Morgunblaðið - 19.06.1982, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.06.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ1982 19 STUND MILLI STRÍÐA. Ung líbönsk kona meö dóttur sína á handleggnum fyrir framan fyrrum heimili sitt í Tyros, en þaö var lagt í rúst í loftárás israela á borgina fyrr í mánuöinum. ap. Líbanonsmálið: Lausnin felst í að leysa vanda Palestínumanna Óþekktur kafbátur í fínnskri lögsögu Hel.sinki, 18. júní. AP. FINNSKT varðskip stuggaði sl. mið- vikudag við óþekktum kafbáti, sem vart varð innan lögsögunnar við Álandseyjar, að því er segir í til- kynningu frá finnsku strandgæsl- unni í dag. í tilkynningunni segir, að kaf- báturinn hafi komið úr norðri og stefnt suður innan finnskrar lög- sögu og „í samræmi við fyrirmæli hafi báturinn verið hrakinn á brott með viðvörunarskotum". Ekki var þess getið hve mörgum var skotið að kafbátnum. Vart varð við kafbátinn 16. júní sl. og er talið að þar hafi verið um að ræða sama bátinn og sænska strandgæslan eltist við norðar fyrir Eystrasaltsbotni. Dollar upp gull niður London, 18. júní. AP. GULLVERÐ er nú lægra en það hef- ur verið í 34 mánuði, en gengi bandaríska dollarans er hins vegar hærra en nokkni sinni fyrr. Gull- kaupmenn í Ziirich segja gullverslun mjög óstöðuga og spá því að gullverð eigi eftir að falla enn frekar en doll- arinn að hækka vegna hárra vaxta. Gengi dollarans gagnvart gengi franska frankans, ítölsku lírunnar og kanadíska dollarans hefur aldr- ei verið hærra, en aðrir gjaldmiðl- ar eiga einnig í vök að verjast þrátt fyrir að verslun með gjald- miðla dróst saman í Evrópu vegna sumarleyfa hjá starfsmönnum á hinum stóra verðbréfamarkaði í Frankfurt. Breska pundið féll í verði eftir að athygli manna beindist frá sigrinum á Falklandseyjum að vaxandi efnahagsvandræðum inn- anlands, og hefur gengi þess ekki verið lægra síðan 23. ágúst 1977. Skæruliðar skjóta þyrlu — er álit dálka- og leiðarahöfunda í Bandaríkjunum Krá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Mbl. í Washington. RÍKISSTJORN Bandaríkjanna hefur harmað átökin i Líbanon en telur að innrás ísraela hafi verið ill nauðsyn til að losa Líbanon við hersveitir PLO og Sýrlendinga. Fræðimenn, dálka- og leið- arahöfundar. benda nú á að nú sé rétti timinn fyrir Bandaríkjamenn að leita varanlegrar lausnar á vandanum fyrir botni Miðjarðarhafs. Þeir eru sammála um að lausnin felist fyrst og fremst í að leysa vanda Palestínumanna sem hafa misst land siðan ísrael var stofnað. Leiðarahöfundar Washington Post og New York Times benda á, að ein- angrun PLO hafi komið í ljós við inn- rás ísraela. Sýrlendingar tóku ekki Veður víða um heim Akurayri 13 léttskýjað Amsterdam 1« skýjað Aþena 30 heiðskirt Barcalona 24 heiðskírt Bangkok vantar Balgraö vantar Bairut 3 vantar Berlín 20 skýjað BrUssal 24 rigning Buenos Aires vantar Chicago 12 alskýjað Dyflinni 18 skýjað Feneyjar 24 þokumóða Franklurt 20 heiðskfrt Genl 26 heiðskfrt Havana vantar Heisinki 13 skýjað Hong Kong 31 akýjað Jerúsalem 24 haiðskfrt Jóhannesarborg 17 haiðskfrt Kairó 33 haiðakfrt Kaupmannahöln 14 skýjað Las Palmas 23 skýjað Lissabon 23 rigning London 19 skýjað Los Angeles vantar Madrid 31 heiðskfrt Malaga 31 Mttskýjað Mallorca 29 léttakýjað Manila vantar Mexfkóborg 29 haiðakfrt Miami vantar Montreal vantar Moskva 14 helðekfrt Nýja Delhi 37 skýjað New York 21 skýjað Osló 18 haiðskfrt Paris 24 skýjað Peking vantar Porth 15 rigning Río de Janeiro 27 skýjað Reykjavfk 12 léttskýjað Róm 27 haiðskfrt San Francisco vantar Sao Paulo vantar Singapore vantar Stokkhólmur 16 heiðakfrt Sydney 18 hoiðskfrt upp vopn fyrr en þeim var ógnað, aðr- ar arabaþjóðir sátu hjá og Sovétríkin hótuðu ekki Israelum fyrr en verstu bardagarnir voru yfirstaðnir. New York Times segir að Bandaríkja- stjórn eigi nú að reyna að draga aðra fulltrúa Palestínumanna inn í samn- ingaviðræðurnar um Líbanon og nota þær til að semja við Israela um Vest- urbakkann og Gaza. Blaðið segir að eina leiðin til að koma í veg fyrir frekara blóðbað á svæðinu sé að veita Palestínumönnum sjálfstjórn og heimaríki. Washington Post segir að nú sé tími til kominn fyrir Yasser Arafat að viðurkenna ósigur sinn og hreyfingar sinnar og sættast á að búa í friði við Israela. Stanley Hoffman, prófessor í Har- vard, var ekki eins vongóður um að átökin í Libanon geti leitt til friðar á svæðinu. Hann telur í grein sem birt- ist í New York Times í morgun að hætta sé á að mun herskárri sveitir Palestínumanna en PLO muni nú koma fram á sjónarsviðið og ráða stefnunni. Hann óttast að innrás ísraela muni ekki veita Líbanon aftur sjálfræði heldur skipta landinu upp í frekari hluta sem Israelar, herskáir Palestínumenn og Sýrlendingar, skipti með sér. Hoffman telur að staða Bandaríkjamanna á svæðinu sé nú veikari en áður þar sem Banda- ríkjastjórn virðist með öllu ófær um að hafa hemil á aðgerðum ísraela. Henry Kissinger, fv. utanríkisráð- herra, telur hins vegar að átökin í Líbanon hafi opnað leið til jákvæðra breytinga í Mið-Austurlöndum. Hann segir í grein sem birtist í Washington Post í morgun að Bandaríkjamenn geti unnið sér vini á svæðinu með því að beita sér fyrir sjálfstæði Líbanon, með því að styðja kröfur araba á Vesturbakkanum og stuðla að friði og jafnvægi á Arabíuskaga. Þetta krefst hins vegar styrkrar stjórnar, segir hann. Ekki er enn vitað hvort stjórn Ronald Reagans býr yfir þeim styrk. Bandaríkjastjórn hefur lítið að- hafst síðan ísraelar réðust inn í Líb- anon. Philip Habib er staddur í Mið- Austurlöndum og leitar friðar en Menachem Begin situr nú fund af- vopnunarráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna í New York. Meiningin var að hann hitti Reagan á mánudag en nú er látið að því liggja að Reagan kunni að hætta við þann fund þangað til Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að draga að sinni að tilkynna þinginu formlega um sölu F-16-orustuflugvéla að verðmæti 2,5 milljarða dollara til ísraels. Stjórnin studdi tillögu í Sam- einuðu þjóðunum á þriðjudag um frekari útgjöld til friðarsveita í Mið- Austurlöndum. Sveitirnar verða þar því áfram þótt þær hafi komið að litlu gagni á síðustu dögum. San Salvador, Kl Salvador, 18. júní. AP. SKÆRULIÐAR vopnaðir sjálfvirk- um rifflum skutu í dag niður þyrlu og með henni Adolfo Castillo aðstoð- arvarnarmálaráðherra er hann var á leið til að kanna bardagasvæðið í Morazan-héraði í gær, samkvæmt heimildum frá hinu leynilega útvarpi skæruliða. Þessi frétt var síðan staðfest af áreiðanlegum heimildum í höfuð- borginni, en heimildamaðurinn óskaði nafnleyndar. Útvarpsstöðin sagði að með þyrlunni hefði einnig verið Beltr- an Luna, yfirherforingi á bar- dagasvæðinu. Nánar var ekki vit- að um atburðinn í dag, en óstað- festar heimildir telja að þeir hafi báðir látist í árásinni. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna: John Woodward, aðmíráll og yfirmað- ur breska flotans á Suður-Atlantshafi. Það kom í hlut Jer- emy Moores, undir- hershöfðingja og yf- irmanns landgöngu- liðanna, að veita við- töku uppgjöf argent- ínska herliðsins. Reagan sakar Rússa um „einstæðan ofbeldisferil“ Sameinuðu þjóðunum, Moskvu, 18. júní. AP. RONALD Reagan, Bandaríkjafor- seti, flutti í gær, fimmtudag, ræðu á allsherjarþingi SÞ og var mjög harð- orður í garð Sovétmanna, sem hann sakaði um heimsvaldastefnu og „einstæðan ofbeldisferil**. Hann sagði, að Bandaríkjamenn hefðu barist fyrir eftirliti með vígbúnaði allt frá dögum síðari heimsstyrjaldar og að kominn væri tími til að Rússar sýndu á borði en ekki bara í orði vilja sinn i þeim efnum. Er litið á þessi orð hans sem svar við þeirri yfirlýsingu Gromykos, utanríkis- ráðherra Sovétríkjanna, að Rússar muni ekki verða fyrstir til að beita kjarnorkuvopnum. Rússar hafa brugðist mjög ókvæða við ræðu Reagans. í ræðu sinni sakaði Reagan Rússa um að hafa brotið núgild- andi samþykktir um eftirlit með vígbúnaði og Genfar-samþykktina frá 1925 um bann við notkun eit- urefna í hernaði. Reagan sagði, að allt frá lokun síðari heimsstyrjaldar hefði ferill rússneskra stjórnvalda einkennst af ofbeldi. Þeir kúguðu Austur- Evrópuríkin, hefðu komið upp Berlínarmúrnum, bælt niður frelsistilraunir Ungverja og Tékka og staðið að baki herstjórninni í Póllandi. „Sovétmenn styðja skæruliða og hryðjuverkamenn um heim allan og hermdarverk kommúnista í Suðaustur-Asíu, Afganistan og annars staðar eru öllum kunn,“ sagði Reagan. „Á þeim tíma, sem kenndur er við slökun spennu, hafa Rússar Ronald Reagan vígbúist sem aldrei fyrr en vest- ræn ríki hins vegar haldið að sér höndum," sagði Reagan og bætti því við, að samþykktir um tak- mörkun vígbúnaðar stuðluðu því aðeins að friði að þær væru haldn- ar. Gromyko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, sat hljóður undir ræðu Reagans og klappaði ekki að henni lokinni eins og aðrir þing- fulltrúar. í dag, föstudag, réðst Tass-fréttastofan rússneska, mjög harkalega á Reagan og sagði hann hafa „skrumskælt" utanríkis- stefnu Rússa og farið rangt með tölur um útgjöld þjóðanna til her- mála. Sagt var, að ræða Reagans gæti aðeins „vakið undrun og reiði almennings um allan heim“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.