Morgunblaðið - 19.06.1982, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.06.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ1982 13 Undir Jökli I Eftir Tómas Einarsson Ysti hlut Snæfellsness, svæðið umhverfis Snæfellsjökul, hefur manna á meðal jafnan verið nefnt „undir jökli", og vita þá flestir við hvað er átt. „Undir jökli" er nú orðið eitt vinsælasta útivistarsvæði landsins og ber margt til. Þar eru söguríkir stað- ir, fjölbreytt landslag og sérstæð náttúrufegurð, auk margs ann- ars, sem vekur forvitni manna. Því er ætlunin að sækja heim nokkra staði á þessum slóðum og kynnast þeim nánar. Hver þeirra hefur sitt svipmót, sem allir sjá, en að auki er svo fjölda margt, sem glöggskyggnir ferða- menn skynja hver með sínum hætti og aldrei verður fest á blað. Fyrsti áningarstaðurinn verð- ur að Búðum, en þær eru á sunn- anverðu nesinu í austurjaðri Búðahrauns við Búðaós, gegnt Fróðárheiðinni, en um hana liggur vegurinn norður yfir nesið til Ólafsvíkur. Saga Búða er löng, allt frá landnámsöld, en þá var þar mikil hafskipahöfn og tíðar siglingar þangað erlendis frá. Þá hét staðurinn Hraunhöfn eða Hraunhafnarós og er hans víða getið í sögum. Síðar hófst þar mikil útgerð og var búið stórt, bæði til lands og sjávar allt fram a 4. tug þessarar aldar. Nú er þar enginn búskapur en sumarhótel hefur starfað á Búð- um frá því um 1950. Er staður- inn því mörgum kunnur. Ummerki þessa litríka mann- lífs eru víða greinileg heima á Búðum, en þau er einnig að finna í grenndinni. Því er ekki úr vegi að bregða sér í tvær stuttar gönguferðir frá hótelinu og skoða nokkru nánar ummerki hins liðna. Fyrst göngum við út með ströndinni að Frambúðum. Þar versluðu Brimakaupmenn á 16. öld, en síðar varð staðurinn þekktur fyrir útræði. Frá Búðum er leiðin um 3 km og liggur með- fram ströndinni. Hún er for- vitnileg, þar skiptast á dökkir, skuggalegir klettar og ljós fjöru- sandur, sem skapa hin ákjósan- legustu skilyrði til sjávarbaða á heitum sólríkum sumardögum. Á Frambúðum blasa við rústir af verbúðum, hlaðnir grjótgarð- ar og fiskreitir þar sem fiskur- inn var þurrkaður, og ef grannt er skoðað má finna leifarnar af lýsis- og lifrargryfjum, en það voru holur grafnar í jörð, sem lifrinni var fleygt í. Smátt og smátt varð jarðvegurinn gegn- sósa af sjálfrunnu lýsinu og á endanum hélt hann algjörlega. Þannig björguðu menn sér, þeg- ar tunnur skorti undir lýsið. En sjálfsagt hefur vöruvöndun verið ábótavant eftir okkar kröfum. Og frammi við fjöruborðið sést móta fyrir raufinni, sem rudd var þegar lendingin var gerð. Hún segir sína sögu. Frá mörgu fleira mætti segja, en fara verð- ur hratt yfir sögu, svo mörgu verður að sleppa. Hin leiðin, sem ég vildi benda mönnum á, liggur á Búðaklett, sem rís upp úr miðju hrauninu alllangt fyrir vestan hótelið. Fræðimenn telja, að Búðahraun sé 5000—8000 ára gamalt. Það er runnið frá Búðakletti, en svo nefnist gígurinn, og hefur dreift sér þaðan til allra átta. Hraunið er mjög úfið og illt yfirferðar, en samt lá alfaraleiðin vestur nesið þvert yfir það og heitir gatan Klettsgata. Hún er mjög k'rókótt og þröng, víða merkt með vörð- um og sums staðar hafa hesta- hófarnir markað alldjúpar rauf- ir í harða hraunhelluna. Er það til marks um þá miklu umferð sem var hér fyrr á tímum. Kort- ið sýnir legu götunnar, en sjálf- sagt er að bregða sér út fyrir hana og skoða hinn sérstæða og Tollar af hljóð- færum felldir niður Þýðir 18% til 32% lækkun smásöluverðs Fjármálaráðuneytið hefur nú fellt niður tolla af hljóðfærum, en tollar á þeim voru 30% eða 50% eftir flokk- um. Samkvæmt upplýsingum Morg- unhlaðsins mun smásöluverð á hljóðfærum lækka um 18% til 32%. Að sögn Árna Ragnarssonar, verzlunarstjóra í Hljóðfærahúsi Reykjavíkur, voru píanó og orgel á 30% tolli en önnur hljóðfæri á 50%. Því yrði lækkun á smásölu- verði á 30% flokknum 18% en 32% á 50% flokknum. Sem dæmi um hærri flokkinn mætti taka góðan gítar, sem við þetta lækkaði úr 4.000 krónum í 2.720, eða um 1.280 krónur og þverflautu, sem kostaði fyrir niðurfellingu tolla 2.950 en lækkaði í 2.006 krónur eða um 944 krónur. Vegna þessa hefur Morgunblað- inu borizt eftirfarandi fréttatil- kynning frá Félagi íslenzkra tón- listarmanna: Félag íslenskra tónlistarmanna lýsir yfir ánægju sinni með þá ákvörðun Ragnars Arnalds, fjár- málaráðherra, að fella niður tolla af hljóðfærum. Mál þetta er gamalt baráttumál, sem í mörg ár hefur verið unnið að á vegum félagsins í tíð margra ráðherra. Þetta er einn stærsti stuðningur til framgangs tónlistarmála um árabil. Tollar af hljóðfærum námu 30—50% og áður hafði verið fellt niður vörugjald. Hinir háu tollar gerðu það iilmögulegt fyrir at- vinnufólk í tónlist að endurnýja hljóðfærakost sinn sem æskilegt væri. Nú með því að fella niður tolla af öllum hljóðfærum eiga fleiri þess kost að eignast góð hljóðfæri á vægara verði. Tveir fulltrúar Félags íslenskra tónlist- armanna gengu á fund ráðhérra 2. júní síðastliðinn og var vel tekið. Stjórn FÍT vill færa fjármálaráð- herra sérstakar þakkir fyrir skiln- ing hans á mikilvægi þessa máls og skjót viðbrögð. merkilega gróður, sem vex í djúpum og skjólgóðum hraun- kötlum víðs vegar um hraunið. Alls hafa menn fundið rúmlega 130 teg. íslenskra plantna í hrauninu. Þar af 11 tegundir burkna, en þær munu vera 16 talsins á öllu landinu. Sýnir þetta best hversu skjólgott hraunið er. Ekki eru menn á eitt sáttir um ástæðurnar fyrir þessari miklu gróðursæld, en á hlýjum sumar- dögum getur orðið afar heitt í hraungjótunum og svo er vitað að í stórstreymi fellur sjór langt inn undir hraunið. Einkenni á mörgum þessara plantna er hversu stórvaxnar þær geta orð- ið. Hefur það vakið furðu vís- indamanna. Gangan á Búðaklett er ekki neinum erfiðleikum háð. Gígur- inn er 66 m yfir sjávarmáli og liggur gatan meðfram honum. Vestan undir gígnum er Búða- hellir eða Klettshellir öðru nafni. Mikiar sagnir hafa mynd- ast um hann. Tröllkarl átti að eiga þar heima, sem grandaði bæði fé og mönnum, en merkast- ur var hellirinn samt talinn fyrir það, að frá honum áttu að liggja göng, sumir sögðu að göngin næðu alla leið upp í Surtshelli en aðrir töldu þau ná suður á Reykjanes og liggja undir Faxa- flóa. Báðar þessar sagnir til- greina menn, sem höfðu sann- reynt þetta. Að lokinni göngu um undirheima, aftur komnir upp á yfirborð jarðar, höfðu þeir gullsand í skónum, sem þeir fengu einhversstaðar á leiðinni. Bergið í Búðahrauni er þrídílótt. í sundurbrotnum steini má sjá gula, hvíta og svarta díla. Þessir dílar sjást víða í sandi í Kletts- götunni og eins út við sjóinn. Þar er sandurinn kallaður gullsand- ur og þykir fagur í sólskini. Á 4. tug aldarinnar vöknuðu menn til umhugsunar um nauð- syn þess að friða Búðahraun og var hraunið girt árið 1944. 1977 var það friðlýst og er nú undir umsjón Náttúruverndarráðs og verndað af náttúruverndarlög- um. Samkvæmt þeim er almenn- ingi heimil för um hraunið og dvöl þar, en bannað er að skerða gróður, trufla dýralíf og skemma jarðmyndanir. Og auðvitað er því treyst að allir gestir, sem koma í Búðahraun, virði þessi sjálfsögðu ákvæði. Tómas Kinarsson Sól og sumar Mjög atórt v-þýzkt hjólhýai á 2 öxlum. Svefnpláss fyrir 6. Allur hugsanlegur búnaóur. Upplagt fyrir starfsmannafélög. Þessi v-þýzku KNAUS-hús komu ( staaró- um 12V»—13'A og 15’A fet, vönduó og vel búin. Fullinnréttað bílhús. Svefnpléss fyrir 4. Fullkomið eldhús. Klósett. Koma bæói fyrir ameríska og japanaka pallbíla. Traustir tjaldvagnar é mjög góóum undir- vagni meó 13 dekkjum. Eldhús. Svefnpléss fyrir 6—7 manns. H-ad Óinnréttað álhús fyrir bæði japanska og ameríska pallbíla. Amerísk gróöurhús, bæði upp aó vegg og frístandandi. Húsin eru úr bronsuöu áli, plasti og gleri. Fullinnréttaö íbúöarhús é bæði japanska og ameríska pallbíla. Húsin eru lég é keyrslu, en vel mannhæó í notkun. Fólksbílakerrur meó Ijósum, varadekki, en én krossviös. Einnig fyrirliggjandi notaóar herjeppakerrur. Gísli Jónsson & Co. HF Sundaborg 41. Sími 86644.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.