Morgunblaðið - 22.05.1982, Blaðsíða 2
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MAÍ1982
Fundur frambjóðenda með íbúasamtökum Vesturbæjar og Þingholta:
Alþýðubandalagið á móti því að
leysa bílastæðamál Grjótaþorps
— segir Davíð Oddsson
„ALÞÝÐUBANDALAGIÐ er á
móti því að leysa bílastæða-
vandamál Grjótaþorpsins, en
sú afstaða kemur fram í því að
alþýðubandalagsmenn eru á
móti byggingu bílageymslu-
húss sem leysa myndi mörg
bílastæði í Kvosinni af hólmi,"
sagði Davíð Oddsson á fundi
sem íbúasamtök Vesturbæjar
og íbúasamtök Þingholta geng-
ust fyrir á Hótel Borg sl.
þriðjudagskvöld.
Á fandinum voru fulltrúar
framboðslistanna við borgar-
stjórnarkosningarnar í Reykja-
vík og svöruðu þeir fyrirspurn-
um frá fundarmönnum. Spurn-
ingarnar snerust einkum um
málefni þessara bæjarhluta.
Einn fundarmanna, Flosi
Ólafsson leikari, spurði hvort
ekki væri hægt að reisa byggð í
Vatnsmýrinni og fjarlægja
Reykjavíkurflugvöll. Ennfremur
gagnrýndi hann þau skipulags-
áform að vilja færa byggðina
upp til heiða og sagði að fremur
ætti að byggja á láglendi. Sagði
hann strandsvæðin við Grafar-
vog fýsilegri byggingarkost en
Rauðavatnssvæðið.
Albert Guðmundsson sagði í
svari sínu við spurningu Flosa,
að flugvallarmálið væri ekki
auðvelt viðfangs. Rannsóknir
hefðu víða farið fram og hugs-
anleg flugvallarstæði rannsökuð
og eini staðurinn sem fullnægði
kröfum flugmálayfirvalda væri
Keflavíkurflugvöllur. Sagði Al-
bert að landsbyggðin myndi
aldrei samþykkja það á Alþingi
að leggja niður Reykjavíkur-
flugvöll og nota Keflavíkurflug-
völl í innanlandsflug.
Á fundinum lýsti Albert furðu
sinni á málflutningi Alþýðu-
bandalagsins, sem léti sem svo
að sjálfstæðismenn hefðu komið
í veg fyrir að þeirra mál hlytu
brautargengi í borgarstjórn og
því þyrfti Alþýðubandalagið að
endurflytja nú kosningaloforðin
frá 1978. Benti Albert á að
Sjálfstæðisflokkurinn hefði ver-
ið í minnihluta þetta kjörtímabil
og ekki í hans valdi að tefja mál
fyrir Alþýðubandalaginu. Al-
þýðubandalagið hefði verið í
meirihluta og haft 4 ár til að
framkvæma stefnu sina og það
væri út í bláinn að ásaka sjálf-
stæðismenn fyrir að hafa tafið
málin.
Davíð Oddsson og Albert Guð-
mundsson á fundinum.
LjÓNin. Mbl. Krwtján.
Fatlaðir andvígir hugmyndum
um göngugötu á Laugavegi
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra, efndi til fundar með frambjóðendum allra lista í Reykjavík á þriðju-
dagskvöldið. Myndin hér að ofan er frá fundinum. Þar kom fram mikil reiði yfir þeim hugmynd-
um Borgarskipulags, sera nýlega voru kynntar, að gera Laugaveginn að göngugötu. Sögðu margir
fundarmanna, að með slíkri ráðstöfun yrði fötluðum gert afar erfitt fyrir. (Ljónm. Mbi. köe>
Neskirkjæ
Basar og kaffisala í
Safnaðarheimilinu
( DAG, kosningadaginn, 22. maí,
verður Kvenfélag Neskirkju með
basar og kaffisölu í safnaðarheimili
kirkjunnar. Hafa konurnar ákveðið,
að allan ágóða skuli nota til þess að
gleðja aldraða og stytta þeim stund-
irnar á „samverustundunum" í
kirkjunni.
Ekkert er göfugra en það að
vilja efla og treysta kristilegt
starf, rækta góða mannkosti,
skapa sanna gleði og fegurra
mannlíf en það er einmitt aðal-
markmið Kvenfélagsins. Gleðitil-
finningin er afar margþætt og
breytileg. Við getum ekki gert
okkur upp sanna gleði frekar en
við getum gert okkur upp aðrar
tilfinningar. Erfitt er að skil-
greina gleði, en öll vitum við að til
þess að verða hennar aðnjótandi
þurfa vissar aðstæður að vera
fyrir hendi og þær er hægt að
skapa. í Filippíbréfinu segir Páll
postuli: „Verið ávallt glaðir vegna
samfélagsins við Drottin; ég segi
aftur: verið glaðir.“ Andstætt
gleðiuppsprettu heimsins, sem
þornar upp á augnabliki, eigum
við í Jesú Kristi eilífa ótæmandi
uppsprettu til gleði, náð Drottins
og nýjan kraft fyrir sérhvern dag.
Eins og líf Jesú var í því fólgið að
gefa sjálfan sig fyrir okkur, þann-
ig er hamingjusamt og gleðiríkt
trúarlíf í því fólgið að gera aðra
glaða, og i þvi að leita ekki þess
besta fyrir sjálfan sig heldur þess
besta fyrir alla aðra. Sýnum í
verki að við viljum vinna að heill
náungans og skapa gleði með því
að fjölmenna í safnaðarheimilið á
laugardaginn kl. 3 til kaupa á góð-
um basarmunum. Víst er það að
enginn verður svikinn á þeim veit-
ingum, sem á boðstólum verða.
Konunum sem að þessu standa
þakka ég af heilum hug og hjarta
og óska þeim svo og öllum öðrum
blessunar Guðs.
Frank M. Halldórsson.
Hvar á að kjósa?
í hvaða kjördeild?
Sjálfstæðisflokkurinn gefur Reykvíkingum upplýsingar
um kjörstaði og kjördeildir í síma 82900 (5 línur)