Morgunblaðið - 19.06.1982, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK
132. tbl. 69. árg.
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Rússar hindra
Póllands-
för páfa
Moskvu, 18. júní. AP.
SOVÉTMENN gáfu í skyn í dag.
að ekkert kynni að verða úr fyrir-
hugaðri Póllandsrör Jóhannesar
Páls páfa í ágústmánuði. Jafn-
framt sökuðu þeir Rnnald Reagan
Bandaríkjaforseta um að hafa lagt
að páfa að brýna pólska klerka til
undirróðursstarfs.
Embættismenn í Moskvu stað-
festu að reynt yrði að koma í veg
fyrir heimsókn páfa til Póllands,
þar sem hana bæri upp á sama
tíma og þess yrði minnst, að tvö
ár yrðu liðin frá stofnun Sam-
stöðu. Óttast Sovétmenn að
nærvera páfa kynni að auka á
andstöðu við herstjórnina.
Pólskir embættismenn drógu í
efa að hægt yrði að koma í veg
fyrir Póllandsför páfa. „Hver
ætti að stöðva páfa, ef hann er
ákveðinn í að koma,“ sagði einn
þeirra.
TASS-fréttastofan sagði, að
Reagan hefði á nýlegum fundi
sínum með páfa, lýst Banda-
ríkjamenn reiðubúna að veita
andstæðingum pólsku herstjórn-
arinnar verulega fjárhagsaðstoð,
og vildu Bandaríkjamenn koma
peningunum til þeirra með að-
stoð kirkjunnar.
Tveggja sólarhringa
hlé á átökum í Beirút
Beirút, 18. júní. AP.
ÍSRAELSKU hersveitirnar í Beirút tóku sér í dag stöðu á „græna beltinu“,
sem skilur borgina að í hverfi múhameðstrúarmanna og hverfí kristinna
hægri manna á sama tíma og bandarísk yfírvöld reyna að forða áhlaupi
ísraela á hverfí, sem Palestínuskæruliðar hafa á valdi sínu. ísraelar sögð-
ust hafa orðið við áskorun Bandaríkjamanna og ákveðið að leggja niður
vopn i tvo sólarhringa meðan reynt væri að leysa Líbanondeiluna á pólitísk-
um vettvangi. Skæruliðar PLO notuðu tækifærið til að styrkja varnir sínar
með því að koma fyrir jarðsprengjum umhverfís virki sín, og reisa götu-
virki.
Ariel Sharon varnarmálaráð-
herra ítrekaði að ísraelar drægju
ekki heri sína til baka fyrr en
tryggt væri að skæruliðahreyfing
PLO yrði leyst upp og Sýrlend-
ingar samþykktu að hverfa með
heri sína frá Libanon. Sharon
sagði yfirvöld í Washington
standa í samningaviðræðum við
PLO með milligöngu yfirvalda í
Líbanon. Hann hvatti til stofnun-
ar fjölþjóðlegra gæzlusveita í
Líbanon þar sem Bandaríkja-
menn væru í meirihluta. Hann
sagði ísraela ekki samþykkja
sveitir sem sendar yrðu á vegum
Sameinuðu þjóðanna.
Menachem Begin forsætisráð-
herra átti í dag viðræður við Al-
exander Haig utanríkisráðherra í
aðalstöðvum SÞ. Haig vék sér hjá
því að svara blaðamönnum hvort
skæruliðar PLO væru í þann veg-
inn að gefast upp, eins og orð-
rómur hafði verið um. Bandarísk-
ir ráðamenn leggja nú nótt við
nýtan dag í tilraunum sínum til
að tryggja varanlegt vopnahlé í
Líbanon. Haig staðfesti að Begin
mundi eiga fund með Ronald
Reagan Bandaríkjaforseta á
mánudag.
Begin ávarpaði afvopnunar-
ráðstefnu SÞ í dag og sagði ísra-
ela reiðubúna til samninga við öll
nágrannaríki sín um kjarnorku-
vopnalaust svæði í Miðaustur-
löndum. Hann vék aldrei beinum
orðum að Líbanondeilunni, en
sagði sjálfsvörnina einhver mik-
ilvægustu réttindi, sem mannin-
um hefðu hlotnast.
Bandarískir embættismenn
telja a.m.k. 350 þúsund Líbani
hafa misst heimili sín af völdum
innrásarinnar. ísraelar hafa
meinað alþjóðlegum hjálpar-
stofnunum að stunda hjáipar-
starf í Líbanon.
Vestrænir fréttaskýrendur
telja ólíklegt að Arabaríki beiti
olíuvopninu gagnvart Bandaríkj-
unum vegna ástandsins í Líban-
on, þrátt fyrir orðróm þar að lút-
andi í röðum Araba, þau hafi ein-
faldlega ekki efni á því.
Sérfræðingar segja, að Arafat
eigi tæpast nema um þrjá val-
kosti að velja, þar sem „vígi“
hans í Líbanon sé að falla fyrir
herjum erkióvinanna, Israelum
og kristnum hægri mönnum.
Hann eigi um það að velja að
breyta skæruliðahreyfingu sinni í
pólitíska hreyfingu einvörðungu,
að reyna að flýja til höfuðborgar
annars Arabaríkis, eða að berjast
þar til yfir lýkur, en talið er úti-
lokað að PLO geti unnið sigur í
viðureign af því tagi. Allt eru
þetta taldir slæmir kostir og talið
er að allt bit verði úr hreyfing-
unni, þegar yfir lýkur.
Fögnuður stríðsfanga
við afsögn Galtieris
Buenos Aires, 18. júní. AP.
BÚIST VAR VIÐ AÐ herstjórnin í Argentínu veldi eftirmann Galtieri hershöfó-
inga á forsetastóli í dag, en úrslit í þeim efnum voru ókunn þegar Mbl. fór í
prentun. Galtieri var bolað frá völdum vegna ósigursins á Falklandseyjum og
braust út mikill fógnuður meðal argentínskra hermanna, sem nú eru fangar
Breta á Falklandseyjum, þegar þeir fréttu að Galtieri hefði afsalað sér yfirstjórn
hersins og forsetaembættinu.
Lami Dozo
Heimildir frá Buenos Aires
herma, að aðrir hershöfðingjar hafi
beygt Galtieri eftir ósigurinn.
Helztu kandidatar v:ð forsetakjörið
voru taldir Nicanor Costa Mendez
utanríkisráðherra og Basilio Lami
Dozo yfirmaður flughersins. Aðrar
áreiðanlegar heimildir töldu að hin-
ir nýju valdhafar mundu kappkosta
að ljúka ófriðnum við Breta með
friðsamlegum hætti.
Óttazt hafði verið að stríðsfang-
arnir á Falklandseyjum yrðu inn-
lyksa vegna þrákelkni Galtieri, en
senn fer í hönd vetur á eyjunum.
Strax og Galtieri hafði sagt af sér
hófst samstarf Argentinumanna og
Breta með milligöngu Rauða kross-
ins, um brottflutning stríðsfang-
anna frá Falklandseyjum.
Lami Dozo nýtur aukins álits í
Argentínu, einkum þar sem það var
flugherinn sem tókst að koma höggi
á brezku flotadeildina við Falk-
landseyjar.
Mikil reiði hefur brotizt út í Arg-
entínu í kjölfar ósigursins við Falk-
landseyjar, og kröfðust blöð í Buen-
os Aires í dag skýringa á hvernig
fór. Talið er að enn sé ekki séð fyrir
þá sundrungu sem frammistaða
hersins á Falklandseyjum hefur
skapað meðal þjóðarinnar.
Brezk skip sigla
stríðsföngum heim
l>ondon, 18. júní. AP.
ARGENTÍNUMENN tilkynntu í kvöld, að Bretar gætu
óáreittir flutt argentínska stríðsfanga frá Falklandseyjum til
hafnar í Puerto Madryn í Argentínu. Brezkir embættismenn
sögðu að hluta fanganna yrði haldið eftir þar til Argentínu-
menn staðfestu fyrir sitt leyti að ófriðnum á Suður-
Atlantshafi væri lokið. I kvöld lýsti herstjórnin nýja hins
vegar yfir því að ófriðnum lyktaði ekki fyrr en Bretar afléttu
loft- og hafnbanni sínu á Falklandseyjum og hyrfu á brott
með „hernámssveitir“ sínar þaðan.
Tvö skip, skemmtiferðaskipið
Canberra og Norðursjávarferj-
an Norland, héldu í dag áleiðis
með 5.500 stríðsfanga til Puerto
Madryn. Tvö argentínsk spítala-
skip munu taka þátt í flutningi
stríðsfanga frá Stanley.
Brezkir embættismenn kváð-
ust í dag vongóðir um að hægt
yrði að ná samkomulagi um frið
við Falklandseyjar, einkum eftir
að Galtieri hershöfðingi hefur
verið hrakinn frá völdum. Verð-
ur nokkur hundruð háttsettra
manna í Argentínuher og sér-
stökum víkingasveitum ekki
skilað fyrr en samkomulag hef-
ur náðst.
Bretar búa sig nú undir há-
tíðahöld í tilefni endurtöku
Falklandseyja, og sagði Marga-
ret Thatcher forsætisráðherra
að nánar yrði tilkynnt síðar í
hvaða formi hátíðahöldin yrðu.
Birt var í dag skoðanakönnun
Gallup-stofnunarinnar, sem
sýnir að vinsældir Thatchers
hafa aldrei verið meiri. Könnun-
in var gerð á tímabilinu 7. til 14.
júní, og sögðust 51% aðspurðra
ánægðir með frammistöðu for-
sætisráðherrans, eða sjö pró-
sentustigum fleiri en mánuði
áður. Um 45% aðspurðra sögð-
ust mundu kjósa íhaidsflokkinn,
ef kosið yrði í dag, miðað við
31,5% í marz. Verkamanna-
flokkurinn naut fylgis 25% kjós-
enda, miðað við 33% í marz, og
kosningabandalag Frjálslyndra
og Jafnaðarmannaflokksins
naut fylgis 25% kjósenda.
Bretar sendu í dag fjögur her-
skip til Falklandseyja til að
leysa af hólmi jafn mörg skip,
sem þar eru fyrir.
Argentínumenn í Stanley afhenda vopn sín, sem mynda stóra stafía við
höfuðborgina. Símamynd AP.