Morgunblaðið - 26.06.1982, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1982
Líbanon er hrífandi lítið land
á viðkvæmum stað. Úrelt
stjórnkerfi þjóðarinnar leiddi
til upplausnar, þar sem kristnir
menn og múhameðstrúar
deildu. Tómarúm skapaðist og
Palestínuarabar fylltu þaö
1970, þegar PLO, frelsishreyf-
ing þeirra, var gerð útlæg frá
Jórdaníu. 1976 sendu Sýrlend-
ingar her inn í Líbanon með
samþykki kristinna Líbana.
Sýrlenski herinn stillti til friðar
í grimmilegu borgarastríði, þar
sem kristnir menn og félagar í
PLO börðust. 1978 gerðu Is-
raelsmenn innrás í Suður-Líb-
anon til að „friða“ svæðið næst
landamærum sínum og hrekja
skæruliða PLO þaðan. ís-
raelsmenn drógu sig í hlé, þeg-
ar friðargæslusveitir Samein-
uðu þjóðanna voru sendar á
vettvang.
Kristnir Líbanir snerust gegn
Sýrlendingum 1978 og hafa notið
stuðnings Israelsmanna. Næst
fyrir norðan landamæri Israels
er smáræma af Líbanon, þar
sem Haddad, kristinn, fyrrver-
andi majór í her Líbana, hefur
farið með völd í skjóli Israels-
manna. Þar fyrir norðan var
landræma undir eftirliti
friðargæslusveita SÞ. Síðan tóku
PLO-menn við, þá sýrlenski her-
inn við Beirút og í austurhluta
borgarinnar var yfirráðasvæði
kristinna manna, sem teygir sig
norður eftir ströndinni.
PLO hefur stundað hernað frá
yfirráðasvæði sínu á Israel með
því að skjóta eldflaugum yfir
gæslusveitir Sameinuðu þjóð-
anna og Haddads-land inn í Gal-
íleu. Þegar ísraelsmenn gerðu
innrás í Líbanon 6. júni, var það
yfirlýst markmið þeirra að
hrekja PLO-menn af 40 km
svæði fyrir norðan friðargæslu-
sveitir SÞ og koma þannig í veg
fyrir, að þeir gætu skotið á
byggðina í Galíleu — þess vegna
_>< "''gola’n "Jk.
-----------—--------
> ^Kyrlat-Chmoneh
* Cháteau de Beaulort ISRAEL
Innrásin í
Líbanon og örlög PLO
Þetta kort birtist í franska vikuritinu l’Express. Sé litið á það frá landamærum
ísraels, þá sjást við ströndina hafnarborgarinnar þrjár Tyrus, Sídon og Dam-
our, sem ísraelsmenn hafa lagt undir sig. í Hasabaiy, krossfarakastalanum
gamla, Chateau de Beaufort og Nabatieh höfðu PLO-menn búið um sig, þessir
staðir eru allir á valdi ísraelsmanna. Marjayoun er aösetur Haddads majórs,
en hann segist nú ætla að flytja höfuðstöðvar sínar til Sídon. Gæslusveitir
Sameinuðu þjóðanna hafa verið við Litani-ána, á milli yfirráðasvæða PLO og
Haddads. Sýrlendingar hafa haft her sinn við þjóðveginn frá Beirút til Dam-
askus. ísraelsraenn hafa nú náð hluta hans á sitt vald og lokað PLO-menn inni
á svæðinu í kringum flugvöllinn við Beirút og út á tanganum, sem teygir sig út
í Miðjarðarhafið. Beirút skiptist á milli múhameðstrúrarmanna og kristinna-
manna og eru kristnir með öll völd í austurhluta borgarinnar, það er að segja í
átt að bænum Jounieh á kortinu, en sá bær er í kristna hlutanum og ströndin
fyrir norðan hann. ísraelski landamærabærinn Metulla, sem nefndur er í
greininni er rétt hjá Cahteau de Beaufort.
þjóðanna í Líbanon fyrir rúmu
ári hittum við stundum hermenn
ríkisstjórnar Líbanon, því að
hún er til, þótt völdin séu lítil
sem engin. Yfir hermönnum líb-
önsku stjórnarinnar var mun
friðsamari blær en yfir hersveit-
um Sýrlendinga og hermönnum
PLO. Fréttir frá Beirút herma
nú, að hugmyndir séu uppi um
að styrkja líbanska herinn og
láta hann taka við þeim svæðum,
sem ísraelsmenn hafa hernumið,
og gæta þar laga og reglu í nafni
nýrrar líbanskrar ríkisstjórnar
með stuðningi efldra
friðargæslusveita Sameinuðu
þjóðanna með þátttöku Banda-
ríkjanna.
Fáni ísraels blaktir i hafnarborginni
Sídon og ísraeismenn fylgjast með
götulífinu.
var herförin nefnd „Friðun Gal-
íleu“. ísraelsher lét hins vegar
ekki staðar numið, fyrr en hann
hafði umkringt höfuðstöðvar
PLO í Beirút, eyðilagt eld-
flaugapalla Sýrlendinga í
Bekaa-dalnum og hrakið sýr-
lenska herinn hálfa leið út úr
Líbanon og höggvið á leið hans
inn í Beirút með því að leggja
undir sig hluta þjóðvegarins
milli Beirút og Damaskus, höf-
uðborgar Sýrlands.
★
Þeim, sem hefur kynnst stað-
háttum á hernámssvæði ísra-
elsmanna í Suður-Líbanon, er
ljóst, að það verður ekki auðvelt
að „friða" landið á svipstundu.
ísraelski herinn hefur gengið
fram af miskunnarleysi. Sagt er,
að 600 þúsund manns séu heimil-
islausir, meira en 10 þúsund hafi
fallið og nálægt 20 þúsund séu
særðir. Land er erfitt yfirferðar
á þessum slóðum og vafalaust
hafa fámennir hópar PLO-
manna farið í felur og hyggja á
skæruhernað. Israelsmenn hafa
bannað allar ferðir útlendinga,
jafnvel hjálparsveita, um hið
hernumda land. Bendir það til
þess, að nú sé óvinarins leitað
dyrum og dyngjum.
Örlög Palestínumanna eru svo
sannarlega ömurleg. Þeir fá
hvergi fastan samastað og jafnt
Israelsmenn sem Arabaþjóðirn-
ar líta þá hornauga og vilja sem
minnst af þeim vita. Fjölmenn-
astir eru Palestínumenn í Jórd-
aníu, hins vegar rak Hussein,
konungur Jórdaníu, leiðtoga
PLO úr landi sínu, þegar honum
þótti öryggi lands síns stefnt í
hættu með návist þeirra. Þá
settust PLO-menn að í Líbanon
og hafa síðan stundað stríð sitt
gegn ísrael þaðan og stjórnað
um 500 þúsund Palestínu-
mönnum, sem leitað hafa hælis í
Líbanon. Staðreynd er, að það er
tilvist PLO í Líbanon en ekki
innrás ísraelsmanna, sem hefur
eyðilagt Líbanon sem ríki. Sýr-
lendingar óttast að hið sama
kunni að gerast í landi sínu leyfi
þeir PLO að setjast að þar.
A ferðalagi með norskum her-
mönnum í gæsluliði Sameinuðu
Auðvitað eiga bæði ísraels-
menn og Sýrlendingar að hverfa
á brott frá Líbanon og láta
landsmenn sjálfa ráða örlögum
sínum. Og PLO-menn eiga einn-
ig að hverfa frá Líbanon. Allir
vita hvert ísraelsmenn og Sýr-
lendingar geta farið — inn fyrir
eigin landamæri. En hvað á að
gera við Palestínuaraba? PLO
starfar undir því kjörorði, að ís-
raelsríki skuli eytt. ísraelsmenn
munu aldrei þola, að PLO takist
að efla hernaðarmátt sinn að
nýju í nágrenni ísraels. — Við
Námskeið byggt á
danskenningum Rud-
olf Labans í Kenn-
araháskóla Islands
Sumarnámskeið Kennaraháskóla
íslands eru nú í fullum gangi. í tilefni
af einu þeirra er nú stödd hér á landi
danskennarinn Joan Kussell. Stóð
hún fyrir námskeiði sem heitir „Dans
í kennslu” og hófst mánudaginn 21.
júní og lauk fostudaginn 25. júni. Er
námskcið þetta einkum ætlað kennur-
um þó að fleiri geti haft not af því.
Joan Kussell notar ýmsar aðferðir við
kennsluna, bæði notar hún kvik-
myndir og kennir beint.
Io,in Rnssel? var Tipmandi Rndolf
Laban í „The Art of Movement
Studio“ og hún setti dansdeildina
við Worchester-kennaraháskólann
á stofn árið 1952. Einnig hefur Joan
Russell skrifað þrjár bækur um
dans og danskennslu, „Modern
Dance in Education" (1958), „Crea-
tive Dance in the Primary School"
(1965) og „Creative Dance in the
Secondary School" sem kom út árin
1969 og 1982. Hún hefur einnig séð
um danssýningar í Worcester-dóm-
kirkjunni, þar sem bænir og dæmi-
sögur hafa verið dansaðar. Þá hefur
hún séð um þátt fyrir BBC sem
nefnist „Seeing and Believing" og
verið formaður „Laban Art of
Movement Guild". Hún hefur að
aiiki haldið fiðlda fvrirlestra víða
um heim.
Þetta er fyrsta ferð Joan Russell
til íslands og um Rudolf Laban,
upphafsmanna þeirrar dansaðferð-
Joan Russel vinstra megin i myndinní umkringd nemendum sínum i íslandi.
ar sem hún er að kenna á námskeið-
inu i Kennaraháskólanum, sagði
hún, að hann hefði verið frá Brat-
islawa í Tékkóslóvakíu en starfað
mest í Þýskalandi. Hann kom fram
með þá konningu að dans ætti ckki
síður að vera þáttur af lífi fólks
með enga þekkingu á dansi og út frá
þessari hugmyndi setti hann á stofn
dansskóla og nokkuð sem var alveg
nýtt af nálinni, danskóra.sem voru
gríðarstórir hópar af dönsurum.
Hugmyndir Labans féllu ekki Hitl-
er í geð og 1939 flýði Rudolf Laban
frá Þýskalandi til Englands þar
sem honum var mjög vel tekið og
hugmyndir hans náðu mikilli út
breiðslu. Þar hafa hugmyndir hans
verið mikið notaðar í sambandi við
kennslu og mikil áhersla er lögð á
barnið sem einstakling og sjálf-
stæðan persónuleika.
Þetta námskeið er einkum miðað
við kennara barna á aldrinum sex
til níu ára, ekkert endilega við
íþróttakenna, og sagði Joan Russell
að hún legði á það áherslu, að kenn-
eigin dansa og tjá sig í eigin döns-
um. Einnig sagði hún að frjáls og
skapandi dans í anda Rudolf Lab-
ans væri mjög gagnlegur fyrir
þroskaheft börn.