Morgunblaðið - 18.04.1982, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982
69
Sýning laugardag kl. 1—6.
Úrslit tilkynnt 1 hug-
myndasamkeppni um
skipulag í Suður-Mjódd
DAGANA 17.—19. apríl nk. verða til
sýnis á Kjarvalsstöðum tillögur, sem
bárust í hugmyndasamkeppni um
skipulag í Suður-Mjódd.
Tilgangur samkeppni þessarar var
tvíþættur, í fyrsta lagi var beðið um
hugmyndir að skipulagi Suður-
Mjóddar sem íþrótta- og útivistar-
svaeðis, en i öðru lagi var óskað eftir
tillögum að gerð mannvirkja á svæð-
inu.
í úrskurði dómnefndar kemur
fram að samkeppnin hafi leitt í
ljós, að koma megi öðru stærsta
íþrótta- og útivistarsvæði Reykja-
víkurborgar fyrir í Suður-Mjódd.
Erfitt sé hins vegar að skera úr
um hvaða skipulagstilhögun sé
best, m.a. með tilliti til staðsetn-
ingar á ÍR-svæðinu.
Veitt voru þrenn verðlaun og
tvær tillögur keyptar að auki.
Hár S. fegunö
1. verðlaun hlutu arkitektarnir
Guðni Pálsson og Dagný Helga-
dóttir.
í umsögn dómmefndar segir:
Tillagan gerir heildarskipulagi
mjög góð skil og sýnir jafnframt
frumleika og hugmyndaauðgi.
2. verðlaun hlutu arkitektarnir
Gísli Halldórsson, Halldór Guð-
mundsson, Jósef Reynis og
Bjarni Marteinsson.
í umsögn dómnefndar segir: til-
lagan gerir heildarskipulagi góð
skil. íþróttamiðstöð er leyst á
einkar raunhæfan og sannfærandi
hátt.
3. verðlaun hlutu arkitektarnir
Börkur Bergmann, Geirharður
Þorsteinsson, Hróbjartur
Hróbjartsson, Richard Briem og
Sigurður Björgúlfsson.
I umsögn dómnefndar segir:
Staðsetning mannvirkja miðsvæð-
is er snjöll og útivistarsvæði vel
unnið. Þá er hugmynd að tengingu
íþróttamiðstöðvar og knatt-
spyrnuvallar athyglisverð.
Innkeyptar tillögur voru annars
vegar eftir arkitektana Hilmar
Þór Björnsson og Finn Björgvins-
son og hins vegar eftir arkitekt-
ana Björn Kristleifsson og Þórar-
in Þórarinsson.
Dómnefnd gerði það að tillögu
sinni að höfundum þeirra fimm
tillagna, sem voru verðlaunaðar
og keyptar, verði gefinn kostur á
að taka þátt í samkeppni um nán-
ari útfærslu skipulags í Suður-
Mjódd og hönnun helstu mann-
virkja á svæðinu.
Vinningshafarnir, arkitektarnir Guðni Pálsson og Dagný Helgadóttir, taka
við verðlaunum sinum úr hendi formanns dómnefndar, Guðlaugs Gauta
Jónssonar. djtaa. MbL RAX)
ERTÞUAÐ
HUGSAUM
SUMARHÚS?
Forsíða nýja tölublaðsins af „Hár og
fegurð“.
„Hár og feg-
urð“ komið út
FJÓRÐA tölublað tímaritsins „Hár
og fegurð“ er komið út og er í blað-
inu m.a. kynnt nýja línan í hár-
greiðslu, „Iceline“-línan svokallaða,
en tímaritið gekkst nýlega fyrir sýn-
ingu þar sem hárgreiðslu- og hár-
skerameistarar kynntu þessa nýju
hártísku.
Af öðru efni í blaðinu má nefna
frásögn og myndir af heimsmeist-
aramótinu í London, þegar Sólveig
Leifsdóttir sigraði í gala-greiðslu
auk þess sem tískustraumar er-
lendis frá eru kynntir í blaðinu.
Þá er þar einnig grein eftir Sturlu
Sighvatsson sem ber heitið „Næm-
leiki mannsins" og gefin eru góð
ráð varðandi húð, hár, útlit og
fleira.
Blaðið er 32 síður, að mestu
prentað í lit. Ritstjórar eru Pétur
Melsteð og Torfi Geirmundsson.
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
Nú getum við boðið úrval glæsilegra sumarhúsa í öllum stærðum,
sem þér getið fengið á ýmsum byggingarstigum. Smíðum húsin allt
árið, þannig að húsið þitt getur verið tilbúið í vor eða fyrr. Komið og
kynnið ykkur verð og gæði húsanna að Kársnesbraut 2.
STÆRÐIR 22 m2 — 31 m2 — 37 m2 — 43 m2 — 49 m2
Enfremur kynnum við 14 fm veiðihús.
LAND UNDIR SUMARHUS
Félög og fyrirtæki ættu að athuga að við getum boðið stórt
land undir sumarhús á fallegum stað við Laugarvatn og í Grímsnesi.
Opiö í dag frá 2—5
Sumarhúsasmíði Jóns h/f.
Kársnesbraut 2. Sími 45810.