Morgunblaðið - 19.06.1982, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.06.1982, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1982 Einkennileg dánarorsök l»ndon, 18. júní. AP. KNGIN önnur skýring finnst á láti konu sem fannst i garöi í London önnur cn sú aö eldingu hafi slegiö niður í málmþráö i brjóstahaldara hennar, segir í niðurstöðu líkskoö- ara í London. Lík konunnar fannst undir tré í almenningsgarði í norðvestur Ix>ndon fyrir tveimur vikum, en þá hafði gengið á með stormum og rigningu. Við rannsókn á dauða hennar sl. miðvikudag vottaði dr. Iain sjúkdómafræð- ingur, sem og líkskoðarinn, að brunasár á bringu hennar liti nákvæmlega eins út og það mynstur sem á brjóstahaldaran- um var og í var málmþráður. Hann taldi mjög líklegt að eld- ingunni hefði slegið niður í málmþráðinn. Leikarinn Curt Jiirgens látinn Vín, 18. júní. AP. ('IJRI) Jiirgens, þýski leikarinn, sem gat sér mikinn oröstír og heims- frægð fyrir leik í meira en IGO kvikmyndum, lést í dag í Vín, 66 ára aö aldri. Var banameinið hjartabilun aö sögn lækna. Júrgens hóf feril sinn í kvik- myndunum árið 1936 en það var þó ekki fyrr en 20 árum síðar að hann varð verulega þekktur og þá fyrir leik sinn í kvikmyndinni „Hershöfðingi kölska", sem gerð var eftir sögu Carl Zuckmayers. Eftir það lék hann í mörgum kunnum myndum, sem margar voru gerðar í Bandaríkjunum, og fékk margvíslega viðurkenningu fyrir leik sinn. Hann tók mikinn þátt í hinu ljúfa lífi, var fimm- kvær.tur og vinsælt umræðuefni í slúðurdálkum dagblaðanna. Maðurinn með ljáinn hefur látið skammt stórra högga á milli í þýskri ieikara- og leikstjórastétt Schmidt hlýtur annað skipbrot Darmstadl, Vestur l*ýskalandi, 18. júní. AP. HELMUT Schmidt kanslari Vest- ur býskalands hlaut í gær sitt ann- aö skipbrot, þegar frjálsir demó- kratar sem eru með honum í stjórn tilkynntu aö þeir hefðu ákveðið að styðja kristilega demókrata í fylkis- þingkosningunum í Hcssen 26. september í haust. Áður hafði hann beðið ósigur í Hamborg, heimafylki sínu, þann 6. júní síðastliðinn. Á sérstöku flokksþingi sem haldið var í háskólaborginni Hess- en voru 169 frjálsir demókratar Dánarorsök Fassbinders Múnchen, 18. júní. AP. Kvikmyndagerðarmaðurinn Rain- er Werner Kassbinder, sem fannst látinn í síðustu viku, dó vegna of stórs skammLs af svefntöflum og kókaíni, samkvæmt upplýsingum frá saksóknara í Miinchen í dag. Hann sagði fréttamönnum að fyrstu eiturlyfjarannsóknir á líki Fassbinders við Múnchenarhá- skóla sýndu að hann hefði sam- tímis tekið inn svefntöflurnar og kókaínið. Dauði hans gæti því ver- ið útskýrður læknisfræðilega sem afleiðing af þessari efnasamsetn- ingu. Þó að þetta séu einungis fyrstu rannsóknir og frekari niðurstaðna sé að vænta, telur saksóknarinn ólíklegt að niður- stöðurnar eigi eftir að breytast sem einhverju nemur. Fyrri niðurstöður höfðu sýnt að Fassbinder hafði ekki neitt áfeng- is fyrir andlátið, en lík hans var krufið sl. miðvikudag. fylgjandi því að slíta tveggja ára samstarfi við jafnaðarmenn, en 129 voru því mótfallnir. Einn full- trúi var fjarverandi. Þeir sem vilja slíta samstarfinu og hin íhaldssama stjórnarand- staða telja að hin frjálslyndari öfl séu búin að missa traust fólks og hafi ekki nægilega sterkar lausnir á hinum erfiðu efnahags- og fé- lagslegu vandamálum sem steðji að nú á níunda áratugnum. I heimafylki Schmidts kanslara, Hamborg, hafa jafnaðarmenn misst meirihluta í fyrsta skipti í tvo áratugi. Það voru íhaldsmenn sem komu sterkastir út úr kosn- ingunum þar og ef þeim tekst að mynda fylkisstjórn munu þeir hafa % hluta atkvæða í efri deild þingsins og gætu ,þar af leiðandi staðið í vegi fyrir öllum meiri háttar ákvörðunum sem meiri- hluti Schmidts kæmi í gegn í neðri deild. I Hessen, þar sem fylgi jafnað- armanna hefur farið stöðugt minnkandi, segir Dregger, leiðtogi kristilegra demókrata, að þeir séu bjartsýnir á að vinna fylkið í kosningunum í september. Ef svo fer, munu frjálslyndir demókratar undir stjórn Schmidts einungis hafa meirihluta í tveimur af ellefu fylkisstjórnum Vestur-Þýska- lands: í Ruhr-héraði og hina litlu fylkisstjórn í Bremen. „For he’s a jolly good fellow“ — sungu íbúar Port Stanley er þeir fögnuðu Moore, yfirmanni breska herliðsins á Falklandseyjum Kambódía: Andspyrnuhreyfíngar semja um ríkisstjórn Singapore, 18. júní. AP. Andspyrnuhreyfingarnar þrjár í Kambódíu, sem berjast gegn yfir- ráðum Víetnama, hafa komist að samkomulagi um myndun ríkis- stjórnar að því er segir í fréttum frá Singapore, en þar fer nú fram utanríkisráðherrafundur Suð- austur-Asíubandalagsins. Fulltrúar andspyrnuhreyf- inganna, sem eru Rauðir khmer- ar, Þjóðlega frelsisfylkingin undir forystu Son Sann og fylg- ismenn Norodom Sihanouks prins, munu hittast í næsta mánuði til að ganga endanlega frá samkomulaginu. Síðast hyggjast þeir setjast að í Kam- bódíu á þeim svæðum, sem eru í höndum skæruliða. Ekki er vit- að hvenær af því mun verða. Samkvæmt samkomulaginu mun Sihanouk verða forseti, Kieu Samphan, leiðtogi Rauðra khmera, varaforseti, og Son Sann forsætisráðherra. Annað varaforsetaembætti stendur Heng Samrin til boða ef hann vill en hann veitir nú forstöðu leppstjórn Víetnama í Kambód- íu. Ekki eru þó taldar miklar líkur á að hann þiggi boðið. Oboðinn gestur í Buckingham-höll lx>ndon, 18. júní. AP. MAÐUR, vopnaður hnífi, braust i gær gegnum öryggisgæslu Buck- ingham-hallar og var handtekinn í garöinum framan við höllina, sam- kvæmt upplýsingum frá Scotland Yard. Lögreglan segir manninn hafa verið ákærðan fyrir að hafa með höndum vopn og hann komi fyrir rétt í dag. Hann mun hafa komist inn í hallargarðinn með því að klifra yfir girðingu, en til hans sást af varðmanni sem hljóp strax til og hélt honum föstum þar til hjálp barst. Hnífurinn fannst hins vegar ekki fyrr en við leit á mann- inum. Enginn meðlimur hinnar kon- unglegu fjölskyldu mun hafa verið í höllinni þegar þetta gerðist. l*ort Stanley, 14. júní. AP. ADEINN nokkrum stundum eftir að viðræður hófust á milli Jeremy Moore, yfirmanns herafla Breta á Kalklandseyjum, og yfirmanns arg- entínska herliðsins á eyjunum, var uppgjöf þeirra síðarnefndu alger. Moore talaði við féttamanninn Rob- ert Kox frá BBC og skýrði honum frá gleði sinni yfir uppgjöfinni, en lét þess jafnframt getið að hún hefði komið honum mjög á óvart. „Hermenn mínir hafa verið stórkostlegir. Þetta eru úrvals- menn,“ sagði hann. „Þeir mættu harðri andstöðu óvinarins og þeim var gert mjög erfitt fyrir. Þeir urðu að ganga þvert yfir eyjuna og unnu þar mikið þrekvirki." Fréttamaðurinn fór síðan í fylgd Moore til Port Stanley. Var honum þar fagnað sem frelsari væri og fólk hópaðist að honum og söng „For he’s a jolly good fellow" og skáluðu fyrir Bretadrottningu í bjór við kertaljós. Fox skýrði frá því að um eitt hundrað manns hefði leitað skjóls í verzlunarhúsi í vesturhluta bæjar- ins. Argentínskir hermenn voru á víð og dreif um bæinn og virðist, sem vonleysi hafi gripið um sig á meðal þeirra. Vitni segist hafa séð hermenn Argentinumanna fara á bak við yfirmenn sína og skjóta af vélbyssum á hús í austurhluta bæj- arins. Curd Jiirgens að undanförnu. Fyrir nokkrum vikum fannst leikkonan Romy Schneider látin í íbúð sinni og svo var einnig um kvikmyndaleik- stjórann Rainer Werner Fass- binder litlu síðar. Metropolitan-safn með eftirlíkingar New York. AP. METROPOLITAN-listasafnið hefur tilkynnt að 17 gullmunir, sem áður var talið að hefðu verið grafnir fyrir 3500 árum í egypska gröf, væru 20. aldar eftiriíkingar. Upp komst um eftirlíkingarnar þegar farið var í saumana á um 40.000 munum í hinni egypsku deild safnsins, samkvæmt upplýs- ingum frá talsmanni þess. Safnið keypti munina af evrópskum lista- verkasölum milli 1919 og 1920, en talið var að þeir væru komnir úr dýrgripasafni prinsessanna þriggja sem fannst 1916 nálægt Luxor í Egyptalandi. Doktor Christine Lilyquist, um- sjónarmaður egypsku deildarinn- ar í safninu, sagði að nýjustu rannsóknir sýndu að munirnir væru allir gerðir milli 1916 og 1918, en á þeim tíma hefðu ekki verið til nein efni til að sanna hvort um var að ræða falsaða muni eða ekta. Það eru listmunir sem hafa verið grafnir úr jörðu síðan þá og geymdir eru í Kaíró og Metropolitan-safninu sem hjálp- uðu rannsakendunum við að koma upp um hinn rétta aldur þeirra. Þegar farið var að athuga mun- ina nánar kom margt í ljós sem ekki reyndist sannfærandi fyrir þann tíma sem þeir áttu að hafa verið gerðir á og listamenn þess tíma hefðu aldrei látið frá sér fara. Ástæðan fyrir því að nú var ver- ið að yfirfara muni egypsku deild- arinnar er sú að nú er í undirbún- ingi stofnun nýrrar egypskrar deildar við safnið. Jeremy Moore, undirhershöfðingi og yfirmaður landgönguliðanna bresku á Falklandseyjum, heilsar hér upp á einn af yngstu Falklendingunum í Port Stanley eftir að hafa neytt argenínska innrásarliðið til uppgjafar. ap

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.