöi. Gluggasmiöjan, Síðumúla 20. Eskifjörður Umboösmaður óskast til að annast dreifingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið. Uppl. hjá umboðsmanni í síma 6137 og hjá afgreiðslu- manni í Reykjavík sími 83033. Mosfellshreppur — innheimtustjóri Starf innheimtustjóra Mosfellshrepps er laust til umsóknar. Viðkomandi þarf aö vera töluglöggur, hafa góöa framkomu, geta unniö sjálfstætt og hafið störf fljótlega. Bókhaldsþekking æskileg. Umsóknum ásamt uppl. um aldur, menntun og fyrri störf sendist til sveitarstjóra Mos- fellshrepps fyrir 23. apríl 1982. Sveitarstjóri Mosfellshrepps. Hafnarfjörður Starf umsjónarmanns Sundhallar Hafnar- fjaröar er laust til umsóknar. Laun sam- kvæmt kjarasamningi. Umsóknarfrestur er til 26. apríl 1982. Umsóknum sé skilaö til undirritaðs sem gefur nánari upplýsingar. íþróttafulltrúinn Hafnarfirði, sími 52610. Ritari óskast til starfa hjá innflutningsfyrirtæki í miðbænum nú þegar. Starfið felst í öllum almennum skrifstofustörfum og m.a. í enskri bréfritun. Reiprennandi kunnátta í ensku sem og leikni í vélritun skilyrði. Umsækjendur vinsamlegast gefi greinargóða lýsingu á hæfni, starfsreynslu o.s.frv. og svari Morgunblaöinu fyrir 22. apríl nk. merkt: „Framtíöarstarf — 6035“. Saumakonur Saumastofu Hagkaups vantar konur til saumastarfa. Unniö eftir bónuskerfi. Uppl. á staönum, Höföabakka 9, eöa í síma 86632 milli kl. 1—4 mánudag og þriöjudag. HAGKAUP Verkstjóri — Suðurnes Við höfum verið beðnir að útvega verkstjóra í fiskverkun fyrir einn af viðskiþtavinum okkar. Umsóknum veittar viðtökur að Hafnargötu 27 A, Keflavík, í síma 1277. rekstrartækni sf. Siðumúia 37 - Sími 85311 Hafnargötu 37 A Kefiavík. Sími 1277 — 1799. Bókhald — Uppgjör Fjárhald — Eignaumsýsla Ráöningarþjónusta Ráðningarþjónusta óskar eftir aö ráöa viðskiþtafræöing eða mann meö hliöstæöa menntun/reynslu sem bókara á bókhaldsstofu á Austurlandi. Fram-‘ tíðarstarf. Umsóknareyöublöð á skrifstofu okkar. Um- sóknir trúnaöarmál ef þess er óskaö. BÓKHALDSTÆKNI HF LAUGAVEGUR 18 — 101 REYKJAVÍK — sími 18614. RÁÐNINGARÞJÓNUSTA Úlfar Steindórsson. Gjaldkeri Óskum eftir að ráöa nú þegar stúlku til gjald- kerastarfa. Reglusemi og stundvísi áskilin. Reynsla í gjaldkerastörfum æskileg. Umsóknir með uppl. um aldur, menntun, og fyrri störf, sendist í pósthólf 555 fyrir 21. þ.m. A Globusp LAGMÚLI 5. SÍMI81555 Pökkun — Lager Óskum eftir starfsmönnum til þökkunar- og lagerstarfa sem fyrst. Góð vinnuaðstaða. Umsóknir sendist oss fyrir 22. apríl. 0S1A-0G SMJÖRSALAN SE Bitruhálsi 2 — Reykjavík — Siml 82511 Kynningarstarf Húsmæðrakennari eöa kona vön kynn- ingarstörfum óskast. Um er aö ræöa kynn- ingarstarf á framleiðslu fyrirtækisins í versl- unum einn eða tvo eftirmiðdaga í viku. Uppl. ekki gefnar í síma, einungis á skrifstofu fyrirtækisins. Verksmiðjan Vilkó, Brautarholti 26, Reykjavik. Verslunarstjóri Verslunarstjóri óskast til starfa í bifreiöa- varahlutaverslun. Framtíöarstarf. Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf óskast sendar afgreiöslu Mbl. fyrir 27. apríl merktar: „Verslunarstjóri — 6096“, og verö- ur farið með þær sem trúnaðarmál. Sölumaður Getur þú starfað sjálfstætt?! Ert þú — Á aldrinum 20—30 ára. — Með eldlegan áhuga og mikla reynslu í sölumennsku. — Með haldgóöa verslunarmenntun. — Lipur, kurteis og snjall að koma fyrir þig orði. Ef svo er, höfum við skemmtilegt starf handa þér, og góðar tekjur, ef þú selur vel. Leggðu inn nafn og helstu uppl. um fyrri störf ásamt símanúmeri inn á afgr. Morgunblaðs- I ins fyrir 24. nk. merkt: „Sölumaður — 1748“. Þér verður svarað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.