Morgunblaðið - 19.06.1982, Side 28

Morgunblaðið - 19.06.1982, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ1982 Minning: Hjörleifur Jóns- son frá Giljum Fæddur 12. janúar 1888 Dáinn 13. júní 1982 Að vonum fækkar þeim óðum úr samfylgdinni, sem kenndir eru við aldamótakynslóðina. Einn úr þeirra hópi var móðurbróðir minn og náinn vinur, Hjörleifur Jónsson frá Giljum í Mýrdal, en hann lézt í Vífilsstaðaspítala 13. þ.m. Hafði hann legið þar rúmfastur nær óslitið um þriggja ára skeið og notið svo frábærrar aðhlynningar í hvívetna, að ég vil hér færa læknum og starfsliði á deild 2 al- úðarþakkir fyrir. Hjörleifur var fæddur 12. janú- ar 1888 og því rúmiega 94 ára að aldri, þegar hann kvaddi þennan heim. Hér lágu að baki mörg ár og flest starfsöm, en síðasti áratugur reyndist frænda mínum oft allerf- iður sökum brjóstþyngsla (asma). Varð hann þá að leita suður á Víf- ilsstaði um lengri eða skemmri tíma til þess að fá sæmilega heilsubót. En smám saman tók hann að mæðast í glímunni við þrálátan sjúkdóm og eins Elli kerlingu, sem öllum kemur á kné, þótt annað bætist ekki við. Að öðru leyti naut Hjörleifur óvenju- góðrar heilsu og þurfti aldrei að leita sjúkrahúsa fyrr en kominn var á níræðisaldur. Foreldrar Hjörleifs voru þau hjónin Sigríður Jakobsdóttir og Jón Jónsson, sem um margra ára- tugi bjuggu á Giljum í Mýrdal og komu upp stórum barnahópi. Alls urðu börnin 14, en hin skæða barnaveiki hjó skörð í þann hóp eins og svo víða hér á landi fram undir síðustu aldamót. Samt kom- ust níu barna þeirra Gilnahjóna til fullorðinsára, og nú' lifir hið yngsta, Sigríður, eitt eftir, 84 ára gömul. Af sjálfu sér leiðir, að ég þekkti allt þetta fólk mjög náið frá barn- æsku minni, en einhvern veginn hændist ég einna mest að þessum nýlátna frænda mínum. Hann var líka með afbrigðum barngóður, þótt ekki ætti fyrir honum að l.ggja að eignast sjálfur konu og börn. Ég naut þessa eiginleika hans í ríkum mæli. Hjörleifur eða Leifi, svo sem hann var venjulega kallaður, ólst upp í glöðum systkinahópi og vandist allri sveitavinnu, enda mun hann snemma hafa orðið lið- tækur vel við flest verk. Þegar ég man Leifa fyrst, rak hann búið á Giljum með Markúsi, bróður sín- um, og móður, því að faðir þeirra dó árið 1920. En að vetri til fór hann á togara og var um fjölmörg ár saltari og lengst á Braga. Hef ég fyrir satt, að hann hafi þótt vík- ingsmaður í því verki, ekki síður en við heyskapinn að sumarlagi, en þar var hann hamhleypa hin mesta. Leifi kynntist mörgum góðum dreng á togaraárum sínum og þá kom oft fram það, sem ég nefndi hér framar, hversu barngóður hann var. Þau urðu mörg börn samskipsmanna hans og raunar annarra einnig, sem nutu sumar- dvaiar á Giljum fyrir hans tilstilli á árunum frá um 1920 og fram yfir 1940, er gamla Gilnaheimilið leystist upp. Og sum börnin dvöld- ust þar jafnvel sumar eftir sumar og önnur samfellt um mörg ár. Hygg ég, að Leifi hafi hér átt drýgstan hlut að, enda hlynnti hann vel að þessu ungviði. Trúi ég ekki öðru en margur sumardval- argesturinn hugsi hlýtt til hans nú að leiðarlokum, ekki síður en ég. Þá er rétt að geta þess, að fyrir mitt minni eða skömmu fyrir 1920 dvaldist Leifi í Vestmannaeyjum og var um skeið aðstoðarmaður á gamla spítalanum hjá þeim kunna lækni Halldóri Gunnlaugssyni. Þar kom Leifi sér mjög vel eins og annars staðar, og var til þess tek- ið, hversu nærgætinn hann var við sjúklinga og léttur í lund. Ég minntist á það, að Leifi hefði verið hamhleypa við heyskapinn, en það var hann við öll þau störf, sem hann tók að sér. Um það er mér fullkunnugt frá samvistarár- um okkar á Giljum á hverju sumri frá um 1930 og fram á stríðsár. En hann þoldi engum hangs eða droll Móðir mtn. t andaöist 17. júni. VILBORG GUÐMUNDSDÓTTIR frá Þingeyri, Bjarni Skarphéðinsson. t Maöurinn minn, bróöir og afi, VALENTÍNUS ÓLAFUR VALDIMARSSON, verður jarösunginn mánudaginn 21. þ.m. kl. 13.30. Inga Jóhannesdóttir, Guðrún Valdimarsdóttir og afabörn. t Bestu þakkir fyrir hlýhug og vinsemd viö andlát LÁRU BJARNADÓTTUR, Hjarðarholti, Ólafsvík. Sérstakar þakkirfærum viö Kvenfélagi Ólafsvíkur, sem heiöraöi minningu hennar á rausnarlegan hátt. Birna Jónsdóttir, Sigurður Reynir Pétursson, Úlfljótur Jónsson, Ingíbjörg Pétursdóttir, Gísli Jónsson, Jóna Birta Óskarsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö móöur okkar, tengdamóöur og ömmu. viö andlát og jaröarför GUÐMUNDÍNU JÓNSDÓTTUR, Skúlagötu 64. Gróa Björnadóttir, Haraldur Jónsson, Vilhjálmur Sigurðsson, Jakobína Áskelsdóttir, Kristjana Sigurðardóttir og barnabörn. og þá gat okkur, unglingunum, þótt hann á stundum allvinnu- harður. En hann dró ekki heldur af sjálfum sér, og því gat hann leyft sér að gera kröfur til ann- arra. Eftir á kunna menn oftast að meta slíkan vinnuskóla og sjá þá, að hann var hollur. Hugmaður var frændi líka alla tíð og vildi láta verkin ganga. Mýrdælingar þekkja sjálfir bezt, hversu úr- komusamt er í sveitinni fögru og oft erfitt að þurrka töðuna. Eink- um var þetta erfitt fyrir daga súg- þurrkunar, og þá þurfti að nýta hverja glæfu sem bezt. Frændi minn var þar engin undantekning og leit þá oft til lofts eftir upp- styttu. Varð fleyg á heimilinu sú setning, þegar hann herti á mönnum til að halda á teig, að hann væri allur orðinn léttur und- ir og því mál að hreyfa sig. Hent- um við gaman að, en þetta litla dæmi lýsir Leifa vel, því að hann var í raun alla tíð bjartsýnismað- ur. Segja má, að tvær Sigríðar hafi haldið Gilnaheimilinu saman á síðustu árum þess. Önnur var sjálf húsmóðirin, amma mín, sem lá lengst af rúmföst þann tíma, sem ég man þaðan. Hafði hún búið þar með manni sínum frá 1880 og þar til hann lézt 1920. Eftir það bjó hún áfram næstu árin með sonum sínum, Markúsi og Hjör- leifi. Stóð Markús einkum fyrir búinu, því að hann var hættur að fara í útver, þegar hér var komið. Hin Sigríðurin var Þorsteinsdóttir og ævinlega kölluð Sigga gamla, þótt þær nöfnur væru nær jafn- aldra. Hafði hún komið í heimilið um svipað leyti og Leifi fæddist. Þjónaði hún heimilinu af mikilli dyggð og ósérplægni upp frá því, enda verður mér alitaf hlýtt um hjartarætur, þegar ég hugsa til hennar og sumardvalar minnar austur þar. Sigga gamla tók sér- stöku ástfóstri við Leifa nýfæddan og var eins og fóstra hans. Man ég vel, að hún hugsaði alltaf um plöggin hans og hefur trúlega gert frá upphafi. Sigríður, amma mín, lézt 1941, komin fast að níræðu, og Sigríður Þorsteinsdóttir 1943 um nírætt. Og með þessum gömlu konum lauk sögu Gilnaheimilis, sem staðið hafði rúm 60 ár og margur gamall Mýrdælingur man áreiðanlega enn fyrir glaðværð þá og gestrisni, sem það var rómað fyrir. Arið 1943 seldi Markús jörðina, og héldu þeir bræður þá báðir suð- ur á mölina í Reykjavík. Hjörleif- ur gerðist um stuttan tíma starfs- maður á Kleppi, en fljótlega réðst hann til starfa að Vífilsstöðum, sem þá var eingöngu berklahæli. Þar gekk hann að margs konar verkum til ársins 1961, en þá varð hann að víkja sökum aldurs. Hafði hann þó fengið að vinna nokkur ár fram yfir venju, enda óvenju- hraustur, og mest var það fyrir tilstuðlan Helga Ingvarssonar yf- irlæknis. Mat Helgi mjög störf Hjörleifs og samvizkusemi alla. Var og alltaf mikið vinfengi milli Hjörleifs og yfirlæknisfjölskyld- unnar. Þessi ár Leifa á Vífilsstöð- um voru mjög góð, og þar undi hann hag sínum vel. Þegar hann lét af störfum, flutt- ist hann í litla kjallaraíbúð að Sjafnargötu 1 og var þar síðan að mestu í skjóli systur sinnar og mágs, meðan hans naut við. A þessum árum bjó ég í sama húsi með fjölskyldu minni, og þar var sama saga og áður, að börn okkar hændust að Leifa frænda og áttu marga ferð niður til hans. Eru minningar okkar frá þessum árum margar skemmtilegar, því að Leifi kom öllum í gott skap með léttri lund og glampa í augum. Leifi borðaði hjá systur sinni, er hún var orðin ekkja, og var henni mikil stoð á marga lund. Áttu þau saman notalegt ævikvöld og gátu yljað sér við margar ljúfar minn- ingar frá bernskuheimilinu á Gilj- um. Og nú er saga frænda míns öll og ekkert við að segja um aldur- hniginn mann. Líkamsleifar míns elskulega frænda verða fluttar austur að Reyniskirkju, en þar beið hans legstaður um nær 40 ár, því að við hlið sinnar gömlu „fóstru" frá uppvaxtarárunum kaus hann að hvíla að leiðarlokum. Hafði hann raunar lofað henni því löngu áður en hún lézt. Þannig vitjar Leifi dalsins síns eftir langa fjarveru, og verður ekki annað sagt en þarna hafi tryggðin milli hans og Siggu gömlu náð út yfir gröf og dauða. í sama kirkjugarði að Reyni hvíla foreldrar hans og mörg systkini. Nú er leiðir skilur, vil ég segja þetta, elsku frændi; Vertu kært kvaddur af okkur öllum, og hafðu þökk fyrir langa og skemmtilega samfylgd. Jón Aðalsteinn Jónsson „Það heyrist ekki héraðsbrestur, þótt hrökkvi sprek í tvennt.“ Svo kveður Guðmundur Friðjónsson. Hljóðlega brast lífsþráður vinar okkar og frænda Hjörleifs Jóns- sonar frá Giljum hinn 13. þ.m. á 95. aldursári. Hér verður ekki rak- inn æviferill, það mun gert af öðr- um, aðeins þakkað fyrir langa samfylgd og órofatryggð og vel- gjörðir. Allar minningar okkar um Hjörleif eru bjartar og ljúfar. Þær eru sólskinsblettir á himni minninganna. Frá æskuheimili hans stafaði gleði og gestrisni móti hverjum, sem að garði bar. Sagt var, að móðir þeirra Gilnasystkina gengi hart eftir því við stúlkur sínar, að hundar næturgesta fengju sinn mat, áður en gestum var veittur beini. Þessi arfur fylgdi Hjörleifi allt að leiðarlokum. Annar sterkur þáttur í skap- höfn hans var gleðin. Aldrei var gáski hans bjartari og frjálsari en í hópi unglinga og æskufólks. Og engan vildu ungmennin frekar í sínum hópi en hann. Ef níðþung rosaský huldu him- ininn, og skap manna var eftir því um hábjargræðistímann, var haft eftir Hjörleifi: „Þetta er allt í lagi, hann er léttur undir." Hversu sæll er sá, er getur af sannfæringu miðlað öðrum slíkri lífsspeki. Og því er það, að við hjónin og börn okkar höfum svo mikið og margt að þakka honum, sem við nú kveðjum. Hönd hans var hlý og færandi. Hans létta lund kom með birtu í bæinn. Og nú, þegar hann er kvaddur, er ein systir á lífi af öllum Gilnasystkin- um, 14 fæddum, en 9, sem upp komust. Hjá þessari systur sinni, Sigríði, og manni hennar, Jóni Ormssyni rafvirkjameistara, átti Hjörleifur ávallt skjól, og var mjög kært með þeim systkinum. Hjartans samúðarkveðjur færum við henni við missi kærs bróður. Honum, sem er farinn, þökkum við allt og allt. Jóna og Jón Pálsson Minning: Kristberg Elísson skipaviðgerðarmaður Fæddur 5. september 1912 Dáinn 8. júní 1982 Laugardaginn 19. júní, verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkur- kirkju, Kristberg Elísson, skipa- viðgerðarmaður. Hann var fæddur og uppalinn í Grundarfirði að Vatnabúðum í Eyrarsveit, sonur hjónanna Vil- borgar Jónsdóttur og Elís Gísla- sonar. Kristberg var yngstur 9 systkina og eru þrjú þeirra eftir- lifandi. Hann hóf störf á sjónum aðeins 14 ára gamall, og reri þá með föður sínum á opnum vélbát, en 18 ára gamall var hann kominn á stærri báta og réri hann á ýms- um bátum sem gerðir voru út frá Grundarfirði, allt til ársins 1955, eða í hartnær þrjá áratugi. Kristberg kvæntist hinni ágæt- ustu konu, Elínu Sæmundsdóttur frá Arnabotni í Helgafellssveit, þann 28. október 1948, en hún er dóttir hjónanna Jóhönnu Elínar Bjarnadóttur og Sæmundar Guð- mundssonar. Hún er yngst 10 systkina og fluttist með fjölskyldu sinni tveggja ára gömui að Hraunhálsi í sömu sveit, þar sem hún ólst upp. Elín og Kristberg byrjuðu sinn búskap í Grundarfirði og bjuggu þar um 8 ára skeið. Þau urðu fyrir þeirri miklu sorg að fyrsta barn þeirra andaðist í fæðingu þann 1. október 1949. En árið eftir tóku þau í fóstur Guðnýju Elísdóttur f. 16. ágúst 1950, sem þá var aðeins 10 daga gömul, og óiu hana upp, og reyndust þau henni hinir bestu foreldrar. Þau eignuðust síðan tvo efnilega syni, þá Kristberg Elís, fæddur 14. febrúar 1955 og Jóhann Sævar, fæddur 28. ágúst 1958. í desember 1955 fluttist fjöl- skyldan suður til Njarðvíkur, þar sem þau hjónin höfðu fest kaup á íbúð að Hólagötu 41 og hafa þau ávallt búið þar síðan. Hóf Krist- berg störf við skipaviðgerðir hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur og vann hjá því fyrirtæki í um 26 ár, eða þar til hann veiktist nú fyrir skömmu af þeim sjúkdómi sem svo margan manninn hefur lagt að velli fyrir aldur fram. Eins og títt var um unga menn á svipuðu reki og Kristberg, alinn upp í litlu sjávarplássi úti á landi við fátækt og harðindi þar sem fá atvinnutækifæri gáfust og erfitt var að afla sér menntunar, þá gladdi það hann mikið að báðir synir hans, sem hófu störf hjá sama fyrirtæki og hann, þegar á unga aldri og urðu síðan nemar og í kjölfar þess fullnuma skipasmið- ir. Mér og konu minni er ljúft að minnast Begga og Ellu eins og við kölluðum þau er við gerðumst þeirra sambýlisfólk að Hólagötu 41, árið 1956, þegar við keyptum neðri hæðina í því húsi. Það var ekkert það til sem þau vildu ekki gera til að létta undir því verki sem fyrir lá, fyrir utan frábæra gestrisni, sem ávallt einkenndi það heimili. Sambúð okkar stóð í átta ár og bar þar aldrei skugga á og hefur tengt okkur sterkum vin- áttuböndum æ síðan. Börn okkar voru á svipuðu reki, og má sama segja um þeirra sam- band. Þau hjónin voru sérstaklega samhent og farsæl í sínu hjóna- bandi og má sgja að það sem ann-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.