Morgunblaðið - 22.05.1982, Page 6
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MAÍ1982
Ekki má lengur
við svo búið una
eftir Huldu
Valtýsdóttur
Sjálfstaeði.sflokkurinn hefur
jafnan haft velferð fjölskyldunnar
efst á stefnuskrá sinni og bent á
mikilvægi þess að treysta undir-
stöðu þessarar grunneiningar þjóð-
félagsins.
í umróti síðustu ára hefur staða
og hlutverk fjölskyldunnar breyst,
og hin hefðbundnu hlutverkaskipti
raskast. Heimilið verður þó alltaf
mikilvsgasti uppeldisstaðurinn og
traust staða þess tryggir best
þroskavænleg uppvaxtarskilyrði
fyrir börn og unglinga.
í stefnuskrá Sjálfstæðis-
flokksins fyrir komandi borgar-
stjórnarkosningar segir m.a. „að
vandamál barna og unglinga, sem
þarfnast á þroskabraut sinni ástar
og öryggis, hafi aukist að mun, en
þjóðfélagið hafi velt þessu vanda-
máli á undan sér og litið á það sem
afbrigðilega hegðun.“
Ekki má lengur við svo búið
una. Þessi mál krefjast skjótra
og markvissra aðgerða.
í umfjöllun um þessi mál ber
að gæta þess vandlega að ekki er
um að ræða einangruð unglinga-
vandamál sem slík heldur hefur
unglingurinn orðið harkalega
fyrir barðinu á þeim þjóðfélags-
breytingum sem hafa orðið og
eru að eiga sér stað.
Ennfremur segir í stefnu-
skránni að þeir þættir sem
leggja ber megináherslu á varð-
andi málefni unglinga og þá fé-
lagslegu þjónustu sem að þeim
snýr séu þessir:
Hefja ber almennan áróður fyrir
heilbrigðu lífí og um leið leggja
sérstaka áherslu á samstöðu og
samheldni fjölskyldunnar.
Sköpuð verði og skipulögð að-
staða fyrir borgarbúa til heilbrigðs
tómstundastarfs. Verði sú aðstaða
að svo miklu leyti sem unnt er
sniðin við þarfir fjölskyldunnar.
Stórauka bera eftirlit með inn-
fíutningi fíkniefna. Fyrirbyggjandi
starf lögreglu, tollgæslu og flutn-
ingsfyrirtækja ber að efla.
Skipulega verður að vinna að því
að fínna þau börn og unglinga sem
stefna af réttri braut. Auka ber
samstarf skóia, félaga og annarra
sem með málefni unglinga fara í
þeim tilgangi.
Mikilvægur þáttur er efling Úti-
deildar og ber að stefna að því að
veita henni fastari starfsgrundvöll.
Opnuð verði heimili fyrir ungl-
inga sem aðstæðna vegna geta
ekki búið á heimilum sínum. Væru
þau einnig heppileg til eftirmeð-
ferðar þeirra unglinga sem lent
hafa á stofnunum.
Stórauka ber fræðslu um skað-
semi fíkniefna og verður sú
fræðsla að fara fram í skólum
borgarinnar auk þess sem nýta ber
fjölmiðla til almennrar fræðslu um
þessi mál.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
jafnan lagt áherslu á manngildi
einstaklingsins og frelsi hans til
að ráða sér sjálfur. í þeirri
stefnu er og fólgið að bregðast
skuli við til hjálpar ef ungu fólki
verður fótaskortur á þroska-
brautinni vegna ytri eða innri
aðstæðna og villist af leið. Sjálf-
stæðismenn vilja því taka á
þessum málum af skilningi,
mannúð og raunsæi og það ætt-
um við að gera.
Áheyrendur voru oft djúpt þenkjandi yfír speki frambjóðenda.
*
A sameiginlegum fram-
boðsfundi í Keflavík
Á MÁNUDAGSKVÖLDIÐ var hald
inn í Félagsbíói i Kefíavík sameigin-
legur framboðsfundur þeirra flokka
sem bjóða fram til bæjarstjórnar-
kosninganna, þ.e. Alþýðufíokks,
Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks
og Alþýðubandalags. Var honum út-
varpað á FM-bylgjunni.
Hver flokkur fékk 30 mínútur til
umráða og skiptist hann í þrjár
umferðir. Fyrsta umferð fékk 15
mín., önnur umferð 10 mín. og sú
þriðja 5 mín. Ef ræðumenn notuðu
meiri tíma en leyfilegt var, í fyrri
umferðunum, var umframtíminn
dreginn frá síðustu umferðinni.
Fyrst komu fram þeir sem skip-
uðu 2—4 efstu sæti hvers lista og
skýrðu frá því hvað þeir hygðust
gera fyrir kjósendur á næstkom-
andi kjörtímabili og einnig var
nokkuð um það «ð sérstaklega
minnihlutaflokkanir köstuðu
spurningum að mótherjum sínum.
I annarri umferð komu svo í pontu
aðrir frambjóðendur og skýrðu
áheyrendum frá helstu stefnu-
skráratriðum sínum og flokksins
og skýrðu frá þeim umbótum sem
gerðar höfðu verið á liðnu kjör-
tímabili og hvað ætti að fram-
kvæma á því næsta ef þeir fengju
einhverju um ráðið. Einnig reyndu
ræðumenn eftir fremsta megni að
svara þeim spurningum er mót-
herjarnir höfðu varpað til þeirra
og jafnframt að spyrja annarra í
staðinn.
Var nú farið að færast mikið líf í
Hjörtur Zakaríasson, einn af fram-
bjóðendum D-listans.
umræðurnar og skemmti fólkið,
sem hartnær fyllti húsið, sér vel og
oft var spaugilegt að heyra fram-
bjóðendurna í orðaskiptum við
andstæðingana. Voru ræðumenn-
irnir í síðustu umferðinni komnir í
mikla tímaþröng og mörg voru þau
fyrirheitin og svörin sem ekki
komust að hjá þessum fyrstu
mönnum á listunum. Lokaræðurn-
ar voru þó mjög skörulega fluttar
enda áttu þær að vera gæðastimp-
ill viðkomandi flokka.
Á síðastliðnu kjörtímabili átti
Sjálfstæðisflokkurinn 3 menn í
bæjarstjórn, þá Tómas Tómasson,
en hann er forseti bæjarstjórnar
og fyrsti maður á lista nú, Ingólf
Halldórsson, en hann hefur nú
dregið sig í hlé, og Ingólf Falsson.
Alþýðuflokkurinn átti einnig þrjá
menn inni, Þá Ólaf Björnsson,
Guðfinn Sigurvinsson og Karl
Steinar Guðnason, Framsókn átti
tvo, Hilmar Pétursson og Guðjón
Stefánsson, og Alþýðubandalagið
átti einn mann inni, Karl Sigur-
bergsson.
Einar.
Þór hf. hefur sölu á
Castrol-olíuvörum
FYRIRTÆKIÐ Þór hf., Ármúla
11 Reykjavík, hefur tekið að
sér sölu og dreifingu á smur-
olíu og smurefnum frá enska
fyrirtækinu Castrol. Hafa að
undanfórnu dvalið hér á landi
tveir menn, þeir Bengt Nilsen
og Bo Pagh-Kristjansen frá
Castrol-verksmiðjunni í Kaup-
mannahöfn, sem framleiðir um
níu milljónir lítra á ári, til að
kynna sér markaðshorfur fyrir
vöru sína hér á landi. Telja þeir
að það ætti að vera nægur
markaður fyrir Castrol hér.
„Við höfum í hyggju að
dreifa þessari vöru okkar um
Island á sem skemmstum
tíma,“ sögðu þeir í samtali við
Mbl. í frétt frá Þór hf. segir að
Castrol sé elsta smurolíufélag í
heiminum. Castrol-olíuvörur
hafa verið við lýði í Danmörku
í meira en 55 ár en flestar
Castrol-vörurnar sem fást á Is-
landi núna eru framleiddar af
verksmiðjunni í Kaupmanna-
höfn, sem er stærsta sinnar
tegundar í Skandinavíu, segir í
frétt frá Þór hf.
Castroi
Frá kynningu á (’astrol-olíuvörunum. Bent Nilsen til vinstri, Einar Þorkels-
son forstjóri og Bo Pagh-Kristjansen.
Bingói UÍA lokið
MAZDA BINGÓI UÍA er lokið.
Bingódagurinn varð 3. maí 1982.
Eftirtaldar tölur voru dregnar
út: 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 9,10,11,14,15,
16, 17, 18, 21, 22, 23, 26, 27, 28, 30,
31, 33, 34, 35, 37, 38, 39, 40, 41, 46,
48, 56, 59, 61, 62, 64, 65, 67, 69, 70,
72, 73, 75, 78, 79, 81, 82, 84, 85, 87,
88, 89, 90.
Þegar upp var staðið voru 9 með
bingó. Bingóhafarnir voru allir
jafnir og var vinningunum því
skipt á milli bingóhafa. Koma þá
1/9 hluti vinningsins í hlut hvers
eða 15.222 krónur.