Morgunblaðið - 04.05.1982, Blaðsíða 2
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1982
hausttískunni í París
Ekki er ráö nema í tíma sé tekið. Haust- og vetr-
artískan er aö koma fram hjá tískuhúsunum í Par-
ís, enda er þar komið sumar meö hlýju og
blómskrúöi og allir sestir í sumarfötunum út á
gangstéttarkaffihúsin, meöan viö hér erum ekki
búin aö kveöja veturinn. Þessar myndir höfum viö
fengiö frá tískuhúsi Ninu Ricci og sýna þær „til-
búna“ fatnaöinn, sem nota skal á næsta hausti.
Stíllinn er rómantískur, fínlegur og fullur af uppá-
tækjum. Víö flaksandi pils meö íburöarmiklum
blússum og sjölum veita mikla möguleika til að
skipta um og nota flíkurnar á víxl í mismunandi
samsetningu. Dæmi um þaö er víöa rósótta
taftpilsiö meö laxableiku taftblússunni meö
pífum og leggingum. Til hversdagsbrúks eru
þarna gráar síöbuxur og meö þeim grár ull-
arjakki meö málmskreytingu og grárri húfu.
Af utanyfirflíkum má sjá drapplita kápu með
slá og einnig léttari dragt meö þykkum ull-
arjakka utan yfir. Gjarn-
an notaðir heföbundnir
filthattar. Svart er mjög
í tísku fyrir síödegis- og
kvöldboö, oft þá buxur
og víðar blússur eöa
slár, eins og sést á einni
myndinni, þar sem
blússan er fóöruö meö
„lamé“-efni. Fyrir enn
hátíðlegri tækifæri
mundi þröngt flauels-
pils meö blúndu-toppi
yfir vera samkvæmt
tískunni. Hann er þá
fleginn, aöeins meö
mjóum hlýrum og um
hálsinn blúnduband.
Þannig eru fyrstu sýn-
ishornin af tískunni
næsta haust og vetur.
Þegar hugsað fyrir
Sigrúh Lárusdóttir Kári Lárusson
Gunnar Sveinsson
D-listinn í Höfðahreppi
Kjarvalsstaðir:
Trúarleg myndlistar-
sýning á páskum ’83
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis-
flokksins í Möfóahreppi vió kosn-
ingarnar, sem fram eiga að fara 22.
maí:
1. Adoif Jakob Berndsen, um-
boðsmaður, Bankastræti 9, Höfða-
kaupstað. 2. Gylfi Sigurðsson,
stýrimaður, Bogabraut 12, Höfða-
kaupstað. 3. Gunnar Sveinsson,
skipstjóri, Bogabraut 17, Höfða-
kaupstað. 4. Sigrún Lárusdóttir,
húsmóðir, Breiðabliki, Höfðakaup-
stað. 5. Kári Lárusson, trésmíða-
meistari, Hólabraut 18, Höfða-
kaupstað. 6. Árni Björn Ingvars-
son, vélstjóri, Hólabraut 22, Höfða-
kaupstað. 7. Páll Þorfinnsson, raf-
virkjameistari, Hólabraut 6,
Höfðakaupstað. 8. Jón ívarsson,
skipstjóri, Bogabraut 14, Höfða-
kaupstað. 9. Hjalti Skaftason, bif-
reiðastjóri, Fellsbraut 3, Höfða-
kaupstað. 10. Haraldur Árnason,
verkstjóri, Ægisgrund 5, Höfða-
kaupstað.
Kirkjulistarncfnd hefur sent út
boðsbréf til íslenskra listamanna
um þátttöku í sýningu kirkjulegr-
ar og trúarlegrar myndlistar á
Kjarvalsstöðum 19. mars til 10.
apríl á næsta ári og mun sýningin
Athugasemd við
grein um
Meyjaskemmuna
í VIÐTALSGREIN um Meyja
skemmuna sem Þjóðleikhúsið sýnir
um þessar mundir er birtist á fóstu-
dag var ranghermt að verkið hefði
aðeins verið uppfært tvisvar hér á
landi, í Iðnó 1934 og 1939.
Meyjaskemman var einnig upp-
færð á ísafirði 1954 og stóð Sigrún
Magnúsdóttir fyrir sýningunum,
Leikfélag Akureyrar sýndi verkið
1954 og var Ágúst Kvaran þá leik-
stjóri. Loks setti Nanna Egils
Björnsson Meyjaskemmuna á svið
með Leikfélagi Vestmannaeyja ár-
ið 1972 og fór sú sýning til Fær-
eyja. Uppfærsla Þjóðleikhússins er
þannig sú sjötta hér á landi.
taka yfir dymbilviku og páska.
Undirbúningur þessarar sýningar
er fyrsta verkefni áðurgreindrar
nefndar, en í henni sitja dr. Gunn-
ar Kristjánsson, Björn Th.
Björnsson listfræðingur og Jó-
hannes Kjarval arkitekt.
1 fréttabréfi biskupsstofu er
greint frá sýningu þessari, en
meginstofn hennar eru innsend
og ný verk íslenskra listamanna.
Verður þar söguleg deild með
eldri kirkjulistarverkum, deild
er sýnir helstu trúarleg tákn
myndlistar, skyggnisýningar
verða um íslenskar kirkjur og
búnað þeirra og um erlenda
kirkjulega samtímalist.
Kirkjulistarnefndin skal ann-
ars vegar annast ráðgjafarþjón-
ustu um búnað og gerð kirkna
og hins vegar á hún að auðvelda
listamönnum að koma fram með
verk sín á sviði kirkjulegrar list-
ar og vekja söfnuði til vitundar
um gildi frumlegra og vandaðra
myndverka í kirkjum, segir í
fréttabréfinu.
Gunnlaugur Björnsson
Grænmetisverzlun
ríkisins:
Gunnlaugur
Björnsson
forstjóri
Framleiðsluráð landbúnaðarins
samþykkti á fundi á fimmtudag, að
ráða Gunnlaug Björnsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóra búvörudeildar
Sambandsins, sem forstjóra Græn-
metisverzlunar landbúnaðarins.
Á fundi Framleiðsluráðs voru
greidd atkvæði um umsækjendur,
en þeir voru 13 að tölu. Ingi
Tryggvason, formaður Stéttarsam-
bands bænda, sagði, að úrslit at-
kvæðagreiðslunnar hefðu verið
mjög skýr.