Morgunblaðið - 04.05.1982, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.05.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ1982 53 Vildi halda alþjóðlegt mót unglinga hér Rætt við Jim Huzzey æsku- lýðsleiðtoga aðventista JIM HUZZEY er æskulýðsleiðtogi aöventista í Norður-Evrópu og hefur dvalið hér á landi i nokkurn tíma. Hann hefur ferðast um landið og haldið fundi með ungum aðventist- um í Vestmannaeyjum, Keflavík, Hlíðardalsskóla og í Reykjavík. Hann hefur verið að kynna sér æskulýðsstarf aðventista hér á landi. Huzzey hefur starfað sem æskulýðs- leiðtogi aðventista í Norður- og Suður-Englandi. Hann hefur þrisvar áður komið til Islands, en þegar hann hverfur héðan, Iiggur leið hans til Pól- lands og Finnlands og seinna til Svíþjóðar. Blm. Morgunblaðsins hitti Huzzey að máli skömmu áður en hann fór af landi brott og innti hann í fyrstu eftir því hvernig honum hafi litist á dvöl sína hér og unga fólkið, sem hann hefur hitt á ferðalagi sínu. „Mér hefur litist mjög vel á mig hér og ég hef hitt mikið af ungu og hressu, duglegu fólki, fullu af fjöri með stórar hugmyndir um hvað það ætlar sér að verða þegar það verður fullorðið. Kynni mín af ís- lendingum eru mjög góð. Margir af íslandi hafa farið til útlanda og starfað á vegum Aðventkirkjunn- ar. Ég, sem æskulýðsleiðtogi að- ventista í Norður-Evrópu, verð að ferðast mikið, því ég vil vera í sambandi við unga fólkið sjálfur. Ég hefði mikinn áhuga á að halda hér á íslandi alþjóðlegt æsku- lýðsmót aðventista. Fyrir þremur árum var ég hér með 35 manna hóp frá Englandi og við ferðuð- umst um landið og kynntumst mörgu fólki, og ég veit, að margir úr þessum hópi hafa mikinn áhuga á að koma hér aftur. Eins Jim Huzzey: „Kynni min af íslend- ingum eru mjög góð.“ hef ég hitt ungt fólk í Noregi og víðar, sem hefur mikinn áhuga á að koma hingað til lands. Það get- ur því vel verið, að það yrði af þessu móti einhvern tíma,“ sagði Jim Huzzey í lokin. Dansað fyrir aldraða Félag aldraðra í Hafnarfirði heldur skemmtisamkomur á hálfsmánaðar fresti, þar sem ýmis félagasamtök sjá um skemmtiatriðin. Á fimmtudaginn siðasta var ein slik samkoma og sá Kiwanisklúbburinn Eldborg um skemmtiatriðin. Meðal skemmtiatriða í þetta sinnið voru stúlkur úr Dansskóla Hermanns Ragnars, sem dönsuðu fyrir gesti og raargt annað var til gamans gert. Samkoman var haldin i félagsheimili Hafnrirðinga, sem er við iþróttahúsið þeirra og hlotið hefur nýverið nafnið Fjarðarsel. Morgunblaðið KAX Gaf Blindrafé- laginu af- rakstur ævi- starfs síns ÞANN 16. mars 1978 andaðist frú Guðrún Finnsdóttir, fyrrum formað- ur ASB, félags afgreiðslustúlkna í brauð- og mjólkurbúðum. Guðrún var fædd 23. apríl 1928 og hefði þvi orðið 90 ára á þessu ári. Guðrún bar hag blindra mjög fyrir brjósti og er hún lést að loknum löngum ævidegi, ánafnaði hún Blindrafélaginu íbúð sína að Stórholti 27 í Reykjavík. Frú Guðrún Finnsdóttir Gítartónleik- ar á Kjarvals- stöðum Gítarnemendur á efri stig- um úr Tónskóla Sigursveins og Tónlistarskólanum í Reykja- vík halda tónleika í kvöld, þriðjudag 4. maí, á Kjarvals- stöðum og hefjast þeir klukk- an 20.30. Á efnisskránni eru m.a. verk eftir Albeniz, Bach, Barrios og Sor. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Fyrir malarvegi Nú eru fyrirliggjandi hjá hjólbarðasölum um land allt Bridgestone diagonal (ekki radial) hjólbarðar meó eöa án hvlts hrings. 25 ára reynsla Bridgestone á íslandi sannar öryggi og endingu. Gerið samanburð á verói og gæðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.