Morgunblaðið - 18.04.1982, Síða 46

Morgunblaðið - 18.04.1982, Síða 46
94 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982 Umsjón: Séra Karl Sign rbjömsson Séra Auöur Eir Vilhjálmsdóttir A U DROTTINSDEGI Veistu eitthvað um nýju Postulakirkjuna? ★ Nýja Postulakirkjan var stofnuð í Englandi árið 1863. ★ Um 4 milljónir manna tilheyra henni í heiminum. ★ Nýja Postulakirkjan hóf starf sitt á íslandi árið 1979. Nýja Postulakirkjan hefur ekki starfað lengi hér á landi. Raunar er hún ekki lögskráður söfnuður hér enn, segir prestur hennar, Lennart Hedin, en hann og kona hans, Rosalie, og fjölskylda þeirra eru brautryðjendur kirkjunnar hérlendis. Þau koma hingað frá Kanada. í Nýju Postulakirkjunni eru þrjú sakramenti, heilög skírn, heilög kvöldmáltíð og heilög innsigling. Hvað er heilög innsigling? Það er heilög athöfn, þar sem Heilagur andi er gróðursettur í þeirri sál, sem áður hefur verið hreinsuð og helguð í skírninni. Enginn getur veitt þetta sakra- menti nema raunverulegur post- uli Jesú Krists. Hann leggur hendur yfir þann, sem þiggur sakramentið, eins og gert var á dögum hinna fyrstu postula og sagt er frá í 8. kafla Postulasög- unnar, en hinir fyrstu kristnu menn meðtóku Heilagan anda fyrir bæn og handayfirlagning postulanna. En sá, sem vill öðl- ast Heilagan anda, verður fyrst að skirast í vatni. Þið leggið mikla áherslu á endurkomu Krists í boðskap ykk- ar, er það ekki? Jú, við boðum það, að eftir hjálpræðisáætlun Guðs megum við vænta hinnar fyrri upprisu Krists á okkar dögum. Jesús mun ekki birtast við fyrri upp- risuna, en þá hefst þúsund ára ríkið. Við lok þúsund ára ríkisins verður síðari upprisan, síðan verður dómsdagur og eftir það skapar Guð nýjan himin og nýja jörð. Við fyrri upprisuna verður lokið því hlutverki postulanna að innsigla sálir. Þeir, sem tilheyra Kristi við komu hans, munu búa öruggir á himnum, en miklar hörmungar munu dynja yfir jörðina og þriðjungur mannkyns farast. Hið illa fær þó ekki að ráöa ríkjum nema í hálft fjórða ár. Við höfum miklar mætur á Opinberunarbók Jóhannesar, en apókrýfuritin, sérlega bók Esdra, sem ekki eru í íslensku Biblíunni, eru líka undirstaða boðskapar okkar eins og Biblían öll. Lennart Hedin, prestur Nýju Post- ulakirkjunnar á Islandi. Segðu okkur eitthvað af safnað- arstarfi kirkjunnar. Við byggjum safnaðarstarf okkar fyrst og fremst upp á kærleika. Við teljum að það sé ólýsanlega mikilvægt fyrir alla Þetta er tákn Nýju Postulakirkj- unnar um víða veröld og er yfir altari hennar á Háaleitisbraut 58 í Reykjavík. menn að finna að einhverjum þykir vænt um þá. Allir, sem starfa í kirkjunni, starfa þar af kærleika, þeir fá engin laun greidd í peningum. Organistar, kórfólk, fólkið, sem þvær kirkj- una og aðrir, gera það allt án launa. Ég fæ heldur engin laun. Ég vinn fyrir okkur með þeirri iðn, sem ég lærði, en það er hús- gagnabólstrun. Þú manst, að Páll postuli vann líka fyrir sér með iðn. Hvar sem kirkja okkar starfar, er mikil áhersla lögð á heimsóknir, allir eru heimsóttir einu sinni í mánuði. Bæði prest- arnir og aðrir starfsmenn safn- aðarins annast þessar heimsókn- ir, en ekki síst konur þeirra. Og heimili okkar er alltaf opið, hingað er allt fólk kirkjunnar velkomið. Setur kirkjan safnaðarfólki ein- hverja ákveðna fyrirmynd til að fara eftir? Kirkjan setur ekki upp bönn og boð fyrir söfnuðinn, en samt sem áður er ýmislegt, sem við gerum ekki. Kirkjan bannar t.d. ekki áfengisdrykkju, en samt drekk ég ekki áfengi. Kirkjan bannar fólki ekki að taka þátt í stjórnmálum, samt myndi fólk okkar ekki taka þátt í þeim. En við biðjum fyrir þeim, sem stjórna þjóðfélaginu. Hlýðni er ríkur þáttur í söfnuði okkar, þótt henni sé ekki þröngvað upp á fólk. Við krefjumst heldur ekki ákveðinna fjárframlaga af söfn- uðinum en byggjum á frjálsum framlögum. Hvernig er guðsþjónustuformið hjá ykkur? Guðsþjónusturnar eru ekki langar. Við höfum kór, sem syngur í stundarfjórðung fyrir hverja guðsþjónustu. Hann syngur líka einn sálm í guðs- þjónustunni og söfnuðurinn syngur tvo eða þrjá sálma. Svo er lesið úr Ritningunni og prest- urinn prédikar. Formið er það sama alls staðar i heiminum. Ég er ekki guðfræðingur, ég undirbý ekki ræður mínar mikið, en treysti því að Heilagur andi hjálpi mér til að prédika. Ég er aðeins verkfæri Heilags anda. Kristin trú er páskatrú 1. sunnudagur eftir páska Jóh. 20, 2U—31. BoÖskapur páskanna er þungamiöja kristinnar trúar, sem kristin trú og kirkja stendur ogfellur meö. ÞaÖ er boöskapurinn um, aö Jesús, sem var krossfestur „vegna vorra synda“, svo sem Biblian haföi sagt fyrir, reis upp af dauöum á þriöja degi og lifir. Eitt elsta rit Nýja testamentsins er eflaust fyrra Korintubréf. í 15. kafla þess fœrir Páll postuli rök fyrir upprisutrú kirkjunnar. Hún byggir á þvi, aÖ Jesús hefur birst upprisinn, ekki aöeins Páli, heldur mörgum nafngreindum og ónafn- greindum einstaklingum, sem Páll tiltekur. Flestir þeirra eru enn á lifi þegar Páll skrifar bréfsitt, þannig aö upphaflegir viö- takendur og lesendur bréfsins hafa getaÖ leitaö staöfestingar á þessu eftir öörum leiöum. Fréttin um upprisu hins krossfesta byggist á traustum heimildum, studd vitn- isburöi manna, sem gátu sagt: „ Vér höfum séÖ Drottin11. Vegna þeirrar reynslu voru þeir reiöubúnir til aÖ fórna öllu, og uröu reyndar flestir aÖ liöa píslarvætti fyrir. Þetta voru fréttir, sem þoldu ekki biÖ og allir uröu aö fá aÖ heyra: Kristur gaf líf sitt svo aö viö mœttum lifa. Kristur rauf hliö heljar og lagöi dauöann aÖ velli, svo aö viö mœttum eiga lifiö i honum, lífiö eilifa. „GuÖi séu þakkir sem gefur oss sigurinn fyrir Drottin vorn Jesú Kristu. Kristin trú er páskatrú, gleöitrú. Kristin kirkja er samfélag um gleöifréttirnar dá- samlegu: Kristur er upprisinn. Já, hann er sannarlega upprisinn! Biblíulestur Vikuna 18. til 24. apríl. Sunnudagur 18. apríl Mánudagur 19. apríl Þriöjudagur 20. apríl Miövikudagur 21. apríl Fimmtudagur 22. apríl Föstudagur 23. apríl Laugardagur 24. apríl Jóh. 20, 24—31. Jóh. 21,1—14. Jóh. 21, 15—25. 1. Kor. 15, 1—20. 1. Kor. 15, 21—34. 1. Kor. 15, 35—58. 2. Kor. 5, 1—10. „Þú Jesús ert lífiö, sem dauöann fær deytt, lát dauöann úr sálunum víkja.“ Bridge Arnór Ragnarsson Bridgedeild Húnvetninga 32 einstaklingar tóku þátt í síöustu keppni vetrarins sem var þriggja kvölda einmenningur. Röð efstu para varð þessi: Hreinn Hjartarson 320 Karl Adolphsson 303 Bragi Bjarnason 292 Sigríður Ólafsdóttir 291 Halldóra Kolka 290 Föstudaginn 30. apríl verður verðlaunaafhending fyrir mót vetrarins og væntanlega tekið í spil. Mæting er kl. 20. Bridgedeild Breiðfirðinga- félagsins Þremur umferðum af fimm er lokið í hraðsveitakeppninni og er staða efstu sveita þessi: Kristín Þórðardóttir 2149 Magnús Halldórsson 2130 Óskar Þór Þráinsson 2130 Magnús Oddsson 2028 Elís R. Helgason 2022 Hans Nielsen 2007 Erla Eyjólfsdóttir 1965 Jóhann Jóhannsson 1964 Ólafur Ingimundarson 1961 Guðrún Bergsdóttir 1961 Næst verður spilað á sumar- daginn fyrsta og hefst keppni kl. 19.30. Bridgefélag Kópavogs Eins kvölds tvímennings- keppni var háð fimmtudaginn 15. apríl með þátttöku 14 para. Úrslit urðu: Sverrir Þórisson — Haukur Margeirsson 192 Jón Andrésson — Valdimar Þórðarson 185 Vilhjálmur Sigurðsson — Vilhjálmur Vilhjálmsson 184 Stefán Pálsson — Rúnar Magnússon 184 Böðvar Magnússon — Þorlákur Jónsson 173 Næsta fimmtudag (sumardag- inn fyrsta) verður ekki spilað hjá BK vegna íslandsmótsins í tvímenningi en fimmtudaginn 29. apríl hefst 3ja kvölda keppni með Butler-sniði sem verður síð- asta keppni keppnisársins. Tafl- og bridge- klúbburinn Sl. fimmtudag var spilaður tvímenningur í tveimur 14 para riðlum og urðu efstu pör þessi: Svavar Björnsson — Ragnar Magnússon 198 Auðunn Guðmundsson — Guðmundur Eiríksson 189 Aðalsteinn Jörgensen — Georg Magnússon 189 Sverrir Kristinsson — Ingvar Hauksson 187 Hrólfur Hjaltason — Þórir Sigursteinsson 178 Ragnar Óskarsson — Hannes Gunnarsson 173 Keppnin er að verða mjög spennandi. Ingólfur Böðvarsson og Sigfús Örn Árnason hafa for- ystu með 63,70% skor en Ragnar Magnússon og Svavar Björnsson eru með 63,46% skor. Næst verður spilað fimmtu- daginn 29. apríl í Domus Medica. Hvert kvöld er sérstakt keppn- iskvöld og eru allir spilarar vel- komnir meðan húsrúm leyfir. Keppnin hefst kl. 19.30.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.