Morgunblaðið - 19.06.1982, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 19.06.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ1982 15 Til að þroskast sem listamaður þarf að gefa sér tíma“ — segir Boris Christoff sem syngur á tónleikum Listahátíðar í Laugardalshöll á morgun „MaAurinn er stórkostlegur. Hann er aðsópsmikill og afar sér- stæður persónuleiki, listamaður fram í fingurgóma," sagði Gilbert Levine hljómsveitarstjóri þegar við hittum hann á hlaupum í anddyri Hótel Sögu á leið í viðtal við bassa- söngvarann heimskunna, Boris ('hristoff, en tónleikar hans og Sin- fóníuhljómsveitar íslands undir stjórn Levines i Laugardalshöllinni á morgun eru lokaatriðið á Lista- hátíð að þessu sinni. „Ég lít á það sem sérstök forréttindi að fá að starfa með Boris Christoff," bætti Gilbert við. Þegar á hólminn var komið hafði Boris Christoff meiri áhuga á því að spyrja blm. um land og þjóð en að svara spurn- ingum um sjálfan sig og söng- listina, og sérstaklega lék honum hugur á að fræðast um íslenzka tungu, hvernig nöfn væru staf- sett og fram borin og hvaða mál- um íslenzkan væri skyldust. „Ég er ekki búinn að vera hér nema dagpart, en mér finnst allt sem ég hef séð svo óumræðilega fagurt. Landslagið, fólkið, sér- staklega litlu börnin, og borgin sjálf, þetta er ævintýri líkast. Allt er svo fallegt, hreint og fínt að ég minnist þess varla að hafa orðið fyrir svo sterkum áhrifum þegar ég hef komið á nýjan stað. Hér er einhver hrífandi og mjög sterk útgeislun." Það er rétt hjá Levine að hann er aðsópsmikill, en um leið er hann ljúfur, einlægur og eilítið barnslegur í ákefðinni og ekki laust við að hann minni á Pál heitinn Isólfsson. Boris Christoff er Búlgari, fæddur í Sofíu árið 1919. Hann lauk lögfræðinámi og starfaði sem slíkur í ættlandi sínu í nokkur ár, en fluttist síðan til Ítalíu árið 1941 þar sem hann hóf söngnám hjá Stracchiari. Einnig nam hann í Salzburg um tíma en „debúteraði" í Róm árið 1946 og var ráðinn til Scala- óperunnar í Milano árið eftir. Síðan hefur frægðarferill hans verið óslitinn og þótt maðurinn sé kominn á sjötugsaldur segir Gilbert að hann haldi fullum raddstyrk. Boris Christoff er búsettur í Toscana á Italíu, í grennd við borgina Piza. „Ég lít á Ítalíu sem heima- byggð. Ég hef aldrei sungið opinberlega í Búlgaríu. Nei, nei, það er ekki af pólitiskum ástæð- um. Ég er ópólitískur maður. Ég fer oft til Búlgaríu til að heim- sækja þá sem ég þekki þar en aldrei til að syngja," segir hann og vill ekki ræða það mál frekar. „Eftirlætishlutverk á óperu- sviði. Það er eitt í dag og annað á morgun, allt eftir því hvað ég er að fást við hverju sinni. En kannski hafa hlutverk mín í Don Carlo, Don Giovanni og Boris Godunov orðið mér einna hug- stæðust." Talið berst að þróun óperunn- ar. „Það er mikill áhugi á óperu, en hún er víðast hvar á niðurleið. Að mínum dómi er bezta óperu- húsið nú um stundir Covent Garden í Lundúnum. Það er af því að þeir sem þar ráða ríkjum halda sér við gömlu itölsku óperuhefðina sem ekki virðist í miklum metum víðast hvar ann- ars staðar. A Italíu er óperan á niðurleið. Óperan í Parma er eig- inlega eina óperuhúsið þar um slóðir sem heldur sínu og það er af því að þar er byggt á gömlu hefðinni. I sambandi við óperu hef ég áhyggjur af öðru og það eru ungu söngvararnir sem mest eru á ferðinni um þessar mundir. Þetta er ný kynslóð sem hefur hlotið ákaflega góða menntun. Samkeppnin harðnar stöðugt og nú er meira um frábærar raddir en áður var, einfaldlega af því að fleiri komast á framfæri. En þessir ungu söngvarar vinna alltof mikið. Þeim liggur svo mikið á. Þeir sjást ekki fyrir. Þeir eru fíknir í fé og frama og því miður er alltof algengt að þeir ofreyni sig og fari með röddina á skömmum tíma. Til að þroskast sem listamaður þarf að gefa sér tíma og fara vel með það sem manni er gefið." í lok spjallsins lýsti söngvar- inn enn hrifningu sinni á land- inu. „Það var mér sérstakt ánægjuefni að fá tækifæri til að hitta Sigurð Demetz. Við kynnt- umst í Feneyjum fyrir mörgum árum þegar við vorum þar báðir við nám.“ Tónleikarnir í Laugardalshöll á morgun hefjast kl. 5 síðdegis. A efnisskránni eru verk eftir Beethoven, Mozart, Verdi, Glinka, Tsjaikovsky og Muss- orgsky. Nýstúdentar frá MA. 116 slúdentar útskrifaðir firá MA Mæðgurnar Sigrún Helgadóttir og dóttir hennar, Ólöf Jónsdóttir, báðar í hópi stúdenta. I.jósmynd Mbt.: Sv.P. Selma Hauksdóttir, dúx frá MA. Ljótmiynd Mbl.: Sv.F. Akureyri, 18. júní. MENNTASKÓLANUM á Akur- eyri var slitið í Akureyrarkirkju að morgni 17. júní. Athöfnin hófst með píanóleik Arnar Magnússon- ar, en Tryggvi Gíslason, skóla- meistari, skýrði siðan frá skólast- arfinu í vetur í stórum dráttum og þakkaði hann öllum starfs- mönnum skólans vel unnin störf. Að þessu sinni brautskráðust 116 stúdentar, þar af 3 úr öld- ungadeild. í stúdentahópnum voru mæðgur, Sigrún Helgadóttir og dóttir hennar Ólöf Jónsdóttir. Hin fyrrnefnda er úr öldunga- deild. Meðal nýstúdenta var 3500. stúdentinn frá MA, Kristinn Arnarson frá Ólafsvík. Hæstu einkunnina á þessu vori hlaut Selja Hauksdóttir úr máladeild, 9,55. Margir nýstúdentar hlutu verðlaun fyrir námsárangur, fé- lagsstörf og framkomu. Af hálfu 50 ára stúdenta („doktorabekkjarins") talaði Kristín Þorláksdóttir, kennari. Séra Bjarni Sigurðsson talaði fyrir hönd 40 ára stúdenta, sem gáfu sjóð til styrktar félagslífi nemenda. Fulltrúi 25 ára stúd- enta var séra Heimir Steinsson og afhenti hann myndsegul- bandstæki að gjöf. Fyrir 10 ára stúdenta talaði Benedikt Sigurð- arson, kennari, en þeir höfðu gróðursett á annað hundrað trjáplöntur á lóð skólans daginn áður. Eftir að skólameistari hafði af- hent nýstúdentum prófskírteinin ávarpaði hann þá nokkrum orð- um og sleit síðan skólanum. Loks var skólasöngurinn sunginn við undirleik Jakobs Trvggvasonar. — Sv.P.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.