Morgunblaðið - 18.04.1982, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982
63
Eftir nokkurn tíma var eins og járntjaldiö heföi veriö dregiö umhverfis
skólahverfiö þar sem öll andstaöa var þögguö niöur.
(Sjá: BOÐ & BÖNN)
44
VERKALYÐSMALI
Milljón vinnukonur
krefjast réttar síns
Ýmsir hópar verkamanna
hafa aö undanförnu mótmælt
kjörum sínum á útifundum
víðs vegar um Ítalíu, og nú síð-
ast voru það vinnukonur og
önnur hjú. I lok marz sl. kom
stór hópur þeirra saman á
torginu Piazza dei Mercanti í
Mílanó og krafðist betri launa
og starfsskilyrða.
Þessi mótmæli koma á tím-
um er mikil fjölgun hefur orðið
í stétt hjúa á Italíu. Ástæðan
er kreppuástand það, sem ríkt
hefur í ítölsku atvinnulífi. Nú
er miklu auðveldara að verða
sér úti um húshjálp í Mílanó og
öðrum stórborgum á Italíu en
verið hefur um mjög langt
skeið.
Margar ungar konur hafa að
undanförnu fetað sama stíg og
margar kynsystur þeirra fyrr-
um, þ.e. leiðina frá Suður-
Ítalíu, þar sem fátæktin heldur
öllu í heljargreipum, og til
norðurs, þar sem kjör manna
eru almennt betri vegna iðn-
þróunar og tækni. En margar
þessara kvenna hafa ekki haft
erindi sem erfiði að undan-
förnu. Á Norður-Italíu er yfir-
leitt litla vinnu að fá fyrir þær
nema helzt vinnukonustórf.
Sumar þeirra verða að sjá
fyrir atvinnulausum eigin-
mönnum sínum og jafnvel stór-
um fjölskyldum. Aðrar senda
fé til fjölskyldna sinna í átt-
högunum. Einkum á það við
um stúlkur frá Sardiníu, en
þær eru afar fjölmennar í
vinnukonustétt á Italíu.
Talið er að ein af hverjum
fjórum konum á Ítalíu er gegn-
ir einhvers konar starfi, stundi
húshjálp fyrir aðra. Það þýðir í
raun, að ein milljón kvenna á
Ítalíu er í vist. Eftirspurn eftir
slíkum störfum hefur aukizt
mjög á undanförnum árum.
Húsbændur hafa fagnað
þessari þróun, einkum frúrnar,
sem löngum hafa kvartað yfir
því hversu erfitt hefur verið að
fá húshjálp. Hins vegar eru
hjúin ekki alltof ánægð með
þessa fjölgun í stéttinni og
telja að hún geti leitt til þess
að framboð verði meira en eft-
irspurn. Þá sé hætt við að hús-
bændur telji sig geta misboðið
hjúum sínum.
Verkalýðsfélag það sem
berst fyrir hagsmunum hjúa
hefur nú hafið baráttu í þeim
tilgangi að draga athygli al-
mennings að vandamálum
þeirra. Upphaf þessara aðgerða
var mótmælafundurinn í Míl-
anó. Þar var meðal annars
krafizt styttingar vinnudags-
ins, en hann er 10 klukkustund-
ir í stað átta í flestum öðrum
Svona sakleysislegar voru söguhetjurnar í teiknimynd Disneys: Mjall-
hvít og dvergarnir ajö. Höröustu ritskoöunarmennirnir vilja aamt fjar-
lægja þeasar aígildu sevintýraperaónur úr skólabókasöfnum.
atvinnugreinum. Ennfremur
var krafizt hækkunar á lág-
markslaunum, en þau eru nú
um 12 krónur á tímann, en
mánaðarlaun fyrir vinnukonu,
sem hefur frítt húsnæði, er um
kr. 2000.
— NORRIS WILLATT
Frúrnar eru malandi af ánægju.
ÓTRÚLEGT EN SATT
Allt á fullu við
Empire State
Þegar vælið í sírenunum var
dáið út, eltingarleikur lögregl-
unnar var um garð genginn,
manngrúinn hafði dreift sér og
greiðst hafði úr umferðaröng-
þveitinu við Empire State-
bygginguna, spurði vegfarandi
nokkur öryggisvörð hvað hefði
eiginlega verið um að vera.
Vörðurinn stundi þungan.
„Til hvers ætti ég að vera að
segja þér það,“ svaraði hann.
„Þú myndir hvort eð er ekki
trúa mér.“
Það sem gerðist, í nokkurn
veginn réttri tímaröð, var
þetta:
1. Tveir menn, sem vildu vekja
athygli á skóla, sem þeir ráku
fyrir fullorðna, tilkynna, að
þeir ætli á ákveðnum tíma að
kasta 10.000 dollurum í eins
dollara seðlum fram af 86. hæð
byggingarinnar.
2. Tveir menn aðrir velja sama
tíma til að ræna bartkaútibú í
byggingunni en eftir nokkur
átök má sjá þá á harðahlaupum
eftir 34. stræti með óeinkenn-
isklædda lögreglumenn á hæl-
unum, öryggisvörð í verslun og
heilan herskara af frétta-
mönnum og ljósmyndurum,
sem höfðu verið að bíða eftir
skólamönnunum örlátu.
3. Bankaræningjarnir eru
snúnir niður og afvopnaðir og
er langt síðan blöðin og fjöl-
miðlarnir hafa gert sams konar
atburði jafn góð sk.il.
4. Skólamennirnir, sem ekkert
vissu um uppistandið út af
bankaræningjunum, fara út úr
leigubíl í 34. stræti með fimm
gagnsæja plastpoka fulla af
peningum.
5. Nokkur misskilningur verður
með peningapokana vegna ný-
afstaðinnar tilraunar til banka-
ráns en þegar það skýrist er
mönnunum meinuð aðganga að
byggingunni og borið við al-
mannaöryggi. Þegar hér er
komið eru þeir lagðir á flótta
undan fólkinu, sem reynir að
hrifsa til sín peningana.
6. Mönnunum er komið til
hjálpar og þeim forðað undan
mannfjöldanum í lögreglubíl.
7. Skólamennirnir tilkynna, að
þeir ætli að finna aðra leið til
að losa sig við peningana.
8. Bankaræningjarnir eru
ákærðir fyrir vopnað rán.
Nú þótti fólkinu á götunni
ekki lengur eftir neinu að bíða.
Tveir menn höfðu árangurs-
laust reynt að losa sig við pen-
inga, og aðrir tveir, ekki stein-
snar frá, höfðu árangurslaust
reynt að stela peningum, og
hver hélt í sína áttina.
Að sögn lögreglunnar voru
nokkrar þúsundir manna sam-
ankomnar á horni 34. strætis
og Fimmtu traðar þegar flest
var og lögregluþjónarnir,
30—40 talsins, voru að niðurlot-
Um komnir áður en yfir lauk.
„Er þetta ekki alveg maka-
laus vitleysa," var sagt við Pet-
er Mcnulty, lögreglumann á
Midtown South-stöðinni.
„Ja, þú ættir bara að reyna
að vinna hér alla daga,“ svaraði
hann mæðulega.
— PAUL L. MONTGOMERY
Hjónin Rakel Kangaradotur og
Björgvin Árnaaon ásamt Júlfönnu
Erlendsdóttur, ekkju Ragnars
Jónssonar, í nýja diskótekinu f
Þórscafé. Ad baki þeim í hljómflutn-
ingsbúrinu eru þeir Paul Reymond
hönnuður diskóteksins, og Hans
Kragh Júlíusson í Radíóbæ, sem
annaðist uppsetningu tækjanna.
(Ljósm. Mbl. KÖE.)
Endurbætt
diskótek
í Þórscafé
DISKÓTEKIÐ í Þórscafé
hefur nú fengið á sig nýjan
svip eftir breytingar sem þar
hafa verið gerðar, en þar er
um að ræða nýtt gólf, ný
hljómflutningstæki og nýjan
Ijósaútbúnað. Þá hafa einnig
verið sett ný teppi á mest allt
húsið.
Paul Reymond frá London er
hönnuður verksins en öll tækin,
bæði Ijós og hljómflutningstæki
eru frá Project í Englandi, og hef-
ur Radíóbær annast uppsetningu
og haft umsjón með framkvæmd-
um í hinu nýja diskóteki. Paul
Reymond hefur dvalið hér á landi
að undanförnu og verið ráðgefandi
varðandi verkið og sagði hann í
samtali við Morgunblaðið að
áhersla hefði veri lögð á að skapa
sem þægilegast andrúmsloft, en
forðast þessa „grófu diskó-
stemmningu", eins og hann orðaði
það, sem oft vill verða í diskótek-
um.
I salnum ráða þrjár meginlita-
raðir og þar eru þrjú ljósagólf, en
hinn nýi ljósaútbúnaður býður
upp á ýmsa möguleika svo og
hljómflutningstækin, sem Paul
sagði að væru afar fullkomin og
svipuð þvi sem tíðkaðist á hinum
fínni skemmtistöðum í London. Þá
eru blómaskreytingar einnig áber-
andi í salnum.
Björgvin Árnason, forstjóri
Þórscafé, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að fyrirhugaðar væru
frekari breytingar á salarkynnum
hússins, einnig í efri.sal, þar sem
hljómsveit hússins leikur. Þar hef-
ur Þórskabarett verið sýndur á
sunnudagskvöldum í vetur við
góðar undirtektir og verður sýn-
ingum á kabarettnum haldið
áfram fram í júní.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMT ÞÁERÞAÐÍ
MORGE NBL AÐINU
AUGLYSINGA
SÍMINN ER:
22480