Morgunblaðið - 19.06.1982, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.06.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ1982 11 Zoltan Kocsis Tónlíst Jón Asgeirsson Píanósnillingurinn Zoltán Kocsis leikur óhugnaniega vel en oft án þess að vera hrífandi, því enn ríkir í túlkun hans meðvituð skilgreining á því sem hann er að gera. Öllu er raðað og má auð- veldlega merkja skynsamlega at- hugun flytjanda, sem að nokkru hindrar hann í sterkri lifun. Með öðrum orðum, leikur hans hallast nær vitrænni skilgreiningu verkanna en tilfinningalegri túlk- un. í tæknilegri útfærslu sinni er Kocsis við mörk hins fullkomna og í dálítið einhliða mótun blæ- brigða er hann meistari meðal meistara. Efnisskráin var of einhliða og hefði mátt t.d. sleppa Umritun pí- anóleikarans á Wagner. Slikar umritanir voru mjög vinsælar fyrir hundrað árum, þegar það var mikið tíðkað að raða saman því vinsælasta úr vinsælum óper- um og leika það með yfirflúraðri píanótækni og bókstaflega æra vitglóruna úr hlustendum, sem samkvæmt frásögnum mun hafa komið fram í svipaðri „hysteríu" og síðar hefur verið kennd við Bítlana. Það sem hallast á í efnisvalinu, er sú staðreynd, að flest öll verkin, svo góð sem þau annars eru einstök, eru að innihaldi meiri sýnisverk en skáldverk og í efn- isskrána vantar verk þar sem glímt er við fleira en tækni. Það hefði t.d. mátt leika öll sjö verkin úr ópus 11, eftir Kodaly, eða eitthvað eftir Mozart eða Beet- Zoltán Kocsis hoven. Tólf valsar (og vals sem aukalag) hversu glæsilega sem þeir eru leiknir, er nokkuð mikið af því góða. Eitt hefur dofnað fyrir yfirmáta mikla fágun í leik Kocsis og það er hljóðfallið. Það er orðið svo slípað að verkin eru nær alveg hrynlaus. Þó Valsarnir og Polonesan (opus 61) sé ekki ætluð til notkunar i danshúsum er uppruni þessara verka í gam- alli og nýrri danstónlist á þeim tíma er verkin voru samin. Yfir- gengilegur hraði i leik og ótrúleg- ur léttleiki kallar fram undrun en hlustandinn hefur aftur á móti verið sviptur dansinum og gleði hans. Á þann hátt er tónlistin að nokkru látin víkja fyrir markmið- um flytjandans og meðvituð sýn- ing hans farin að skipta meira máli en tónlistin sem flutt er. Þetta er sú hætta er margir leiksnillingar hafa lent í og ekki kunnað að forðast, þ.e. þann voða að brenna upp í aðdáun á eigin hæfni. Jón Ásgeirsson. r litskrúðuga og skemmtilega sýn- ingu. Bæði litur og lína eru not- uð hér á þann hátt, sem flestir vildu beita, en fáir valda. Feiknalega fallegt auglýsinga- plakat fylgir þessari sýningu, og mér er sagt, að það hafi selst upp á fyrstu mínútum sýningarinn- ar. Þar er hestur á rauðum grunni, og enn er hægt að sjá það við inngang sýningarinnar. Einnig eru til sölu á þessari sýn- ingu bækur og kortaseríur, svo að eitt og annað ætti að ílendast að sýningu þessari lokinni. En auðvitað eru áhrif hennar það, sem máli skiptir, og ég vonast til að sjá þau hjá okkar lista- mönnum áður en langt um líður. Frábær sýning. Westinghouse hitavatnsdunkar Höfum fyrirliggjandi Westinghouse hitavatnsdunka í 4 stæröum: TR 221 20 gallon - 80 lítrar TL 522 52 gallon - 200 lítrar TL 622 66 gallon - 250 lítrar TL 822 82 gallon - 300 lítrar Vandlátir velja Westinghouse KOMIÐ-HRINGIÐ-SKRIFIÐ viö veitum allar nánari upplýsingar. Kaupfélögin um allt land 1/éladeild Sambandsins Ármúla 3 Reykiavik Simi 38900 Aldrei höfum við boðió eins glæsilegt úrval og núna af notuðum Mazda bílum í 1. flokks ástandi og með 6 mánaða ábyrgó. Nú þurfið þid ekki lengur ad vera sérfræðingar i þvi að velja og kaupa notaðan bil, þvi að þið athugið útlit bilsins, ástand hjólbarða og annars sem sést og við ábyrgjumst þaö sem ekki sést. Athugið sérstaklega að verð notaðra bila hefur lækkað eins og nýrra. Komió því á sýninguna í dag og tryggið ykkur úrvals Mazda bíl fyrir sumarið, meóan lága verðið helst. BILABORG HF Smiðshöfða 23. sirni 812 99

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.