Morgunblaðið - 22.05.1982, Blaðsíða 16
60
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MAÍ1982
l>að hofur lcngi vcrirt vitaö mál að Funi væri mcrtal fljótustu vekringa
landsins þótt gcngi hans á kapprcióum hafi ckki verió í samræmi vió þá
vitncskju. Nú sigraói hann og þá cr þaó spurningin hvort þctta sc upphafió aó
einhvcrju mcira. Funi er sá til vinstri cn knapi á honum er Gunnar Arason,
hcsturinn til hægri cr Villingur cn knapi á honum cr Aóalsteinn Aóalsteins-
son.
Á hverju ári efnir kvennadcild Fáks til happdrættis og hafa ávallt verió hcstar í vinning. Á kapprciöunum voru þessir
gæðingar sýndir þ.e. vinningarnir í ár. Eru þetta stórættaöir gæóingar, sá rauói mun vera undan Sörla frá
Sauóárkróki og Tinnu frá Borgarnesi scm mun vera fyrstu verðlaunahryssa. Sá grái er hinsvegar undan Héöni frá
Vatnagöróum og Blíðu Skúla Steinssonar sem er kunn fyrir þátttöku í ýmsum kcppnum.
Vorkappreiðar
í vorveðri
UM SÍÐUSTU hclgi hófst keppnis-
tímabilió hjá kappreióamönnum
þegar Fáksmenn héldu árlegar
vorkappreiðar sínar að Víðivöllum.
Að þessu sinni voru fáar stjörnur
mættar til leiks og er ein ástæðan
sú að búast má við nokkurri
endurnýjun á þessum svokölluðu
topphestum í ár og á það við um
flcstar greinar kappreiða. Veður
var hið bcsta, hlý austangola með
smáskúrum af og til. Ekki náðist
umtalsverður árangur í neinum
greinum þó sett væri íslandsmet í
einni grein, en það var í 300 m
brokki með fimmtíu metra at-
rennu til niðurtöku, hliðstætt
skeiðinu.
Er þetta í fyrsta skipti sem
keppt er í þessari grein og hlýtur
þvi besti tíminn sem nú náðist
að vera Islandsmet. Það var
Fengur Harðar G. Albertssonar
sem þetta met setti og var tími
hans 37,6 sek., knapi var Sigur-
björn Bárðarson. í öðru sæti
varð Tengdó á 47,3 sek. Eigandi
hans er Alli Rúts en knapi var
Sigurður H. Jóhannesson. I
þriðja sæti varð Nökkvi á 48,0
sek. Eigandi hans er Jóhannes J.
Jónsson en knapi var Jóhanna
Jónsdóttir. Þessi keppnisgrein er
tekin upp í þeim tilgangi að
hefja brokkið upp til vegs og
virðingar eins og svo oft hefur
verið talað um. En því miður var
þetta heldur lítið spennandi á að
horfa, og það eina sem jákvætt
var, voru tilþrif Fengs.
Einnig var keppt í 800 m
brokki og er víst best að fara
sem fæstum orðum um þann lið
á dagskránni, því það var í einu
orði sagt hörmung og er nú rétt
að hugleiða hvort ekki sé öllum
fyrir bestu að þessi keppnisgrein
verði lögð niður. En sigurvegari
varð Trítill á 1:45,2 mín. Eigandi
og knapi var Jóhannes J. Jóns-
son. I öðru sæti varð Bjóli
Bjarna Hákonarsonar og sat
hann sjálfur hestinn. Tími hans
var 2:27,0 mín. Svo illa tókst að
hemja aðra hesta í þessari grein,
að enginn lá og urðu þeir þar
með af þriðju verðlaununum.
Það var helst í skeiðinu sem
eitthvað jákvætt sást. Þokka-
legir tímar náðust á báðum
vegalengdum og margir góðir
sprettir sáust. I 250 m skeiði
sigraði Funi Bjarna Ágústssonar
á 23,1 sek. Knapi á Funa var
Gunnar Arnarson. í öðru sæti
varð Börkur Ragnars Tómasson-
ar á 23,2 sek. en knapi á honum
var Sigurbjörn Bárðarson. í
þriðja sæti varð svo Jón Haukur
á 23,2 sek. Eigandi hans er Har-
aldur Sigurgeirsson en knapi var
Erling Sigurðsson. Það er greini-
legt að það verður jöfn keppnin í
skeiðinu í sumar þar sem tveir af
fremstu skeiðhestum landsins
undanfarin ár, þeir Skjóni og
Fannar, verða ekki með í skeið-
inu í sumar. í 150 m skeiði sigr-
aði Freisting Kristbjargar Ey-
vindsdóttur á 15,3 sek. Knapi á
Freistingu var Gunnar Arnars-
on. í öðru sæti varð Torfi Harðar
G. Albertssonar á 16,0 sek.
Knapi á honum var Sigurbjörn
Bárðarson. I þriðja sæti varð svo
Roði Alberts Gíslasonar á 16,4
sek. Knapi á honum var Jón
Steinbjörnsson. Nú var í fyrsta
skipti keppt eftir nýjum reglum í
þessari keppnisgrein, en eins og
kunnugt er hefur ríkt mikil laus-
ung með þessa grein. En nú er
þetta á hreinu, aðeins hestar á
aldrinum fimm til sjö vetra eru
gjaldgengir. Svo nú er það
spurningin hvort árangur
Freistingar sé ekki nýtt ís-
landsmet.
I stökkgreinum var árangur
nokkuð misjafn, sæmilegt í 250
m og 350 m en frekar slakir tím-
ar í 800 metrunum.
Það var einn hestur sem skar
sig nokkuð úr í 800 metrunum en
það var Móri Ólafs Ólafssonar,
hljóp hann vegalengdina á 65,0
sek., knapi á honum var Arna
Hugleiðingar og spumingar um:
Atvinnustarfsemi
samvinnufélaganna
MBF og SS
Eftir Pétur Péturs-
son, Selfossi
Einhver huldumaður, sem vill
ekki láta nafns síns getið, skrifar
hólgrein um atvinnustarfsemi
samvinnufélaganna M.B.F og S.S.
í 9. tbl. Þjóðólfs.
Þrjú atriði, sem koma fram í
greininni, gefa þó lesendum lítils-
háttar lýsingu á þessum huldu-
manni, sem sé þá, að hann er
frambjóðandi, samvinnumaður og
segist hafa góða þekkingu og vit á
starfsemi og rekstri þessara fyrir-
tækja einkum þó M.B.F. Þá er
hann einnig mjög ánægður með
stjórnun og framtíðarrekstar-
áform þeirra. Hann skyldi þó
aldrei vera framsóknarmaður?
Athyglisvert er að gagnrýni og
umræður, sem orðið hafa um
starfsemi M.B.F og S.S., uppbygg-
ingu og útþenslu þeirra í rekstri
dreifingar- og pökkunarstöðvanna
í Reykjavík, að þá reyna stjórn-
endur fyrirtækjanna að afsaka
það með sögulegum rökum, svo
sem; „að þau hafi í upphafi byggzt
á markaðnum í Reykjavík og því
hafi starfsemin byrjað þar“, og
„því sé ekki óeðlilegt að svo verði
áfram" o.s.frv. Bættar samgöngur
og nýjasta tækni virðast ekki
neinu breyta þar um.
Síðan koma forstjórarnir eða
aðstoðarmenn þeirra ásamt svona
huldumönnum fram á fundum og í
blöðum og lýsa yfir ágæti starf-
seminnar, og með yfirlæti þeirra
sem valdið hafa lýsa þeir því yfir,
að allt annað sem haldið er fram,
séu ósanngjarnar kröfur og beri
vott um vanþekkingu á skipulagi
og stjórnun fyrirtækjanna. Menn
þurfi að skilja hinar almennu
leikreglur, sem gildi í slíkum sam-
vinnurekstri, og þar dugi sko ekki
nein kaupmannaeinokun, þ.e., að
einn fái allt og molarnir geti sem
bezt nægt útkjálkafólki, eins og
huldusamvinnuframbjóðandinn
orðar það í grein sinni.
Svona nokkuð er að vísu illskilj-
anlegt, en í mínum eyrum hljómar
þetta sem algjört öfugmæli, því
það eru einmitt molarnir (eða
frumvinnsla landbúnaðarafurð-
anna), sem skildir eru eftir hér
sunnanlands á meðan allt hitt fer
til Reykjavíkur til fullnaðar-
vinnslu og atvinnusköpunar þar.
Huldusamvinnuframbjóðandinn
heldur áfram og segir, að þó
byggðasjónarmiðin séu margþætt,
þá varði þau fyrst og fremst fólk-
ið, sem vinni að frumframleiðslunni
í blómlegum byggðum Suðurlands,
og ef stjórnvöld haldi áfram að-
gerðum til samdráttar í nýmjólk-
urframleiðslu, þá þurfi ekki að
gera sér rellu út af úrvinnslu
mjólkurinnar hér. Mjólkin verði
enfaldlega ekki meiri en til þess að
fullnægja eftirspurn um neyslu-
mjólk á höfuðborgarsvæðinu, og
þá verði áningarstaður með mjólk-
ina bér ekki talinn þjóna neinum
tilgangi. Sem sagt, þá verður hægt
að leggja M.B.F alveg niður, því
Mjólkursamsalan getur þá hæg-
lega annað allri úrvinnslunni í
nýju risamjólkurstöðinni, sem
væntanlega verður búið að reisa á
6 hektara lóðinni í Reykjavík.
En þá er spurningin: til hvers að
vera að reisa öll þessi stóru
mannvirki Osta- og smjörsölunn-
ar og Mjólkursamsölunnar í
Reykjavík, þegar mjólkurfram-
leiðslan fer stöðugt minnkandi?
Væri ekki miklu hagkvæmara
að mjólkurbúin hvert á sínum stað
önnuðust alla úrvinnsluna? Eða er
þetta bara enn eitt dæmið um sér-
íslenzka hagræðingu og mið-
stýringu frá Reykjavík?
Mjólkurbú Flóamanna á 9 menn
af 15 í stjórn Mjólkursamsölunn-
ar. Finnst þeim ekkert athugavert
við þessa stóruppbyggingu dreif-
ingaraðilanna í Reykjavík, einmitt
á þeim tíma sem mjólkurfram-
leiðsla er í lágmarki? Þeir eru þó
með þessu að flytja fjármagn úr
héraðinu til Reykjavíkur, því sem
einn af eigendum dreifingarfyrir-
tækjanna verður M.B.F. að borga
sinn hlut.
Eru þeir ef til vill allir sammála
stjórnarformanni Mjólkursamsöl-
unnar, bóndanum Ágústi á Brúna-
stöðum í Flóa, þegar hann sagði í
sjónvarpsviðtali nýlega, „að Sel-
fossbúar megi ekki halda aö bændur
geti alltaf skaffað atvinnu fyrir alla,
og það væri eins og Reykvíkingar
mættu aldrei gera neitt annað en éta
og drekka þessar afurðir, sannleik-
urinn væri hinsvegar si að þeir
(Reykvíkingarnir) hefðu bara alveg
sama rétt til þess og aðrir (Sunn-
lendingar og Selfossbúar) að hafa
atvinnu af úrvinnslu mjólkurinnar"
Það er auðvitað ekki von á góðu
fyrir sunnlenzkt atvinnulíf, þegar
stjórnendur (bændurnir) þessara
nátengdu fyrirtækja M.B.F.,
Mjólkursamsölunnar og Osta- og
smjörsölunnnar hafa slíkar skoð-
anir.
Eða hafa þeir það kannski ekki
allir?
En hvað um það rétt er að geta
þess sem áunnizt hefur, það fjölg-
aði um 7 eða 8 starfsmenn hjá
M.B.F. á síðasta ári og er það vel,
en við hvað fengu þeir vinnu?
Sá fróði huldusamvinnufram-
bjóðandi, eða einhver stjórnenda
M.B.F., hljóta að geta svarað því
og nokkrum fleiri spurningum um
starfsemina, svona til frekari upp-
lýsingar fyrir okkur sauðsvartan
almúgann, sem dirfist að hafa
aðrar skoðanir á því hvar full-
vinnsla afurðanna, sem framleidd-
ar eru í héraðinu, skuli fara fram.
1. sp. Hafa átt sér stað einhverj-
ar byggingaframkvæmdir
til stækkunar M.B.F. sl.
fimm ár, hve stórar og hvað
kostuðu þær?
2. sp. Hvað eru byggingar Osta-
og smjörsölunnar í Reykja-
vík stórar, hvað kostuðu
þær og hve stórt var fjár-
framlag M.B.F. til þeirra?
3. sp. Hvað er áætlað að bygg-
ingar nýju mjólkurstöðvar
Mjólkursamsölunnar kosti,
hve stórar verða þær, hve
langan tíma tekur að
byggja þær og hver verður
þáttur M.B.F. í kostnaðin-
um?
4. sp. Eru nokkrar bygginga-
framkvæmdir á döfinni hjá
M.B.F. hér á Selfossi.
5.sp. Hve margir unnu hjá
M.B.F. 1981 og hver voru
greidd vinnulaun?
6. sp. Hve margir unnu hjá
Mjólkursamsölunni 1981 og
hver voru greidd vinnu-
laun?
7. sp. Hve margir unnu hjá Osta-
og smjörsölunni 1981 og þar
af hvað margir við smur-
ostagerð og hver voru
greidd vinnulaun?
8. sp. Hvenær verður hafizt
handa hjá M.B.F. um
vinnslu úr mjólkursýru eins
og rætt hefur verið um í
nokkur ár?
9. sp. Hverjir gerðu þær tvær
rekstrarhagræðingarathug-
anir, sem sýndu að hag-
kvæmast væri núverandi
fyrirkomulag á vinnslu,
pökkun og dreifingu mjólk-
urafurða frá Suðurlandi?