Morgunblaðið - 22.05.1982, Blaðsíða 18
62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MAÍ1982
Egilsstaðir:
Vinnusýning grunnskólanemenda
KgilMrtödum, 10. maí.
UM SÍÐUSTU helgi var opin sýning
í vinnu grunnskólanemenda í Eg-
ilsstaðaskóla. Slíkar sýningar hafa
verið haldnar annað hvert ír undan-
farinn áratug. Sýningin nú var mjög
umfangsmikil — alli frá venju-
bundnum skólaverkefnum og ein-
földum fondurhlutum upp í fagur-
fræðilega gerða listmuni.
Hlutur mynd- og handmennta-
kennslunnar var staerstur á sýn-
ingunni — eins og að líkum lætur,
s.s. hannyrðir hvers konar, teikn-
ingar og málverk, leirmunir,
postulínsmálun, smíðagripir úr
tré, málmum, leðri — og margs
konar föndurverkefni.
Samfara sýningunni fór fram
sýnikennsla í matreiðslu, leður-
vinnu, leirmótun og smíðum — auk
þess sem nemendur skólans, sem
jafnframt eru nemendur Tónskóla
Fljótsdalshéraðs, komu fram og
léku á hljóðfæri annað veifið með-
an á sýningunni stóð. Þá gafst sýn-
ingargestum kostur á að spreyta
sig á leirmótun, leðurvinnu og ann-
arri handavinnu.
Nemendaráð gekkst fyrir veit-
ingasölu meöan á sýningunni stóð
sjóði sínum til fjáröflunar.
Góður rómur var gerður að sýn-
ingunni — sem hartnær 700 gestir
sóttu þá tvo daga sem hún var
opin.
— Ólafur
Frá vortónleikum Tónlistarskólans í Árnessýslu.
Ásgeir Sigurðsson skólastjóri og Einar Markússon
píanóleikari.
385 nemendur í
Tónlistarskólan-
*
um í Arnessýslu
Hver«gerói, 11. maí.
TÓNLISTARSKÓLINN í Árnessýslu hélt sína fímmtu
vortónleika í Hveragerðiskirkju i gærkvöidi.
Skólastjórinn, Asgeir Sigurðsson, flutti ávarp og
lýsti starfi skólans, þakkaði nemendum og kennurum
gott samstarf. í ræðu hans kom fram m.a., að nem-
endur í vetur voru 385, þar af 71 Hvergerðingur.
Kennarar voru 19 og var kennt á 13 stöðum í sýslunni.
Þá ávarpaði Ásgeir sérstaklega Einar Markússon
píanóleikara, árnaði honum heilla og færði honum
blómvönd, en Einar á sextugsafmæli um þessar mund-
ir og hefur kennt við skólann í 10 ár.
Á tónleikunum léku nemendur á margs konar
hljóðfæri, bæði einleik og fleiri saman og í sumum
lögum léku kennarar með, Að endingu lék frú Ragn-
heiður Busk á nýtt pípuorgel kirkjunnar, en hún er
nemandi í tónlistarskólanum.
Aðsókn að tónleikunum var góð og var nemendum
og kennurum vel fagnað.
Sigrún
Borg í Miklaholtshreppi:
Vel horfír
um gróðurfar
Borg í Miklaboltehreppi, 18. maí.
SAUÐBURÐUR byrjaði hér viðast
hvar í annarri viku af maí. Margir
höfðu áhyggjur af kuldakasti og
frosti sem stóð hér síðustu dagana í
april og fyrstu dagana i mai. Þá
komst frost hér í 8—9 stig, samfara
stormi og snjókomu. Síðan 8. maí
hefur hver dagurinn verið öðrum
betri og hagstæðari fyrir gróður,
enda er nú óvenjugott útlit með gróð-
urfar.
Smá skúrir hafa verið undan-
farnar nætur og sól og hiti, 10—15
stig á daginn. Sauðburður stendur
nú sem hæst. Ekki hef ég heyrt
annað en að burður gangi ágæt-
lega, allar ær bera hér í húsi, og
fólk vakir yfir burðinum og gengur
þetta yfirleitt ágætlega. Frjósemi
er kannski ekki eins mikil og í
fyrra. Þá voru ær með allra mesta
móti tvílembdar, enda ær þá vel á
sig komnar undan einstakri veður-
blíðu sumarsins 1980. Siðastliðið
haust var hér hrakviðrasamt og
fénaður ekki eins vel á sig kominn
undan sumrinu. Nú er gaman að
koma út í vornóttina, fuglakvak og
gróðurilm leggur að vitum manns.
En á sama tíma í fyrra þurfti að
brjóta tveggja til þriggja senti-
metra klaka af vatnsílátum hjá
kindum sem voru hafðar úti.
Jarðvinnslutæki Búnaðarsam-
bandsins eru nú að hefja störf.
Skurðgrafa er fyrir nokkru byrjuð
að grafa, byggingarflokkur Búnað-
arsambandsins virðist hafa mikil
verkefni að vinna í sumar við
byggingu útihúsa og þrjú íbúðar-
hús veit ég að verða byggð hér í
sumar. Ekki held ég að nýtt kal sé
í túnum. Er því annað útlit nú en á
sama tíma í fyrra. Vonandi er að
við fáum gott og gróðurríkt sumar.
Páll
Nýlega er lokið sýningu feðginanna Sigrúnar Steinþórsdóttur Eggen og
Steinþórs Marinós Gunnarssonar, sem hófst föstudaginn 14. maí siðastlið-
inn. Sýningin var haldin í sýningarsal Ráðhúss Siglufjarðarkaupstaðar og
sýndu þau feðgin bæði veggteppi og myndverk. Aðsókn að sýningunni var
góð.