Morgunblaðið - 19.06.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1982
17
15. Evrópuþing Kiwanishreyfingarinnar:
550 manns sitja
þingið — íslend-
ingur næsti forseti
15. EVRÓPUÞING Kiwanishreyf-
ingarinnar stendur nú yfir í Háskóla-
bíói i Reykjavík og lýkur þinginu þann
20. júní næstkomandi. Slík þing eru
haldin annað hvert ár til skiptis í að-
ildarlöndum hreyfingarinnar. Gestir á
þinginu eru um 550, þar af um helm-
ingur erlendir gestir.
Kiwanishreyfingin var stofnuð 21.
janúar 1915 í Detroit í Bandaríkjun-
um og hefur hreyfingin breiðst ört
út að sögn forráðamanna hennar. í
Evrópu er hreyfingunni skipt upp í
sérstök umdæmi og er Island eina
umdæmið sem aðeins er skipað einu
aðildarlandi innan Evrópusam-
bandsins og mótast það meðal ann-
ars af landfræðilegri legu landsins.
Að sögn Eyjólfs Sigurðssonar hefur
hvert umdæmi sjálfstæða stjórn og
sérstaka starfsemi en forseti hreyf-
ingarinnar getur þó haft áhrif á
markmið og stefnu umdæmanna.
Hann sagði ennfremur að nú væri
farið að leggja meiri áherslu á að
taka fyrir þjónustustörf í stað
skipulagsstarfsemi áður og á næsta
ári myndi hreyfingin taka fyrir
málefni blindra barna.
Heiðursgestur þingsins er forseti
íslands, Vigdís Finnbogadóttir, og
sagði Eyjólfur að hún myndi taka
við sérstökum verðlaunum Kiwan-
ishreyfingarinnar fyrir að vera
fyrsta konan sem kjörin er í æðsta
embætti þjóðar sinnar í lýðræðis-
legum kosningum. Ávörp á þinginu
flytja þeir Ingvar Gíslason mennta-
málaráðherra og Davíð Oddsson
borgarstjóri.
Á þinginu verður kjörinn nýr for-
seti Evrópusambandsins en hver
forseti situr aðeins eitt ár í senn og
verður næsti forseti Eyjólfur Sig-
urðsson. í tilefni af þinginu verður
gefinn út sérstakur minnispeningur,
úr bronsi og silfri, einnig verður
opið sérstakt pósthús í Háskólabíói.
Póst- og símamálastjórnin hefur
látið gera sérstakan póststimpil í
tilefni af þinginu og verða umslög
merkt þinginu til sölu á staðnum.
Listahátíð að Kjarvalsstöðum:
Kammerverk eftir
Hafliða og Guðmund
á tónleikum 1 dag
Guðmundur Hafsteinsson og Haf-
liði Hallgrimsson eru þau íslenzku
tónskáld sem eiga kammerverk sín á
tónleikum að Kjarvalsstöðum i dag.
Þetta eru næstsíðustu tónleikarnir í
kynningu íslenzkrar kammertónlistar
að Kjarvalsstöðum á Listahátíð.
Verk Guðmundar Hafsteinsson-
ar heitir „Brunnu beggja kinna
björt ljós“, en það er tríó fyrir klar-
ínett, selló og píanó, og flutt af
Noru Kornblue, Óskari Ingólfssyni
og Snorra Sigfúsi Birgissyni.
Verkið er samið að frumkvæði
Musica Nova og tileinkað Óskari
lladidi (lUÓmundur
MallgrímssGn llafsteinsson
Ingólfssyni. Það er að formi til ein-
þáttungur í fjórum atriðum sem
eru skýrt afmörkuð. Titillinn er
tekinn úr vísu eftir Kormák Ög-
mundsson.
„Fimm stykki fyrir píanó“ heitir
verk Hafliða Hallgrímssonar en pí-
anóleikarinn er Halldór Haralds-
son. I efnisskrá segir tónskáldið
um verkið: „Þessi stuttu verk fyrir
píanó eru upphaflega samin sem
æfingar eða undirbúningur fyrir
stærra píanóverk. Ég hafði til
hliðsjónar nokkur eigin ljóð meðan
unnið var að þessum stykkjum,
ráða ljóðin því nokkru um stemmn-
ingu og efnismeðferð hverju sinni.
Einnig var ég að kanna vinnubrögð
sem felast í því að lýsa atburðum
með nótum. Stykki nr. 1, 2, 3 og 5
eru nátengd, þau eru öll unnin úr
sama efnivið. Stykki nr. 4 er aftur
á móti eldra og lítið sem ekkert í
ætt við undantalin verk.“
Tónleikarnir að Kjarvalsstöðum
í dag hefjast kl. 17, og er aðgangur
að þeim ókeypis, svo sem að öðrum
atriðum sem fram fara að Kjar-
valsstöðum á Listahátíð.
Tvær forsýningar verða á leikritinu Skilnaður eftir Kjartan Ragnarsson, í kvöid og svo aftur á sunnudagskvöld,
í tilefni Listahátíðar.
„Skilnaður er
mjög töff leikrit“
AÐ UNDANFÖRNU hafa sUðið
yfir í Leikfélagi Reykjavíkur æf-
ingar á leikritinu Skilnaður. Höf-
undur og leikstjóri er Kjartan
Ragnarsson en leikendur eru
Guðrún Ásmundsdóttir, Jón
lljartarson, Valgerður Dan,
Soffía Jakobsdóttir, Aðalsteinn
Bergdal og Sigrún Edda Björns-
dóttir. Tónlist er í umsjá Áskels
Mássonar, Steinþór Sigurðsson
sér um leikmynd og búninga, lýs-
ing er í höndum Daníels Will-
iamsson.
Á undanförnum 7 árum hafa
verið leikin eftir Kjartan 7
verk. Skilnaður er það 8. í röð-
inni. Áður hafa verið sýnd:
Saumastofan, Týnda teskeiðin,
Blessað barnalán, Snjór, Ofvit-
inn, Jói og Peysufatadagurinn.
Leikritið Skilnaður fjallar,
eins og nafnið ber með sér, um
skilnað hjóna. Verkið gerist í
Reykjavík nú á dögum og
spannar nokkra mánuði í lífi
konu, eftir að maki hennar hef-
ur yfirgefið hana. Tekist er á
við að túlka innri og ytri ótta
hennar þar sem hún leitar að
— segir Kjartan
Ragnarsson sem
færir upp sitt átt-
unda leikrit á jafn
mörgum árum
nýjum leiðum og berst fyrir því
að lifa eins og manneskja. Tvær
forsýningar verða á verkinu á
Listahátíð en leikritið verður
formlega frumsýnt nú í haust.
Aðspurður kvaðst Kjartan
með þessu leikriti vera að gera
tilraun með að breyta forminu
á leiksviðinu i Iðnó. Sett hefur
verið upp hringsvið, þar sem
áhorfendur sitja allt í kring.
„Við erum að sýna fram á
þörf okkar fyrir Borgarleikhús-
ið og þörf á breyttu leikrými.
Leiklistin hefur svo mikið upp á
að bjóða í rými sem gefur mikla
möguleika. Á þessu leiksviði
getum við vanið okkur við þann
leikmáta sem í Borgarleikhús-
inu mun tíðkast," sagði Kjartan
er blaðamaður Morgunblaðsins
leit inn á æfingu á Skilnaði á
miðvikudag.
„Skilnaður er mjög töff leik-
rit, ekki beinlínis alvarlegt
verk, en í því er mikil spenna og
nokkuð af ofbeldi eins og stund-
um vill verða í mannlegum
samskiptum. Ég er kannski
þekktari fyrir grínleikrit, en af
þessum átta leikritum sem ég
hef gert eru a.m.k. þrjú þeirra
alvarlegs eðlis. Leikrit geta
kannski komið fyrir sjónir
manna sem góðlátlegt grín, en
oft leynist undir andstyggileg
alvara. I þessu verki höfum við
valið þá leið að notast við til-
tölulega einfalt leiksvið, en
þess í stað notum við 4 rása
hátalarakerfi, sem segja má að
komi í stað tilfæringa á leik-
sviði, þannig að áhorfandinn
skynjar breytingar á umhverfi.
Auðvitað er ég alltaf með
eitthvað nýtt á prjónunum og
uppfullur af hugmyndum, en ég
er þó ekki byrjaður að skrifa
neitt nýtt,“ sagði Kjartan
Ragnarsson.
OPIÐIDAG10-14
HEIMSMEISTARAKEPPNIN
IKNATTSPYRNU Á SRÁN11982
i FERÐAMIÐSTÖOIIM SSSi