Morgunblaðið - 04.05.1982, Page 18

Morgunblaðið - 04.05.1982, Page 18
58 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1982 Friðfinnur Kristins- son — Minningarorð Fæddur 27. október 1926 Dáinn 26. apríl 1982 Hverfleiki hins mannlega í ver- öldinni er aldrei jafn bitur, og þegar missir góðs vinar og félaga ber að, án undirbúnings og fyrir- boða. Þá setur að huga manns trega og sorg, á stundum svo harða og feiknlega að vitleg hvörf eru þar lítt til friðunar. Svo varð mér, þegar ég frétti lát frænda míns og vinar, Friðfinns Krist- inssonar. Hann lézt 26. apríl síð- astliðinn. Friðfinnur Kristinsson var fæddur í Reykjavík 27. október 1926. Foreldrar hans voru hjónin María Jónsdóttir frá Seljatungu í Flóa og Kristinn Ágúst Frið- finnsson frá Skógsnesi í sömu sveit. Þau voru systkinabörn. Ættir þeirra eru árneskar og rangæskar, en iengra fram má rekja þær til þjóðkunnra manna. Friðfinnur Þorláksson, afi Frið- finns, drukknaði við Loftsstaða- sand ásamt þremur skipsfélögum sínum. Friðfinnur Kristinsson var snemma góður námsmaður, þegar hann tók fullnaðarpróf var hann meðal hæstu nemanda Miðbæj- arskólans í Reykjavík. Hugur hans stóð mjög til mennta, en for- eldrar hans höfðu ekki aðstæður til að kosta hann til náms. Hann stundaði því verkamannavinnu fyrst í stað, og vann við járnalagn- ingar í byggingar í Reykjavík ásamt föður sínum. Brátt kom í ljós, að hann hafði óvenjulega hæfileika í reikningi og nam á skömmum tíma aðalund- irstöðu burðarþolsfræði við bind- ingu járna í loft. Vakti þetta at- hygii verkfræðinga og fengu þeir hann á stundum til að leysa verk- efni á þessu sviði, þegar annasamt var. Árið 1941 hóf hann nám í Hér- aðsskólanum á Laugarvatni og lauk þar prófi vorið 1943. Haustið 1945 hóf hann nám í Samvinnu- skólanum og lauk þar verslun- arprófi vorið J945. Þá hóf hann vinnu hjá Almenna byggingarfé- laginu norður á Siglufirði við skrifstofustörf og vann þar til árs- ins 1946, en varð þá gjaldkeri hjá fyrirtækinu og gegndi því til árs- ins 1955, en varð þá framkvæmda- stjóri Öxuls hf. Hann varð síðar framkvæmdastjóri fleiri fyrir- tækja. En síðustu árin vann hann mest að bókhaldi heima, sökum heilsubrests, en jafnframt annað- ist hann samningsgerð og ýmiss konar launaútreikninga fyrir verkalýðshreyfinguna. Árið 1952, 20. júní, kvæntist Friðfinnur Ósk Sópusdóttur frá Drangsnesi. Sonur þeirra er séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson, prestur í Staðarprestakalli í Súg- andafirði, kvæntur Önnu Margréti Guðmundsdóttur. Þau eiga tvö börn. Friðfinnur var mjög vel að sér um vélar og annaðist um skeið uppbyggingu varahlutabyrgða í vélar hjá Almenna byggingarfé- laginu. I sambandi við það fór hann til Bandaríkjanna til náms og kynningar. Starf þetta var vandasamt og reyndi mjög á hæfi- leika hans, jafnt í málakunnáttu og allskonar útreikningum. Hann var í miklu áliti hjá húsbændum sínum, Gústafi E. Pálssyni og Árna Snævari, verkfræðingum. Friðfinnur tók miklu ástfóstri við marga ættmenn, kunningja og sveitunga konu sinnar. Hann hafði sérstakt yndi af því að kynn- ast lífsbaráttu, hugsunarhætti og venjum fólksins norður á Strönd- um. Hugur hans var fanginn af viðfangsefnum, sem voru honum ný og áður óþekkt á fjörrum ströndum Dumbshafsins. Þar var heimur ævintýra og töfra, er veittu nýjan skilning á lífinu, fjöl- breytni þess og viðhorfum, en langtum fremur hvíld frá önnum hins daglega. Friðfinnur var sérstaklega trygglyndur og góður félagi. Hann var hjálparhella vanmegna og undirokaðra, veitti slíkum oft að- stoð og hálp. Ævi hans einkennd- ist af góðvild og greiðasemi. Þeim sem unnu vináttu hans varð greið- ur aðgangur að hjálp hans og fyrirgreiðslu. Þar var ánægja hans, full í raun og festu góðs drengs. Lífið varð honum nautn af feginleik samferðamannanna, þrátt fyrir veikindi og erfiðleika siðustu áranna. Við leiðarlok vil ég þakka Frið- finni frænda mínum fyrir margar ánægjustundir er við áttum sam- an, jafnt við leik og starf. Gleði hans var sönn á góðri stund, ljúf- mennska hans og drengskapur ómetanlegur. Það er gott að hafa átt frændsemi hans og vináttu. Það hefur breytt gráum hvers- dagsleika í gleði. Eg samhryggist konu hans, syni, tengdadóttur og barnabörn- um. Minningin um hann merlar hið komandi og lýsir fram á veg- inn. Jón Gislason Síminn hringdi snemma morg- uns 26. apríl, systir mín var í sím- anum og sagði, „ég þarf að segja þér sorgarfréttir, hann Friðfinnur er dáinn". Þrátt fyrir sjúkdómana, sem hann mátti líða fyrir, datt engum í hug að hann færi svo fljótt í hinstu förina. Mér er ljúft að minnast Frið- finns með nokkrum kveðjuorðum, svo margt á ég og börnin mín hon- um að þakka. Eg kynntist Friðfinni fyrst árið 1952, er hann kvæntist systur minni Ósk Sóphusdóttur. Kynntist ég einnig foreldrum hans, Maríu Jónsdóttur og Kristni Friðfinns- syni og sömuleiðis systrum hans tveimur, Jónu og Kristínu, elsku- legu fólki. Foreldrar hans eru dán- ir, en systurnar kveðja hjartkær- an bróður. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu þau systir mín og Friðfinnur á Mímisvegi 2. Þangað kom ég oft og var tímunum saman. Það var notalegt fyrir mig, ungling utan af landi, að koma á heimili systur minnar. Hún átti svo góðan mann, kannski gekk maður á lagið þess vegna. Friðfinnur og Ósk eignuð- ust einn son, sem ber nafn afa síns, Kristins Ágústs Friðfinns- sonar. Kristinn er giftur Önnu Margréti Guðmundsdóttur, hjúkr- unarkonu, og eiga þau tvö bðrn, Friðfinn Frey og Melkorku Mjöll. Síðastliðið haust vígðist Kristinn prestur til Suðureyrarprestakalls. Þangað fór Friðfinnur í haust að heimsækja fjölskylduna, og þar átti hann nafna sem hann talaði oft um. Barnabörnin tvö, Friðfinn- ur Freyr og Melkorka Mjöll, voru eins og sólargeislar í lífi hans. Eg minnist Friðfinns sem trausts og hjálplegs manns, sem óhætt var að leita ráða hjá. Ég fann að hann var maður sem hafði réttláta yfirsýn yfir þau mál sem um var fjalíað hverju sinni og óhætt að slá því föstu hver svo sem niðurstaðan varð. Sú niðurstaða sem Friðfinnur komst að var alltaf tekin til greina, enda leituðu fjölmargir álits og ráða hjá honum. Hann brást aldrei trausti fólks. Atvinnu sína varð hann að stunda heima hjá sér, í Álftamýri 55, seinni árin vegna veikinda sinna. Friðfinnur sat alla daga fram á kvöld og oft um helgar við bókhald, þar sem hans fádæma skarpskyggni og hugarreikningssnilli kom sér vel. Nú þegar ég kem á heimili syst- ur minnar og Friðfinns og sé stól- inn hans auðan, er erfitt að sann- færast um það að við eigum ekki eftir að sjá hann sitja í stólnum við skrifborðið. Hann hefur lagt upp í ferðina löngu. Ég minnist þess þegar ég í vandræðum mínum fyrir mörgum árum, með lítil börn, var húsnæð- islaus. Þá stóð hús Friðfinns mér opið og ég hafði oftar en einu sinni þurft á hans hjálpsemi og um- burðarlyndi að halda. Hann var einstaklega góður maður, sem okkur öllum þótti vænt um. Hann átti sinn þátt í því, að ég ákvað að sækja um íbúð hjá Framkvæmdanefndinni 1967 þeg- ar þær voru auglýstar til umsókn- ar. Friðfinnur lagði dæmið fyrir mig. Utkoman var örugg, ég sótti um íbúð. Á heimili hans var ég aftur þar til ég gat flutt í nýju íbúðina sem mér var úthlutað. Friðfinnur bar einstaka umhyggju fyrir mér og börnum mínum. Dóttir mín minnist með þakklæti ferðanna, sem þau fóru saman í bæinn árlega, nokkrum dögum fyrir jól. Synir mínir sakna hans mjög, þeim þótti svo vænt um hann. Ég minnist þess, er ég 1968 flutti í nýja íbúð og Friðfinnur og vinur hans, Grétar, hjálpuðu mér við flutningana. Já, það var sigur- gleði að vera komin í eigin íbúð. Ég þakka Friðfinni alla hans góð- vild og hjálpsemi. Sama er systrum mínum og þeirra fjöldskyldum efst í huga er við kveðjum hann. Á nokkurra ára fresti fór hann norður til æsku- stöðva Óskar að Drangsnesi. Það var ætíð tilhlökkunarefni fyrir tengdaforeldra hans þegar von var á Friðfinni. Hjá þeim hvíldist Friðfinnur og þau nutu þess að eiga góðan tengdason sem þau báru virðingu fyrir. Þau syrgja hann sárt. Á fyrstu ferðunum norður kynntist Friðfinnur mörgum á Drangsnesi. Fólk þar gerði sér far um að kynnast honum og einnig fólk í næstu sveitum. Þarna var á ferðinni maður, sem það vildi kynnast og þekkja, enda hefur haldist vinsemd við þetta fólk alla tíð og það notið hans réttsýni og góðvildar þegar það hefur leitað til hans. „Allt eins og hlómstriA eina upp vex á sléttri grund fagurt meó frjóvgun hreina fyrnt um dags morgunstund, á snöggu augabragdi af skorió veróur fljótt, lit og blöó nióur lagói, líf mannlegt endar skjótt.“ (H.P.) Við þökkum Friðfinni árin, sem við áttum hann að. Eftirlifandi syrgjendum biðjum við Guðs biessunar. Laufey Sóphusdóttir og börn. Ég ætla hér að minnast ástkærs tengdaföður, Friðfinns Kristins- sonar. Ég mun ekki leitast við að rekja ættir hans, heldur mun ég láta öðrum það eftir. Hann kvæntist Ósk Sóphusdótt- ur sjúkraliða árið 1952. Ósk er mektarkona og dugleg, góð móðir og frábær amma. Ósk og Friðfinnur áttu einn son, Kristin Ágúst. Hann er prestur á Suðureyri við Súgandafjörð. Þegar ég fyrst kynntist Frið- finni tengdaföður mínum, kom hann mér fyrir sjónir sem strang- ur, djúpt þenkjandi, íhugull, róleg- ur og prúður maður. Eftir því sem árin liðu komst ég að raun um, að bak við strangleika og festu bjó viðkvæm sál og elsku- legur maður. Hann var mikill mannkostamaður. Hann var sér- stæður persónuleiki, sem naut mikillar virðingar, bæði eiginkonu sinnar og sonar og allra sem.hon- um kynntust. Hann var maður víðsýnn, rök- fastur og tók aldrei ákvörðun, nema að vel athuguðu máli. Til hans leituðu margir ráða og lausna á vandamálum. Leitaðist hann við að ná sem farsælastri lausn á því máli sem þá lá á skrifstofu hans. Eftir að hafa kynnt sér allar hliðar málsins, tók hann ákvörðun og þá ávallt með hag skjólstæðings síns fyrir brjósti og sem ætíð var byggð á sterkum rökum og sanngirni. Friðfinnur var afkastamikill og duglegur maður. Hann virtist allt- af hafa tíma fyrir alla og alltaf gaf hann sér tíma til að hlusta. Friðfinnur var mikill bókamað- ur enda átti hann ágætt bókasafn. Hann var vel menntaður maður í þess orðs fyllstu merkingu. Hann útskrifaðist sem af- bragðsnemandi frá Samvinnuskól- anum árið ’45. Stuttu eftir að hann útskrifaðist úr Samvinnu- skólanum, var hann fenginn til að taka að sér ábyrgðarmikið starf. Hann var fenginn til að gegna störfum gjaldkera hjá Almenna byggingarfélaginu. Þetta þótti einstakt, enda var hér á ferð maður með einstaka kunnáttu í bókhaldi og þeim fræð- um öðrum sem á þurfti að halda við þetta ábyrgðarmikla starf. Seinna á starfsferli sínum gerð- ist hann framkvæmdastjóri Öxuls hf. Friðfinnur gekk ekki heill til skógar seinustu æviár sín. Hann þjáðist af sykursýki og afleiðing- um hennar. Hann var einstaklega vel upplýstur um sjúkdóm sinn, því er hann veiktist aðeins 36 ára gamall, var einstakt hvernig hann brást við. Hann fór á stúfana til að kynna sér málin og viðaði að sér bókum læknisfræðilegs eðlis og kynnti sér sjúkdóminn gaum- gæfilega. Annað mál er svo hvort hann fór eftir því. Hann bar ekki tilfinningar sín- ar auðveldlega á torg. Öft var hann mikið veikur en aldrei kvart- aði hann og aldrei virtist hann daufur eða bitur, en sú tilfinning grípur oft fólk sem þjáist af lang- varandi sjúkdómum. Kannski var oft ástæðan sú, að hann hafði svo margt annað að hugsa um en sjálfan sig, hann hugsaði fyrst um aðra alla tíð. Seinustu æviárin vann hann heima og tók að sér bókhald fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Átti hann þar marga fasta og góða viðskiptavini. Þó fjölskyldur okkar hafi ætíð staöið við hliðina á okkur Kristni, börnunum okkar Friðfinni Frey og Melkorku Mjöll, þá var það þó ætíð Friðfinnur, pabbi, tengda- pabbi og afi, sem við lögðum allt okkar traust á. í mínum augum var það ekkert sem hann tengdapabbi gat ekki. Hann jafnvel tók að sér að gæta barnanna okkar, þegar svo bar undir. Hann var ætíð góður og mikill afi. Öll höfum við mist mikið, því góður og hjartahlýr maður er fall- inn í valinn. Eftir að við fluttum til Suður- eyrar við Súgandafjörð, kom hann og lagði hönd á plóginn með okkur. Hann hjálpaði okkur að koma okkur fyrir, þó kraftar hans færu dvinandi lagði hann á sig ómælda vinnu frá morgni til kvölds. Ég þakka mínum ástkæra tengdaföður samfylgdina, þó stutt væri. Hún verður mér ávallt minnisstæð og ég hugsa til hans með þakklæti fyrir allt og allt. Guð blessi minningu Friðfinns Kristinssonar. Minningin um hann mun lifa í hjörtum okkar þar til við hittumst á ný. Ég bið góðan Guð að styrkja Ósk, tengdamóður mína, í hennar mikla harmi. Tengdadóttir og harnahörn Þar sem góðir menn fara eru Guðsvegir. Einn í þeim hópi var Friðfinnur Kristinsson, Álftamýri 55 hér í borg. Hann gekk á vit feðra sinna þann 26. þ.m. aðeins 55 ára að aldri á jafn hljóðlegan hátt og lífs- ganga hans hafði verið. Ég mun ekki telja upp ættstofna Friðfinns heitins, þótt þeir séu mér að nokkru kunnir, það mun verða gert af öðrum mér færari. Þó gott sé að eiga góðan stofn að baki, er hitt þó mest um vert hver maðurinn var sjálfur. Friðfinnur var vel menntaður. Var hann útskrifaður úr Laugar- vatnsskóla og síðar Samvinnu- skólanum með hæztu einkunnir, þótt stærðfræðin risi þar hæzt, því talan 10 var hans metnaður í þeirri grein alla hans skólatíð, og fór hann létt með það. Það var á allra vitorði er þekktu hann hve talnafræðin var honum létt og eðlislæg. Það voru margir, sem leituðu aðstoðar Friðfinns heitins með sín einkamál, og tók hann á móti með sinni alkunnu ljúfmennsku sem vinir væru, og í hans höndum leys- tust allra mál á fljótan og einfal- dan hátt, svo auðvelt átti hann með að sjá hvar skóinn kreppti að. Bókhaldsstörf voru hans aðalstörf, og var það sama hvort hann vann hjá fyrirtækjum eða fyrir einstaklinga, öll sín störf leysti hann af hendi af sinni al- kunnu samvizkusemi. Þótt Friðfinnur sæti ekki á stóli stjórnarherra eða þeirra, sem ráða gerð þjóðfélagsmyndarinnar, var oft til hans leitað frá þeim aðiljum, því þeir vissu hve glögga yfirsýn hann hafði á gang þjóð- mála og reyndust ráð hans hald- góð og rökföst. Friðfinnur heitinn lifði þá tíma að sjá þjóð sína hefjast upp úr örbyrgð og allsleysi til velsældar og lífsgæða, þótt honum finndist í seinni tíð syrta í álinn, og þessi lífsmynd ásamt góðri menntun gaf honum haldgóða yfirsýn yfir framgang mála, því sjálfsmenn- tun og lestur fræðandi bóka settu hann á bekk með þeim sem bezt eru menntaðir, svo vel nýttist ho- num háskóli lífsins. Ég er einn af þeim, sem eig- naðist vináttu Friðfinns heitins til margra ára og bar þar aldrei skugga á, og er ég forsjóninni þakklátur yfir að hafa fengið að njóta hennar og alls þess sem ég lærði af honum á okkar mörgu samræðufundum. Friðfinnur hei- tinn átti lengi við mikla vanheilsu að stríða, en hann bar það allt sem sönn hetja, enda naut hann traustrar umhyggju sinnar ágætu konu, Óskar Sóphusdóttur, sem bjó honum fallegt og friðsælt hei- mili að Álftamýri 55, og var ánægjulegt að njóta gestrisni þeirra hjóna. Friðfinnur lifði það að sjá ein- kason sinn, séra Kristinn Ágúst ljúka námi og helga sér göfugt lífsstarf. Hann dáði tengdadóttur sína, Önnu Margréti Guðmunds- dóttur, og gleðiblikið sem maður sá í augum hans, þegar hann leit barnabörnin sín, sýndi að þar fann hann sína lífsfyllingu. Dauðinn spyr hvorki um aldur eða atgerfi. Hann kemur óvænt og tekur sitt, þótt okkur mannanna börnum finnist kallið oft koma of fljótt. Ég sendi fjölskyldu Friðfinns mínar innilegustu samúðarkveðj- ur í þeirra miklu sorg. Ég fylgi honum í huganum yfir landamæ- rin og veit, að þar situr hann á friðarstóli. Guð geymi Friðfinn um alla eilifð. Vinur Birting afmœlis- og minningar- greina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sondi- bréfsformi. Þess skal einnig get- ið, af marggefnu tilefni, að frum- ort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunbiaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.