Morgunblaðið - 19.06.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.06.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1982 3 Fjölmenni í 25 ára afmælis- hófi Barnaspítala Hringsins „ÞESSI stofnun er dýrasti hlekkurinn í heilbrigðisþjónustukeðju landsins," sagði Davíð Gunnarsson, forstjóri rík- isspítalanna, í rteðu sem hann flutti í gsr, er þess var minnst að 25 ár eru liðin frá því að Barnaspítali Hringsins var stofnsettur. „Það er dýrt að reka fullkomið sjúkrahús allan sólarhring- inn, en við erum alltaf reiðubúin til að taka á móti sjúklingum alls staðar að af landinu. Við erum ófeimin við að bera okkur saman við hliðstæðar stofnanir, því barnadauði hér er með því allra minnsta sem gerist," bstti hann við. Lét Davíð þess getið, að þegar deildin var sett á laggirnar fyrir 25 árum hefðu starfandi læknar við hana verið 2 og sjúkrarúmin 30. Nú eru starfandi 7 læknar, 31 hjúkrun- arfræðingur og 14 sjúkraliðar, auk annars starfsfólks, og rúm nær 70 talsins. Þetta væri tákn um breytta tíma í heilbrigðisþjónustu, sagði Davíð. Hann lét þess sérstaklega getið, að án ómetanlegrar aðstoðar Hrings-kvenna, sem safnað hefðu óhemju miklu fé undanfarin ár, væri allsendis óvist að barnadeildin væri stödd þar sem hún væri nú og tækjabúnaður hennar ekki sá, sem hann er í dag. Mikið fjölmenni var í gærdag saman komið í matsal Landspítal- ans til að minnast þessa merkisaf- mælis. Lætur nærri að hátt á annað hundrað manns hafi verið þar sam- an komið, jafnt Hrings-konur sem læknar, annað starfsfólk sjúkra- hússins og velunnarar. Reyndar er afmæli barnaspítalans í dag, 19. júní. Svavar Gestsson, heilbrigðis- og tryggingarmálaráðherra, tók næst- ur til máls og minnti viðstadda á nauðsyn þess að standa saman í svo litlu þjóðfélagi sem okkar. „Þjóðin verður að gera kröfur, en á móti þurfa að koma fórnir," sagði ráð- herra. Lagði hann áherslu á, að börn ættu að vera miðpunktur félagslegr- ar þjónustu. „Þjónusta við börn á að vera sú besta, sem völ er á hverju sinni,“ sagði Svavar. Sagði hann ' ennfremur að hann tæki ekki undir þær kröfur, sem fram hefðu komið um að draga úr gæðum heilbrigðis- þjónustu. Síðan sagði hann: „Við stöndum frammi fyrir efnahagsvandamálum og þau mega ekki gleymast í fögnuði dagsins." Benti hann ennfremur á, að þrátt fyrir raddir um að skera bæri niður fjárútlát til heilbrigð- ismála í þeim efnahagsvanda, sem nú steðjaði að þjóðinni, væri ekki annars að vænta en leið fyndist út úr honum ef fólk stæði saman eins og verið hefði. Að því loknu rakti Víkingur Arn- órsson, prófessor, sögu spítalans í grófum dráttum. Sagði hann, að það hefðu verið konur, sem vakið hefðu máts á nauðsyn byggingar Lands- spítalans fyrir hartnær sex áratug- um og það hefðu einnig verið konur, sem sáu fyrstar nauðsyn þess að reisa sérstakan barnaspítala. í fundargerð Kvenfélags Hrings- ins frá árinu 1942 er bókað að stefnt skuli að fjársöfnun vegna barna- sjúkrahúss. Var það síðan upp úr 1950, er ekkert hafði gengið né rekið í þeim efnum, að samkomulag tókst á milli byggingarnefndar Landspít- alans og Hringsins að sjóður þeirra rynni til nýbyggingar, sem hefjast átti handa við, geg i því að stofnuð yrði barnadeild innan sjúkrahúss- ins. Deildin var síðan formlega opnuð í bráðabirgðahúsnæði 19. júní 1957 og komu 11 sjúklingar fyrsta dag- inn. Átta árum síðar var deildin flutt í núverandi húsnæði í nýbygg- ingu Landspítalans. Vegna einstaks áhuga og elju Hrings-kvenna var ákveðið að kenna deildina við Kven- félagið. Er nú alla jafna talað um Barnadeild Hringsins. Frá því deildin var stofnuð hafa orðið miklar breytingar og allt at- hafnasvæði sjúklinga, jafnt sem starfsfólks, aukist að miklum mun. Rúmafjöldi hefur tvöfaldast, eru þau nú 67 talsins, voru 30 við stofn- un deildarinnar. Skýrði Víkingur frá því að árið 1970 hefðu komið 1338 sjúklingar inn á deildina og dvalið að meðaltali 13,3 daga. Tíu árum síðar, 1980, hefðu 2134 sjúklingar komið inn en ekki dvalið nema 8,2 daga að meðal- tali. Á þessum tölum mætti glöggt sjá aukna þörf fyrir barnaspítala, en um leið að með aukinni tækni og meiri þekkingu styttist legutími verulega. 1 lok erindis síns lagði Víkingur á það þunga áherslu, að þó húsnæði deildarinnar væri í sjálfu sér viðun- andi í dag, þótt ekki væri það hann- að sérstaklega fyrir börn, þýddi ekki að horfa framhjá þeiri staðreynd að barnasjúkrahús væri það sem þyrfti og koma skyldi. „Við höfum til þessa talað fyrir daufum eyrum allra nema Hrings-kvenna,“ sagði Víking- ur. „Ég veit að þær eru ávallt reiðu- búnar til hjálpar um leið og merki er gefið." Þá tók frú Sigríður Johnsen, for- maður Kvenfélagsins Hringsins, til máls. Flutti hún stutt yfirlit um að- dragandann að stofnun barnadeild- arinnar. Lauk hún máli sínu með því að leggja áherslu á, að vonandi væri þess ekki langt að bíða að nýtt barnasjúkrahús risi af grunni. „Margar hendur Hrings-kvenna munu styðja þar við,“ sagði hún. Samkomunni lauk með stuttu ávarpi Högna Óskarssonar, for- manns læknaráðs Landspítalans, þar sem hann færði Hrings-konum blómvönd, sem þakklætisvott fyrir frábært samstarf og stuðning und- anfarin 25 ár. Kvaðst Högni vonast til að þetta samstarf mætti endast um ókomna framtíð. Var því næst boðið til kaffidrykkju. I lokin var öllum þeim, er áhuga höfðu á, gefinn kostur á að skoða barnadeildina undir leiðsögn for- stöðumanna Landspitalans og lækna. Nýttu fjölmargir sér það boð og skoðuðu um leið tæki það sem Hringskonur gáfu í tilefni dagsins. Er um að ræða klefa, sem notaður er til lyfja- og eiturefnablöndunar. Er þannig gengið frá hnútum að úti- lokað á að vera, að viðkomandi kom- ist í snertingu við efnin. Hefur slík- ur klefi ekki verið í notkun hér- lendis áður. Stjórn Skallagríms ásamt framkvæmdastjóra. Talið frá vinstri: Arnmund- ur Baekman og Gústaf B. Einarsson, Reykjavík, Magnús Kristjánsson, Norðtungu, Elís Jónsson, Borgarnesi, Guðmundur Vésteinsson og Helgi Ibsen, Akranesi. Ljósm. Mbl.: Júlíus Þóróarson. Nýja Akraborgin kom 17. júní Akranesi, 18. júni. MIKILL fjöldi Akurnesinga tók á móti nýju Akraborginni er hún kom til heimahafnar að morgni þjóðhátíðardagsins, 17. júní, eftir átta og hálfs sólarhrings siglingu frá Kanaríeyjum, en þaðan er skip- ið keypt. Viðkoma var höfð i Vigo á Spáni, þar sem tekin var olía. Akraborg er 887 tonn að stærð, smíðuð í Noregi árið 1974. Heimsigiing skipsins gekk mjög vel og haggaðist skipið varla, að sögn skipverja. Skipið er búið stöðugleikauggum sem koma í veg fyrir velting í mis- jöfnum veðrum og er Akraborg- in eina íslenzka skipið, sem hef- ur slíkan útbúnað. Akraborg getur flutt á milli 70 og 75 bíla í ferð, en gamla Akraborgin flytur 40—42 bíla. Allur búnaður fyrir farþega er hinn glæsilegasti, meðal annars eru farþegasalir þrír. Menn geta haldið áfram að stilla klukkur sínar eftir ferðum nýja skipsins, eins og þess gamla, en sjóferðin milli Reykja- víkur og Akraness tekur eina klukkustund. Ef skipinu væri siglt á fullri ferð, gæti það farið á milli staðanna á 40 mínútum, en siglt verður hægar til að spara eldsneyti. Aðalvélar eru tvær, sænskar af Nohab-gerð, 1155 hestöfl hvor. Hjálparvélar eru af gerð- inni Mercedes Benz, 147 hestöfl hver, 120 kílówatta raflar eru tengdir við vélarnar. Bógskrúfa er vökvaknúin, 300 hestöfl af Ulstein-gerð. Einnig er í skipinu 90 hestafla hafnarljósavél. Áætlun Akraborgar helst óbreytt, þ.e. 4 ferðir á dag auk kvöldferða á föstudögum og sunnudögum í júní, en í júlí og ágúst verða kvöldferðir alla daga vikunnar nema laugardaga. Gamla Akraborg hefur nú þjónað Akurnesingum og raunar öllum landsmönnum um 8 ára skeið og hefur sú þjónusta verið til mikillar fyrirmyndar. Það er von hlutaðeigandi að með til- komu nýja skipsins muni sam- göngur milli Reykjavíkur og Vestur-og Norðurlands enn fara batnandi. Skipstjóri á Akraborg er Þor- valdur Guðmundsson og fram- kvæmdastjóri hf. Skallagríms er Helgi Ibsen. júiíus.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.