Morgunblaðið - 18.04.1982, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982
75
Sótt um þrjú
prestaköll
RUNNINN er út umsóknarfrestur
um þrjú prestaköll sem auglýst voru
laus til umsóknar:
Um Staðarprestakall í Súganda-
firði sækir séra Kristinn Ágúst
Friðfinnsson sem þar er settur
prestur, en hann vígðist þangað sl.
haust.
Um Bólstaðarhlíðarprestakall í
Húnavatnsprófastsdæmi sækir
séra Ólafur Þ. Hallgrímsson, en
hann vígðist þangað í fyrra sem
settur prestur.
Um Möðruvelli í Hörgárdal
sækir sér Pétur Þórarinsson, sem
nú þjónar Hálsprestakalli í
Fnjóskadal.
Kosningar munu fara fram i
þessum prestaköllum innan
skamms, segir í frétt frá bisk-
upsstofu.
Fyrirlestur
um samfé-
lagsvinnu
Hér á landi er stödd Lena Dom-
inelli, doktor í félagsfræði og sér-
fræðingur í samfélagsvinnu.
Lena Dominelli er kennari við
Warwich-háskóla í Englandi og
hefur haldið námskeið í samfé-
lagsvinnu við félagsvísindadeild
H.I. undanfarnar vikur.
Samfélagsvinna, eða community
work á ensku, er aðferðarfræði til
að virkja minnihlutahópa til að
bæta hag sinn og aðstæður, segir i
frétt frá Stéttarfélagi íslenskra
félagsráðgjafa.
Lena mun halda opinn fyrirlest-
ur um þetta efni þriðjudaginn 20.
apríl kl. 20.30 í Lögbergi, stofu
102.
Felaqsmálastofnun Reykjavikurlíiörgar
Vonarstræti 4 — Sími 25500
FERÐASKRIFSTOFAN
dTCdiVTIK
Eldri borgarar í Reykjavík
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
og Feröaskrifstofan Atlantik, Iðnaðar-
húsinu Hallveigarstíg 1
efna til hópferöar fyrir eldri borgara í Reykjavík
(60 ára og eldri) til Mallorka þann 11. maí til 29.
maí — 19 dagar.
Fararstjórar og hjúkrunarkona frá Félagsmála-
stofnun Reykjavíkurborgar.
Dvaliö veröur á Royal Playa de Palma, sem er
nýtt og sérlega glæsilegt íbúðarhótel á einni
bestu strönd Mallorka, um 8 km frá Palmaborg.
Gistiaöstaöa er í stúdíoum og íbúöum og fylgir
eldunaraöstaöa og kæliskápur öllum íbúöum.
Verö: kr. 9.350 meö hálfu fæöi.
Allar nánari upplýsingar veitir
Feröaskrifstofan
OTC<Y<VTM<
Iðnaðarhúsinu, Hallveigarstíg 1. Símar 28388 og 28580.