Morgunblaðið - 26.06.1982, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1982
7
—
vantar
þig góóan bll?
notaóur - en í algjörum sérfbkki
k\h.: Opiö í dag
frá 1—5.
Til sölu þessi Skoda 120 LS árg. ’80. Sérstakur
bíll. Lítur út sem nýr og honum hefur aöeins
verið ekið af einum eiganda.
Nybylavegi 2 - Kopavogi
- Simi 42600
JÖFUR
HF.
POLYFONKORINN
CONCIERTO MUNDIAL
Hin fjölbreytta og skemmtilega efnisskrá Pólýfónkórsins
og hljómsveitar í Spánarferö — Concierto Mundial veröur
aöeíns flutt einu sinni hór á landi í Háskólabíói þann 29.
júní kl. 21.30.
Stjórnandi: Ingólfur Guðbrandsson.
Konsertmeistari: Rut Ingólfsdóttir.
Efnisskrá.
G.F. Handel: The Water Music.
D. Buxtehude: Befiel dem Engel dass er komm.
J.S. Bach: Konsert fyrir fiölu og hljómsveit í E-dúr.
Einleikari: Unnur María Ingólfsdóttir.
G.F. Handel: And the Glory of the Lord — Hallelujah
((Messías). The Trumpet Shall Sound.
Einsöngari: Kristinn Sigmundsson
(bassi).
Einleikarí: Lárus Sveinsson (trompet).
Hlé.
Hörður Áskelsson orgel.
Jón Leifs: Kaflar úr Oratoriunni Eddu op. 20.
Einsöngvarar: Kristinn Sigmundsson og
Jón Þorsteinsson.
F. Poulenc: Gloria.
Einsöngvari: Nancy Argenta (sopran).
Pólýfónkórinn skorar á alla vini og velunnara, einstakl-
inga og fyrirtæki aö styrkja framtak kórsins meó fjár-
framlagi í formi aögöngumióa á sérstöku styrktargjaldi
kr. 500.
Vinsamlega pantið styrktarmiöa í síma 27232, kl.
10.00—17.00, eöa sendið inn nafn og heimilisfang.
Nafn: .........................................
Heimilisf.: ...................................
Sími: .........................................
og sendist merkt: „Styrktarmiði Pólýfónkórsins" í póst-
hólf 1418, Rvk.
Ennfremur er miöasala í Bókabúö Sigfúsar Eymundsson-
ar, Feróaskrifstofunni Útsýn og Hljóöfærahúsi Reykjavík-
ur.
Veró aögöngumiöa kr. 250.
SHnqjmtU [nhih
Blaók) sem þú vaknar vid!
Deilur í Fulltrúaráði verkalýðsfélaganna
Varaformaður Dagsbrúnar
gekk af fundi
Haínarstjórn kyödcl
Síðasta karlrembuvigið talliö
Efiir Guómund J.
Guómundsson
Láglaunaforingjar útlægir
Guðmundur J. Guðmundsson, nýkjörinn formaður Dagsbrúnar,
lýsir því með eftirtektarverðum hætti hér í blaðinu í gær, hvernig
honum hefur verið úthýst úr hafnarstjórn Reykjavíkur af sínum
eigin flokksbræðrum. Á baksíðu Þjóðviijans í gær er skýrt frá því,
að Halldór Björnsson, varaformaður Dagsbrúnar, hafi orðið undir
í atkvæðagreiðslu í Fulltrúaráði verkalýðsfélaganna í Reykjavík,
þegar kosinn var eftirmaður Guðmundar J. Guðmundssonar í
stjórn Verkamannabústaða. Úr þeirri stjórn gekk Guðmundur J.
sjálfviljugur og vildi Halldór Björnsson, að formaður
Verkakvennafélagsins Framsóknar tæki sæti Guðmundar. Þessi
tillaga Halldórs náði ekki fram að ganga, hvarf hann þá af fundi
Fulltrúaráðsins og sagðist ekki sækja fleiri slíka.
Kveðja Guð-
mundar J.
Guðmundur J. Guð-
mundsson færir grein sína
hér í blaðinu i
skemmtilegan búning, en
engum dylst þó að sárindi
búa að baki. Hann segist
rita kveðju sína til hafnar-
stjórnar i Morgunblaöið,
þar sem honum hafi alsak-
lausum verið brigslað um
að hafa „hvorki áhuga né
tíma til að sinna kjara-
samningum, því ég væri
blóðugur til axla að berjast
fyrir endurkjöri mínu i
hafnarstjórn."
í forystugrein Morgun-
blaðsins hinn 10. júní sl.
sagði: „En „heimavarnar-
lið" Alþýðubandalagsins
leikur undir hrunadansinn
af miklu kappi — og hefur
ekki áhuga eða áhyggjur af
öðru en spaugilegum inn-
anflokksdeilum um skipun
flokksfulltrúa í hafnar-
nefnd Reykjavíkur." Eins
og grein Guðmundar J.
gefur til kynna, hafa inn-
anflokksdeilurnar innan
Alþýðubandalagsins um
þetta mál verið allt annaö
en,,spaugilegar".
í raun hefur Guðmundi
J. Guðmundssyni að eigin
sögn verið úthýst úr hafn-
arstjórn af „gáfumannafé-
laginu" í Alþýöubandalag-
inu og til að ýta Guðmundi
J. til hliðar, fengu óvinir
hans i flokknum Guðmund
Þ. Jónsson, formann
Landssambands iðnverka-
fólks, til aö bjóða sig fram
á móti honum. Það svíður
auðvitað nýkjörnum for-
manni Uagsbrúnar mest,
að iönaðarmaður sem hef-
ur „lengst af unnið við
framleiðslu á pillunum
„Hóstið ekki" „skuli sett-
ur í hafnarstjórn, en göml-
um baráttumanni
hafnarverkamanna úthýst.
Enda er sú ráðstöfun
óskiljanleg öllum öðrum
en þeim, sem eru innvígðir
í valdaklíkur Alþýðubanda-
lagsins.
Guðmundur J. Guð-
mundsson spáir flokks-
bróður sínum (iuðmundi
Þ. Jónssyni miklum frama
og segir, að hann þyki
„efnilegur í flokknum. Svo
efnilegur raunar, að segja
mætti mér að hann yrði þar
efnilegur til sjötugs." Við
þessi orð má bæta, að Guð-
mundur Þ. Jónsson er
borgarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins í Keykjavík
og stundaöi á sínum tíma
nám í „verkalýðsskóla" í
Sovétríkjunum, en slíkir
skólar þar í landi eru ekki
reknir nema undir forsjá
njósna- og öryggislögregl-
unnar KGB.
Deilan í Full-
trúaráðinu
l>egar skýrt var frá því
hér í blaðinu 3. júní sl„ að
deilur væru um mann í
hafnarstjórn innan Alþýðu-
bandalagsins, kom það
jafnframt fram í fréttinni,
að Guðmundur J. Guð-
mundsson sæti ekki á frið-
arstóli innan Dagsbrúnar,
því að Halldór Björnsson,
varaformaóur félagsins,
væri að seilast til áhrifa í
sterkasta vígi Guðmundar
J„ það er meðal hafnar-
verkamanna. Staða llall-
dórs í þessum átökum
styrkist við það, að Guð-
mundur J. Guðmundsson á
ekki lengur setu í hafnar-
stjórn. „Eg hef alltaf álitið,
að forystumaður úr
Dagsbrún ætti nokkurt er-
indi í hafnarstjórn, enda
höfnin stærsta vinnusvæöi
félagsins," segir Guð-
mundur J. hér í blaðinu í
gær. Mikið er í húfi.
Skvldi það vera tilviljun,
að á sama tima og þessi
stórdeila er um hafnar-
stjórnina í Alþýðubanda-
laginu. verður Halldór
Björnsson undir í atkvæða-
greiðslu í Fulltrúaráði
verkalýðsfélaganna um eft-
irmann Guðmundar J.
Guðmundssonar í stjórn
Yerkamannabústaða? Þeg-
ar litið er yfir nöfn þeirra,
sem í Fulltrúaráðinu sitja,
er Ijóst, að yfirlýstir alþýðu-
bandalagsmenn geta þar
ráðið því sem þeir vilja,
standi þeir saman. Þess
vegna eru það
alþýðubandalagsmenn,
sem felldu þá tillögu Hall-
dórs Björnssonar, að
Ragna Bergmann, formað-
ur l'erkakvennafélagsins
Framsóknar, tæki sæti
Guðmundar J. í stjórn
Yerkamannabústaðanna.
Þessa niðurstöðu kallar
Halldór „valdníðslu" að
sögn Þjóðviljans.
I Þjóðviljanum er þessi
deila í fulltrúaráðinu sett
upp sem átök milli lág-
launafólks og „uppmæl-
ingaraðalsins". sem stjórn-
aö er af formanni
verkalýðsmáláráðs Alþýðu-
bandalagsins, Benedikt
Davíðssyni. Það var sem sé
Benedikt og hans lið, sem
kúgaði varaformann
Dagsbrúnar, og hefur
hrakið hann úr Fulltrúa-
ráði verkalýðsfélaganna t
Keykjavík.
I fulltrúaráðinu var einn
maður sjálfkjörinn i stjórn
Yerkamannabústaðanna.
Hver skyldi hann hafa ver-
ið? Jú. enginn annar en
Guðmundur Þ. Jónsson,
sem er „efnilegur í flokkn-
um", eins og Guðniundur
J. Guðmundsson, fyrrum
hafnarstjörnarmaður og
fyrrum stjórnarmaður í
Yerkamannabústöðunum,
hefur bent á. Enn er spurt:
Eru ekki tengsl á milli
hafnarstjórnarrimmunnar
og átakanna í Fulltrúaráði
verkalýðsfélaganna? Að
minnsta kosti eru það
sömu alþýöubandalags-
mennirnir, sem berjast á
báðum stöðum.
Líflegar heimsóknir til
Borgarnesi, 23. júní.
í veðurblídunni sem hér hefur
ríkt undanfarið hafa Borgnesingar
fengið líflegar heimsóknir. Á
sunnudaginn kom 70 manna
skólalúðrasveit frá Norður-Noregi
og lék fyrir fjölda fólks í Skalla-
grímsgarði við góðar undirtektir
áheyrenda.
I gær sýndi síðan sýningarflokk-
urinn Hell Drivers (Vítis-
ökumenn) listir sínar fyrir
Borgarness
Borgnesinga og nágranna á
íþróttavellinum. Léku ökuþór-
arnir hinar ótrúlegustu listir
með bílum og vélhjólum, svo úr
varð hin skemmtilegasta sýning.
HBJ.