Morgunblaðið - 22.05.1982, Blaðsíða 26
70
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MAÍ1982
Úrfórum borgarstjórnar 1978—1982:
Alþýðubandalagið
„missti af strætó“
— meðan deilt var um umboðslaun
Ofstjórn og nefndagleði
vinstri manna í borgarstjórn
Reykjavíkur hefur leitt fram á
sjónarsviðið ýmsa undarlega
„sérfræðinga" í málefnum
Reykjavíkurborgar. Eitt dæmi
um það er nefndaliðið, sem sl. 4
ár hefur ráðskazt með málefni
Strætisvagna Reykjavíkur.
Strætisvagnarekstur í Reykja-
vík var um áratugaskeið í hönd-
um vaiinkunnra framkvæmda-
manna, sem byggðu upp og ráku
eitt stærsta þjónustufyrirtæki
landsins af myndarskap, án þess
að búa við ofstjórn pólitískra
nefndakónga og bitlingamanna.
Að undanförnu hefur fulltrúi
Alþýðubandalagsins í stjórn
SVR, sem gegnir þar for-
mennsku, verið í sviðsljósinu og
öll möguleg málefni fyrirtækis-
ins rétt eins og enginn annar
komi við sögu eða hafi þekkingu
til að fjalla þar um. Þegar Guð-
rún Ágústsdóttir er farin að
fræða lesendur Þjóðviljans um
„gírkassana í Volvo“ og annað
eftir því (hún á liklega eftir að
skrifa um Ikarus-gírkassana)
má ljóst vera, út í hvaða öfgar
vinstri ráðsmennskan er komin.
En hvernig hefur svo þessum
stjórnmálamönnum, sem vasast
í öllu, tekizt að standa við stóru
orðin, þ.e.a.s. yfirlýsingarnar,
sem þeir gáfu fyrir síðustu kosn-
ingar um það, sem þeir ætluðu
að gera.
Fyrir síðustu kosningar sagði
Guðrún Ágústsdóttir þetta í
Þjóðviljanum um strætisvagn-
ana:
„Við þurfum mun tíðari ferðir,
stór og góð upphituð biðskýli,
enginn á að þurfa að eiga lengri
leið frá heimili sínu á næstu
stoppistöð en 5 mínútur."
Hvernig í ósköpunum skyldi
standa á því, að fjórum árum
seinna, eftir fjögurra ára for-
mennsku Guðrúnar Ágústsdótt-
ur hjá SVR, skuli aðeins fjórir
Reykvíkingar geta beðið sam-
tímis í upphituðu biðskýli?
Alþýðubandalagið hefur tekið
af kjósendum það ómak að velta
fyrir sér efndum á kosningalof-
orði þess um þetta efni frá 1978.
Kosningaloforðið er nefnilega
tekið upp í kosningastefnuskrá
þess 1982 því til sönnunar og
áherzlu, að þetta verkefni er
ennþá óleyst.
í hinni nýju stefnuskrá Al-
þýðubandalagsins stendur þetta:
„Alþýðubandalagið mun beita
sér fyrir því, að á öllum bið-
stöðvum verði komið upp lýstum
og upphituðum biðskýlum ...“
Alþýðubandalagið hefur
greinilega „misst af strætis-
vagninum" heilt kjörtímabil og
reynir nú á það, hvort kjósendur
nenna að bíða í fjögur ár eftir
næsta biðskýli Alþýðubanda-
lagsins. Ekki er það til að auka á
bjartsýni manna, að vinstri
stjórnarmenn Strætó eru fleiri
en Guðrún og hafa sinna hags-
Hlýtt og
notalegt
Strætóskýlm áttu aö veröa stór og góð og upp-
hituð. Einnig átti að fjölga strætisvagnaferð-
um Árangurinn er hins vegar sá, að eitt upp-
hitaö skýli hefur verið byggt og ferðir strætis-
vagnanna hafa lengst og tíðni minnkað Sá
sem flutti tillógu þessa á borð almennings var
kjörinn formaður stjórnar SVR eftir að vinstri
menn komust til valda.
Við þurfum mun
tíöari ferðir stór og
góð upphituð bið-
skýli enginn á að
þurfa að eiga lengri
leið frá heimili sínu á
næstu stoppistöð en
5 mínútur.
(Þ|óðv 19/5 1970)
muna að gæta. í nýlegri frásögn
Þjóðviljans um málefni SVR er
vikið að afstöðu fulltrúa Alþýðu-
flokksins í stjórn fyrirtækisins,
Birgis Þorvaldssonar, varðandi
útboð á biðskýlum. Greiddi hann
atkvæði gegn tillögu Alþýðu-
bandalagsins um biðskýli og eft-
ir að hafa frá því skýrt og
nafngreint alþýðuflokksmann-
inn segir Þjóðviljinn:
“Sá síðastnefndi hefur umboð
fyrir dönskum skýlum eins og
því, sem nýlega var sett upp við
Lækjargötu neðan Torfunnar.“
Er furða, þótt Guðrún Ágústs-
dóttir og félagar hennar í Al-
þýðubandalaginu hafi „misst af
strætó" í biðskýlamálinu, meðan
vinstra glundroðaliðið deildi um
það, hver ætti að hirða umboðs-
launin af sölu þeirra?
Fyrsta kvartmílukeppni sumarsins
Fyrsta kvartmílukeppni sum-
arsins verður haldin um helgina,
dagana 21. og 22. maí á Kvart-
milubrautinni við Straumsvík.
Keppni þessi er æfingakeppni og
mun hún því ekki gefa stig til ís-
landsmeistaratitils. í tilefni af
keppninni munu tveir bandarískir
sérfræðingar í kvartmíluakstri og
byggingu kvartmílubíla koma til
landsins og munu þeir leiðbeina
keppendum um akstur bílanna og
stillingu þeirra.
Aðalkeppnin fer fram í dag,
laugardaginn 22. maí, og hefst hún
klukkan 14. Verður þá keppt í ein-
um opnum flokki og verða „Street
Eliminator“-keppnisreglurnar
notaðar.
Nemendasýn-
ing Mynd-
listarskólans
HELGINA 22.—23. maí sýnir
MyndlLstarskólinn í Reykjavík verk
nemenda i húsakynnum skólans að
Tryggva(;ötu 15, 6. hæð.
250 nemendur voru við nám í
skólanum í vetur undir leiðsögn
15 kennara. Kennslan fór fram í
22 deildum, þar af voru 7 barna-
deildir. Skólinn kennir hinar ólíku
tegundir myndlistar, bæði fyrir
byrjendur og lengra komna.
Hlíf í Hafnarfirði:
Kjarakröfur VMSÍ
enn í fullu gildi
Morgunblaðinu hefur borist eft-
irfarandi ályktun frá Verkamanna-
félaginu Hlíf í Hafnarfirði, um
kjarakröfur Verkamannasambands
íslands:
„Aðalfundur Vmf. Hlífar hald-
inn fimmtudaginn 29. apríl 1982
telur kjarakröfur Verkamanna-
sambands íslands frá sl. hausti
ennþá í fullu gildi og hvetur að-
ildarfélög sambandsins að sam-
einast um þær í komandi samn-
ingsgerð og fylgja eftir af fullum
krafti.“
Hallgrímur Pétursson, formað-
ur Hlífar, sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins að
hann liti svo á að samþykkt þessi
væri enn í fullu gildi, þrátt fyrir
að VMSÍ hafi ákveðið að endur-
skoða kröfur sínar. — Meginkröf-
urnar væru enn þær sömu, þótt
ákveðið hefði verið að endurskoða
suma hluti og breyta áherslum á
suma þætti kröfugerðarinnar.
Nýlega sjósetti BáUsmiðja Guðmundar, Helluhrauni 6, Hafnarfírði, 5 rúm-
lesta fískibát. Þetta er þriðji báturinn sem Bátasmiðjan sjósetur af þessari gerð.
Framleiðslutími er 2—3 mán. og skrokkurinn án nokkurra tækja kostar um
100.000 kr. Bátarnir eru útbúnir eftir óskum kaupenda.
Bátasmiðja Guðmundar framleiðir einnig minni sportfískveiðibáta og var
einn slikur sjósettur belgina 15.—16. maí.