Morgunblaðið - 19.06.1982, Blaðsíða 14
\ 4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ1982
Suðurland Fréttaskýring
Stórsigur í Vestmannaeyjum
— Meirihluti í Hveragerði
SjálfstKðisflokkurinn hlaut 6 af 9 bæjarfulltrúum í Vestmannaeyjum, vann
einn af Alþýðubandalagi og einn af Alþýðuflokki.
Sjálfstæðisflokkurinn vann hreinan meirihluta í Hveragerði, hlaut 4 af 7
fulltrúum kjörna.
Sjálfstæðisflokkurinn jók atkvæðamagn sitt um 44,34% á Selfossi, hlaut 4 af
9 bæjarfulltrúum.
Á Suðurlandi bjuggu 17% lands-
manna um sl. aldamót — en 8,6%
árið 1980. Fram undir 1950 var þar
veruleg fækkun í strjálbýli, en síðan
hefur dregið mjög úr henni. Eyrar-
bakki og Stokkseyri vóru mikilvægir
verzlunarstaðir um aldamótin, en
eftir að vöruflutningar hófust á landi
um Ölfusárbrú smækkaði gildi
þeirra sem verzlunarstaða. Þar var
fólksfækkun fram til 1960, en síðan
hefur ibúatala beggja staðanna vax-
ið nokkuð. Mest hefur fólksfjölgun
orðið á Selfossi, Hellu, Hvolsvelli,
Hveragerði og Þorlákshöfn. Vík i
Mýrdal hefur vaxið mun hægar. Þá
er ótalihn stærsti þéttbýlisstaðurinn
í kjördæminu, Vestmannaeyjar. Þar
óx byggð stöðugt fram til ársins
1972, en þá bjuggu þar 5.300 manns.
íbúatala Eyjanna í dag er nálægt
4.740, en hún hefur ekki enn komizt
í það sem hún var fyrir gosið í
Heimaey.
Hafnleysa —
sveitaþéttbýli
Suðurland hefur það sérkenni
að búa við nær algjört hafnleysi,
ef Þorlákshöfn er undanskilin (og
að sjálfsögðu sjávarperlan: Vest-
mannaeyjar). Þessvegna hefur at-
vinnulíf þróazt þar með öðrum
hætti en víðast á landinu.
Annað sérkenni Suðurlands er
það, að þar eru allar stórvirkjanir
Orkuver en
enginn orku-
iðnaður
landsmanna staðsettar, þó engin
finnist þar stóriðjan. Þar hefur og
orðið til sérhæfður vinnuhópur við
stórvirkjanir, sem kann að verða
vant verkefna áður en langir tím-
ar líða, ef ekki verður við brugðið
skjótlega.
Þriðja sérkennið er sveitaþétt-
býlið, kauptún fjarri sjó, s.s. Sel-
foss, sem reyndar er kaupstaður,
Hveragerði, Hella og Hvolsvöllur,
en allir eru þessir staðir talandi
dæmi um starfsvettvang, sem ís-
lenzkur landbúnaður skapar til
hliðar við bústörfin sjálf. Svipuðu
máli gegnir raunar um Vík í
Mýrdal, þó þar leiki sjávarloft um
byggðina.
A Suðurlandi búa nú nálægt 20
þúsund manns, rúml. 13 þús. í
þéttbýli, tæpl. 7 þús. í strjálbýli.
Þar af eru um 8.200 taldir starf-
andi. Tæplega 1.900 (23,2%) starfa
beint við landbúnað; rúmlega
1.800 (22,1%) við fiskveiðar og
fiskvinnslu; við ýmsar iðngreinar
1.870 (23,9%) og við þjónustustörf
(verzlun, opinber þjónusta) 2.610
(31,9%). Jafnari gat skiptingin
naumast verið.
Framtaldar brúttótekjur fram-
teljendanna á Suðurlandi vóru
mjög nálægt landsmeðaltali allan
sl. áratug. Atvinnuöryggi í kjör-
dæminu þykir þó ekki traust, m.a.
vegna breytinga í virkjunarmál-
um.
Stórsigur í
Vestmannaeyjum
Sigur Sjálfstæðisflokksins í Vest-
mannaeyjum í sveitarstjórnar-
kosningunum 22. maí sl. á vart
sinn líka í íslenzkri stjórnmála-
sögu. Flokkurinn hlaut 58,9% at-
kvæða, jók atkvæðatölu sína um
rúmlega 63% og hlaut 6 bæjar-
fulltrúa kjörna af 9. Hægri sveifla
í þjóðfélaginu nægir ekki ein til
skýringar á þessum úrslitum. Hér
hlýtur, auk hennar, að fara saman
óvenju sterkur framboðslisti og
frábært kosningastarf. Sjálfstæð-
isflokkurinn fékk 891 atkvæði og 4
fulltrúa í bæjarstjórn Vestmanna-
eyja 1978 en 1453 atkvæði og 6
fulltrúa nú.
Alþýðuflokkurinn hlaut 22,3%
atkvæða 1978 og 2 fulltrúa en nú
14,1% atkvæða og aðeins 1 full-
trúa. Tapaði fulltrúa til Sjálfstæð-
isflokks.
Alþýðubandalag hlaut 26% at-
kvæða 1978 og 2 fulltrúa en 15,5%
1982 og 1 fulltrúa nú. Tapaði einn-
ig fulltrúa til Sjálfstæðisflokks.
Framsóknarflokkur hlaut 11,5%
atkvæða nú — hafði 13,3% 1978 —
og 1 fulltrúa.
Hægri sveifla
á Selfossi
Sjálfstæðisflokkurinn vann um-
talsverðan sigur á Selfossi, jók at-
kvæðamagn sitt úr 469 atkvæðum
(28,1%) 1978 í 677 atkvæði (36,5%)
nú — og hlaut 4 bæjarfulltrúa af
9. Fylgisaukning frá 1978 er
44,34%.
Framsóknarflokkurinn fékk 559
atkvæði — 30,1% (571 atkvæði og
29,2% 1978). Flokkurinn tapaði
bæjarfulltrúa til Sjálfstæðis-
flokksins.
þéttbýliskjarn-
ar í landbún-
aöarhéruðum
Alþýðuflokkurinn fékk 203 at-
kvæði (10,9%) og 1 fulltrúa og Al-
þýðubandalag 249 atkvæði (13,4%)
og 1 fulltrúa. Óháðir fengu 168 at-
kvæði (9,1%) en engan fulltrúa
kjörinn.
Hreinn meirihluti
í Hveragerði
í Hveragerði var fulltrúum fjölg-
að úr 5 í 7. Þar hlaut Sjálfstæðis-
flokkurinn 339 atkvæði og hreinan
meirihluta, 4 fulltrúa kjörna.
Framsóknarflokkurinn kom næst-
ur að atkvæðamagni með 184 kjós-
endur og 2 fulltrúa. Alþýðubanda-
lagið hlaut 108 atkvæði og 1 full-
trúa. Fleiri framboð vóru ekki.
1978 hlaut Sjálfstæðisflokkur-
inn 257 atkvæði og 2 fulltrúa,
Jafnaðar- og samvinnumenmn 186
atkvæði og 2 fulltrúa, Alþýðu-
bandalag 116 atkvæði og 1. Fylgis-
aukning Sjálfstæðisflokksins í
Hveragerði er 24,2%.
Önnur kosninga-
úrslit
Sjálfstæðisflokkurinn vann
hreppsnefndarfulltrúa í Þorláks-
höfn, hlaut 147 atkvæði (24,9%) og
2 fulltrúa (hafði 1), Framsóknar-
flokkurinn hlaut 158 atkvæði
(26,8%) og 2 fulltrúa. Alþýðu-
flokkur 134 atkvæði (22,7%) og 1
fulltrúa og Óháðir 151 atkvæði
(25,6%) og 2 fulltrúa. Atkvæða-
hlutfall framboðsaðila er því mjög
svipað. í Þorlákshöfn var sveitar-
stjórnarfulltrúum nú fjölgað úr 5 í
7.
Á Eyrarbakka hlaut óháður listi,
I-listi, hreinan meirihluta — 148
atkvæði og 4 fulltrúa. Sjálfstæð-
ismenn fengu 91 atkvæði og 2 full-
trúa og Framsóknarflokkur 46 at-
kvæði og 1 fulltrúa. A Eyrarbakka
var óhlutbundin kosning 1978.
Á Hvolsvelli hlaut H-listi
áhugamanna 213 atkvæði (56,2%)
og 3 menn kjörna. I-listi sjálf-
stæðismanna og frjálslyndra 166
atkvæði (43,8%) og 2 fulltrúa. Þar
var óhlutbundin kosning 1978.
Sjálfstæðisflokkurinn tapaði
fulltrúa bæði á Stokkseyri og Vík í
Mýrdal. Alþýðubandalag hlaut
flest atkvæði á Stokkseyri, 87
(28,7%) og 2 fulltrúa, sameiginleg-
ur listi Framsóknarflokks og Al-,
þýðuflokks 81 atkvæði (26,7%) og
2 fulltrúa, H-listi óháðra 76
(25,1%) og 2 fulltrúa og Sjálfstæð-
isflokkur 59 atkvæði (19,5%) og 1
fulltrúa. í Vík í Mýrdal hlaut
Framsóknarflokkur flest atkvæði,
108 (40,4%) og 2 fulltrúa, Z-listi
umbótasinna 81 (30,3%) og 2 full-
trúa og Sjálfstæðisflokkur 78 at-
kvæði (29,2%) og 1 fulltrúa.
Horft um öxl —
og fram á við
Sú atkvæðaaukning, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hlaut í kaupstöð-
um Suðurlandskjördæmis, Vest-
mannaeyjum og Selfossi, og kaup-
túnahreppunum Hveragerði og
Þorlákshöfn, bendir ótvírætt til
þess, að fylgi hans fari vaxandi í
kjördæminu. Hinsvegar varð
flokkurinn fyrir nokkru áfalli á
bæði Stokkseyri og í Vík í Mýrdal.
Á heildina litið eru úrslitin þó
mjög jákvæð.
I síðustu Alþingiskosningum
buðu sjálfstæðismenn í Suður-
landskjördæmi fram tvo fram-
boðslista: flokkslista, sem fékk
2.428 atkvæði, og hliðarlista, sem
fékk 1484 atkvæði. Af flokkslista
hlaut kosningu Steinþór Gestsson,
bóndi, en Guðmundur Karlsson,
framkvæmdastjóri, varð uppbót-
arþingmaður. Af L-lista hlaut
kosningu Eggert Haukdal, bóndi.
Meginástæða þess að framboðin
urðu tvö mun hafa verið sú að
ágreiningur var milli svæða í kjör-
dæminu, en víða um land hugsar
fólk enn í „gömlu kjördæmaskip-
aninni", ef svo má að orði komast.
Steinþór Gestsson hefur verið
einn helzti talsmaður landbúnaðar
á Alþingi, en Guðmundur Karls-
son skeleggur málsvari sjávarút-
vegs. Það hefur lengi verið einn
meginstyrkur Alþingis, að mínum
dómi að þar hafa setið fulltrúar
sem eru sprottnir svo að segja úr
kviku hinna ýmsu atvinnugreina,
og því í jarðsambandi bæði við
fólk og framtak í þjóðfélaginu.
Megi slík tengsl vara sem lengst.
Eggert Haukdal, sem kjörinn
var af L-lista, tók sæti í þingflokki
sjálfstæðismanna. m.a. fyrir til-
stilli þeirra Steinþórs og Guð-
mundar. Hann telst til þeirra
þingmanna flokksins sem styðja
núverandi ríkisstjórn, en hefur
oftlega greitt atkvæði með málum
sem þingflokkurinn hefur borið
fram. í Suðurlandskjördæmi, eins
og í Norðurlandskjördæmi vestra
og Vesturlandskjördæmi fara
þingmenn flokksins því ekki sama
veg í afstöðu til ríkisstjórnarinn-
ar.
Eftir því sem næst verður kom-
izt mun það ofarlega í hugum
fólks, að framboðsmál flokksins á
Suðurlandi verði að leysa með
prófkjöri. Jafnframt mun sú skoð-
un almenn, að í því prófkjöri verði
að taka tillit til hinnar gömlu
kjördæmaskipunar; þann veg, að í
fjögur efstu sætin í prófkjöri nú
megi ekki setja nema einn úr
hverju hinna gömlu kjördæma
(Vestmannaeyjar, Árnessýsla,
Rangárvallasýsla, V-Skaftafells-
sýsla). Þá mun og hafa borizt í tal
að hafa eins konar forprófkjör í
hverju þessara gömlu kjördæma
til að velja frambjóðendur í aðal-
prófkjörið, væntanlega þá 3 frá
hverju svæði, en 12 menn alls
skipa framboðslistann. Engar
formlegar viðræður munu hafa fa-
rið fram, enn sem komið er, um
þetta efni, en fullur hugur er í
sjálfstæðisfólki í Suðurlands-
kjördæmi, eins og annars staðar,
að standa og sigra saman í næstu
Alþingiskosningum, hvenær sem
þær ber að garði.
I síðustu þingkosningum féllu
atkvæði svo í kjördæminu: Sam-
eiginlegt atkvæðamagn D- og
L-Iista var 3.912 atkvæði, B-listi
3.357, G-listi 1.544 og A-listi 1.535.
Ef sjálfstæðismenn í Suðurlands-
kjördæmi nýta sér vel þann byr,
sem þeir fengu frá fólki í nýliðn-
um sveitarstjórnarkosningum,
ætti siglingin til samátaks og sig-
urhafnar að verða þeim möguleg.
— sf